Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

UM AFNÁM PERSÓNUAFSLÁTTAR TIL ÞEIRRA SEM BÚA ERLENDIS........

Þessi ólög um afnám persónuafsláttar þeirra sem búa erlendis, eiga að taka gildi um næstu áramót (1. Janúar 2025).  Það hefur vakið athygli mína og örugglega eru fleiri, sem hafa veitt því athygli hversu hljóðlega þetta hefur farið og virðist ekki nokkur maður hafa snefil af áhuga á þessu..  Ég hef ekki orðið var við það að Öryrkjabandalið eða Félag eldri borgara hafi nokkuð hreift við þessu  máli og það verður ekki annað séð  en að þetta renni bara mjúklega í „gegn“.  En að mínu áliti eru nokkur LÖGFRÆÐIMÁL óútkljáð varðandi þetta mál og kemur mér þetta sérstaklega mikið á óvart, ÞAR SEM UM 20% ALÞINGISMANNA ERU LÖGFRÆÐINGAR.  Ég man vel eftir umræðunni sem skapaðist í kringum þá tillögu að taka upp ÞREPASKIPTAN PERSÓNUAFSLÁTT; sú umræða var „slegin útaf borðinu“ og helsta forsendan var sú AÐ ÞAÐ BRYTI GEGN JAFNRÆÐISREGLU STJÓRNARSKRÁRINNAR.  Þá spyr ég bara á eitthvað annað  við um þetta og hvernig er það útskýrt?  Svo er annað atriði, sem mér er síður en svo ljúft að nefna.  En Ísland er víst, illu heilli, aðili að EES samningnum  en ég fæ ekki betur séð en að þetta „BRJÓTI“ gegn grunngildum þess samnings eða sjálfu „FJÓRFRELSINU“.  Fyrst við erum á annað borð aðilar að þessum samningi eigum við að sjálfsögðu að virða hann........


ÞA VERÐUR BETRI STARFSFRIÐUR EF "SKESSAN" FER Í FÝLU OG VILL EKKI VERA MEÐ.......

En þetta er víst bara orðrómur eins og er og ekkert staðfest í þessu sambandi.  En mig hefur grunað það að hún eigi mjög erfitt með að sætta sig við ð Bjarni hafi verið á undan henni að sprengja ríkisstjórnina og eigi eftir að "HEFNA", sem verður að hennar mati GRIMMILEG hefnd........ 


mbl.is „Ekki boðlegt“ frá RÚV: „Einhver furðukenning“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BJARNI "STAL GLÆPNUM" AF SVANDÍSI - OG ÞAÐ FYRIRGEFUR HÚN EKKI SVO GLATT

Hún ætlaði sér alveg greinilega að hafa í hótunum við Sjálfstæðisflokkinn og sjá til hvað hún kæmist langt og auðvitað er hún alveg "draugfúl" yfir því að sú áætlun skyldi ekki ganga upp.  Og þá er bara spurningin HVAÐ GERIR HÚN NÆST því það má alveg ger því skóna, þar sem við vitum að ósvífni hennar og frekja hefur engin takmörk, þá vitum við að hún hefur ekki sagt eða gert sitt síðasta í "ríkisstjórnarsamstarfinu"........


mbl.is Fundaði með Bjarna í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSLAND VIRÐIST NÚ LÍKA VERA "SKÁLKASKJÓL" FYRIR HVÍTFLIBBAGLÆPAMENN Á STÓRNMÁLASVIÐINU....

Og þar virðist vera að almenningur í landinu sé algjörlega varnarlaus gagnvart þessu liði og það sem er enn verra er að almennir Alþingismenn þegja þunnu hljóði.  Það er kannski rétt að rifja upp nokkra af þessum "GLÆPUM" sem ekkert virðist vera fyrirhugað að grípa til nokkurra aðgerða.  Og þegar viðbrögð eru þannig við LÖGBROTUM á æðstu stöðum hver halda menn að þróunin verði????

  • Þáverandi Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, þáverandi Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson og þáverandi Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir gerðu samning um kaup á "bóluefnum" (sem reyndust með öllu gagnslaus en vonandi hafa þau ekki vitað það þá).  Þessi samningur kostaði ríkið marga milljarða króna og það sem meira var VAR AÐ ALÞINGI ÍSLENDINGA KOM EKKERT AÐ ÞESSU EN ÞAÐ ER SKÝRT TEKIÐ FRAM Í STJÓRNARSKRÁNNI AÐ EKKI MEGI STOFNA TIL ÚTGJALDA EÐA SKULDBINDINGA FYRIR RÍKISSJÓÐ ÁN AÐKOMU ALÞINGIS.  Ég veit ekki betur  en að enn sé "TRÚNAÐUR" á þessum samningi en hafa ráðherra ENGAR trúnaðarskyldur við almenning í landinu?????  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
  • Í júní 2023, braut Svandís Svavarsdóttir þáverandi Matvælaráðherra ákvæði STJÓRNARSKRÁRINNAR um atvinnufrelsi og minnst fjórar aðrar greinar á Almennum lögum með því að banna hvalveiðar með eins dags fyrirvara.  Þegar hún varð þess vör að ekki var samstaða um þessa aðgerð hennar fór hún í "veikindaleyfi"  Og svo þegar hún ætlaði að koma til baka þá beið hennar VANTRAUSTSTILLAGA, sem Flokki Fólksins tókst með ótrúlegum hætti að klúðra (en kannski var það bara ætlunin).  En hún kom sér bara yfir í annað ráðuneyti og ekki batnaði það.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI...
  • Vorið 2024 var kominn nýr Matvælaráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir,hún dró það í marga mánuði  að  veita formlegt leyfi til hvalveiða og bar alltaf við "gögn" vantaði svo hægt væri að veita leyfið (allir vita hver afstaða VG er til hvalveiða og hún hafði séð að  Svandís hafði komist upp með að  brjóta stjórnarskrána og því ekki að láta reyna á það hvort hún gæti það ekki líka?).  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....
  • Fyrir nokkrum dögum átti að vísa fötluðum dreng og fjölskyldu hans frá Palestínu úr landi til Spánar, sem er algjörlega öruggt land og þar sem meira var að þar var eitt besta sjúkrahús í heimi sem sérhæfðu sig í þeim sjúkdómi sem var að hrjá drenginn.  En einhverra hluta vegna fundu ráðherra VG þá þörf hjá sér að hafa í frammi þá ótrúlegu kröfu að Dómsmálaráðherra STÖÐVAÐI lögregluaðgerð sem þegar var hafin.  Þarna fór Dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir langt útfyrir lagaheimildir sínar og það virðist vera að henni finnist það bara allt í lagi.  ÞAÐ VANTAR SÁRLEGA "ÓHÁÐAN" STJÓRNLAGADÓMSTÓL HÉR A LANDI....

Þarna tek ég bara fyrir örfá dæmi en það er af nógu að taka en ef ég tæki fyrir fleira yrði greinin svo löng að enginn myndi nenna að lesa hana....


mbl.is Ísland orðið skálkaskjól fyrir netglæpamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS KEMUR EITTHVAÐ FRÁ HONUM AF VITI..........

En er þetta ekki fullseint um rassinn gripið?  Það er svolítið seint að fara á klósettið þegar allt er komið í brækurnar......  


mbl.is Flestar ferðir tilgangslausar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERSU MARKTÆK ER ÞESSI "SKOÐANAKÖNNUN"???????

Hvernig var hún unnin, hverjar voru forsendurnar og síðast en ekki síst, FYRIR HVERN VAR HÚN GERÐ??????


mbl.is Stuðningur við flugvöll í Vatnsmýrinni hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SOVÉTRÍKIN FÉLLU 1991 - 33 ÁRUM SEINNA ER "SÓSÍALISMINN" Í SÍNU "GAMLA FORMI" HÉR Á LANDI Í "DAUÐATEYGJUNUM".....

Þær ánægjulegu "fréttir" bárust okkur landsmönnum í gær að STÓRT skref í áttina að því að LEGGJA VG NIÐUR, SEM STJÓRNMÁLAFLOKK HAFI VERIÐ TEKIÐ.  Verri en þetta gat ekki farið fyrir VG  en þetta var sennilega það besta sem gat orðið fyrir landsmenn R.I.P VG.......


mbl.is Svandís nýr formaður og Guðmundur varaformaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÆTTUM AÐ HENDA FJÁRMUNUM ÚT Í LOFTIÐ OG VINNUM EINS OG VITIBORIÐ FÓLK....

Byggjum bara Reykjavíkurflugvöll upp gerum þar góða aðstöðu fyrir flugfarþega, lengjum flugbrautir út í sjó, endurheimtum "öryggisflugbrautirnar" það þarf nú sennilega að byggja þær út í Skerjafjörðinn vegna þess að búið er að eyðileggja þær að mestu og sennilega er ekki um það að endurheimta þær á annan hátt og svo þarf að fella einhvern helling af trjám í Öskjuhlíðinni.  Þetta er spurning um þjóðarhagsmuni og menn eiga bara að gera þá kröfu á "meirihlutann" í Reykjavíkurborg að  þeir fari að vinna að hagsmunum heildarinnar.  NÚ BARA EINBEITUM VIÐ OKKUR AÐ ÞESSU VERKEFNI OG ELTUM EKKI EINHVERJAR "SKÝJABORGIR OG LOFTKASTALA", SEM SVO VERÐUR ALDREI NEITT ÚR EN KOSTAR OKKUR SKATTBORGARANA STÓRAR FJÁRHÆÐIR...........


mbl.is Skýrsla um Hvassahraun „vonbrigði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR FLESTIR MEÐ "SKÍT" Á MILLI EYRNANNA???

Á þessum tímum jarðskjálfta og eldsumbrota á Reykjanesi "DÚKKAR" enn upp hugmyndin um FLUGVÖLL Í HVASSAHRAUNI. OG TIL AÐ BÆTA "GRÁU OFAN Á SVART" ÞÁ SEGIR INNVIÐARÁÐHERRA Í GLEÐI SINNI "AÐ ÞESSI NIÐURSTAÐA HAFI KOMIÐ SÉR ÞÆGILEGA Á ÓVART" (Um þá niðurstöðu "nefndarinnar" að það væri "öruggt" að byggja flugvöll í Hvassahrauni).  Svo vil ég enn einu sinni minna á það að helstu  rökin, sem voru notuð, af hálfu þeirra sem vildu byggja nýjan spítala við Hringbraut VAR NÁLÆGÐIN VIÐ REYKJAVÍKURFLUGVÖLL.  En svo um leið og búið var að taka ákvörðun um byggingu spítalans við Hringbraut hófst aðförin að Reykjavíkurflugvelli AFTUR.........


mbl.is „Hissa á að ráðherra hafi skipað þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÁLIÐ ER AÐ ÞAÐ Á AÐ FARA AÐ LÖGUM - ÞAÐ ER Í RAUNINNI EKKERT VAL UM ÞAÐ HVORT TEKIÐ ER VIÐ REIÐUFÉ EÐA EKKI.....

Svona fréttaflutningur er liggur við eins mikið bull og vitleysa eins og hægt er, að bera því við að það krefjist til dæmis svo mikillar vinnu að fara með reiðufé í bankann  þetta er bara nokkuð sem tilheyrir vinnunni við að vera með verslunar- og þjónustufyrirtæki.  Menn gætu alveg eins sagt að það sé svo mikið mál að far á klósetti, þegar mönnum er mál, að það sé bara betra að láta allt "gossa" í brækurnar.  Það voru upphafleg sett lög um gjaldmiðilinn 1968 (lög númer 22/1968) síðan hefur þeim verið breytt fjórum sinnum síðast árið 2000.  í þriðju grein laganna stendur:"Peningaseðlar þeir, sem Seðlabanki Íslands lætur gera og gefur út og peningar þeir, sem hann lætur slá og gefur út, skulu vera lögeyrir í allar greiðslur hér á landi með fullu  ákvæðisverði".  Það verður að gera það REFSIVERT fyrir fyrirtæki og þjónustufyrirtæki að NEITA að taka við reiðufé og hreinlega að stöðva þetta fasistaveldi sem, virðist vera að búa um sig og svo þarf almenningur bara að vera vakandi fyrir þessu og hreinlega bara að  SNIÐGANGA þau  fyrirtæki sem ekki fara að Íslenskum lögum........


mbl.is Hætta að taka við reiðufé í búðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband