Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2024

"KRAKKARNIR HANS KLOPPS" HAFA HREINLEGA UNNIÐ ÞREKVIRKI UNDANFARNA TVO LEIKI

Þessi frammistaða "strákanna" í akademíu Liverpool er ALGJÖRT EINSDÆMI Í ENSKRI FÓTBOLTASÖGU og það má ekki gleyma því að í leiknum á undan lögðu þessir "strákar" stjörnum prýtt lið Chelsea og sönnuðu að peningar eru ekki aðalmálið í fótboltanum.  Og með þessum sigri á Southampton sýndu það og sönnuðu að það er LIÐSHEILDIN sem er stærsta málið OG EKKI MÁ GLEYMA ÞÆTTI KLOPPS Í ÞESSU TILFELLI EN ÞAÐ FER EKKI Á MILLI MÁLA AÐ HANN ER ALGJÖR KRAFTAVERKAMAÐUR Á SÍNU SVIÐI........


mbl.is Í fyrsta sinn í sögu Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KEMUR EKKI NEITT Á ÓVART.........

Enda get ég ekki með nokkru móti séð að hann hafi neitt til að bera umfram aðra, sem ætti að gera það að verkum að hann valdi þessu embætti.  En það ber að hrósa manninm fyrir það að gera sér grein fyrir því sjálfur að þetta sé ekki fyrir hann.......


mbl.is „Enginn hefur komið að máli við mig“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN EIN "GRÁTFRÉTTIN" FRÁ GAZA...........

Það er minna talað um fórnarlömb hryðjuverkaárásarinn á Ísrael 7. október í fyrra og afdrif og kjör gíslanna sem Hamas-liðar tóku í  þeim hryðjuverkaaðgerðum.......


mbl.is Missti 103 ættingja í loftárás Ísraela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN EYKUR SAMSTARF UNRWA VIÐ HAMAS EKKERT Á NEYÐINA Á GAZA????

"Benda sam­tök­in á að fram til þessa hafi eng­um trú­verðugum rann­sókn­um á ásök­un­un­um verið lokið" (tilvitnun í viðtengda frétt).  Það er nefnilega heila málið; RANNSÓKN ER EKKI LOKIÐ OG Á MEÐAN SVO ER ÞÁ ER EKKI NOKKUR ÁSTÆÐA TIL AÐ GERA NEINAR BREYTINGAR Á FYRRI ÁKVÖÐUNUM........


mbl.is Hvetur stjórnvöld til að styðja UNRWA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HAFA ÞÁ ÍSLENDINGAR NÁÐ BOTNINUM MEÐVIRKNI AUMINGJAGÆSKU OG ÚTLENDINGADEKRI???

Eða eru einhverjir sem halda að með því að senda "Palestínumann" sem okkar fulltrúa í Eurovision þá væri kannski möguleiki á langþráðum sigri? En samkvæmt  grein í FRÉTTINNI.IS þá er þessi "PALESTÍNUMAÐUR" ekki jafn mikill Palestínumaður og hann vill vera láta og sumir halda.  TIL HVAÐA RÁÐA VERÐUR GRIPIÐ NÆST????


mbl.is Hera Björk, Bashar og Sigga Ózk komust áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐA VITLEYSA ER EIGINLEGA Í GANGI????????

ER KANNSKI VERIÐ AÐ "KJAFTA" Í GANG HEIMSSTYRJÖLD??????  Fyrir það fyrsta ÞÁ ER EKKERT SEM GEFUR VÍSBENDINGA UM ÞAÐ AÐ RÚSSAR HAFI Í HYGGJU AР RÁÐAST Á EINN EÐA NEINN.  Aftur á móti virðist NATO með Bandaríkjamenn í broddi fylkingar vera alveg sérstaklega í mun að fara í stríð við Rússa.  Hvaðan skyldi þessi áróður koma????????


mbl.is Telur Rússa hafa áætlanir fyrir Keflavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞYKIR OKKUR BARA SJÁLFSAGT AÐ ÍSLAND FJÁRMAGNI HFRYÐJUVERK?????

Sema Erla SerdarÉg veit ekki betur en að það séu til LÖG í landinu, sem mæla gegn svoleiðis löguðu og flestar ef ekki allar aðgerðir viðskiptabankanna hér á landi miða víst að því að koma í veg fyrir HRYÐJUVERK og PENINGAÞVÆTTI.  Svo fara nokkrar konur á vegum samtakanna Solaris til Kaíró í Egyptalandi (þar eru þær öruggar fyrir stríðinu á Gaza).   Þar eru þessar konur til að "frelsa" Palestínumenn og stuðla að "fjölskyldusameiningu".  En það fer ekki mikið fyrir því í fréttum, að þessi "FRELSUN" kostar 5.000 dollara á HVERN EINSTAKLING, sem eru á gengi dagsins 686.550 krónur. þannig að fyrir þessa 12 einstaklinga eru greiddar 60.000 dollarar sem eru 8.238.600 krónur og þessir peningar eru LAUSNARGJALD fyrir þessa 12 einstaklinga sem koma núna og þetta fólk er ekki það eina sem kemur á þeirra vegum.  ÞESSIR PENINGAR RENNA BEINT TIL AÐ FJÁRMAGA HRYÐJUVERK HAMAS SAMTAKANNA.  VONANDI FARA ÍSLENSK STJÓRNVÖLD EKKI ÞESSA LEIÐ Í FJÖSKYLDUSAMEININGUNNI.........


mbl.is Komu tólf manns til viðbótar frá Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG EKKI Í FYRSTA SKIPTI SEM KRISTRÚN SPILAR BARA "SOLÓ" INNAN SAMFYLKINGARINNAR..

Samkvæmt "heimildum" (ekki eru þær allar mjög áreiðanlegar), þá er því haldið fram að ENGIN umræða hafi farið fram innan Samfylkingarinnar um þessi útlendingamál og þess svokölluðu "stefnubreytingu" Samfylkingarinnar í málaflokknum ER ÞARNA EINGÖNGU UM AÐ RÆÐA HUGARÓRA TÆKIFÆRISSINNANS KRISTRÚNAR FROSTADÓTTUR............


mbl.is Oddný rýfur þögnina um orð Kristrúnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LÍTA ÞINGMENN OG RÁÐHERRAR BARA Á STJÓRNARSKRÁNA SEM EINHVERN BRANDARA??????

Nú er heldur betur komið að því að Alþingis-menn/konur fari að fara eftir stjórnarskránni okkar og virði hana í hvívetna EINS OG ÞEIR HAFA SVARIÐ AР GERA ÞEGAR SEST ER Á ÞING OG AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ LÖG SEM ALÞINGI SETUR STANDIST STJÓRNARSKRÁNA .  Nú er tækifærið til þess að fara eftir stjórnarskránni að einhverju leyti.  Málið er að ráðherrarnir eiga EKKERT erindi á Alþingi   (það er nánar fjallað um þetta síðar í greininni).  Þegar ráðherrar hafa verið skipaðir verður að kalla inn varamenn fyrir þá, en þá verður engin FÆKKUN á Alþingi.  Þá er helsta ráðið að gerð verði breyting á lögum um fjölda Alþingismanna á þessu kjörtímabili þar, sem lagt yrði til að Alþingismönnum yrði FÆKKAÐ úr 63 í 40 (Það þarf ekki fleiri þingmenn til að samþykkja þau lög og reglugerðir sem koma frá ESB og þar að auki eru mjög margir þingmenn komnir með einn eða fleiri aðstoðarmenn).  Það  verður að fara fram að minnsta kosti endurskoðun á EES samningnum og uppsögn á Schengen samkomulaginu.

Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.  Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.

En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.

LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. 

FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur.

DÓMSVALD er í höndum dómara.

Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.

En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.

Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar,  Þarna er strax komin skörun.   Það er þannig að þegar kjörnir þingmenn, verða tilnefndir sem ráðherrar, þá eiga þeir að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn sína.   Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.   Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara “skilvirkari” ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að “taka yfir” LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein “Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum” (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi?  Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (samanber Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir) og ALLIR MUNA EFTIR „FARSANUM“ Í SAMBANDI VIÐ SKIPUN DÓMARA Í LANDSRÉTT.  En í því máli tel ég að hafi verið gerð AFDRIFARÍK MISTÖK.  Í dómi mannréttindadómstóls Evrópu kom fram að ALLIR DÓMARAR LANDSRÉTTAR VÆRU ÓLÖGLEGA SKIPAÐIR, EKKI BARA FJÓRIR, VEGNA ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI EKKI STAÐIÐ RÉTT AÐ SKIPAN ÞEIRRA. ALÞINGI ÁTTI AÐ KJÓSA UM HVERN OG EINN ÞEIRRA Í STAÐ ÞESS AÐ KJÓSA UM ALLAN HÓPINN Í EINU.  þá kom einnig fram ádeila á FORSETA LÝÐVELDISINS fyrir hans afgreiðslu á málinu.  En minnsta ádeilan var á störf Dómsmálaráðherra, sem samt var sú eina í þessu máli, sem var „látin“ sæta ábyrgð.

 Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána meðal annars á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur.  Það er tími til kominn að stjórnarskráin verði virt og fyrsta skrefið í þá átt er að „MOKA“ RÁÐHERRUNUM út af Alþingi enda eiga þeir alls ekki heima þar.  Sem dæmi má geta þess að það getur ekki verið eðlilegt að ráðherrarnir sitji heilu og hálfu dagana niðri á Alþingi og „bori bara í nefið á sér“.  Maður hefði haldið að það væri full vinna að stjórna landinu í það minnsta er ekki mjög trúverðugt að menn og konur geti bara gert þetta með annarri hendinni.   Það er ekki skrítið að hver ráðherra skuli hafa minnst tvo aðstoðarmenn, því ráðherrann þarf að eiða tímanum niðri á þingi, þar sem hann á EKKERT ERINDI. Svo eru þingmenn orðnir allt of margir.  Með því að henda ráðherrunum út úr Alþingishúsinu, væri stigið fyrsta skrefið í því að FÆKKA alþingismönnum, en þar væri einungis komið FYRSTA skrefið af mörgum.  Alþingismenn þurfa alls ekki að vera fleiri en 40, það sem þarf að gera er að störf Alþingis verði gerð markvissari og einfaldari.  Þegar sjónvarpað er frá þingfundi (nema „Eldhúsdagsumræðu“ hvers vegna hún hefur fengið þetta nafn er mér algjörlega hulin ráðgáta), er þingsalur yfirleitt hálftómur.  Þetta vekur þá spurningu hvort ekki væri hagstæðara að hafa þingfundi tvisvar í viku og þar af yrði annar dagurinn þar sem ráðherra tækju þátt og svöruðu fyrir embættisfærslur sínar.  Þrír dagar yrðu svo teknir í nefndastörf og önnur störf þingsins.  Áður en fólk fer að tala um að það vanti nýja stjórnarskrá er lágmark að sú stjórnarskrá sem er nú þegar til staðar sé virt.  Það hefur verið alveg með ólíkindum að horfa upp á starfsemi þingsins og oft hefur það hvarflað að manni að þingið sé með öllu stjórnlaust, ég er alveg viss um að það væri búið að reka forseta þingsins fyrir stjórnleysi og handvömm ef hann væri að vinna í einkageiranum.  Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001,  EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB yrði útbúin og send (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá upphafi og af þessum 1.287þingsályktunartillögum eru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.

 

Nú er sem dæmi eftir nokkra daga að hefjast fundur, þar sem verður ákveðið HVORT ÍSLAND OG 193 ÖNNUR RÍKI AFSALI SÉR ÖLLU VALDI  TIL WHO (ALÞJÓÐA HEILBRIGÐISMÁLASTOFNUNARINNAR) OG ÞÁ FARI WHO MEÐ ÖLL VÖLD Í HEILBRIGÐISMÁLUM  ÞJÓÐARINNAR.   Þarna er óumdeilt  að um sé að ræða FRAMSAL Á VALDI TIL ERLENDRA AÐILA, SEM ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI.  Ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt á Alþingi og eina umræðan sem ég hef heyrt um þetta mál e rá útvarpi Sögu og þingmenn konur hafa ekki fengist í viðtal þar og bera þeir því við að þeir hafi ekki haft tíma til að setja sig inn í málið.  Ætla þeir (þingmennirnir) að setja sig inn í málið EFTIR að búið er að skrifa undir og hvað á þá að gera??????

 

Nú reynir heldur betur á ALLA þá sem sitja á Alþingi Íslendinga.  Nú á að  leggja fram á Alþingi LANDRÁÐAFRUMVARP, sem nefnt er BÓKUN 35,  það er ekki minnsti vafi að þetta felur í sér VALDAFRAMSAL.  ÉG VEIT  EKKI BETUR  EN AÐ ALLIR SEM SETJAST Á ÞING (þar með taldir ráðherrar, sem ég tel að eigi alls ekki að sitja á þingi þar sem þeir tilheyra FRAMKVÆMDAVALDINU en ég fjalla aðeins um þetta annars staðar í pistlinum) SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI OG STJÓRNARSKRÁIN HEIMILAR EKKI VALDFRAMSAL.  Ég reikna nú ekki með að  þingmenn eigi að  rifja þennan eið upp við upphaf hvers þings, EN KANNSKI VÆRI EKKI VANÞÖRF Á ÞVÍ..............


ÉG HEF ALLA TÍÐ VERIÐ HALDINN ÞEIRRI BÁBILJU AÐ MÖNNUM VÆRI ILLA VIÐ AÐ TAPA FÉ - EN SVO VIRÐIST EKKI VERA???

En svo getur kannski verið að núverandi hluthafar í Play vonist til að viðsnúningur verði á rekstri Play við hlutafjáraukningu.  En því miður virðist vera að þarna sé um TÁLVON að ræða, því til stuðnings vil ég nefna að hinn almenni ferðamaður virðist hafa gert sér grein fyrir því að Ísland er bara stórhættulegt land að ferðst til.  Ferðamannastraumurinn hingað til land síðustu þrjá mánuði HRUNDI alveg niður og stórtap var á rekstri Íslensku flugfélaganna, sem eru í farþegaþegaflutningum og EKKERT útlit fyrir breytingu þar á.  í ÞAÐ MINNSTA ER ÉG ALVEG Á MÓTI ÞVÍ AÐ MINN LÍFEYRISSJÓÐUR SÉ AÐ "GAMBLA" MEÐ MINN LÍFEYRISSJÓÐ Í DAUÐADÆMT FYRIRTÆKI.......


mbl.is Aukið hlutafé frá stærstu hluthöfum Play
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband