STYÐJUM SJÁLFSTÆÐISBARÁTTU GRÆNLENDINGA.....

Ég hef lengi verið með þessa gein í vinnslu og loksins er ég orðinn þokkalega ánægður með hana og er tilbúinn að senda hana frá mér.  

Þau komu alveg sérstaklega illa í mig þau orð Utanríkisráðherra: „VIÐ STÖNDUM MEÐ DÖNUM“.  VAR HÚN MEÐ UMBOÐ ÞJÓÐARINNAR TIL AÐ LÁTA ÞETTA ÚT ÚR SÉR?  Hvað kemur eiginlega til að hún sá einhverja þörf hjá sér að styðja við bakið á „Mettu minnkarana“?  Þá skulum við fara aðeins yfir það hvers vegna við Íslendingar eigum að styðja Grænlendinga í sjálfstæðisbaráttu þeirra.   Við byrjuðum á því að „missa“ sjálfstæði okkar til Noregs og vorum undir stjórn þeirra í einhverjar aldir en síðan töpuðu Norðmenn stríði við Danmörku og þá sömdu Norðmenn við Dani um að Ísland yrði „stríðsskaðabætur“ til Dana og þar með hófst ógæfa landsins  Og alltaf hertu Danir tökin og eymdin og fátæktin jukust alltaf til dæmis voru HANDRITIN flutt til Danmerkur að hluta til vegna þess að Íslendingar höfðu hvorki getu né kunnáttu til að geyma þau eða varðveita.  Eftir að Jón Arason, síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, var hálshöggvinn ásamt tveimur sonum sínum í Skálholti árið 1550 þá rændu Danir ÖLLUM dýrgripum úr KAÞÓLSKUM KIRKJUM á Íslandi og fluttu  „GÓSSIГ til Danmerkur og ég veit ekki til að það hafi komið til tals að þessum DÝRGRIPUM verði skilað.  Það er engu logið með það að Danir komu ENGU BETUR fram við Íslendinga heldur en þeir gera við Grænlendinga.  Það má segja að Grænlendingar séu á svipuðum slóðum í sjálfstæðisbaráttu sinni og Íslendingar voru fyrir árið 1904, þegar Ísland fékk HEIMASTJÓRNINA.

Þá er komið að því að Utanríkisráðherra fái smá fræðslu um hvernig NORÐURLANDASAMVINNA ER Í RAUNINNI.  Við skulum bara horfast í augu við það að "NORÐURLANDAFJÖLSKYLDAN", sem Utanríkisráðherra talar svo fjálglega um, er í rauninni tvískipt, annars vegar eru; Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Álandseyjar og Finnland og hins vegar eru Ísland og Færeyjar og nú nýlega er Grænland víst komið inn í seinni hópnum, sem eru óhreinu börnin hennar Evu, sem A deild NORÐURLANDANNA vill ekkert vita af nema á tyllidögum.   Og nú hefur C- deildin bæst við sem, eru Eystrasaltslöndin bæst við (Eistland, Lettland og Litháen).  Sem dæmi má nefna að ég bjó í Noregi í vel á þriðja ár og þau ár vor vikulegir þætti í Norska sjónvarpinu sem hétu "NORDEN RUNDT" (ferðalag um Norðurlöndin, lausleg þýðing) þar sem komu  stutt innskot frá "ÖLLUM" Norðurlöndunum.  Allan þann tíma sem ég bjó í Noregi kom ekki einn einasti þáttur frá Íslandi eða Færeyjum.  Ætli þetta sé eitthvað sem Utanríkisráðherra kallar "eðlileg" fjölskyldutengsl?????  Mér skilst að  það hafi gengið eitthvað treglega að Grænland hafi fengið formlega aðild að NORÐURLANDARÁÐI, en getur verið að nýjustu vendingar í málefnum  GRÆNLANDS hafi haft einhver áhrif þar á, því að Danmörk hefur fyrst núna ljáð því máls að Grænland yrði tekið inn sem formlegur aðili. Danir hafa ALLTAF litið á Ísland, sem nýlendu sína þó svo að Ísland hafi fengið sjálfstæði frá þeim árið 1944 og í þeirra augum erum við bara enn „þrælar“ í þeirra augum.  Og ég er þess fullviss að það verði ekki langt í að Færeyjar verði fullvalda líka, ekki bara Grænland.  ÆTLUM VIÐ AÐ GLEYMA FORTÍÐINNI??????


ÞRÁTT FYRIR ALLT ER VEGAKERFIÐ HÉR Á LANDI Í "KLESSU"..........

Skpiting bensínverðsinsMeðfylgjandi mynd var tekin niður af "mbl.is", því miður  get ég ekki munað nákvæmlega hvaða dag það var, en dagsetningin sem slík skiptir ekki meginmáli heldur hvað myndin segir okkur.  Í myndinni gætir ákveðinnar ónákvæmni í framsetningu aukastafa en það er í sjálfu sér ekki nokkuð sem hefur áhrif á heildarniðurstöðuna.  Hvort sé notast er við  19% við útreikning virðisaukaskatts eða 19,35% eins og á að gera, heldur er aðalatriðið að miðað er við að bensínlítrinn kosti 320 krónur og út frá því er allt reiknað.  Það hafa komið hinir og þessir "sérfræðingar" í fjölmiðlum, sem halda því fram að VEGAGERÐIN þurfi að setja MUN HÆRRI upphæðir til viðhalds á vega  kerfinu en þessar 170,80 krónur á hvern seldan bensinlíter.  Getur verið að kostnaðurinn við að REKA VEGAGERÐINA sé DREGINN FRÁ þessum 170,8 krónum á hvern seldan bensínlíter og restin fari í viðhald vegkerfisins, þarf ekki VEGAGERÐIN þá að fara að HAGRÆÐA í rekstri sínum og nýta betur það fjármagn, sem hún hefur til ráðstöfunar???????

 


mbl.is Meirihluti eldsneytisverðs rennur til ríkisins – og nýr skattur á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VILJA ÞJÓÐVERJARA EKKI AÐ "BLACKROCK" STJÓRNI LANDINU?????

En voru kjósendur Kristilegra Demókrata í Þýskalandi kannski ekki upplýstir nægilega um tengsl Frederch Merz, við Blackrock fyrir kosningarnar??????


mbl.is Tapaði óvænt kanslarakjörinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN AÐEINS UM STRANDVEIÐAR OG VEIÐIGJÖLD.......

Svo er eitt mál, sem hefur verið alveg ótrúleg andstaða við á Alþingi og þá sérstaklega hjá fyrrverandi stjórnarflokkum (reyndar hjá stærstum hluta Alþingismanna, hvernig í ósköpunum sem getur staðið á því), EN ÞAÐ ER AÐ GEFA HANDFÆRAVEIÐAR ALVEG FRJÁLSAR.  Þá koma ráðamenn og „taglhnýtingar SFS“ og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló (Ég nenni ekki að fara yfir þessar aðferðir hjá HAFRÓ við að stofnstærðarmælingarnar, því ég er svo oft búinn að tala um þetta).  Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 40.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vegna strandveiða til dæmis þetta er þessi "forsjárfasismi" sem er í gangi  í strandveiðunum alger PLÁGA og stórskaðar þessa atvinnugrein.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

Það hefur mikið verið rætt um það að útgerðin „gæti ekki“ greitt fyrir veiðiheimildirnar, þetta er náttúrulega bull og ekkert annað.  Ég veit ekki um neina atvinnugrein, sem ekki þarf að greiða fyrir hráefnið í lokaframleiðslu sína.  Að sjálfsögðu á útgerðin að greiða eitthvað fyrir hráefnið og ekki væri óeðlilegt að 15 - 20% af lönduðum afla færi í svokallað veiðigjald hvort sem um er að ræða afla af togurum, línuskipum, netabátum handfærabátum eða öðrum veiðum og kæmi þá í ljós hvaða veiðar væri hagkvæmast að stunda.ÞAÐ ER MIKIÐ GERT AF ÞVÍ AÐ ÍSLAND SÉ EINA RÍKIÐ Í HEIMINUM SEM EKKI RÍKISSTYRKI SJÁRÚTVEGINN, EN ER ÞETTA ALLSKOSTAR RÉTT????? 


mbl.is Strandveiðar hefjast og 775 með leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ÞAÐ VILDI BARA SVO TIL AÐ ÞEIR SEM VORU "HÆFASTIR" VORU MEÐLIMIR Í FLOKKNUM"...

En það er sennilega ósanngjarnt að vera að "KLÍNA" ÞVÍ á formann Flokks Fólksins...... wink


mbl.is Skipaði þá aðila „sem ég taldi hæfasta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER "SKÍTALYKT" AF ÞESSU MÁLI - HVERNIG SEM Á ÞAÐ ER LITIÐ.....

Það er um það hávær orðrómur þess efnis að bæði Forsætis- og Utanríkisráðherra hafi lagt MJÖG hart að Ásthildi Lóu Þórsdóttur að segja af sér Ráðherraembætti en það er ekki nokkur leið að þessar tvær SKESSUR fáist til að viðurkenna  það.  EITTHVAÐ ER VERIÐ AÐ FELA...........


mbl.is „Það er einhver ósögð saga þarna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband