11.9.2025 | 09:02
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ HEFUR ENGAN RÉTT TIL AÐ HLUTAST TIL UM STJÓRNARTILNEFNINGAR EINKAFYRIRTÆKJA.....
Þarna er ráðherra bara að "TAKA SÉR VÖLD" sem hún hefur ekki og beitir svokallaðri "FREKJUSTJÓRNUN og YFIRGANGI" sem hefur einkennt alla hennar stjórnunarhætti frá því að "SKESSUSTJÓRNIN" tókvið stjórnartaumunum hér á landi.......
![]() |
Ráðuneytið hafnar beiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nú getur hún látið lygaþvælunni "rigna" yfir landsmenn og talað fjálglega um nauðsyn þess að Ísland fari í stríð við Rússa með dyggri aðstoð fyrrum vinnuveitenda sinna á RÚV og svo er hún með "kjölturakkann" sinn í Utanríkismálanefnd, sem geltir alltaf þegar honum er sigað......
![]() |
Sýni hve langt Rússar séu tilbúnir að ganga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.9.2025 | 08:52
MEÐ BETRI DÆGURLÖGUM SEM SAMIN HAFA VERIÐ............
Lee Hazelwood samdi þetta stórkostlega lag og sennilega er það þekktast í flutningi hans og Nancy Sinatra en margir hafa spreytt sitt sig á flutningi þess. Meira að segja flutti Hljómsveit Ingimars Eydal þetta lag, þetta lag naut gríðarlegra vinsælda í flutningi hljómsveitarinnar og má til gamans geta þess að hljómsveitarmeðlimir og fleiri kölluðu Ástu Sigurðardóttur Sumar Ástu eftir þetta, en Íslenski textinn er eftir Ástu Sigurðardóttur eiginkonu Ingimars Eydal. Eins og áður segir þá hafa margir reynt sig við þetta lag en það er mitt mat að þetta sé Besti flutningurinn á þessu lagi en að sjálfsögðu dæmir hver fyrir sig. Bono er mjög umdeildur og margir eru mjög ósáttir við hrokafulla framkomu hans en hvað sem öðru líður þá verður ekki mælt gegn því að hann er góður söngvari.......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þrátt fyrir það að Arbeiderpartiet (með Jonas Gahr Støre í brúnni)hafi hlotið kosningu sem stærsti flokkurinn. Flokkurinn fékk 28,2% atkvæða en bætti við sig 1,9% frá síðustu Alþingiskosningum. En svo er flokkurinn sem hafnaði í öðru sæti sem er Fremskritspartiet (með Sylvi Listhaug í brúnni) sá flokkur hlaut 23,6% atkvæða en bætti við sig 12,3% frá síðustu Alþingiskosningum. ALLIR flokkarnir sem höfðu ESB aðild á stefnuskránni töpuðu fylgi og þar fóru Høyre fremstir í flokki eða misstu 5,7% fylgi frá síðustu kosningum. Jonas Gahr Støre notaðist við sömu "taktík" og Kristrún Frostadóttir og sagði að ESB aðíld yrði ekki á "dagskrá" og nú er spurning hvort efndirnar verði þær sömu og hjá Kristrúnu? EN NIÐURSTAÐA KOSNINGANNA VAR SÚ AÐ NORÐMENN HÖFNUÐU ESB AÐILD MEÐ ÖLLU.........
VINSAMLEGAST "KLIKKIÐ" Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA
![]() |
Støre með 28,2% Solberg játar sig sigraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2025 | 11:04
ALHEIMSLÁGMARKSSKATTUR?????????
Þrátt fyrir að þessi svokallaði "alheimslágmarksskattur" hafi átt að vera kynntur í þessari svokölluðu "Samráðsgátt", þá held ég að fólk viti ekki almennilega hvað þetta fyrirbæri þetta er í rauninni (ég trúi því ekki að ég sé eini maðurinn á Íslandi sem veit ekki hvað þetta er). Hafi þetta verið kynnt fyrir landsmönnum hefur sú kynning eitthvað misfarist en það misferst ekkert að skella þessu á landsmenn. Ég mann ekki betur en að Samfylkingin hafi LOFAÐ því að skattar myndu ekki hækka. KANNSKI TELJA ÞEIR AÐ NÝIR SKATTAR SÉU EKKI SKATTAHÆKKANIR???????????
![]() |
Stefnt á upptöku 15% alheimslágmarksskatts |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
7.9.2025 | 17:13
HVAÐA AÐGERÐIR GEGN RÚSSUM TELJA "SKESSURNAR" AÐ "BÍTI"??????
Hafa þá allar aðgerðir hingað til verið "bitlausar"??? Það kæmi mér ekki á óvart (með því væru þær algerlega að "bíta höfuðið af skömminni") AÐ ÞÆR FÆRU FRAM Á AÐ SENDIR YRÐU ÍSLENSKIR HERMENN TIL ÚKRAÍNU (UNDIR DULNEFNINU FRIÐARGÆSLULIÐAR) Í ÞAÐ MINNSTA STÓRAUKINN HERNAÐARLEGUR STUÐNINGUR og þar með yrði Ísland DREGIÐ ENN HARÐAR INN Í HERNAÐINN ÞARNA AUSTUR FRÁ (sem kemur okkur í rauninni ekkert við) OG AÐ GERA ÍSLAND AÐ ENN STÆRRA SKOTMARKI. ÉG GET BARA EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ "SKESSUSTJÓRNIN" FARI FRÁ, VONANDI SPRINGUR HÚN Í LOFT UPP Á FYRSTU DÖGUM NÝS ÞINGS.......
![]() |
Segir árásina birtingarmynd grimmdar stjórnvalda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.9.2025 | 05:49
ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ GEFA ÖÐRUM RÁÐ.........
En þurfa ekki að fara eftir þeim sjálf(ur) og velta ekki einu sinni fyrir sér hvaða afleyðingar "ráðgjöfin" getur haft í för með sér. Er ekki sagt að aðgát skuli hafa í nærveru sálar.........
![]() |
Móðir mannsins míns er að gera mig brjálaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2025 | 17:15
NEI NÚ ER HÚN ENDANLEGA AÐ MISSA "ÞAÐ"........
Og ég sem hélt að hún gæti ekki versnað meira en komið var. En maður lærir víst svo lengi sem maður lifir. En hún er þá hætt að koma manni á óvart (það verður víst að sjá björtu hliðarnar, eins og Sverrir Stormsker sagði).....
![]() |
Aðgerðir vegna Gasa ræddar í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.9.2025 | 10:19
ÞURFA "SKESSURNAR" OG RÁÐHERRAR YFIRLEITT EKKI AÐ FARA AÐ LÖGUM???
Og þar virðist vera að almenningur í landinu sé algjörlega varnarlaus gagnvart þessu liði og það sem er enn verra er að almennir Alþingismenn þegja þunnu hljóði. Það er kannski rétt að rifja upp nokkra af þessum "GLÆPUM" sem ekkert virðist vera fyrirhugað að grípa til nokkurra aðgerða gegn. Og þegar viðbrögð eru þannig við LÖGBROTUM á æðstu stöðum hver halda menn að þróunin verði ef ekkert verður að gert????
- Þáverandi Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, þáverandi Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson og þáverandi Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir gerðu samning um kaup á "bóluefnum" (sem reyndust með öllu gagnslaus en vonandi hafa þau ekki vitað það þá). Þessi samningur kostaði ríkið marga milljarða króna og það sem meira var VAR AÐ ALÞINGI ÍSLENDINGA KOM EKKERT AÐ ÞESSU EN ÞAÐ ER SKÝRT TEKIÐ FRAM Í STJÓRNARSKRÁNNI AÐ EKKI MEGI STOFNA TIL ÚTGJALDA EÐA SKULDBINDINGA FYRIR RÍKISSJÓÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS. Ég veit ekki betur en að enn sé "TRÚNAÐUR" á þessum samningi en hafa ráðherra ENGAR trúnaðarskyldur við almenning í landinu????? ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
- Í júní 2023, braut Svandís Svavarsdóttir þáverandi Matvælaráðherra ákvæði STJÓRNARSKRÁRINNAR um atvinnufrelsi og minnst fjórar aðrar greinar á Almennum lögum með því að banna hvalveiðar með eins dags fyrirvara. Þegar hún varð þess vör að ekki var samstaða um þessa aðgerð hennar fór hún í "veikindaleyfi" Og svo þegar hún ætlaði að koma til baka þá beið hennar VANTRAUSTSTILLAGA, sem Flokki Fólksins tókst með ótrúlegum hætti að klúðra (en kannski var það bara ætlunin). En hún kom sér bara yfir í annað ráðuneyti og ekki batnaði það. ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI...
- Vorið 2024 var kominn nýr Matvælaráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir,hún dró það í marga mánuði að veita formlegt leyfi til hvalveiða og bar alltaf við "gögn" vantaði svo hægt væri að veita leyfið (allir vita hver afstaða VG er til hvalveiða og hún hafði séð að Svandís hafði komist upp með að brjóta stjórnarskrána og því ekki að láta reyna á það hvort hún gæti það ekki líka?). ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
- Á lokamánuðum síðustu ríkisstjórnar átti að vísa fötluðum dreng og fjölskyldu hans frá Palestínu úr landi til Spánar, sem er algjörlega öruggt land og þar sem meira var að þar var eitt besta sjúkrahús í heimi sem sérhæfðu sig í þeim sjúkdómi sem var að hrjá drenginn. En einhverra hluta vegna fundu ráðherrar VG þá þörf hjá sér að hafa í frammi þá ótrúlegu kröfu að Dómsmálaráðherra STÖÐVAÐI lögregluaðgerð sem þegar var hafin. Þarna fór Dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir langt útfyrir lagaheimildir sínar og það virðist vera að henni finnist það bara allt í lagi. ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
- En svo kom að því að það var boðaða til Alþingiskosninga og eftir úrslit þeirra kosninga og stjórnarmyndunarviðræðna í kjölfar þeirra tók nú ekki betra við Utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) var ekki búin að vera lengi í embætti þegar hún skellti sér til Brüssel til að "endurvekja" ESB - umsóknina frá 2009 án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis. ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
- Og til að bæta "gráu ofan á svart" bættu Forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) og Utanríkisráðherra við NOKKRUM MILLJÖRÐUM við styrkina til Úkraínu án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis. ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI....
- Þá "SAMDI" Forsætisráðherra við Ursulu Gertrud Von der Layen, þess efnis að Ísland myndi "AÐLAGA" utanríkismálastefnu sína að utanríkismálastefnu ESB án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis. ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
- Svo tók nú alveg "botninn úr" þegar Forsætisráðherra "SAMDI" við NATO um að Ísland greiddi 1,5% af vergri (brúttó) landsframleiðslu til NATO án nokkurs samráðs við Alþingi eða Utanríkismálanefnd Alþingis. ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI...
- Og svo var Forsætisráðherra að samþykkja aukinn fjárhagslegan stuðning við stríðið í Úktraínu (hefur Alþingi eitthvað fjallað um þetta?). ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR Á LANDI..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.9.2025 | 13:40
ERU ÞÁ "LOKAMETRARNIR" Í REKSTRINUM FRAMUNDAN HJÁ FÉLAGINU???
Það hefur legið ljóst fyrir mánuðum saman að það stefndi í það að þetta fyrirtæki væri á leiðinni í "ÞROT" enda eru margir sem velta fyrir sér ábyrgð stjórnenda fyrirtækisins sé eiginlega? EIGIÐ FÉ FYRIRTÆKISINS ER NEIKVÆTT SEM NEMUR TUGUM MILLJARÐA OG FYRIRTÆKIÐ HEFUR VERIÐ MEÐ MARGRA MILLJARÐA KRÓNA TAPI UNDANFARIÐ. Þegar eigið fé fyrirtækisins er uppurið og ekkert framundan nema áframhaldandi TAP, þá veit ég ekki annað en að stjórnendum BERI að óska eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Áður en að til gjaldþrotaskipta kemur, fer fyrirtækið í svokallaða greiðslustöðvun, þar sem það fær tækifæri til að koma rekstri og skuldum í gott horf. En því miður er reynslan sú að það er yfirleitt alltof seint gripið til þessa úrræðis og því enda flest fyrirtæki, sem hafa fengið greiðslustöðvun í gjaldþroti. Þetta segir okkur að það VERÐUR AÐ GERA MEIRI KRÖFUR TIL STJÓRNA OG STJÓRNENDA FYRIRTÆKJA OG ÞAÐ VERÐUR AÐ FYLGJA ÞEIM EFTIR.........
![]() |
Play segir upp 20 starfsmönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.9.2025 | 09:24
HVAÐ HEFUR "SKRÍLLINN" SÉR TIL MÁLSBÓTA?????
Telur Silja Bára það vera hluta af TJÁNINGARFRELSINU að vera með "skrílslæti" og hleypa upp samkomum, með því að koma í veg fyrir flutningsmenn ráðstefnunnar geti TJÁÐ SIG? ER ÞESSI MANNESKJA STARFI SÍNU VAXIN??????
![]() |
Telur að báðir aðilar hafi eitthvað til síns máls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2025 | 10:34
HÁVAXTASTEFNA SEÐLABANKANS FARIN AÐ VALDA SAMDRÆTTI - SEM SVO KEMUR TIL MEÐ AÐ ENDA Í KREPPU.....
Þessar uppsagnir sem voru síðastliðinn föstudag eru BEIN AFLEIÐING VAXTASTEFNU SEÐLABANKANS þó svo að Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum vilji heimfæra það uppá hækkun "veiðigjaldanna", sem er ekkert annað en rakið kjaftæði, því hækkun "veiðigjaldanna" upp á sjö milljarða er ekkert annað en "smápeningar" í hlutfalli við hagnað útgerðarinnar uppá 50 milljarða..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)