ER EKKI TIMI TIL KOMINN AÐ VIÐ ENDURSKOÐUM FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ???

Aldrei hefur verið hægt að sanna að eitthvað ólöglegt hafi átt sér stað og meira að segja var forstjóri Samherja svo óforskammaður að heimta það að Seðlabankastjóri yrði saksóttur vegna rannsóknar og húsleitar, sem bankinn framkvæmdi á Samherja og það sem alvarlegra er að fyrrverandi Forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) blandaði sér í málið með því að senda til lögreglu meintan „leka“ frá Seðlabankanum til RÚV.  EN ÞAÐ ER RÉTT AÐ ÞAÐ KOMI FRAM AÐ MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ, VEGNA FORMGALLA.  ÞAÐ ER EKKI RÉTT AÐ SAMHERJI HAFI VERIÐ SÝKNAÐUR Í ÞESSU MÁLI eins og margir hafa viljað halda fram, þar á meðal forstjóri Samherja, MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ OG KOM EINFALDLEGA ALDREI TIL ÞESS AÐ FJALLAÐ VÆRI UM ÞAÐ EFNISLEGA.

En það að þetta Samherjamál kom upp, segir það okkur ekki að það er full ástæða til að rannsaka viðskipti og viðskiptahætti ALLRA stóru sjávarútvegsfyrirtækjanna á Íslandi? Fyrir daga kvótakerfisins og fyrstu ár þess, voru á markaðnum tveir risar í sölu á fiski á erlenda markaði Þetta voru SÍS (Samband Íslenskra Samvinnufélaga) og SH (Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna).  Skiptingin á milli þessara sölusamtaka var nokkuð skýr,  SÍS sá um söluna fyrir kaupfélögin og fyrir þá sem voru „Framsóknarmegin“ í pólitíkinni en SH sá um söluna fyrir þau fyrirtæki sem voru „Sjálfstæðisflokksmegin“ í pólitíkinni.  En þá kom Samherji til sögunnar og riðlaði „öllu sölukerfinu“ með því að stofna sín eigin sölusamtök og eftir það hafa þessi tvö sölusamtök smám saman verið að lognast útaf misjafnlega hratt þó.  En eitt er þó sem ætti að hafa í huga: SAMHERJI HEFUR ALVEG FRÁ UPPHAFI SINNAR ÚTGERÐARSÖGU ALDREI SETT EINN EINASTA SPORÐ Á MARKAÐ.  Og hvers vegna skyldi það vera?  Jú, því er auðsvarað.  Ef þarf að greiða markaðsverð fyrir fiskinn, hagnaður útgerðarinnar eykst og þá verður erfiðara að réttlæta það að áhöfnin taki þátt í að greiða olíuna á fiskiskipin og að dregið sé af launum sjómanna til að taka þátt í nýsmíði fiskiskipaflotans og ekki nokkur leið að réttlæta LÆKKUN veiðigjalda og um leið verður minni hagnaður til að flytja úr landi, í skattaskjól fyrir eigendur fiskvinnslufyrirtækjanna, sem einnig eru með útgerð á sinni könnu.

Eru menn virkilega svo barnalegir að halda að Samherjamenn séu þeir einu sem stunda þetta?  Frá lýðveldisstofnun, sáu þessu tvenn sölusamtök um að selja fiskinn úr landi og að hluta til eftir að kvótakerfið var sett á.  Þetta var til þess að útgerðin fékk skammtað eins skít úr hnefa „afkomu“ sem svo aftur og aftur kallaði á gengisfellingar Íslensku krónunnar, til að rétta hlut útgerðarinnar.  Fljótlega áttuðu útgerðarmenn sig á því að til þess að „mjólka“ sem mest út úr fiskveiðiauðlindinni YRÐU þeir að koma sér upp FISKVINNSLU, þeir útgerðarmenn sem voru  svo framsýnir og sáu þetta á sínum tíma, STJÓRNA SJÁVARÚTVEGSMÁLUNUM Á ÍSLANDI Í DAG. En svo kom Samherji til sögunnar, þeir stofnuðu sitt eigið sölufyrirtæki, þannig gerðu þeir tengslin milli útgerðar og vinnslu mun sterkari en áður hafði verið.  Umskiptin urðu ekki á einni nóttu en smám saman „lognuðust“ þessi tvö sölufyrirtæki útaf og útgerðin varð öflugri.  ÞARNA ER KOMIN SKÝRINGIN Á ÞVÍ HVAÐ VELDUR ÞVÍ AÐ ÚTGERÐIN ER MEÐ SVONA MIKLU BETRI AFKOMU EFTIR AÐ KVÓTAKERFIÐ VAR SETT Á.   Þetta telja stuðningsmenn kvótans, vera sín „sterkustu rök“ fyrir því að viðhalda núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og dæmi nú hver fyrir sig.

Stærsti þátturinn í að þetta SVINDLI var og er mögulegt, er þetta TVÖFALDA VERÐLAG SJÁVARAFURÐA SEM HEFUR VERIÐ Í GILDI HÉR Á LANDI Í MARGA ÁRATUGI.  Annars vegar er fiskverð ákveðið af stjórnvöldum sem gildir um útgerðir sem eru aðgang að fiskvinnslu (hvaða gögn eru höfð til grundvallar er mér alveg hulin ráðgáta og sjálfsagt einhverjum fleirum en ég auglýsi eftir þessu hjá þeim sem til þekkja), hins vegar fer fiskur,  frá bátum sem EKKI eru með fiskvinnslu á sínum snærum, á fiskmarkað.  Þetta verður til þess að verð á fiski á markaði er mjög hátt, eins og kerfið er í dag og fiskverð til okkar neytenda verður þar af leiðandi miklu hærra en annars yrði.

Það var árið 1977, sem ég fór í mína fyrstu „siglingu“ á erlenda markaði með fisk.  Ég hugsaði ekki um það þá en það var nokkuð algengt að það væri tvöfalt til þrefalt verð á fiski á erlendum mörkuðum en það sem fékkst hér á landi.  Það var hægt að lenda í svokölluðum „downtúrum“ en verðin fóru mest eftir framboði og eftirspurn, árstíma, veðurfari og það albesta var að eiga „söludag“ fyrsta dag sem markaðir opnuð eftir jólahátíðina en þá var alveg pottþétt góð sala.  Ég man eftir einum alveg sérstaklega slæmum túr á togaranum Júní frá Hafnarfirði, sumarið 1978, en þá barst mjög mikill fiskur að landi og frystihúsið gat ekki tekið við aflanum frá okkur (við vorum á veiðum á vestfjarðamiðum og fengum á tíu dögum rúmlega 400 tonn af þorski), þá var brugðið á það ráð að senda okkur í „siglingu“ til Hull og svo áttum við að fara í slipp í South Sields, sem er rétt við Newcastle en norðan við Hull.  Það var mikil veðurblíða og gífurlega heitt í veðri þegar þetta var og skemmst frá því að segja að salan var ein allsherjar hörmung.  Sá hluti aflans sem seldist fór á mjög lágu verði og það sem verra var er að 90 tonn seldust bara alls ekki og var bara keyrt beint í GÚANÓ.  Árið 1985 fór ég svo í mína síðustu „siglingu“, þá seldum við „hæfilegt magn“ rétt fyrir jól og gerðum ágætis sölu.  Framan af var verið að „friða“ sjómenn, vegna þess hve fiskverð var lágt hér á landi, með því að gefa leyfi fyrir því að senda einn til tvo gáma af fiski á markaði í Englandi eða Þýskalandi (Þorskur,ýsa og koli fóru á England en karfi og ufsi fóru á Þýskaland). þetta lagðist af um 1990 hjá flestum og var því svarað til að ef menn væru óánægðir með fiskverðið skyldu menn bara fá sér aðra vinnu.

En hvað  er mögulegt að gera til að þessi svokallaði „GJAFAKVÓTI“ verði upprættur og öll spillingin í sambandi við hann.

Ég tel að það eigi að kippa „GJAFAKVÓTANUM“ af með það sama.  Við yrðum með kvótakerfi áfram en með annarri útfærslu.  Það sér það hver heilvita maður að þessi „sýndarmennska“, sem er í gangi með „GJAFAKVÓTANN“ í dag gengur engan veginn upp.  Þó svo að það standi í lögum um stjórnun fiskveiða að fiskveiðiauðlindin sé sameign þjóðarinnar, þá er reyndin ekki sú í raunveruleikanum.  Útgerðarmenn færa „kvótann“ sem EIGN  í bókhaldinu hjá sér og það sem meira er að kvótinn ERFIST og ekki nóg með það heldur KEMUR HANN TIL SKIPTA Í SKILNAÐARMÁLUM.  Það er svo mikil hrópandi mótsögn í þessu kerfi í dag að menn sem skoða þennan ófögnuð verður örugglega flökurt.  Fyrst og fremst tel ég að deila eigi kvótanum á milli byggðarlaga.  Segjum sem svo að Þorlákshöfn væri úthlutað 5.000 tonna þorskkvóta.  Í Þorlákshöfn landar síðan bátur 20 tonnum af þorski, þessi 20 tonn myndu dragast frá heildar þorskkvóta Þorlákshafnar, þannig að þar væru eftir 4.980 tonn af þorski.  En nú á útgerð þessa báts eftir að greiða fyrir að veiða þessi 20 tonn af þorski og væri gjaldið eitthvað hlutfall af aflaverðmætinu, t.d 20 % af aflaverðmæti, menn hljóta að sjá að það er náttúrulega tóm þvæla að veiðigjöld séu ákveðin eftir að tillit hefur verið til FJÁRFESTINGA og FJÁRAMAGNSLIÐA viðkomandi útgerðar, eins og gert er í dag.  Þannig að sumar stórútgerðir greiða ENGIN veiðigjöld, vegna þess að þau eru að fjárfesta svo mikið í skipum og búnaði (bara það að kaupa eitt flottroll verður til þess að ekki þarf að greiða nein veiðigjöld það árið). Það sem er aðalatriðið í þessu er að það eru byggðir landsins sem fengju kvótanum úthlutað og þær greiða síðan 50% af kvótasölunni til ríkisins.  Og svo er algjört grundvallaratriði að hver einasti landaður fiskur fari á markað þannig verði slitin tengslin á milli veiða og vinnslu, sem hefur verið helsta meinsemdin í Íslenskum sjávarútvegi.  Nú kunna ýmsir að reka upp ramakvein, en ég minni á það að það þurfa allar greinar iðnaðar að greiða gjald fyrir það hráefni sem er notað og því skyldi ekki útgerð gera það líka?  Þessi tekjustofn yrði síðan notaður til þess að fjármagna hafrannsóknir (og þá er ég að meina ALVÖRU hafrannsóknir ekki stofnanir eins og HAFRÓ sem stunda einhverjar rannsóknir sem eru ekki í neinu sambandi við raunveruleikann og skal þar fyrst minnst á „togararallið“ þeirra sem allt stofnstærðarmat þeirra á þorski byggist á) , veiðieftirlit og landhelgisgæslu.  Nú segja einhverjir að þeir sem eru í útgerð í dag og hafa KEYPT sínar veiðiheimildir, hvað á að gera í þeirra málum?  Þarna hafa flestir staðið á gati aðallega vegna þess að þessum fyrirtækjum hefur verið heimilað að EIGNFÆRA veiðiheimildirnar í bókhaldi sínu og síðar var þeim heimilt að VEÐSETJA þær en þá byrjaði nú VITLEYSAN fyrir alvöru menn fóru að taka LÁN út á óveiddan fisk (eins fáránlegt og það hljómar) og það sem meira er þessar heimildir eru í trássi við mörg gildandi lög (t.d lög um fiskveiðistjórnun og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar svo eitthvað sé nefnt).  Ég hef ekki á takteinum hvernig eigi að leysa skuldastöðu útgerðarinnar enda myndi ég nú telja að það þurfi að skoða hvert einstakt tilfelli fyrir sig, t.d verður að liggja alveg ljóst fyrir hvernig skuldirnar eru tilkomnar og hvers vegna var til þeirra stofnað.  Ef farin yrði sú leið að INNKALLA ALLAR veiðiheimildirnar á einu bretti, því að innkalla heimildirnar smátt og smátt held ég að sé eingöngu að flýja þann gríðarlega vanda sem við erum komin í með kvótakerfið og það býður eingöngu upp á að það verði gerð einhver „bráðabirgðaúrræði“ sem eingöngu myndu auka á þann vanda sem þegar væri til staðar, sem ég tel albesta kostinn í stöðunni, væru þeir aðilar sem eru nú þegar í útgerð með TALSVERT MIKIÐ forskot á þá sem hygðust koma inn í greinina því þeir ættu þegar skipin og veiðarfærin, sem eru notuð við veiðarnar.  Það er bara óhjákvæmilegt að sumar útgerðir eiga eftir að fara í gjaldrot, það gildir bara það sama um útgerðina og önnur fyrirtæki.  Málið er að það er alveg gífurleg offjárfesting í útgerðinni og ég er bara ekki alveg viss um að menn hafi farið eftir einhverri skynsemisreglu í þeim efnum.    Og svo er eitt alveg „stórkostlegt“ SJÓMENN GREIÐA VISSAN HLUT AF LAUNUM SÍNUM Í „NÝSMÍÐASJÓГ OG EKKI NÓG MEÐ ÞAÐ AÐ ALVEG SÍÐAN OLÍUKREPPAN (1973) VAR SKIPTAPRÓSENTUNNI BREYTT ÞANNIG AÐ SKIPTAPRÓSENTAN, VAR EKKI REIKNUÐ FYRR EN EFTIR AÐ OLÍUKOSTNAÐUR HAFÐI VERIÐ GREIDDUR OG ÞANNIG ER ÞETTA ENN ÞANN DAG Í DAG.

Svo er eitt mál, sem hefur verið alveg ótrúleg andstaða við á Alþingi og þá sérstaklega hjá stjórnarflokkunum (reyndar hjá stærstum hluta Alþingismanna, hvernig í ósköpunum sem getur staðið á því), EN ÞAÐ ER AÐ GEFA HANDFÆRAVEIÐAR ALVEG FRJÁLSAR.  Þá koma ráðamenn (síðast Fjármálaráðherra) og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló.  Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 40.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vega strandveiða til dæmis þetta veiðisvæðakjaftæði, annað hvort eru menn á handfæraveiðum eða ekki það skiptir ekki nokkru máli á hvaða „svæði“ þeir eru.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

 Með ráðstöfun af þessu tagi væri komið í veg fyrir að kvóti safnist til örfárra aðila, endurnýjun innan greinarinnar ætti að vera möguleg og einnig að byggð myndi lítið sem ekkert raskast en gæti styrkst aftur. Með því að nota þessa aðferð við veiðistjórnunina væri komið í veg fyrir svokallað kvótabrask og fiskvinnslan í landi gæti sérhæft vinnslu sína.

Það hefur mikið verið rætt um það að útgerðin „gæti ekki“ greitt fyrir veiðiheimildirnar, þetta er náttúrulega bull og ekkert annað.  Ég veit ekki um neina atvinnugrein, sem ekki þarf að greiða fyrir hráefnið í lokaframleiðslu sína.  Að sjálfsögðu á útgerðin að greiða eitthvað fyrir hráefnið og ekki væri óeðlilegt að 20% af lönduðum afla færi í svokallað veiðigjald. 

EINA RAUNVERULEGA LAUSNIN Á ÞESSU VANDAMÁLI MEÐ TVÖFÖLDU VERÐLAGNINGUNA, ER AÐ ALLUR FISKUR FARI Á MARKAÐ OG ALLIR FISKKAUPENDUR SITJI VIÐ SAMA BORÐ.  OG ÞÁ ÞARF AÐ EFLA MIKIÐ ALLT GJALDEYRISEFTIRLIT HÉR Á LANDI OG KOMA Í VEG FYRIR AÐ GJALDEYRIR SKILI SÉR EKKI TIL LANDSINS.

Bæði ráðuneytisstjórinn og skrifstofustjórinn eiga að víkja og nýi ráðherrann kemur með ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra með sér.  Með þessari ráðstöfun yrði komið í veg fyrir ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar ráðuneytanna stjórnuðu í raun og veru og svo er náttúrulega ekki gott að fólk fái sigg á ra....... vegna of langrar setu á vissum stólum...........


AF HVERJU EIGA ÍSLENDINGAR AÐ TAKA MÁLSTAÐ DANA Í ÞESSARI DEILU????

Að mínum dómi hafa Danir ekki gert nokkur skapaðan hlut til að verðskulda það að Íslendingar styðji við bakið í þessu  máli.  Ég tel það    best fyrir Grænlendinga  að verða ALGJÖRLEGA SJÁLFSTÆÐIR frá Dönum með MIKIL samskipti við BANDARÍKIN.........


mbl.is NATO og ESB þegja þunnu hljóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KRÓATAR UNNU ÞENNAN LEIK "VEGNA UMDEILDRAR DÓMGÆSLU".....

Mér leiðist að segja þetta en þetta er bara óumdeilanleg staðreynd og kallar bara á það að dómmarar standi  sína "plikt" án þess að það skipti máli hverjir eru að spila.  Kannski er ég bara tapsár en að mínu mati eru "vafaatriðin" of mörg og það er ekki eðlilegt að þau séu ÖLL öðru megin.........


mbl.is Ísland úr leik eftir nauman sigur Króatíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS KEMUR EINHVER MEÐ "RAUNHÆFA" LAUSN Á ÞESSU MÁLI.......

En þá koma upp líka "raunhæf" vandamál; önnur nálæg múslimaríki vilja ekki taka við þessu Palestínuliði. því þetta hefur verið til vandræða áratugum saman og eru ekkert annað en "afætur" og hefur alla tíð verið á "sósíalnum" í því landi sem það hefur dvalið í það og það skiptið og hefur engan áhuga á því að ger eitt né neitt til að bjarga sér (þessu höfum við Íslendingar fengið að kynnast og ekki nóg með það heldur reyna þeir að rífa þeir líka niður þá þjóðfélagsgerð sem er fyrir) og svo er annað að það er orðið svo rótgróið hatrið á Trump að hann má ekki opna munninn og segja nokkurn skapaðan hlut án þess að reynt sé að gera lítið úr öllu sem hann segir og gerir og láta að því liggja að hann sé bara vitleysingur.........


mbl.is Trump stingur upp á að flytja Palestínubúa frá Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VIRÐIST VERA EINA RÁÐIÐ, SEM SAMFYLKINGIN HEFUR TIL AÐ AUKA TEKJUR RÍKISINS, SÉ AÐ HÆKKA SKATTA.......

Hafa þeir aldrei heyrt um neitt sem heitir hagræðing í rekstri, minnka kostnað (það er hægt að auka þjónustu en um leið að lækka kostnað)  Ég er alveg viss um að "SÓUN" fjármuna í opinbera geiranum er alveg gífurlega mikil þar er hægt að spara mikla fjármuni.  Eitthvert besta sparnaðarráðið heyrði ég frá góðum vini mínum, en ann vildi meina að best væri að leggja niður STOFNIR eða endurskoða rekstur þeirra sem væru með orðið STOFA einhvers staðar í nafninu......


mbl.is Vilja hækka fjármagnstekjuskattinn í 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA LÍKAR MÉR..........

Og hefði bara átt að vera komið til framkvæmda fyrir löngu síðan......


mbl.is Vill svipta „erlenda brotamenn“ ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆTLAR "SAMGÖNGURÁÐHERRA" AÐ LÁTA MEIRIHLUTA REYKJAVÍKURBORGAR KOMAST UPP MEÐ HRYÐJUVERKIN Í SAMBANDI VIÐ FLUGVÖLLINN?????

Er bara setið yfir honum og hann er bara í því að éta allt ofan í sig sem hann sagði áður, eins og bókun 35, borgarlínuna, orkupakkana og svona mætti lengi telja, hvenær skyldi koma að þessum manni flökrar við eigin ælu og hættir að kyngja henni??????


mbl.is Lýsa þungum áhyggjum af lokun flugbrauta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞRÁTT FYRIR FRAMMISTÖÐU DÓMARANNA TÓKST EKKI AÐ KOMA Í VEG FYRIR SIGUR ÍSLANDS...

Ég varð ekki var við að Íslenska liðið léki "grófari" bolta en Slóvenarnir en það var alveg greinilegt að ekki gilti sama "dómafyrirkomulag" beggja  megin á vellinum, níu brottvísanir á Ísland á móti tveimur hjá Slóvenum ættu að segja eitthvað.  Þetta dómarapar á víst að vera eitt það allra besta dómarapar í heimi "EN HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÞEIR DÆMA EKKI Í SAMRÆMI VIÐ ÞAÐ"??????


mbl.is Ísland hefur leik gegn toppliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆTLI ÞEIR GERI SÉR EKKI GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ ÞETTA "VOPNAHLÉ" SÉ BARA "LOGNIÐ Á UNDAN STORMINUM".....

Því miður held ég, að Hamas liðar séu búnir að drepa flesta ef ekki alla gíslana sem þeir tóku í árásinni 7 október.  Enda kom í fréttum í morgun að þegar þeir áttu að skipta á þremur gíslum í morgun þá fundust þessir gíslar ekki og Hamas liðar gátu ekki eða vildu gera grein fyrir afdrifum þeirra.  AÐ MÍNUM DÓMI Á STRÍÐIÐ Á GAZA EFTIR AÐ VERÐA ENN HARÐARA EN ÞAÐ HEFUR VERIÐ HINGAÐ TIL.....


mbl.is Hætta í ríkisstjórn vegna vopnahlésins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚNA ÞEGAR RYKIÐ FER AÐ SETJAST EFTIR ÞETTA ÓHUGNANLEGA STRÍÐ, ER FULL ÁSTÆÐA TIL AÐ SKOÐA AF EINHVERJU SMÁ HLUTLEYSI HVAÐ RAUNVERULEGA VAR Í GANGI????

Er ekki full ástæða til að spyrja þeirra spurningar; HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM DATT HAMAS LIÐUM Í HUG AÐ GER ÁRÁSINA Á ÍSRAEL 7. OKTÓBER, HÉLDU ÞEIR VIRKILEGA AÐ ÞETTA HEFÐI ENGAR AFLEIÐINGAR? Og það er mun fleira sem væri full ástæða til að skoða: Hvernig væri til dæmis að skoða þennan EINHLIÐA fréttaflutning af átökunum á Gaza?  Sem dæmi er hægt að nefna að það var MIKIÐ mál að Palestínumenn VORU DREPNIR (það er bara þannig að í stríðsátökum FALLA menn en eru ekki DREPNIR) þegar fjórir gíslar voru frelsaðir úr höndum Hamas.  En það er EKKERT fjallað um það að þessir vesalingar í HAMAS FELA SIG í "ormagöngum" undir Sjúkrahúsum og flóttamannabúðum.  Þetta verður til þess að mannfall almennra borgara á Gaza verður mun meira fyrir vikið.  Það er talið að milli 90-95% almennra borgara sem FALLA á Gaza séu KONUR og BÖRN EN HVAR HALDA KARLMENNIRNIR SIG?  Jú þeir eru öruggir í "ormagöngunum", svo þegar árásin er yfirstaðin þá skríða mennirnir upp úr "ormagöngunum" og og eru grátandi og kveinandi yfir því að konan og börnin hafi fallið (verið drepin) í árás Ísraelsmanna.  EKKI ER VERIÐ AÐ FJALLA UM ÞAÐ Á RÚV OG FLEIRI MIÐLUM AÐ HAMAS HAFI KALLAÐ ÞESSI ÁTÖK YFIR ÍBÚA GAZA OG STUÐLI AÐ ÞESSI ÁTÖK BREIÐIST YFIR Á VESTURBAKKANN OG TIL FLEIRI SVÆÐA Í MIÐAUSTURLÖNDUN.  ÞARF EKKI AÐ FARA AÐ SKOÐA FJÖLMIÐLAFLÓRUNA HÉR Á LANDI OG HVAÐA FRÉTTUM ER VERIÐ AÐ "MATA" ALMENNING Á, KANNSKI ÆTTI FÓLK AÐ FARA AÐ VELTA FYRIR SÉR HVERJIR ÞAÐ ERU SEM "MATREIÐA FRÉTTIRNAR" FRÁ GAZA OFAN Í VESTURLANDABÚA......

 


mbl.is Öryggisráð Ísraels samþykkir vopnahlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN FYRIR HVERN ÞÓTTIST GUÐMUNDUR INGI VERA AÐ VINNA?????

Það er nokkuð ljóst að hann var hvorki að vinna fyrir land g þjóð og ég veit ekki til þess að kjósendur "BAKBORÐSSLAGSÍÐUFLOKKANNA" séu svo STROPAÐIR að þeir sjái ekki nauðsyn þess að virkja, til að tryggja áframhaldandi hagvöxt og aukin lífsgæði landsmanna, jafnvel VG liðar sjá nauðsyn þessa.......


mbl.is „Það verður Guðlaugur Þór að svara fyrir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á VIRKILEGA AÐ FARA ÚT Í ÞETTA FYRIRFRAM "DAUÐADÆMDA" VERKEFNI???? ?

Það ekki NEIN almennileg kostnaðaráætlun og ENGIN rekstraráætlun en það liggur fyrir að væntanleg BORGARLÍNA VERÐUR REKIN MEÐ TAPI en það er samt sem ekki búið að gera NEINA rekstraráætlun en þegar var spurt um hana á kynningarfundi um Borgarlínuna, sem var haldinn í Ráðhúsinu í Reykjavík, var sagt að hún lægi ekki fyrir en STRÆTÓ ætti að sjá um hana, EN HVERT ER ÞÁ HLUTVERK "BETRI SAMGANGNA" SEM ER "BATTERÍ SEM VAR STOFNAÐ Í ÞEIM TILGANGI AÐ HALDA UTAN UM ÞETTA VERKEFNI???????


mbl.is Framkvæmdir við borgarlínu hefjast á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAR SÝNA SAMFYLKINGARMENN LOKSINS SITT RÉTTA ANDLIT????????

En er það kannski of seint ÞAÐ ER JÚ BÚIÐ AÐ KJÓSA ÞÁ OG FYLGIFISKA TIL AÐ STJÓRNA LANDINU NÆSTU FJÖGUR ÁRIN?  Og "kúlulánadrottningunni" tókst að blekkja þá til að "láta" sig hafa ÖLL helstu ráðuneyti landsins, en Samfylkingarliðinu var nokkuð sama því BÁÐIR FLOKKARNIR HÖFÐU SAMA MARKMIÐ, AÐ KOMA LANDINU INN Í ESB og ef það tækist ekki þá geta þeir sagt að það hafi verið SAMFYLKINGIN, sem hafi komið í veg fyrir VIÐREISN tækist það.  Og halda þannig blekkingarleiknum áfram.  EN HVERSU LENGI ÆTLA LANDSMENN AÐ LÁTA SAMFYLKINGUNA BLEKKJA SIG?????????


mbl.is „Getum ekki þolað að það verði niðurstaðan“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRA LOFTSLAGSBLEKKINGIN........

Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum.  Í þeim "drullupolli" eru VG (reyndar eru VG dottnir útaf þingi en því miður getur arfleifð þeirra lifað nokkuð lengi)og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd.  Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig „heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra „loftslagsmöntruna“ utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA Færsla Segulpólsins frá upphafi til  2024ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í um það bil 150  sjómílur suð-suð-austur af hinum „REIKNAÐA NORÐURPÓLI (hinn reiknaði Norðurpóll er það sem í daglegu tali er nefndur Norðurpóllinn og svo er að sjálfsögðu Suðurpóllinn í 180 gráður í suður frá honum.  Hann var settur þarna niður NORÐURPÓLLINN, sem upphafspunktur staðarútreikninga og útfrá honum komu svo lengdar- og breiddabaugar, þetta var gert fyrir mörg hundruð árum en nú erum við stödd á tölvuöld og mönnum þykir ekki ástæða til að halda í „gamla“ þekkingu).  Vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada Mynd 1 sýnir færslu nyrðri Segulpólsins frá 1980 - 2024

(um 1980) hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðlægum slóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að ísbreiðan á Norðurskautinu hefur stækkað um 26% síðan 2012 samkvæmt frétt sem ég las í Þjóðólfi í fyrradag, þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum. Þess má geta að síðustu "pólskipti urðu fyrir um það bil 700.000 árum, það skal áréttað að pólskipti þýða ekki að neinar HAMFARIR eigi sér stað heldur verður tilfærsla á veðurkerfum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI, nú er komið fram að það er margfalt ofmetið hversu mikið áhrifin eru af því að hafa þurrkað upp  mýrarnar hérna á árum áður.  Og svo á, samkvæmt Kötu litlu, að fara að senda tugi milljarða eitthvert út í heim vegna loftslagsbreytinga og svo ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI.  Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla?   Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNAVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".  En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa.  Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum.  Í þeim "drullupolli" eru VG og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd.   Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig „heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra „loftslagsmöntruna“ utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur um það bil 150 sjómílur suð - suðaustur  af hinum REIKNAÐA NORÐURPÓL og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Segulsvið jarðar 2024Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að íshellan á hinum REIKNAÐA NORÐURPÓL hefur stækkað um 26% síðan 2012 ( Sjá thjodolfur.is), þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum

Mynd 2 sýnir segulsvið jarðar eins og sést er segulsviðið sterkast um miðbik jarðar en veikast við "pólana".

og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI, nú er komið fram að það er margfalt ofmetið hversu mikið áhrifin eru af því að hafa þurrkað upp  mýrarnar hérna á árum áður.  Og svo á, að fara að senda tugi milljarða eitthvert út í heim vegna loftslagsbreytinga og svo ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI.  Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla?   Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS".  En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa.  Nýjasta dæmið um þessa blekkingu um „loftslagshlýnun af mannavöldum“  eru „gróðureldarnir“ í Los Angeles en þar eru það nokkrir samverkandi þættir sem eiga hlut að máli.  Fyrir það fyrsta þá eru þessir miklu vindar,  sem geysa í Kaliforníu árvisst fyrirbæri  (þeir kallast Santa Ana vindarnir) og ættu ekki að koma neinum  á óvart aftur á móti kemur það  mjög mikið á óvart að aðgangur að vatni skyldi vera alveg í klessu og allt í sambandi við slökkvistörfin tómt „KLÚÐUR“.  Fyrir nokkrum árum tók slökkviliðið í Kaliforniu sig til og kveikti í dauðum og mjög þurrum gróðri í hlíðunum fyrir ofan Los Angeles en vegna aðgerða frá umhverfisverndarsinnum var þessu hætt og þar með safnaðist upp alveg gríðarlegur eldsmatur síðustu  ár (en það eru nokkur ár síðan slökkviliðið hætti að kveikja í dauðum, þurrum og hættulegum gróðri).  En brunavarnir hafa ekki verið mjög ofarlega á verkefnalista fylkisstjórnarinnar eldur hefur það  verið ofar á verkefnalistanum að fjölga konum í slökkviliðinu, lögreglunni og fleira þessháttar en það  á víst að fara fram rannsókn á þess máli og þá eiga máli væntanlega eftir að skýrast.........


mbl.is Búa sig undir veðurofsa í LA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FLEIRI EN EIN HLIÐ Á ÞESSU MÁLI........

En hvað sem því líður verð ég að segja að mér finnst Sigurður G. Guðjónsson nálgast málið á nokkuð harkalegum forsendum.  Það má alveg vera að Sólveig Anna Jónsdóttir fari fram af nokkuð mikilli hörku en að mínum dómi er EKKERT ANNAÐ Í GANGI EN AÐ SÓLVEIG ANNA ER AÐ VERJA ALVEG GRÍÐARLEGA MIKLA PENINGALEGA HAGSMUNI.  Samkvæmt stjórnarskránni þá er FÉLAGAFRELSI hér á landi og það er hverjum manni frjálst að stofna félag sem hann vill.  Mér er ekki kunnugt u að neitt verkalýðsfélag hafi verið hafi verrið stofnað hér á landi undanfarna áratugi, sem er kannski ekki undarlegt því þau verkalýðsfélög sem fyrir eru, vilja ekki fá NEINA SAMKEPPNI um félagsgjöldin.  SJÁLFSAGT ERU MUN FLEIRI HLIÐAR Á MÁLINU, SEM ÞARF AÐ RÆÐA EN VISSULEGA ER ÞARNA KOMIN EIN..... 


mbl.is Segir Eflingu í ófrægingarherferð gegn atvinnurekendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR ÞARNA UM AÐ RÆÐA OPINBERT ERINDI SEM HÚN HAFÐI VERIÐ KJÖRIN TIL AÐ SINNA EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ?????

Og var þessi ferð farin með vitneskju og vilja UTANRÍKISMÁLANEFNDAR ALÞINGIS????  Ég veit ekki til að Alþingi sé komið til starfa og þá er heldur ekki starfandi neinar fastanefndir þingsins og af því leiðir að þessi "heimsókn Utanríkisráðherra hefur þá verið án heimildar og ALLAR hennar gjörðir eru þá án heimildar.  Nema þá kannski verða þessar 350 milljónir sem hún gaf Úkraínu til vopnakaupa dregnar TVEGGJA MILLJARÐA KÚLULÁNINU sem hún fékk niðurfellt???  ER ÞETTA EKKI EITTHVAÐ SEM ÞARF AÐ RANNSAKA??????


mbl.is Ísland mun styðja við uppbyggingu í lok stríðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"VALKYRJURNAR" HAFA ENGAN TÍMA TIL AÐ VINNA Í "ÞINGMÁLASKRÁNNI"...

Því að Utanríkisráðherra er svo upptekin við að styrkja hryðjuverkasamtök á Gaza og að styrkja vopnakaup í Úkraínu og hvort tveggja gerir hún með lánsfé.  Þingmenn og ráðherrar Flokks Fólksins eiga nóg með að verjast árásum Morgunblaðsins, en stórútgerðin "NOTAR" Morgunblaðið í þær árásir og Kristrún greyið má segja að hafi verið "kviksett" því hún gerir ekki mikið alein á báti.......


mbl.is Óljóst hvenær Alþingi kemur saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EINHVER "ÓFRÆGINGARHERFERÐ" Í GANGI GEGN FLOKKI FÓLKSINS??

Þetta er ekki einleikið Morgunblaðið hefur núna "hamast" á Eyjólfi Ármannssyni í einhverja daga og það "eina sem þeir hafa á hann" er það að hann skuli ekki búa þar sem hann er með lögheimili og svo að hann skuli ekki hafa "munað" eftir því að hann bjó í eitt ár eða hluta af ári á Sauðárkróki, sem ég trúi ekki að mörgum finnist eitthvað stórmál.  Nú sýnist mér að að verið sé að taka Ásthildi Lóu Þórsdóttur eitthvað fyrir og er umfjöllunarefnið það sama og ekki fer Inga Sæland varhluta af þessari umfjöllun.  Þarna er um að ræða ALLA ráðherra Flokks Fólksins og ætli þarna sé um einhverja tilviljun að ræða??  Flokkur Fólksins hefur sett það sem eitt af baráttumálum sínum að AUKA veg "strandveiða" og grunar mig að STÓRÚTGERÐIN "noti" Morgunblaðið í ófrægingarherferð sinni á hendur Flokki Fólksins vegna þessa máls.  Og að draga þessi "mál" fram, sýnir fram á málefnafátæktina hjá þeim.  Þetta lið á Morgunblaðinu ætti að setja einhvern "blaðakrakkann" í það verkefni að skoða skráð lögheimili ALLRA þingmanna frá lýðveldisstofnun og þá sæist að þetta er ekkert sem byrjaði bara núna......


mbl.is Með lögheimili í Lokinhamradal og aldrei búið þar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐVITAÐ ER "HÆGT" AÐ STÖÐVA VERKIÐ - SPURNINGIN ER EINGÖNGU "HVORT EINHVER VILJI SÉ TIL STAÐAR".....

Þarna er um mannanna verk að ræða og ÖLL mannanna verk er hægt að endurskoða.  Þó svo að það sé dýr framkvæmd, þá yrði UM BESTU FORVÖRNINA AÐ RÆÐA TIL AÐ SVIPAÐ KLÚÐUR EIGI SÉR STAÐ AFTUR.  SVO VERÐUR BARA AÐ RANNSAKA ÞETTA MÁL ALVEG OFAN Í "KJÖLINN" OG DRAGA ÞÁ TIL ÁBYRGÐAR SEM HANA BERA.  ÞAÐ ER ALGJÖRLEGA ÓÞOLANDI AÐ FÓLK GETI BARA VERIÐ ÁSKRIFENDUR AÐ HIMINHÁUM LAUNUM OG SVO ÞEGAR EITTHVAÐ FER ÚRSKEIÐIS KEMST ÞAÐ UPP MEÐ AÐ SEGJA AÐ ÞAÐ HAFI EKKERT VITAÐ.....


mbl.is Ekki hægt að stöðva verkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ ER FYRIRSJÁANLEIKINN Í REKSTRI KOMINN - NÚ Á BARA AÐ FARA AÐ BYGGJA UPP...

Byggjum bara Reykjavíkurflugvöll upp gerum þar góða aðstöðu fyrir flugfarþega, lengjum flugbrautir út í sjó, endurheimtum "öryggisflugbrautirnar" það þarf nú sennilega að byggja þær út í Skerjafjörðinn vegna þess að búið er að eyðileggja þær að mestu og sennilega er ekki um það að endurheimta þær á annan hátt og svo þarf að fella einhvern helling af trjám í Öskjuhlíðinni.  Þetta er spurning um þjóðarhagsmuni og menn eiga bara að gera þá kröfu á "meirihlutann" í Reykjavíkurborg að  þeir fari að vinna að hagsmunum heildarinnar.  NÚ BARA EINBEITUM VIÐ OKKUR AÐ ÞESSU VERKEFNI OG ELTUM EKKI EINHVERJAR "SKÝJABORGIR OG LOFTKASTALA", SEM SVO VERÐUR ALDREI NEITT ÚR EN KOSTAR OKKUR SKATTBORGARANA STÓRAR FJÁRHÆÐIR...........

 


mbl.is Isavia fái starfsleyfi út árið 2032
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband