ÞETTA VAR ALVÖRU LEIKUR - EINS OG BIKARLEIKIR EIGA AÐ VERA..........

Fyrstu mínútur fyrri hálfleiks voru alveg skelfilegar en þar komust Framarar í 6:0, en smám saman unnu Valsarar sig inn í leikinn og þegar gengið var til hálfleiks var staðan 12:12.  Síðan byrjaði seinni hálfleikur illa hjá Völsurum og Framarar náðu þriggja marka forskoti en Valsarar komu sér inn í leikinn og eftir það skiptust liðin á að hafa forustuna og það var ekki fyrr en rúmlega átta mínútur voru eftir leiks, sem Valsarar tóku forystu og sigldu sigrinum í höfn.  Það verður ekki tekið af Frömurum að þeir spiluðu mjög vel og Valsarar þurftu að hafa vel fyrir sigrinum en Valsarar sýndu það og sönnuðu í dag að þeir eru bestir og með Björgvin Pál í banastuði í markinu (ég held að hann  hafi varið 14 skot allavega var hann með 46% markvörslu í leiknum) og með svona vörslu tapast ekki leikur........


mbl.is Valur er Íslands-og bikarmeistari 2021
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BREIÐABLIKSKONUR UNNU EN FARA ÞRÓTTARAR EKKI HEIM MEÐ BIKARINN??

Ef allt fer sem horfir þá verður þetta þannig í pólitíkinni - VG tapaði nokkuð stórt í kosningunum en þeir fara heim með "BIKARINN" ........ cool undecided cool


mbl.is „Ótrúlega ánægð með það sem ég hef náð að afreka á þessu tímabili“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband