Færsluflokkur: Bloggar
20.8.2022 | 19:11
STRÍÐ BANDARÍKJANNA OG ESB VIÐ RÚSSLAND Í ÚKRAÍNU......
Er þetta kannski framtíðin í stríðsrekstri? Að þeir sem efna til stríðsátaka við eina þjóð "láti" stríðið fara fram í einhverju þriðja ríkinu þannig að það verði ekki tjón hjá þeim sjálfum, heldur því ríki sem þeir hafa valið til að taka á sig skellinn? Svo heldur kjánaprikið hann Selenski að Bandaríkjamenn og ESB-ríkin séu svo afburða góðir að þeir MOKI í hann og Úkraínsku þjóðina vopnum "frítt". Það þarf enginn að reyna að segja það sé ekkert á bak við það að vopn og búnaður sé látinn af hendi fyrir mörg hundruð milljarða án þess að nokkuð eigi að koma á móti. Sennilega er nokkuð margt sem á eftir að koma í ljós með þetta Úkraínu-stríð sem á eftir að koma verulega á óvart?????
![]() |
Úkraínuher fær vopn fyrir 110 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.8.2022 | 08:29
HVERNIG ÆTLAR HANN AÐ "VERJA" LÍFSKJÖRIN MEÐ VAXTAHÆKKUNUM???
Það fór ekkert á milli mála, við lestur viðtalsins við hann í Morgunblaðinu þann 3. ágúst (í gær), að þarna fer afburða maður og mjög vel að sér í sinni grein og verð ég að segja að margt sem hann sagði var algjörlega rétt en ég fékk það svolítið á tilfinninguna að hann horfði svolítið "þröngt" á vandamálin. Veröldin er ekki alveg svart/hvít til dæmis á að vera hægt að vinna á verbólgu en um leið að auka kaupmátt og þá virðist það vera tækifæri í því fólgið að horfa til styrkleika hagkerfisins og veikleika og spila á þetta hvorttveggja í stað þess að hengja sig á "gamalgróna" standard hagfræðikenningar, sem kannski virka ágætlega í stórum hagkerfum eins og í Bandaríkjunum, en alls ekki víst að þessar kenningar virki nokkuð hér á landi, til dæmis hafa stýrivextir hvergi verið hærri en hver hefur árangurinn verið? Kannski væri ráð fyrir peningastefnunefnd að endurskoða alveg frá grunni starfshætti sína???????
![]() |
Seðlabankastjóri varar vinnumarkað við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.8.2022 | 12:44
HÆPIÐ AÐ VIÐ FÁUM ANNAÐ "TÚRISTAGOS"..........
Allar líkur á að þetta verði mun verra en gosið í Geldingadölum, en það getur varla sakað að vona það besta??????
![]() |
Það er mjög stutt í eldgos |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.7.2022 | 11:08
MILLIVERÐLAGNING??????
Nú upp á síðkastið hafa verið MJÖG miklar verðhækkanir á sjávarafurðum (hjá okkur almenningi heitir þetta fiskur og afurðir úr fiski). Kunningi minn er á frystitogara og hann kom að máli við mig og hann hafði fréttir af því að þorskur, sem fór í "fish and chips" í Bretlandi, hafði hækkað um rúmlega 98% en hann hafði ekki séð neina hækkun á sínum launum síðustu mánuði. Hann sýndi mér nokkra síðustu launaseðla máli sínu til stuðnings. Ég veit ekki betur en að fiskur af Frystitogurum hér á landi fari eða réttara sagt eigi að fara beint á markað og því verð hækkun á launum sjómanna þegar hækkun á fiski verður á markaði. Eru Íslendingar kannski hættir að selja á markaði þar sem verð er hátt????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.7.2022 | 12:49
ENN EIN STAÐFESTINGIN Á KOLVITLAUSRI "FISKVEIÐIRÁÐGJÖF" HAFRÓ....
Það koma fréttir alls staðar af landinu að allt sé sneisafullt af fiski en samt er NIÐURSKURÐUR í fiskveiðiráðgjöf HAFRÓ ár eftir ár. Ég hef nokkuð oft, skrifað hérna á bloggið um hinar "vísindalegu" aðferðir HAFRÓ og hversu marktækar ég tel að þær séu, nú hef ég lesið blaðagreinar eftir skipstjóra sem taka undir með mér og hefur mér fundist að "undiraldan" í þessum efum sé að þyngjast verulega í þessum efnum. Ég og margir aðrir hafa löngum sett fram þá kröfu að handfæraveiðar smábáta verði gefnar frjálsar og það strax. Þá koma ráðamenn (síðast Fjármálaráðherra) og segja: af hverjum á þá að TAKA þann kvóta? Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM. Ég hef áður talað um það að stofnstærðarmælingarnar hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að veiðiráðgjöf þeirrar stofnunar upp á kíló. Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 20.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað). En veðráttan og fleira setur á takmarkanir. Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vega strandveiða til dæmis þetta veiðisvæðakjaftæði, annað hvort eru menn á handfæraveiðum eða ekki það skiptir ekki nokkru máli á hvaða svæði þeir eru. Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara. Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.
![]() |
Þorskafli smábáta 37% meiri en í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.6.2022 | 18:11
VERÐUR BARA EKKI HAFT "AUKASÆTI" FYRIR ÚKRAÍNU????????
Það er svo mikil "samúð" með Úkraínu um allan heim. Var ekki ákveðið strax og innrásin var gerð í landið að Úkraína ætti að vinna Eurovision? Og merkilegt nokk, ég man bara ekki eftir að hafa heyrt Úkraínska lagið í útvarpi eftir keppnina enda lagið með því lélegra sem heyrst hefur........
![]() |
Wales á HM á kostnað Úkraínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2022 | 19:49
YFIRLEITT ÞEGAR SKIP SÖKKVA FARA ÞAU ALLA LEIÐ Á BOTNINN......
Að þessu leiti fannst mér þessi frétt svolítið sérstök. Kannski viðkomandi blaðamaður upplýsi okkur, sem sennilega þekkjum þetta nógu og vel, hvar skip sem sekkur, geti hafnað annar staðar en á botninum??????????
![]() |
Risasnekkja sökk niður á hafsbotn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2022 | 06:32
TIL HAMINGJU MEÐ ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN NORÐMENN, HEIMA OG AÐ HEIMAN
Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi, að vera staddur út í Noregi á 17 maí, nánar tiltekið í Kristiansand í suður Noregi. Það mikil hátíðarstemming og allir voru uppáklæddir og allir sem gátu skörtuðu þjóðbúningum eða "bunad" eins og fatnaðurinn hét á máli Norðmanna. Allt var mjög hátíðlegt skrúðgöngur og öll hátíðarhöld sem hægt var að hugsa sér og greinilegt að þetta var mjög stór dagur í huga ALLRA Norðmanna. Það var mikill munur að vera í Noregi á 17 maí eða á Íslandi 17 júní. Í Noregi finnur maður og sér hversu stór og mikill þessi dagur er hjá Norðmönnum en á Íslandi liggur við að þetta sé bara næstum eins og hver annar dagur, kannski er það vegna þess að Norðmenn hafa misst sjálfstæði sitt og vita hvers virði það er????????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2022 | 09:05
GLEÐILEGT SUMAR!!!!!!!
Eftir sérstaklega leiðinlegan og erfiðan vetur eigum við skilið ð fá gott sumar og óska ég þess innilega að svo verði fyrir alla landsmenn. Margir vilja meina að hér á landi séu bara tvær árstíðir það er að segja vor og haust, en samt sem áður ætla ég að vera almanakinu trúr og óska öllum gleðilegs sumars...............
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.4.2022 | 08:06
ÞETTA ER ÞAÐ SEM BENT HEFUR VERIÐ Á MÖRG UNDANFARIN ÁR OG HEFUR VERIÐ VANDAMÁL Í ÞESSARI GREIN - EKKI EINGÖNGU Á ÞESSU SKIPI.......
Það hefur undanfarin ár verið þannig að tölur frá opinberum aðilum um þá sem fara í hvalaskoðun hafa verið TALSVERT LÆGRI EN SÁ FJÖLDI SEM HVALASKOÐUNARFYRIRTÆKIN GEFA UPP. Þetta vekur upp spurningar um ÖRYGGI farþega til dæmis hvort nægilegt magn sé af flotgöllum og björgunarvestum sé um borð. Oft á tíðum þegar maður sér þessa báta fara úr höfn, er þilfar bátsins "stappað" af fólki og nokkuð er um það að farþegar séu uppi á stýrishúsi bátsins og maður hugsar með skelfingu til þess ef eitthvað myndi nú koma upp á. Oft hef ég tekið eftir því að eitthvað er nú "ballestin" af skornum skammti því bátarnir eru svo "svagir" að þeir þola ekki snöggar stefnubreytingar, án þess hreinlega að fara yfir um. ÞAÐ VÆRI EKKI SVO VITLAUST AÐ TELJA UPP ÚR ÞESSU BÁTUM ÞEGAR ÞEIR KOMA TIL HAFNAR ÚR HVALASKOÐUNARTÚRUM. ÞAÐ ER EKKI Á ÁBYRGÐ FARÞEGANNA AÐ ÖRYGGISMÁLI SÉU Í LAGI........
![]() |
Telja Gæsluna misbeita valdi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)