EINN AF FÁUM SEM ÞORIR AÐ FARA GEGN "RÉTTTRÚNAÐARLIÐINU"..........

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er einn af örfáum stjórnmálamönnum, sem virðist hafa kjark til þess að fara gegn þeirri vitleysu, sem "rétttrúnaðarstefnuliðið" (öðru nafni "Vinstri Hjörðin" og "glóballistarnir" hafa tekið upp sem hin einu sönnu TRÚARBRÖGÐ), þess efnis að hlýnun jarðar sé nær eingöngu af mannavöldum.  Ekki tekur "Vinstri Hjörðin" því vel þegar einhver vogar sér að bera einhverjar brigður á að þvælan, sem þeir halda fram sé ekki alveg rétt.  Og þetta "fólk" sem segist vera svo frjálslynt og víðsýnt en það virðist eiga svolítið erfitt að umbera skoðanir, sem er þeim ekki þóknanlegt.  Fylgist fólk ekkert með en lætur bara teyma sig áfram á asnaeyrunum?  VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS?  ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI".  Nú er segulpóllinn staddur í Síberíu og vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi.  Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðurslóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að jöklar eru byrjaðir að myndast í Síberíu.  Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum.  HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM?  Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI og nú ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI,?  Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum og svo er annað sem hafa þarf í huga: ÞESSAR BREYTINGAR Á SEGULPÓLNUM HLJÓTA AÐ HAFA ÁHRIF Á "HALLA JARÐAR". "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS"....


mbl.is Sigmundur tekur undir með Taalas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband