25.11.2024 | 02:23
KANNSKI VERÐUR HÆGT AÐ NOTA ÞESSAR "LEIÐBEININGAR TIL AÐ ÁKVEÐA SIG.
Jæja það er ekki seinna að vænna að fara að undirbúa sig fyrir kosningarnar núna 30 nóvember og skoða hvað er í boði og hvernig (að mínu mati) flokkarnir hafa staðið sig á yfirstandandi kjörtímabili og til hvaða afreka þeir eru líklegir:
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR: Sú var tíðin að þessi flokkur bar höfuð og herðar yfir ALLA aðra stjórnmálaflokka á Íslandi og virtist hafa hagsmuni lands og þjóðar í fyrirrúmi í sínum gjörðum og margt mjög gott sem þessi flokkur stóð fyrir. En þetta er liðin tíð og stóryrt slagorð eins og BÁKNIÐ BURT og STÉTT MEÐ STÉTT ásamt ýmsu fleiru er hjómið eitt í dag og algjörlega merkingarlaust. Rétt er að minna á það að núverandi formaður flokksins ásamt öðrum þingmanni flokksins Illuga Gunnarssyni, þáverandi þingmanni flokksins og fyrrum Menntamálaráðherra, lofgrein í Morgunblaðið, um ESB (það skal tekið fram að þetta var árið 2006 og þá var Bjarni Benediktsson EKKI orðinn formaður flokksins) EN SÍÐAN ÞETTA VAR HEFUR BJARNI BENEDIKTSSON ALDREI GEFIÐ UPP AFSTÖÐU SÍNA TIL ESB. EINA SEM HANN SEGIR ER AÐ ESB AÐILD SÉ EKKI Á DAGSKRÁ NÚNA og ekki fæst hann til að afturkalla umsókna um aðild að ESB, sem var send til Brüssel í júní 2009, bara það vekur upp efasemdir um heilindi hans í þessum málum.
"KLIKKIÐ" Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA
Sannir SJÁLFSTÆÐIMENN hljóta að vilja gleyma þessu kjörtímabili (þar sem ekki tókst einu sinni að klára þrjú ár af kjörtímabilinu) og ekki var kjörtímabilið á undan mikið skárra (þó að tekist hafi að klára það), sem allra fyrst flokkurinn var undir járnhæl VG mest allt kjörtímabilið og ástandi bara versnaði á kjörtímabilinu á eftir og endaði að sjálfsögðu með því að upp úr sauð og sem dæmi má nefna að Bjarni (formaður flokksins) lét Kötu litlu svínbeigja sig varðandi þá kröfu að Sigríður Andersen færi frá vegna þess að hún vildi standa í lappirnar í hælisleitendamálunum og Umhverfisráðherra fékk nokkurn veginn alveg að leika lausum hala. Það var ekki fyrr en HÁLENDISÞJÓÐARÐURINN kom til umræðu að flokkurinn tók aðeins við sér og stöðvaði það mál enda farið að hilla í annað kjörtímabil. Margt fleira væri hægt að tína til en þetta er nú þegar orðið of langt um þennan flokk (það verður að búast við því að einhver eigi eftir að nenna að lesa þetta). En Kata litla var komin á bragðið með að hægt væri að láta Bjarna dansa eftir sínu höfði og hún beitti við það kænsku og ósvífni í bland og varð bara ágætlega ágengt. En svo sá hún að hún var alveg komin með flokkinn út í skurð og ákvað að forða sér úr pólitíkinni og fara í FORSETAFRAMBOÐ, það virðist ekki hafa verið mikil alvara á bakvið það því hún TRYGGÐI SÉR STUÐNING SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS þar og eins og sagan hefur sýnt þá náði hún EKKI kjöri í embættið. VG liðar héldu svo landsfund sinn í haust og kusu þar nýjan formann og þar var Svandís Svavarsdóttir sjálfkjörin því enginn VOGAÐI sér að fara í framboð á móti henni. Hún ætlaði að taka upp þráðinn þar sem Kata sleppti honum, en um leið átti að beita meiri hörku. Það fór eins og menn grunaði, strax á landsfundinum fór hún að boða stjórnarslit, en hún boðaði það einnig að HÚN ætlaði að STJÓRNA TÍMASETNINGUNNI á þeim. En loksins gafst Bjarni Benediktsson upp og sýndi að hann er ekki eingöngu með BRJÓSK í nefinu og SLEIT ÞESSU STJÓRNARSAMSTARFI, sem hann hefði átt að vera búinn að gera fyrir löngu síðan. Þarna var Bjarni Benediktsson með pálmann í höndunum í nokkra daga en honum tókst að KLÚÐRA því og það rækilega. Því tækifæri var algjörleg KLÚÐRAÐ þegar raðað var á framboðslista flokksins á landinu, hann losaði sig við menn sem mest og best höfðu unnið eftir Sjálfstæðisstefnunni og FESTI LAUMUKRATANA´ innan flokksins eins og til dæmis Utanríkisráðherrann, en sennilega hefur enginn stjórnmálamaður unnið landinu meira ÓGAGN en hún.
Niðurstaðan er sú að ég get ekki með nokkru móti séð að þessi flokkur komi nokkuð til með að breytast þannig að hann eigi það skilið að maður fórni sínu atkvæði í hann.
FRAMSÓKNARFLOKKUR: Hvað er hægt að segja um hann? Kannski er fátt um hann að segja nema að hann er þarna. Ráðherrar flokksins hafa siglt nokkuð lygnan sjó á kjörtímabilinu nema Ásmundur Einar Daðason hefur verið að færa sig upp á skaftið í. Því að skrifa undir sýnarmennsku VILJAYFIRLÝSINGAR og virðist vera að hann ætli að komast upp með það. En formaður flokksins lét borgarstjórann teyma sig á asnaeyrunum allt kjörtímabilið varðandi þennan SAMGÖNGUSÁTTMÁLA og verður ekki séð fyrir endann á þeirri vitleysu allri og ekki virðist maðurinn geta tekið af skarið með Reykjavíkurflugvöll heldur. KANNSKI AÐ EITTHVAÐ SÉ TIL Í ÞVÍ AÐ FRAMSÓKNARFLOKKURINN SÉ OPINN Í BÁÐA ENDA? En nú virðist farið að bera á ÞREYTU hjá formanninum því hann ákvað að láta Höllu Hrund Logadóttur eftir ODDVITASÆTIÐ í Suðurkjördæmi. Hvort hann hefur haldið að sú aðgerð myndi lagfæreitthvað stöðu flokksins, sem er vægst sagt slæm samkvæmt skoðanakönnunum, en flestir vilja meina að með þessu sé hann að skapa sér flóttaleið út úr pólitíkinni.
Niðurstaðan er sú að ég get ekki með nokkru móti séð að þessi flokkur komi nokkuð til með að breytast þannig að hann eigi það skilið að maður fórni sínu atkvæði í hann.
VINSTRI HREYFINGIN GRÆNT FRAMBOÐ (VG): Alltaf þegar þessi flokkur hefur gengið gjörsamlega fram af manni og maður hélt að ekki yrði lengra komist... bætist eitthvað við sem toppar það sem áður hafði komið. Og þannig hefur þetta kjörtímabil verið. Það sem hefur verið mest áberandi hjá þeim er hversu ALLT er öfgafullt í öllum þeirra málum. Fyrst skal nefna loftslagsmálin, jafnréttismálin og FÓSTUREYÐINGARMÁLIN hjá fyrrverandi Forsætisráðherra, umhverfismálin hjá Umhverfisráðherra og þráhyggjuna hjá Heilbrigðisráðherra gagnvart EINKAREKSTRI HVERS KONAR í heilbrigðiskerfinu og hvað henni gekk til í samningunum við lyfjarisana í bóluefnasamningunum verður sennilega hulin ráðgáta um aldur og ævi, takist núverandi ríkisstjórn að halda öllum gögnum þessa máls leyndum eins og virðist vera staðfastur vilji stjórnvalda og meðreiðarsveina. En svo kom SEINNA kjörtímabilið hjá þessari ríkisstjórn og sem betur fer urðu nokkrar breytingar á skipan ráðuneyta en alls ekki nægar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson missti Umhverfis- og Orkumálin komst í staðinn í Félagsmálin og var þar eins og óður hani í mannaskít" og það var engu líkara en að eina málið sem hann hélt að þyrfti að sinna væru málefni hælisleitenda, annað skipi engu máli.
Niðurstaðan er sú að ég get ekki með nokkru móti séð að þessi flokkur komi nokkuð til með að breytast þannig að hann eigi það skilið að maður fórni sínu atkvæði í hann.
Nú er ég búinn að fjalla lítillega um núverandi ríkisstjórnarflokka og samkvæmt þessari litlu yfirreið um verk þeirra á kjörtímabilinu er nokkuð ljóst að þeir ríða ekki feitum hesti eftir þessa yfirferð. Allir þekkja mína afstöðu til fiskveiðistjórnunarkerfisins og ég get ekki með nokkru móti séð að þessir flokkar afi vilja eða getu til að gera nokkrar breytingar á þessu kerfi, hvorki til góðs né ills. Og það sama er hægt að segja um mörg önnur mikilvæg mál.
Þá ætla ég að færa mig yfir í stjórnarandstöðuflokkana, sem eiga sæti á Alþingi og svo ætla ég aðeins að koma inn á þá flokka sem hyggja á framboð í haust.
SAMFYLKINGIN: Upphaflega var þessi flokkur settur saman úr Alþýðandalaginu, Alþýðuflokki og Kvennalista ásamt ýmsum vinstri flokksbrotum sem fengu að fylgja með.Allt frá því að Samfylkingin var stofnuð hefur farið fram mikil valdabarátta þarna innandyra, til að byrja með náðu Kvennalistakonur ásamt Alþýðubandalagsfólkið þarna yfirhöndinni og framanaf leit útfyrir að flokksmenn ætluðu að sættast við þau öfl sem voru búin að koma sér fyrir í stjórn flokksins. En þá færðust átökin undir yfirborðið og Alþýðubandalagsfólkið losaði sig við Kvennalistakonurnar úr stjórn flokksins (sendu Ingibjörgu Sólveigu til Kabúl til að gera konur það að femínistum og vinna að jafnrétti þar 😉). Þegar Allaballarnir voru búnir að koma Kvennalistanum út snéru þeir sér að Krötunum, það gekk nú aðeins hægar fyrir sig en tókst loksins, þeir losnuðu við þann síðasta á þessu kjörtímabili. En hingað til hefur Samfylkingin ekkert mátt vera að því að sinna starfi sínu sem stjórnarandstöðuflokkur því það hefur allt LOGAÐ stafnana á milli í innanhússátökum. Stefnumálin hafa nú heldur ekki verið upp á marga fiska en helsta og lengi vel eina málið, var að koma Íslandi inn í ESB en eftir að fylgið við það mál næstum hvarf þá bætti flokkurinn lotslagsmálunum við og að fjölga hér hælisleitendum. En Kristrún Frostadóttir hefur ekki átt sjö dagana sæla við stjórnvölinn þarna hjá Samfylkingunni því hér var GAMLA SAMFYLKINGIN komin fram á sjónarsviðið og farin að minna hressilega á sig (Össur, Ingibjörg Sólrún, Dagur og fleiri), það sést nú á ´best á því þegar Guðmundi Árna Stefánssyni var BOLAÐ úr oddvitasætinu í Suðvesturkjördæmi fyrir Ölmu Möller, sem ég tel að hafi verið mikil mistök.
Eins og ég hef gefið til kynna í skrifum mínum þá hefur flokkurinn verið því sem næst ósýnilegur allt þetta kjörtímabil og það hvarflar ekki að mér eitt augnablik að SÓA atkvæði mínu á þennan flokk.
VIÐREISN: þá er komið að LAUMUKRÖTUNUM sem voru í Sjálfstæðisflokknum, en það má þó segja þeim það til hróss að þau viðurkenndu fyrir sjálfum sér og öðrum hver þau voru en það eru ennþá margir LAUMUKRATAR eftir í Sjálfstæðisflokknum. Þetta fólk hefur fylkt sér um EITT MÁL sem er AÐ KOMA ÍSLANDI Í ESB en þessu máli fylgir eitt málefni en það er gjaldmiðillinn EVRA, sem þetta fólk telur hina einu sönnu lausn á ÖLLUM vanda landsins. Það skrítna er að einhverra hluta vegna láta nokkuð margir blekkjast af lýðskrumi þessa fólks og meira að segja hef ég séð þarna sprenglærða hagfræðinga innan þessa hóps en það vekur upp spurningar um hvort námið hafi nokkru skilað til viðkomandi.
Niðurstaðan er einföld ÞESSI FLOKKUR ER EKKERT FYRIR MIG OG ÉG MUN EKKI KJÓSA HANN EN SÍÐASTI VITLEYSINGURINN ER GREINILEGA EKKI ENN FÆDDUR.SAMKVÆMT SKOÐANAKÖNNUNUM..
MIÐFLOKKUR: Allir vita hvernig þessi flokkur kom til og að mörgu leiti kom þessi flokkur með ferskan blæ inn í Íslensk stjórnmál. Flokkurinn vann mög gott ver í hinu svokallaða ORKUPAKKAMÁLIog Þingmaður flokksins, Þorsteinn Sæmundsson á heiður skilinn fyrir baráttu sína við að REYNA að koma því fram í dagsljósið hverjir fengu uppboðsíbúðir Íbúðalánasjóðs á BRUNAÚTSÖLU EFTIR HRUNIÐ (ránið), en þetta hefur ekki enn tekist. Og nú er útlit fyrir það að hann sé að koma aftur inn á þing og er víst að það verður mikill fengur af því að fá hann aftur inn. Ekki hefur Sigmundi Davíð enn tekist að láta almenning vita hver stefnan sé í sjávarútvsgsmálunum eftir það að hann lét það flakka, í útvarpsviðtali, að hann áliti að kvótinn væri EIGN þeirrar útgerðar sem honum hefði verið úthlutað.
Því miður held ég að þessi flokkur hafi fjarlægst mín sjónarmið það mikið að ég reikna ekki með að ljá honum atkvæði mitt í þetta skipti.
PÍRATAR: Þar er kominn flokkur, sem hefur tekist fullkomlega að blekkja fólk til fylgis við sig með því að halda því fram að þeir vilji hafa ALLT UPPI Á BORÐUM OG ENGA LEYND YFIR NEINU OG SEGJAST BERJAST GEGN SPILLINGU. Til þess að leggja áherslu á þessi mál sín hafa þeir verið duglegir að mæta í pontu Alþingis og talað mikið en sagt mög lítið og gert ennþá minna ÞAÐ KOMA MARGAR SPURNINGAR FRÁ ÞEIM EN ENGAR SEM SKIPTA MIKLU MÁLI. En samt sem áður eru einhverjir sem láta enn blekkjast af fagurgalanum og kjósa þá. Þarna er, að mínu mati, kominn ekta POPÚLISTAFLOKKUR og kannski fær hann einhver atkvæði út á það en þeim virðist fara fækkandi sem haf trú á að þetta fólk eigi eftir að gera nokkuð af viti og sumir ganga svo langt að eftir þessar kosningar verði loki þeirra veru á Alþingi Íslendinga og það er alveg öruggt að ekki fá þeir atkvæði frá mér.
FLOKKUR FÓLKSINS: Þetta er nýjasti flokkurinn á Alþingi og er svo sannarlega hægt að segja að þingmenn hans hafi komið með ferskan blæ þangað inn og virkilega hægt að segja að þessi flokkur hafi komið málefnum aldraðra og öryrkja á dagskrá, þótt árangurinn hafi ekki verið mikill enda flokkurinn í stjórnarandstöðu. ÉG FURÐA MIG Á ÞVÍ AÐ ALDRAÐIR OG ÖRYRKJAR SKULI EKKI FLYKKJAST UM ÞENNAN FLOKK ÞVÍ ÞESSI FLOKKUR ER SÁ EINI Á ALÞINGI SEM HEFUR EITTHVAÐ GERT FYRIR ÞESSA HÓPA. Ýmsir aðrir (og ég held allir aðrir) hafa komið með loforð fyrir kosningar, sem hafa svo strax verið svikin þegar þeir eru komnir að kjötkötlunum. Eitt held ég að geti reynst Flokki Fólksins fjötur um fót en hefur líka að sum leiti reynst styrkleiki hans, en það er að þar er Inga Sæland við stjórnvöldin og þar fer ENGINN ekki einu sinni á kló.settið án þess að hún gefi heimild til þess
Flokkur Fólksins er ekki líklegur til að hljóta mitt atkvæði 30. Nóvember næstkomandi.
Í þessum pistli mínum hef ég talað um þá flokka sem eru á Alþingi (það skal tekið fram að þetta er ALLT skrifað út frá mínu sjónarhorni og ég ætlast ALLS ekki til að allir séu mér sammála). Hafi ég gleymt að fjalla um einhvern flokk biðst ég afsökunar á því. En ég á eftir að fjalla um þá þrjá stjórnmálaflokka, sem ætla sér að komast inn á Alþingi Íslendinga í kosningunum 30. nóvember.
SÓSÍALISTAFLOKKURINN: Þetta eru aðrar kosningarnar þar sem Sósíalistaflokkurinn geri tilraun til að komast á þing og samkvæmt skoðanakönnukönnunum eru líkur á að það takist í þetta sinn. En sagt er að það hafi hverir sinn djöful að draga og djöfull Sósíalflokksins heitir Gunnar Smári Egilsson. Hanssaga er ekki þess leg að hún dragi marga til fylgis við Sósíalistaflokkinn. Þá varð ég fyrir miklum vonbrigðum þegar Sanna Magdalena Mörtudóttir lýsti því yfir að hún vildi þjóðnýta útgerðina og helst eitthvað fleira, ég hélt að svona hugmyndir tilheyrðu bara Maturo og svoleiðis mönnum. En sennilega njóta Sósíalistar góðs af óvinsældum VG um þessar mundir en mitt atkvæði rennur örugglega ekki þangað.
LÝÐRÆÐISFLOKKURINN: Þetta er eina framboðið sem beinlínis ætlar að standa vörð um lýðræði landsins og máfrelsi í landinu. Þar af leiðandi er mér lífsins ómögulegt að skilja slakt gengi flokksins í skoðanakönnunum. Getur verið að við séum orðin svo DOFIN og SINNULAUS vegna þess hve stjórnmálamennirnir og Alþingi yfirleitt hefur verið lélegt og máttlaust að þess vegna séum við bara hætt að gera ráð fyrir að ástandið geti nokkuð lagast? Mér brá mikið þegar málsmetandi maður sagði við mig: EF LÝÐRÆÐISFLOKKURINN KEMUR MÖNNUM Á ÞING OG KEMST TIL ÁHRIFA, ÞÁ MUN ÉG STYÐJA HANN EN TIL ÞESS VERÐUR AÐ KJÓSA FLOKKINN ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ ÆTLAST TIL AÐ AÐRIR GERI ÞAÐ BARA. Ég er ákveðinn í að atkvæðið mitt rennur þangað og er búinn að vera nokkuð lengi.
ÁBYRG FRAMTÍÐ: Þarna er kominn flokkur, sem aðeins býður fram í EINU kjördæmi Reykjavíkurkjördæmi suður. Málefnin sem þessi flokkur berst fyrst og fremst fyrir er að COVID 19 tímabilið verði GERT UPP og hulunni verði svipt af umframdauðsföllunum og dauðsföll og alvarleg veikindi, sem hltust af "sprautunum, viðurkennd verði öll þau mannréttindabrot sem voru gerð á þessum tíma. Þar sem þetta framboð stendur ekki til boða í mínu kjördæmi fá þau ekki mitt atkvæði en ef aðstæður hefðu verið aðrar er aldrei að vita.
Nú hef ég lokið við að fara yfir nokkur atriði hjá ÖLLUM framboðunum í haust en ef ég hefði farið yfir allt sem ég vildi nefna heði þetta orðið alveg gífurlega LANGT og finnst mér alveg nóg um lengdina á þessu nú þegar. Ég vona að einhverir nenni að lesa þetta og jafnvel að einhverjir hafi af því GAGN OG GAMAN. Ef ég hef gleymt einhverju framboði biðst ég velvirðingar..........
Tíðindi í nýrri könnun: Framsókn út af þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.11.2024 | 09:52
OG ÉG SEM HÉLT AÐ AÐ "SLÁTURTÍÐINNI" VÆRI LOKIÐ..........
En samkvæmt "skoðanakönnunum" þá þreytast Íslendingar ekkert á því að láta leiða sig til "SLÁTRUNAR" trekk i trekk og virðast bara kunna því vel. Það virðist vera að það sé notast við eitthvað "afsprengi" af aðferðinni "VEIÐA OG SLEPPA", sem byggir á því að ganga ekki af "bráðinni" steindauðri, svo hægt sé að KVELJA hana áfram Ef landsmenn ætla að láta BLEKKJAST af fagurgala þessara LANDSÖLULIÐA, KJAFTASKA og LYGALAUPA, þá er MUN VERR komið fyrir landsmönnum en ég hafði nokkru sinni ímyndað mér.........
Viðreisn fengi flest þingsæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2024 | 20:42
AÐ SJÁLFSÖGÐU MÁ LEIGJANDINN BORGA LEIGUNA MEÐ REIÐUFÉ...........
Ekki þarf annað en að vísa í 3 grein laga um gjaldmiðil Íslands til að svara þessari spurningu,lög um gjaldmiðil Íslands (lög 22/1968)sem hefur verið breytt fjórum sinnum síðan, síðast árið 2000 og voru þá númer (lög 81/2000) og tóku gild 2. júní 2000. Einnig ber í þessu tilfelli til 17 greinar laga um Seðlabanka Íslands (lög 92/2019 en þar segir í annarri málsgrein laganna: "Seðlar og mynt sem Seðlabankinn gefur ú skulu vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði". Þá er komið fullkomið svar við þessari spurningu, öll vandamál varðandi skattalega meðferð greiðslunnar koma leigjandanum ekkert við og eru þau eingöngu vandamál leigusalans.........
Má leigjandinn borga með peningum fyrir leiguna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2024 | 21:42
MÍNIR MENN KLÚÐRUÐU LEIKNUM Á SÍÐUSTU FIMM MÍNÚTUNUM........
Hvað sem því leið var leikurinn mjög góður og má sega að Valsmenn lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik þar sem þeir fóru alveg á kostum en Haukarnir fundu sig ekki. En það var svo allt annað Haukalið sem mætti í seinni hálfleikinn og þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum voru Haukarnir búnir að jafna leikinn 28-28, en þá fór allt í "baklás", þeir töpuðu boltanum klaufalega og fengu mörk í bakið og gerðu "barnaleg" mistök og létu Björgvin Pál verja úr dauðafærum. Valsararnir áttu bara fullkomlega skilið að vinna þennan leik og óska ég þeim til hamingju með verðskuldaðan sigur.....
Valsmenn sigldu fram úr í lokin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2024 | 08:49
"ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
Siðast liðið sumar, nánar til tekið í júní, gengum við Íslendingar til forsetakosninga. Það væri kannski ekki í frásögur færandi, nema fyrir það að þar hafa landsmenn látið "plata" sig alveg úr skónum og jafnvel að sokkarnir hafi fylgt með. Ekki er ég með það alveg á hreinu hver eða hverjir komu þeirri vitleysu af stað að NÚ ÞYRFTU LANDSMENN AÐ FARA AÐ KJÓSA "TAKTÍSKT" til að koma í veg fyrir að fyrrverandi forsætisráðherra yrði kannski næsti forseti lýðveldisins. Þetta var fyrst og fremst ástæðan fyrir því að við sitjum uppi með núverandi forseta og það hefur sýnt sig að þar sátum við uppi með "SVARTA PÉTUR" og ég er bara alls ekki viss um við hefðum nokkuð verið verr sett með að fyrrum forsætisráðherra hefði unnið kosningarnar. Og núna fyrir Alþingiskosningarnar núna í nóvember er AFTUR farið að tala um að landsmenn fari að "KJÓSA TAKTÍSKT". HVERNIG ER ÞAÐ EIGINLEGA ER HÆGT A STJÓRNA LANDSMÖNNUM OG "LÁTA ÞÁ GERA" HVAÐ SEM ER??????????
20.11.2024 | 12:33
HVAÐA "PABBABRANDARI" ER EIGINLEGA Í GANGI??????
Hvar í veröldinni dettur nokkrum í hug að hafa stýrivextina í 8,5% þegar ársverðbólga mælist innan við 4,0%?? Fyrir utan það að það er fyrir nokkrum áum búið a sanna það að EKKERT samband sé á milli stýrivaxtastigs og verðbólgu. Ég var nú aðeins að lesa lauslega yfir lögin um Seðlabanka Íslands (lög 92/2019). Það sem ég tók fyrst eftir er hversu lögin eru illa samin og óljós, sem gerir það að verkum að ÞAÐ ER LÍTIÐ MÁL AÐ "TÚLKA ÞAU ÚT OG SUÐUR OG JAFNVEL NORÐUR OG NIÐUR". ÉG SÁ ÞAÐ HVERGI Í ÞESSU LÖGUM AÐ SEÐLABANKA ÍSLAND VÆRI GEFI HEIMILD TIL ÞESS AÐ STJÓRNA VAXTASTIGINU Á ÍSLANDI EN ÞAÐ ER HÆGT AÐ "TÚLKA ÞAU ÞANNIG". En það sem er vitað er það AÐ STÝRIVAXTASTIGIÐ HEFUR ENGIN ÁHRIF Á VERÐBÓLGUNA. Seðlabanki Íslands hefur HEIMILD til verðbréfútgáfu, sem að mati margra hagfræðinga hefur mun meiri áhrif á verðbólguna en stýrivaxtastigið og svo er annað "VERKFÆRI sem Seðlabanki Íslands hefur en það er BINDISKYLDAN en að mati margra hagfræðinga og annarra er það ÖFLUGASTA verkfærið í "verkfærakistu" Seðlabanka Íslands. Bæði verðbréfútgáfan og bindiskyldan eru mun sterkari í baráttunni við verðólgunni en hvort tveggja krefst mun meiri vinnu og er flóknara í framkvæmd en stýrivaxtastigið sem hefur svipuð áhrif á verðbólguna eins og að skvetta vatni á gæs..........
Stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentustig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2024 | 12:09
ÞVÍ MIÐUR VIRÐAST LANDSMENN ÆTLA AÐ LÁTA "BLEKKJA" SIG........
Og Íslendingar virðast ætla að "gleypa" lygina frá henni, varðandi ESB, alveg hráa.og það án þess að drekka nokkuð til að lygin renni "betur niður". Hún talar fjálglega um 3,1% verbólgu og 3,5% stýrivexti í ESB EN MÁLIÐ ER AUÐVITAÐ AÐ 3,1% VERÐBÓLGA OG 3,5%STÝRIVEXTIR INNAN ESB ER EKKI TIL. ÞESSAR TÖLU ERU ÞANNIG FENGNAR AÐ EVRÓPSKI SEÐLABANKINN (ECB) REIKNAR ÚT MEÐALTALS STÝRIVEXTI OG VERÐÆTUR INNNAN ESB RÍKJANNA, ÞAÐ ER ALLS EKKI SVO AÐ SAMA STÝRIVAXTASTIG OG ÞÁ VERÐBÓLGA SÉ Í ÞÝSKALANDI OG UNGVERJALANDI, EN BÆÐI ERU Í ESB. En er það þannig að lönd innan ESB reka sjálfstæða efnahagsstefnu þrátt fyrir að ýmsar blikur séu á lofti í þeim málum. Það væri ráð að INNLIMUNARSINNAR færu að tala um ESB og evru af einherjum HEIÐARLEIKA.......
Horfir Þorgerður Katrín til hægri eða vinstri? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2024 | 02:33
ÞESSI MANNESKJA STOPPAR EKKI NEMA HÚN VERÐI STÖÐVUÐ........
Einhverjir munu segja að hún sé "stríðsóð" og það er nokkuð ljóst að hún er MJÖG herská en ég held að það sé nokkuð ljóst að hún hefur ekki eina einustu hugmynd um hvað stríð er né hvers kona hörmungar það kallar yfir ÞÁ SEM VERÐA FYRIR ÞVÍ. Það er ömurlegt að verða vitni að því hvernig hún og fleiri tala fyrir áframhaldandi átökum á svæðinu með því að styðja annan aðilann áfram til sigurs á vígvellinum, þegar ALLIR SJÁ AÐ ENGAR SJÁANLEGAR HORFUR ERU Á ÞVÍ AÐ ÚKRAÍNA EIG NOKKRA VON UM SIGUR Á VÍGVELLINU. Hvernig má það eiginlega vera að ENGINN vestrænn leiðtogi eða háttsetur vestrænn stjórnmálamaður svo mikið sem talar um FRIÐ OG SAMNINGA?????????
Rússar stoppi ekki nema þeir séu stöðvaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.11.2024 | 10:08
"ENDURSKOÐUN" EES SAMNINGSINS ÞÝÐIR Í RAUNINNI "UPPSÖGN" SAMNINGSINS....
Því það vita það allir sem vilja vita að "endurskoðun" á EES samningnum yrði aldrei neitt annað en "hálfkák" og hætt við að það yrði farið í þá vinnu með "hangandi hendi" af ÖLLUM aðilum (þar er "skýrsla" Björns Bjarnasonar um kosti og galla EES samningsins, sem kom út fyrir nokkrum árum gott dæmi). Nú er virkileg þörf á því að gera aðeins skil á því hvers konar breytingar hafa orðið á eðli og starfsemi ESB frá því að EES samningurinn tók gildi og það þarfnast útskýringa við HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ EES SAMNINGURINN HEFUR EKKI TEKIÐ NEINUM BREYTINGUM Á ÖLLUM TÍMANUM OG ÞÁ ER ÉG AÐ TALA UM BREYTINGAR Á SAMNINGNUM FRÁ ÖLLUM SAMNINGSAÐILUNUM?
Þegar EES samningurinn var undirritaður, var um að ræða VIÐSKIPTASAMNING, sem átti að tryggja EFTA ríkjunum aðgang að sameiginlegum markaði Evrópu. Okkur Íslendingum var SELDUR þessi samningur á þeim forsendum að SJÁVARÚTVEGSVÖRUR YRÐU TOLLFRJÁLSAR en svo kemur í ljós að sjávarútvegsvörur hafa ALDREI verið tollfrjálsar. BER ENGINN ÁBYRGÐ Á ÞESSUM BLEKKINGUM???? Eins og ég sagði áðan þá var að um viðskiptasamning hafi verið um að ræða en þegar var verið að vinna að EES samningnum var þegar verið að vinna að breytingum á ESB, með hinum svokallaða Maastricht samningi sem var gerður árið 1992 en öðlaðist ekki gildi fyrr en mörgum árum síðar vegna þess að ríki ESB voru ekki sátt við hann en eftir að samningurinn hafði verið þvingaður í gegn var reglum ESB breytt í þá átt að samninga ESB þurfti ekki lengur að samþykkja EINRÓMA heldur ÞURFTI AÐEINS MEIRIHLUTASAMÞYKKI. En ekki var gerð nein breyting á EES samningnum. En stærsta breytingin á ESB varð árið 2009 með hinu svokallaða Lissabon samkomulagi, ekki hafði þáverandi Utanríkisráðherra Íslands, sem var á þessum tíma Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrir því að upplýsa landsmenn um þessa miklu breytingu á ESB, sem fór meira í þá áttina að verða pólitískt samband með mun meiri heimildir til framkvæmdastjórnar ESB til miðstýringar innan ESB landanna OG ÞÁ INNAN EES RÍKJANNA. Getur ekki verið að BÓKUN 35 sé ein af afleiðingum Lissabon sáttmálans, því þessi bókun var ekki inni í upphaflega EES samningnum NEMA ÞAÐ HAFI FARIST FYRIR AÐ BIRTA HANA EINS OG ER VÍST UM MARGT ANNAÐ VIÐKOMANDI ÞESSUM SAMNINGI??????
VERÐI EKKI GRIPIÐ TILRÁÐSTAFANA STRAX OG EINA RÁÐSTÖFUNIN SEM ER FÆR ER AÐ SEGJA EES SAMNINGNUM UPP, GLATAST SJÁLFSTÆÐI LANDSINS OG LANDSMENN VERÐA LEIGULIÐAR ESB. EN SVO ER SPURNINGIN HVAÐ VERÐUR UM ÍSLAND ÞEGAR ESB HRYNUR OG SAMBANDIÐ VERÐUR GERT UPP????????
16.11.2024 | 08:26
EN "GAGNSÆIÐ" Á EKKI VIÐ UM PÍRATANA.........
Talandi um það hvort flokkur sé "STJÓRNTÆKUR" eða ekki og Píratar hljóta að vera MJÖG ofarlega á lista þegar þessi spurning vaknar. Alveg frá því að Píratar komust fyrst á þing hafa þeir ALDREI tekið þátt í stjórn landsins en þeir hafa verið frekar "duglegir" að gagnrýna stjórnvöld án þess að benda á nokkrar lausnir. Við höfum séð dæmi um að Píratarnir hafa komið sér í borgarstjórn Reykjavíkur og ekki eru til nein gögn, sem benda til að það hafi verið til gæfu fyrir borgarbúa. Nú virðast landsmenn vera orðnir nokkuð þreyttir á þess ábyrgðarleysi Píratanna og að þeir fari að gera eitthvað annað en að gagnrýna bara án þess að sýna nokkra ábyrgð á einu eða neinu. Fylgi Pírata í skoðanakönnunum sýnir líklega að kjósendur þeirra kalli eftir einhverjum breytingum..........
Frumkvæðisrannsókn á ráðningu Jóns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2024 | 10:49
BENSÍN - OG OLÍUGJALD HÆKKA UM 2,5% UM NÆSTU ÁRAMÓT.........
Og er því borið við að þeir "ÞURFI" að gera þetta vegna þess að það varð að "fresta" upptöku "kílómetragjalds". Það hefði bara átt að segja eins og er ÞAÐ AÐ TAKA UPP KÍLÓMETRAGJALD ER EKKI TÆKNILEGA FRAMKVÆMANLEGT. Ef það þarf að ná einhverjum sköttum inn vegna rafmagnsbílum væri bara EINFALDAST að leggja á þá "ÞUNGASKATT"......
„Mjög bagalegt“ að klára ekki málið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2024 | 16:18
"ÞAÐ ER EKKI EIN BÁRAN STÖK Í 12 VINDSTIGUM"...........
Er ekki komið nóg af "drullu" á þennan mannræfil? Það er búið að draga hann svoleiðis á bólakaf í "drullusvaðið" að hann á sér ekki VIÐREISNAR von (sennilega kæmist hann ekki einu sinni í Viðreisn) eftir þá útreið sem hann hefur fengið. Er nokkur bættari með því að þessi umfjöllun haldi áfram?????
Klúr skrif beindust einnig gegn börnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2024 | 05:11
ÞETTA MÁL VIRÐIST ÆTLA AÐ HAFA AFLEIÐINGAR ENDA ER ÞAÐ VÍST SVO AÐ ÞAÐ KEMUR ALLTAF AÐ "SKULDADÖGUNUM" HJÁ ÖLLUM.... I
Og það er víst engin VÖNTUN á svona "SKÍTDREIFURUM" innan Samfylkingarinnar til að fylla í skarðið - það er víst öllu meira mál að forðast þá......
Þórður má og á að skammast sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2024 | 08:21
HANN ER ÞÁ "TÍKARSONUR" (SON OF A BITCH).................
Þó hann beri því við að þarna hafi hann verið ungur og óþroskaður (25 ára) og reyni að afsaka sig með því að þetta hafi nú bara verið grín, en verðum við ekki að gera kröfu til þess að menn hafi eitthvert smá taumhald á því sem þeir segja og gera hvað sem þeir segja og gera og beri því endalaust fyrirsig að þeir hafi verið ungir og vitlausir en séu mikið eldri og þroskaðri í dag. Einhvers staðar er sagt: "LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ", Hvers er þá hægt að "vænta" af þessum manni í framtíðinni?????????????
Kallaði konur lævísar, undirförlar tíkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Af hverju segi ég þetta? Við skulum aðeins skoða "prófkjörin" og framkvæmd þeirra aðeins nánar: Fyrir það fyrsta er það þannig AÐ ÞEIR EINIR ERU Á LISTANUM, SEM ALMENNINGI STENDUR TIL BOÐA AÐ VELJA AF, ERU ÞEIR MENN/KONUR SEM ERU "FLOSSEIGENDUM" ÞÓKNANLEGIR. Og svo kemur að niðurstöðu "prófkjörsins", það er engin TRYGGING fyrir því að niðurstaða "prófkjörsins" verði virt og er einna skýrasta dæmið um það þegar einn stjórnmáflokkurinn ákvað að taka upp svokallaða "fléttulista", listunum var stillt upp þannig í mismunandi sætum listanna var raðað til skiptis karli og konu. Mér er ekki kunnugt um að það sé neitt formlegt eftirlit með framkvæmd Prókjöra, þannig að ef það er rétt þá er hægt að "möndla" með úrslit þeirra eins og mönnum sýnist. ÉG HELD AÐ PRÓFKJÖRIN SÉ EKKI HAFIN YFIR VAFA OG LÝÐRÆÐISGILDI ÞEIRRA SÉ STÓRLEGA ORÐUM AUKIÐ.......
10.11.2024 | 20:44
OG ÞESSI FLOKKUR BÆTIR VIÐ FYLGI SITT SAMKVÆMT SKOÐANAKÖNNUNUM?????
Þau halda fram algjörlega ÓRAUNHÆFUM HUGMYNDUM, ERU "GRJÓTHARÐIR INNLIMUNARSINNAR (vilja með öðrum orðum ganga í ESB) og þar með að FÓRNA SJÁLFSTÆÐI LANDSINS þar með er markmiðið að TAKA UPP EVRU SEM MYNDI ENDANLEGA GERA ÚTAF VIÐ EFNAHAG LANDSINS. Þetta segir okkur ekkert annað en að hátt í 20% landsmanna hugsa ekki framfyrir nefið á sér.........
Vilja banna skráningu nýrra bensínbíla á næsta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2024 | 18:01
HVAÐA SKATTA TELUR HANN ÞÁ "SANNGARNT" AÐ HÆKKA???????????
Í rauninni var bara dapurlegt að hlusta á BULLIÐ í mannræflinum, sem bara talaði út í eitt en sagði ekki neitt. Það kom eiginlega fram hjá honum í þessu viðtali að hann telur að peningar vaxi á trjánum eða séu hreinlega ekki til og einnig talaði hann um að "laga til" í fæðingaorlofskerfinu, barnabókerfinu,heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og fleira og fleira, hann virtist halda að þessi "tiltekt" kostaði ekkert KANNSKI HEFUR HANN, ÁSAMT BJÖRGÓLFI THOR, AÐGANG AÐ PENINGUM SEM ENDUÐU Í "MONEY HEAVEN" Á SÍNUM TÍMA???????????
Óréttlátt að hækka tekjuskatt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2024 | 11:57
ÞETTA LIÐ VIRÐIST BARA EKKI HAFA HUGMYND UM EITT EÐA NEITT.......
Fyrir það fyrsta þá er ráðuneytið að framfylgja þeim lögum sem þegar eru til staðar. Í sjálfu sér er bara verið að staðfesta það formlega sem STJÓRNARSKRÁIN heimilar. Þetta er bara fullkomlega eðlilélegt STARFSSTJÓRN ÞÝÐIR EKKI AÐ ALLT EIGI BARA AÐ REKA Á REIÐANUM OG SEM LÍTIÐ DÆMI HELD ÉG AÐ ÞAÐ SÉ NÚ FREKAR VAFAMÁ UM ÞAÐ HVORT EINHVER HEIMILD HAFI VERIÐ TIL ÞESS AÐ LÁTA SELENSKI HAFA TVO MILLJARÐA TIL AÐ SETJA Í STRÍÐ Í ÚKRAÍNU ÉG MAN EKKI EFTIR NEINNI GAGNRÝNI Á ÞAÐ.......
Helmingur telur leyfisveitingu óeðlilega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.11.2024 | 05:31
ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM HVAÐ ÞESSI "SKÍTDREYFARI OG SIÐLEYSINGI" HEFUR KOMIST UPP MEÐ Í GEGNUM ÁRIN.......
Alveg frá því að þessi maður kom inn í fjölmiðlageirann hefur ferillinn einkennst af hálfkveðnum víum, kjaftasögnum (þar sem "Gróa á Leiti" er helsta heimildin), útúrsnúningum og hagræðingu á sannleikanum. Það væri kannski ekki ú vegi að rifja upp starfsferil hans og innkomu í fjölmiðlageirann en ég nenni ekki að standa í einhverjum málaferlum við hann, en ef ferill hans er skoðaður þá eru málaferli af ýmsum toga (aðallega meiðyrðamál) nokkuð fyrirferðarmikil. Að mínum dómi yrði skaðinn ekki mikill þótt hann hyrfi út úr Íslenskri fjölmiðlaflóru........
Staðfesta dóm fyrir skrif upp úr minningargrein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2024 | 12:53
ERU LÖGIN UM SEÐLABANKA ÍSLANDS ILLA UNNIN OG BEINLÍNIS RANGTÚLKUÐ????
Ég var nú aðeins að lesa lauslega yfir lögin um Seðlabanka Íslands (lög 92/2019). Það sem ég tók fyrst eftir er hversu lögin eru illa samin og óljós, sem gerir það að verkum að ÞAÐ ER LÍTIÐ MÁL AÐ "TÚLKA ÞAU ÚT OG SUÐUR OG JAFNVEL NORÐUR OG NIÐUR. ÉG SÁ ÞAÐ HVERGI Í ÞESSU LÖGUM AÐ SEÐLABANKA ÍSLAND VÆRI GEFI HEIMILD TIL ÞESS AÐ STJÓRNA VAXTASTIGINU Á ÍSLANDI EN ÞAÐ ER HÆGT AÐ "TÚLKA ÞAU ÞANNIG". En það sem er vitað er það AÐ STÝRIVAXTASTIGIÐ HEFUR ENGIN ÁHRIF Á VERÐBÓLGUNA. Seðlabanki Íslands hefur HEIMILD til verðbréfútgáfu, sem að mati margra hagfræðinga hefur mun meiri áhrif á verðbólguna en stýrivaxtastigið og svo er annað "VERKFÆRI sem Seðlabanki Íslands hefur en það er BINDISKYLDAN en að mati margra hagfræðinga og annarra er það ÖFLUGASTA verkfærið í "verkfærakistu" Seðlabanka Íslands. Bæði verðbréfútgáfan og bindiskyldan eru mun sterkari í baráttunni við verðólgunni en hvort tveggja krefst mun meiri vinnu og er flóknara í framkvæmd en stýrivaxtastigið sem hefur svipuð áhrif á verðbólguna eins og að skvetta vatni á gæs. EÐA HVAÐ???? Ég skoðaði LÖG UM SEÐLABANKA ÍSLANDS (lög númer 92/2019) og það sem "stakk" mig einna mest við það að lesa þessi lög, var hversu óskýr þau eru og lítið mál að "TÚLKA ÞAU" út og suður. Sem dæmi skal nefnt að formlega er Seðlabanka Íslands ekki færð völd til að ákveða eitt né neitt en svo kemur 3 grein laganna, önnur málsgrein og þar segir; "Ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabankans í peningamálum eru teknar af peningastefnunefnd, sbr. 9. gr. Ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabankans varðandi fjármálastöðugleika eru teknar af fjármálastöðugleikanefnd, sbr. 12. gr. [Ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum eru teknar af Seðlabanka Íslands eða fjármálaeftirlitsnefnd, sbr. 15. gr.]" ÞESSI GREIN VIRÐIST VERA TÚLKUÐ ÞANNIG AÐ SEÐLABANKANUM HAFI VERIÐ FENGIN Í HENDUR VÖLD, SEM RAUNVERULEGA EIGA AÐ VER Á HENDI VIÐKOMANDI RÁÐHERRA.
Að mínu áliti VERÐUR að gera lögin skýrari og einnig verður að koma í veg fyrir að stjórnmálamenn landsins geti sífellt varpað sinni ábyrgð yfir á aðra ÞVÍ FYRST OG SÍÐAST ER ÁBYRGÐIN HJÁ ÞEIM..........