Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2023

REYNIR AÐ "BJARGA ANDLITINU" - EN ÆTLA SAMSTARFSFLOKKARNIR BARA AÐ SITJA HJÁ OG KYNGJA ÆLUNNI?????

Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa sýnt af sér þvílíkan AUMINGJASKAP í þessu stjórnarsamstarfi að það kemur svo sem ekkert á óvart að þeir láti þetta yfir sig ganga eins og allt annað.  EF ÞETTA VERÐUR RAUNIN ÞÁ ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ VG SÉU EINIR Í STJÓRN OG RÁÐHERRAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS OG FRAMSÓKNARFLOKKS SÉU BARA DÝRT "GLUGGASKRAUT"..............


mbl.is Hvalveiðar heimilaðar með takmörkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"FERKANTAÐIR LEÐURHAUSAR" OG STROPAÐIR EINFELDNINGAR.........

Ég var svo sem lítið að gera núna í morgun og fór að fletta Morgunblaðinu frá í gær og þar stoppaði ég við einhverja mestu "RUGLGREIN", sem ég hef rekist á í gegnum tíðina og hef ég þó lesið margt ruglið í gegnum árin, en þarna var BULLIÐ svo yfirgengilegt þannig oft gat ég ekki skilið hvernig í ósköpunum datt manninum í hug að senda svona lagað frá sér.  Þessi grein er á blaðsíðu 17 í Morgunblaðinu í gær og höfundurinn heitir Ole Anton Bieltveit og alveg greinlegt að  maðurinn er mjög öfgafullur INNLIMUNARSINNI og er ekkert, frekar en aðrir harðir INNLIMUNARSINNAR, að virða SANNLEIKANN ef það hentar ekki "málstaðnum", sem þeir trúa að þeir séu að boða.  Meginstefið í þessari grein hans er AÐ ÞAÐ SÉ HÆGT AÐ SEMJA VIÐ ESB ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞAÐ SÉ KOMIÐ FRÁ OLLE RHEN, STÆKKUNARSTJÓRA ESB, AÐ EINUNGIS VÆRI SAMIÐ UM AÐLÖGUNARTÍMA EN TÓMT MÁL VÆRI AÐ TALA UM "VARANLEGAR UNDANÞÁGUR FRÁ REGLUM ESB. ANNAÐ HVORT VÆRU RÍKIN AÐILAR AÐ ESB EÐA EKKI.  Þessu til stuðnings nefnir hann nokkur dæmi og eins er siður INNLIMUNARSINNA fer hann mjög frjálslega með sannleikann.  Hann nefnir að Danir hafi fengið undanþágu en hann "gleymir" því að þess "undanþága" þeirra er tímabundin.  Svo nefnir hann það að Svíar hafi fengið undanþágu frá því að taka upp evru en hann "gleymir" því að Svíar hafa ekki enn þann dag í dag uppfyllt þau skilyrði sem Evrópski Seðlabankinn setur fyrir því að aðildarríkin GETI tekið upp evru.  Hann nefnir að  Malta hafi "FENGIÐ" að halda fiskveiðiauðlindum sínum en enn einu sinni svíkur minnið hann. Reglur ESB kveða á um það að ÖLL aðildarríki ESB haldi FULLUM yfirráðum yfir auðlindum sínum INNAN 12 sjómílna lögsögu.  LÖGSAGA MÖLTU NÆR HVERGI ÚTFYRIR 12 SJÓMÍLUR.  Á þessum nótum er ÖLL greinin hjá manninum og varpar hún nokkru ljósi á siðferði (eða réttara sagt skorti á siðferði) mannsins.  Svona menn eru bara kallaðir "FERKANTAÐIR LEÐURHAUSAR" og RUGLUDALLAR.........


EKKI NOKKUR VAFI Á ÞVÍ HVER NIÐURSTAÐAN VERÐUR..............

Það er að segja ef Umboðsmaður Alþingis sinnir sínu starfi almennilega. Fljótlega eftir að Matvælaráðherra tók þessa "gerræðislegu" ákvörðun sína tók ég saman hvernig hún hefur unnið í ÖLLUM sínum ráðherraembættum, ég ákvað að endurbirta þessa samantekt og að sjálfsögðu gefur þessi samantekt góða mynd af því hvernig vinnubrögðin hjá henni hafa verið í gegnum tíðina og nú hlýtur spurningin að vera: "FÓR HÚN EKKI YFIR STRIKIÐ NÚNA OG ER EKKI LÁGMARKIÐ AÐ RÁÐHERRAR FARI AÐ LÖGUM OG ÞARF EKKI SVONA LAGAÐ AР HAFA EINHVERJAR AFLEIÐINGAR FYRIR VIÐKOMANDI RÁÐHERRA"????

Það er nokkuð fróðlegt að fara yfir feril þessarar manneskju í ráðherraembættum og hvernig vinnubrögð hennar hafa verið í gegnum tíðina.  Við skulum aðeins fara yfir þetta og þá sérstakleg hvernig hún hefur unnið fyrir landsmenn:

UMHVERFISRÁÐHERRA 2009-2012 en árið 2012 var nafni ráðuneytisins breytt í UMHVERFIS- OG AUÐLINDARÁÐUNEYTIÐ og þar var hún til ársins 2013:  Ekki get ég með  nokkru móti fundið nokkurn skapaðan hlut sem hún gerði í þessu ráðneyti til að efla hag landsmanna en aftur á móti er það mér í fersku minni að hún GAF kolefniskvóta landsmanna úr landi, hún barðist fyrir því með kjafti og klóm að hvergi yrði VIRKJAÐ en hún talaði mikið um að landsmenn yrðu að flýta svokölluðum ORKUSKIPTUM OG SVO MÁ EKKI GLEYMA ÞVÍ AÐ HÚN FÉKK DÓM Á BAKIÐ FYRIR AÐ GERAST BROTLEG VIÐ LÖG.  En ekki hafði það nein áhrif á ferilinn hjá henni, eða það var í það minnsta ekki merkjanlegt.

HEILBRIGÐISRÁÐHERRA 2017-2021:  Ekki get ég munað eftir neinu jákvæðu sem hún gerði í þessari ráðherratíð sinni, en aftur á móti er mér í fersku minni LIÐSKIPTAAÐGERÐIRNAR Í SVÍÞJÓÐ SEM KOSTUÐ ÞRISVAR SINNUM MEIRA EN EF HEFÐI VERIÐ SAMIÐ VIÐ EINKAAÐILA HÉR Á LANDI vegna þess að VEGNA HENNAR PERSÓNULEGU SKOÐANA "MÁTTI EKKI LÁTA EINKAAÐILA SJÁ UM ÞESSI VERK".  En það alvarlegasta sem hún gerði í tíð sinni sem HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur EKKI verið tekið fyrir enn þann dag  í dag, EN ÞAÐ ERU HINIR SVOKÖLLUÐU BÓLUEFNASAMNINGAR SEM ALÞINGI ÍSLENDINGA HEFUR  EKKI FENGIÐ AÐ SJÁ ENN ÞANN DAG Í DAG.  En samkvæmt STJÓRNARSKRÁNNI er EKKI HEIMILT að SKULDBINDA ríkissjóð ÁN aðkomu ALÞINGIS.  Mér vitanlega hefur ENGINN þingmaður eða nokkur annar gert athugsemd við þessi vinnubrögð að einu eða neinu  leiti á meðan svo er halda ráðherrarnir "sólóleiknum" áfram og bæta bara í.

SJÁVARÚTVEGS - OG LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA 2021-2022 en árið 2022 var nafni ráðuneytisins breytt í MATVÆLARÁÐUNEYTIÐ og þar er hún ennþá og á að vera til ársins 2026 en ég er þess fullviss að  kosningar til Alþingis verði í haust og þá er ég þess fullviss um að dagar hennar í því ráðuneyti séu taldir og jafnvel á Alþingi líka.  Og enn man ég ekki eftir neinu jákvæðu sem hún hefur gert en listinn yfir það neikvæða er MJÖG LANGUR og ekki nenni ég að telja það allt upp hér.  En hefst þá upptalningin hér: Ekki hefur hún séð nokkra ástæðu til að taka á BLÓÐMERAHALDINU,  STRANDVEIÐARNAR hafa verið stöðvaðar og ENGIN LAUSN er þar í sjónmáli í þeim málum frekar en öðrum sem eru á hennar borði.  Fyrir nokkrum dögum kom út skýrsla um ERFÐABLÖNDUN Norsks eldislax við Íslenska villta laxastofna vegna "slysasleppinga" úr laxeldiskvíum í sjó.  EKKI HEF ÉG ORÐIÐ VAR VIÐ AÐ HÚN SJÁI NOKKRA ÁSTÆÐU TIL AÐ BREGÐAST Á NOKKURN HÁTT VIÐ ÞESSU STÓRALVARLEGA MÁLI.  Og þá er það stóra málið núna en það er AÐFÖRIN AÐ HVALVEIÐUNUM.  Þarna tel ég að hún hafi farið nokkuð LANGT YFIR STRIKIÐ (enda má færa fyrir því rök að þegar menn byrja á lögbrotum þá sé alltaf gengið lengra og lengra, til að sjá hvar "mörkin" liggja).  Það er alveg á tæru að með þessari ákvörðun sinni að "FRESTA" HVALVEIÐUM, einum degi áður en hvalveiðar áttu  að hefjast, braut hún MINNST fjórar greinar ALMENNRA LAGA OG AUK ÞESS BRAUT HÚN TVÆR GREINAR Í STJÓRNARSKRÁNNI OG ÉG NEITA AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ ÞETTA EIGI EKKI EFTIR AÐ HAFA NEINAR AFLEIÐINGAR FYRIR HANA.

Allir vita hver persónuleg afstaða Forsætisráðherra er og þar af leiðandi er það enn alvarlegra að Kata litla hefur ekki enn tekið á þess alvarlega broti ráðherrans og að forráðamenn samstarfsflokka VG í ríkisstjórn hafi ekki beitt sér í þessu alvarlega máli.  ÞORA ÞEIR EKKI AÐ "RUGGA BÁTNUM" Á ÞESSUM SÍÐUSTU OG VERSTU TÍMUM??????

 


mbl.is Telur vantrauststillögu væntanlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLIR SAMNINGAR ERU UPPSEGJANLEGIR.....

Ég hef nú ekki skoðað þennan "SAMGÖNGUSÁTTMÁLA" en mér finnst ekki ólíklegt að í þessum samningi sé eitthvert endurskoðunarákvæði, þannig að þessi "fýlublástur" í varaborgarfulltrúa Viðreisnar er í besta falli bara hlægilegur......


mbl.is Samningur ekki viljayfirlýsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÍSLAND MEÐ EINHVERJA SJÁLFSTÆÐA UTANRÍKISMÁLASTEFNU?????

Og þá sérstaklega í "hernaðarmálum".  Það verður ekki betur séð en að NATO geri bara það sem þeim sýnist hér á landi og Íslensk stjórnvöld hlýða bara eins og þægir hundar.  Þegar herinn fór árið 2006, var skilin hérna eftir "sviðin" jörð en með tímanum var unnið nokkurn veginn úr því(þó svo að deila megi um aðferðirnar og árangurinn).  Eftir að herinn fór, voru girðingarnar á "vallarsvæðinu" teknar niður nema það var skilinn eftir sá partur, sem skildi af flugvöllinn sjálfan og "ÖRYGGISSVÆÐIÐ" sjálft en þar er NATO með sína starfsstöð og Landhelgisgæslan er þar einnig til húsa og er með einhverja starfsemi sem ég þekki ekki alveg til.  En girðingin sem afmarkar þetta "ÖRYGGISSVÆÐI" er vestast og afmarkar það svæði sem almennt gengur undir nafninu Ásbrú.  Ég flutti á Ásbrú í ágúst 2008, eða fyrir 15 árum, síðan ég flutti á svæðið hefur girðingin verið færð nokkrum sinnum til austur og er svo komið að nokkuð margar íbúðarblokkir eru KOMNAR INN FYRIR "ÖRYGGISGIRÐINGUNA" og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildum að Á SVÆÐINU SÉU NOKKUR HUNDRUÐ HERMANNA MEÐ FASTA BÚSETU.  Það er sagt að NATO-liðið SEM ER STAÐSETT HÉR Á LANDI NÚNA SÉ MUN ÖFLUGRA HELDUR EN VAR ÞEGAR "FORMLEG" HERSTÖÐ VAR STAÐSETT HÉR Á LANDI.  Eins og allir vita, þá hefur NATO samið um það verði hægt að láta fara fram áhafnaskipti og taka vistir og þess háttar hér við land.  Ekki er búið að koma upp hafnaraðstöðu fyrir þetta þannig að þetta fer fram fyrir utan Helguvíkurhöfn.  En Íslensk stjórnvöld þurftu að vera með smá "SÝNDARMENNSKU" í sambandi við þetta og "GERÐU ÞÁ KRÖFU AÐ EKKI VÆRU KJARNORKUVOPN UM BORÐ Í ÞESSUM KAFBÁTUM". En þessi krafa er marklaus með öllu, því mér er ekki kunnugt um að  NEINIR EFTIRLITSMENN FARI UM BORÐ Í ÞESSI SKIP og þótt svo væri yrði þeim alls ekki hleypt inn á þessi svæði.  Þá er komið að smá umfjöllun um þessar ÞRJÁR ÖFLUGUSTU SPRENGJUFLUGVÉLA SEM TIL ERU Í HEIMINUM OG ERU STAÐSETTAR HÉR Á LANDI.  Hver um sig geta þessar sprengjuvélar borið 18 KJARNORKUSPRENGJUR OG NATO HEFUR TEKIÐ ÁKVÖRÐUN UM ÞAÐ AÐ ÍSLAND VERÐI "ÚTSTÖÐ" ÁRÁSA Á ÖNNUR RÍKI OG HVERNIG Á AÐ FRAMKVÆMA ÞÆR ÁRÁSIR ÁN ÞESS AÐ KJARNORKUSPRENGJUR SÉU TIL STAÐAR?????????


mbl.is Róðurinn þyngist í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS..................

Það er búið að liggja fyrir í langan tíma að ekki sé nokkur einasta vitglóra í þessu verkefni og svo bætist þessi stjarnfræðilegi kostnaður við og svo er það loksins núna sem kveðið er á um það AÐ RÉTTAST VÆRI AÐ BARA AÐ "SLÁ" ÞETTA AF. Hvaða vitleysa hefur eiginlega verið í gangi bæði hjá ríki og borg????????


mbl.is Borgarlínan sett út af borðinu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SENNILEGA HEFUR "SKASSIÐ" VERIÐ TAMIÐ AÐ EINHVERJU LEITI....

En hún er bara svo þrjósk og þver að það hefur þurft MJÖG MIKIÐ til svo hún myndi gefa sig í þessu máli.  Mig rennir grun í að stjórnarslitum hafi verið hótað ef hún gæfi ekki eftir í þessu máli og það hafi ráðið úrslitum.  Svo lýtur það ekki vel út svona út á við að sami ráðherrann sé uppvís að því að brjóta lög svona trekk í trekk og ég tala nú ekki um það þegar sjálf STJÓRNARSKRÁIN ER BROTIN.  Á þessu á eftir að taka og ekki get ég ímyndað mér að það komi til með að ríkja mikill friður og kærleikur á "stjórnarheimilinu" á næstunni.  En verðum við ekki að segja "DROTTINN BLESSI HEIMILIÐ"?????


mbl.is Fara út til leitar eftir helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM AÐ FYLGJAST MEÐ HVAÐ ÞESSI "STRENGJABRÚÐA" ESB OG BANDARÍKJANNA VEFUR VESTRÆNUM STJÓRNVÖLDUM UM FINGUR SÉR......

Enda er hann jú vanur LEIKARI og víst þokkalega góður í þeim hlutverkum sem hann hefur tekið að sér.  En á meðan þessi BLEKKINGARLEIKUR er í gangi heldur stríð ESB og Bandaríkjanna gegn Rússlandi í Úkraínu áfram.  VÆRI EKKI RÁÐ FARIÐ YRÐI AÐ SEGJA MEIRA EN EINA HLIÐ FRÉTTA AF ÞESSU STRÍÐI???????


mbl.is Norðmenn gefa Úkraínumönnum herþotur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS KEMUR FRAM "RAUNHÆFARI" GREINING Á MÁLINU EN HINGAÐ TIL HEFUR VERIÐ.....

Það er bara ósköp einfalt mál AÐ ÞAÐ ER EKKI TIL RAFMAGN Á LANDINU SVO HÆGT SÉ AÐ FARA ÚT Í "ORKUSKIPTI" EINS OG STAÐAN ER Í DAG og það er ekki einu sinni hægt að setja upp nægilegan fjöld hleðslustöðva fyrir þann fjölda rafmagnsbíla sem fyrir er á landinu.  Og ástæðan er sú að ekki er til nægt RAFMAGN á landinu, ástæðan er sú að EKKERT HEFUR VERIÐ VIRKJAÐ HÉR Á LANDI SÍÐUSTU 10 ÁRIN.  Vegna þess að HÁVÆR MINNIHLUTAHÓPUR, sem kennir sig við náttúruvernd, hefur staðið FAST á móti ÖLLUM ÁFORMUM UM VATNSAFLVIRKJANIR.  Og rökin sem er beitt í öllum tilfellum er að ómetanlegir fossar eða gljúfur "hverfi" vegna fyrirhugaðra framkvæmda.  En það sem er enn furðulegra er að  svokallaðir NÁTTÚRUVERNDARSINNAR eru ekki með NEINAR athugasemdir við fyrirhugaða VINDMYLLUGARÐA.  GETUR VERIÐ AÐ "ÞESSIR ELDHEITU NÁTTÚRUVERNDARSINNAR" SÉU MEÐ FJÁRHAGSLEG TENGSL VIÐ ÞÁ FJÁRFESTA SEM ÆTLA SÉR AÐ KOMA UPP VINDMYLLUGÖRÐUM Á ÍSLANDI??????????


mbl.is Spáir seinkun orkuskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER KANNSKI KOMINN TÍMI Á AÐRA "BÚSÁHALDABYLTINGU"?????????

"Fyrr má nú rota en dauðrota" var nú einhvern tíma sagt.  ÞEGAR STÝRIVAXTASTIGIРER KOMIÐ YFIR VERÐBÓLGUSTIGIÐ, SEM ER STAÐAN HÉR Á LANDI, HLJÓTA MENN AÐ FARA AÐEINS AÐ SKOÐA "LANDSLAGIÐ".  Á ÖLLUM NORÐURLÖNDUNUM, Í NÆR ÖLLUM LÖNDUM EVRÓPU OG Í BANDARÍKJUNUM ER STÝRIVAXTASTIGIÐ UM OG INNAN VIÐ 50% AF VERÐBÓLGUNNI.  Ég sé það í þessari grein að Sigurður Ingi segir það réttilega að verðbólgan hér á landi hafi LÆKKAÐ.  EN ÞAÐ ER EKKERT SEM BENDIR TIL ÞESS AÐ SÚ LÆKKUN SÉ TILKOMIN VEGNA HÆKKUNAR STÝRIVAXTA UNDANFARNA MÁNUÐI......


mbl.is Auðvitað íþyngjandi fyrir heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband