ÞARF ENGA "SPEKINGA" TIL AÐ SJÁ ÞETTA

En aftur á móti virðist vera til slatti af fólki, sem er í ALGJÖRRI AFNEITUN fyrir því hvað er í gangi á evrusvæðinu og í ESB almennt og/eða öll skilningarvit harðlokuð.  Og meira segja eru menn svo forstokkaðir að það er stofnaður stjórnmálaflokkur á Íslandi um INNLIMUN í ESB og aðrir eru með það sem sitt helsta markmið.  Menn hljóta að spyrja sig: ERU ENGIN TAKMÖRK FYRIR HEIMSKUNNI?


mbl.is „Einn daginn mun spilaborgin hrynja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ÞANGAÐ SÆKIR KLÁRINN, ÞAR SEM HANN ER KVALDASTUR"

Er fólki virkilega ummunað að endurupplifa hörmungarnar, sem Gunnarsstaða Móri og Heilög Jóhanna, stóðu fyrir á síðasta kjörtímabiliÞað er rétt að minna á það að núverandi formaður VG STÓÐ ÞÉTT VIÐ BAKIÐ Á GUNNARSSTAÐA MÓRA OG STUDDI AF EINURÐ ÖLL HANS VERK ÁN ÞESS  AÐ ÆMTA EÐA SKRÆMTASANNAST KANNSKI HIÐ GAMALKVEÐNA "AÐ OFT ER FLAGÐ UNDIR FÖGRU SKINNI"................


mbl.is Aukið fylgi Vinstri grænna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐVITAÐ SPILAR INN Í HVERNIG "GÓÐA FÓLKIÐ" OG NO BORDER- LIÐIÐ TEKUR Á MÁLUM

Að sjálfsögðu ganga þessar "Tröllasögur" manna á milli í þessum löndum og gera það að verkum að þeir sem hugsa sér á annað borð til hreyfings, líta á það sem mjög vænlegan kost að fara til Íslands, því þar sé mjög auðvelt að spila á tilfinningasemi einhverra einfeldninga, sem í það minnsta hugsi afskaplega lítið.


mbl.is Yfir 300 hælisleitendur á 6 vikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"NEVER ENDING STORY"?? - JÚ HÚN ENDAR ÞEGAR HÖFNIN FYLLIST AF SANDI OG EKKI VERÐUR VIÐ NEITT RÁÐIÐ.

En alveg þar til að hinn sári sannleikur rennur upp fyrir forráðamönnum Vegagerðarinnar, halda þeir áfram að berja hausnum í steininn (en það er alveg borin von að steinninn brotni á undan hausnum, sama hve menn hamast, djöflast og gera sér gyllivonir).  En þá verður væntanlega farið að leita að sökudólgi og sennilega má hún Sigga, sem skúrar, fara að passa sig því ekki verða "silkihúfurnar sem stjórna, látnar sæta ábyrgð og Vestmannaeyingar þurfa að sitja uppi með 0 samgöngur milli Lands og Eyja.


mbl.is Breytt áætlun Herjólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÆTTI HALDA AÐ FLESTIR INNLIMUNARSINNAR SÉU MEÐ SKÍT Á MILLI EYRNANNA..

Þegar þeir reyna að halda fram LYGINNI UM AÐ TIL SÉ EITTHVAÐ SEM HEITIR "KÖNNUNARVIÐRÆÐUR" VIÐ ESB ÞEGAR ÞEIM ÆTTI VEL AÐ VERA KUNNUGT UM HIÐ GAGNSTÆÐA.  Viðreisn er eina INNLIMUNARFRAMBOÐIÐ sem kemur alveg GRÍMULAUST fram og vill þjóðaratkvæðagreiðslu um INNGÖNGU í ESB og fá þeir smá plús í kladdann fyrir að segja það bara hreint út en vera ekki með einhvern "lygaleik" eins og hin INNLIMUNARFRAMBOÐIN.


mbl.is Hvað skilur að í stóru málunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MIKLAR YFIRLÝSINGAR EN AFSKAPLEGA LÍTIÐ SAGT.............

Annað en það að Píratar hafa nú staðfest það að þarna er um að ræða HEFÐBUNDINN VINSTRI FLOKK, þeir boða breytingar á stjórnmálum en geta ekkert sagt um það í hverju þessar breytingar verða fólgnar.  Eitthvað virðast landsmenn vera farnir að  sjá í gegnum málskrúðið, ef eitthvað er að marka síðustu skoðanakannanir og svo gæti bara farið að þeir megi þakka fyrir að halda inni þremur þingmönnum, þegar upp verður staðið.  Það gæti verið að Birgitta og félagar hafi ekki alveg efni á þessum hroka sem þau sýna af sér í dag.....


mbl.is Píratar útiloka stjórnarflokkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín.

Áður en lengra er haldið er rétt að taka fram að efnið getur verið varasamt fyrir viðkvæma einstaklinga og sært blygðunarkennd þeirra verulega. Þeim einstaklingum er ráðlagt að hætta lestrinum ekki seinna en núna.

 

  • „Mamma!, koma börnin ekki út þar sem þau komu inn“? Spurði Sigga.
  • „Jú, hvers vegna spyrðu. Sagði mamma hennar.
  • „Nei, ég var bara að hugsa um hvort tennurnar í mér myndu nokkuð brotna þegar barnið hans Skúla fæðist“. Sagði Sigga þá.

HANN ER HÁLL SEM ÁLL

..En vonandi tekst að koma lögum yfir manngerpið, en það virðist ætla að ganga erfiðlega... yell


mbl.is Stefna Björgólfi Thor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MIKIÐ VAR AÐ EINHVER TÓK VIÐ SÉR Á ALÞINGI

Það furðar marga að ekkert hafi þokast í þessu máli fyrr, í það minnsta er fyrir LÖNGU orðið tímabært að menn fari að stöðva þessi hryðjuverk hjá Degi B og félögum í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur, gagnvart Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni.  Eins og Ómar Ragnarsson benti á, þá ætti að vera mjög auðvelt að sætta öll sjónarmið með því að setja hluta af Neyðarbrautinni á fyllingu út í Skerjafjörð og málið væri afgreitt, þá geta Valsmenn reist þessar fyrirhuguðu byggingar sínar.


mbl.is Vill heimila eignarnám við flugvöllinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VILL ÞJÓÐIN VIRKILEGA FÁ VINSTRA KRAÐAK OG TÓMT BULL YFIR SIG Á NÆSTA KJÖRTÍMABILI?

Og með Pírata í forystu, það sem hefur sýnt sig að vera ALGJÖRLEGA ÓFÆRT AFL um að gera nokkurn skapaðan hlut, HVORT SEM ER AF VITI EÐA EKKI. Ef þetta yrði niðurstaða kosninga í haust er ljóst að það reynir mikið á forsetann að ná þessum sundurleita hópi saman og nokkuð ljóst að það verður ekkert einfalt mál að mynda hér starfhæfa ríkisstjórn.


mbl.is Sjö flokkar á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÓ SVO AÐ HÚN SÉ LENGI AÐ LESA OG ÁTTA SIG Á HLUTUNUM...

Þá er síður en svo að allir aðrir þurfi að vera það líka.  Svo er Hraðlestrarskólinn með alveg prýðileg hraðlestrarnámskeið sem hún hefði gott af að fara á og ekki virðist hinum þingmönnum Pírata veita af að fara líka á svoleiðis námskeið miðað við þær afsakanir sem þeir hafa uppi vegna slælegra mætinga á nefndarfundi.


mbl.is Ekki upplýstar ákvarðanir á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"BAKKAMÁLIÐ" ER DÆMIGERT FYRIR UNDIRFERLI OG LÚAHÁTT VINSTRI MANNA

Það er bara svo einfalt að það var búið að heimila ALLAR framkvæmdir vegna Bakka (þar með taldar allar línulagnir).  Þessi nýju náttúruverndarlög, sem Landvernd byggir sitt mál á VORU SETT EFTIR ÞAÐ OG EINS OG ALLIR EIGA AÐ VITA ÞÁ ERU LÖG ALDREI AFTURVIRK OG ÞVÍ EIGA ÞAU EKKI VIÐ Í ÞESSU TILFELLI.  Þetta er því alveg úr lausu lofti gripið og er algjört lágmark að þessi svokölluðu náttúruverndarsamtök fari að lögum í "baráttu" sinni.


mbl.is Þingi frestað vegna Bakkamálsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS" HAFÐI "JÖFNUÐINN" AÐ LEIÐARLJÓSI Í SÍNUM AÐGERÐUM????

En formaður þingflokks LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR er að sjálfsögðu ekki tilbúinn til að rifja upp "afrekalista" þeirra ríkisstjórnar, sem hann studdi með kjafti og klóm.  Var mikill jöfnuður í því að færa erlendum vogunarsjóðum þrotabú bankanna á silfurfati með 50% afskriftum skulda heimilanna en svo áttu heimilin að greiða þessar sömu skuldir 100%Hver var jöfnuðurinn í hinni svokölluðu 110% leiðÍ hverju var jöfnuðurinn fólgin þegar síðasta ríkisstjórn stóð fyrir því að 9000 fjölskyldur misstu eignir sínar á uppboð og voru settar á leigumarkaðinnVar verið að skapa jöfnuð með því að rústa atvinnulífinu hér á landi á síðasta kjörtímabiliVar verið að auka hér jöfnuð með því að HÆKKA skatta og álögu upp úr öllu valdiÁtti að auka hér jöfnuð með því að láta þjóðina taka Ice(L)ave á sig?  Svona mætti lengi telja en þessi litla upptalning sýnir að sumum er aðeins hollara að hugsa áður en þeir opna þverrifuna á sér....


mbl.is „Ánægður með ójöfnuðinn?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN HLUSTAR EINHVER Á ÞAÐ SEM "ÚTFARARSTJÓRINN" ER AÐ TUÐA?

Það er með ólíkindum hversu hart "Vinstri Hjörðin" (Oddný og fleiri) ganga fram í því að gera lítið úr góðum árangri núverandi ríkisstjórnarflokka.  Það er alveg ótrúlegt hvað þetta lið heldur lyginni um að þessir flokkar hafi LÆKKAÐ veiðigjöldi, til streytu, þegar staðreyndin er sú að tekjur ríkisjóðs af veiðigjöldum HÆKKUÐU á þessu kjörtímabili.  Og að halda því fram að síðasta ríkisstjórn hafi HÆKKAÐ bætur, er einhver sú allra mesta rangfærsla, sem heyrst hefur.  Skyldi það vera sameiginlegt helsi hjá öllum innan "Vinstri Hjarðarinnar" að roðna þegar þeir segja satt?


mbl.is Ríkisstjórnin fór illa með árangurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA ER "GÓÐA FÓLKINU" ALVEG RÉTT LÝST........

Það er bara vaðið áfram og framkvæmt þegar því dettur í hug og EKKERT hugsað um afleiðingarnar.  Þær eru seinni tíma vandamál ............


mbl.is Óvissa um æfingaaðstöðu lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HAFA ORÐIÐ EINHVERJAR BREYTINGAR SEM ÚTSKÝRA FYLGISAUKNINGU?

Sé það raunin hefur sú breyting farið MJÖG hægt og ljótt yfir.  En þó svo að flokkurinn "rétti" aðeins úr sér í einni skoðanakönnun, virðast sömu örlögin hanga yfir þessum tveimur eins-máls flokkum, Bjartri Framtíð og LANDRÁÐAFYLKINGUNNI, því fylgið frá þeim virðist leita til Viðreisnar, sem þó hefur TVÖ mál á sinni stefnuskrá (aðild að ESB og að "rústa" sjávarútveginum).


mbl.is BF kæmi mönnum á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRIR ÞAÐ FYRSTA EIGA LÍFEYRISSJÓÐIRNIR EKKERT TIL AÐ LÁNA

Það er nefnilega málið að lífeyrissjóðirnir, sem slíkir "eiga" ekki nokkurn skapaðan hlut.  Það eru sjóðsfélagarnir sem "eiga" allar þessar Eignir sem eru taldar vera í eigu lífeyrissjóðanna.  Og það nöturlega við þetta allt saman er það að reglulega eru sjóðfélagarnir að fá bréf frá stjórnum lífeyrissjóðanna, þar sem þeim er tilkynnt að lífeyrisréttindi þeirra hafi verið SKERT vegna þess að lífeyrissjóðurinn GETUR EKKI STAÐIÐ VIÐ SKULDBINDINGAR SÍNARHvernig stendur þá á því að það eru til fjármunir til útlána?


mbl.is Fráleitt að lífeyrissjóðum verði bannað lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MIKIÐ UM AÐ VERA Í KAPPAKSTRI DAGSINS

Helsta málið var að sjálfsögðu slagur Red Bull ökumannanna um sigurinn og fram að þeim tíma sem sýndar-öryggisbíllinn kom út (Öryggisbíllinn sem slíkur kom aldrei út í þessari keppni en sýndar-öryggisbíllinn kom tvisvar sinnum út en á þessu tvennu er mikill munur.  Þegar sýndar-öryggisbíllinn er kallaður út eiga ökumenn að halda þeirri fjarlægð í næsta bíl sem var áður en hann var kallaður út en þegar raunverulegur-öryggisbíll er kallaður út eiga bílarnir að raða sér upp á eftir honum), voru yfirburðir Max Verstappen yfir Daniel Ricciardo mjög miklir enda var hann á nokkuð nýlegum dekkjum og bara tímaspursmál hvenær hann næði að taka framúr Ricciardo og ná þannig sigrinum.  Því varð það stóri vinningurinn fyrir Ricciardo að þeir voru báðir kallaðir inn og vilja menn meina að þarna hafi verið í gangi nokkurs konar "liðsskipun" og spurning hvort þetta eigi eftir að hafa einhverja eftirmála, í það minnsta var Max Verstappen allt annað en ánægður í viðtali á Channel 4.  Það var gaman að sjá að sjá að Jenson Button skyldi ná 7 sæti í sínum 300 kappakstri og enn eftirtektaverðara var að sjá Alonso koma úr síðasta sæti á ráslínu og ná því níunda.  Þá sýndi Rosberg óvenju mikla "grimmd" eftir snúninginn eftir samstuðið við Vettel í fyrstu beygju en eftir það lenti hann í síðasta sæti en með frábærum akstri og mörgum skemmtilegum framúr ökstrum, náði hann þriðja sætinu að lokum.  Nú er Rosberg með 23 stiga forskot á Hamilton og spurning hvort Hamilton tekst að vinna það forskot upp í þeim fimm kennum sem eru efir?  Þetta var í 100 skipti sem Hamilton hefur keppni á fremstu "ráslínu2 og vissulega hefði verið skemmtilegra fyrir hann að klára keppnina en svona er Formúlan, menn vita aldri hvað getur gerst....


mbl.is Verstappen maður dagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband