STENDUR TIL AÐ GERA SÖMU MISTÖKIN OG VORU GERÐ Í FYRRA SUMAR????

Sumir geta bara ekki lært og ekki geta allir í ríkisstjórninni verið með ADHD eða AC/DC en að minnsta kosti er ekki hægt að segja að þetta fólk læri af mistökunum......


mbl.is Telur „glapræði“ að takmarka för óbólusettra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEFUR "ÚTGERÐARAÐALLINN" SVO STERK ÍTÖK AÐ EKKERT VERÐI GERT Í VERÐLAGNINGARSVINDLINU HÉR Á LANDI????

Enn einu sinni er vakin athygli á furðulegri verðlagningu sjávarafurða hér á landi, með grein í Fréttablaðinu í dag SJÁ HÉR.  Það er algjörlega með ólíkindum að lesa um það að hægt sé að greiða Norskum skipum milli 220-230 kr/kg fyrir loðnu, sem er ekki komin með hrognafyllingu nema að mjög litlu leiti og það litla af henni sem hæft er til manneldis, fari þá á mjög lélega markaði en aftur á móti loðnan sem Íslensku skipin voru að veiða var komin með góða hrognafyllingu og fór þar af leiðandi á betri borgandi markaði en samt sem áður er einungis hægt að borga rétt um 100 kr/kg til Íslensku skipanna.  En það alvarlega í þessari "TVÖFÖLDU VERÐLAGNINGU", eru ekki eingöngu sjómenn sem eru HLUNNFARNIR heldur eru það sveitarfélögin (hafnargjöldin reiknast út frá aflaverðmætinu, skattayfirvöld (útgerðin og sjómenn greiða ekki þá skatta , sem þeir ættu að greiða), samfélagið verður af háum upphæðum því mismunurinn "HVERFUR" til aflandseyja og annarra skattaparadísa og margt meira mætti tína til.  En hver er útskýring "hagsmunaaðila" á þessu?  Jú þær  eru margvíslegar en eiga það oftast sameiginlegt að þær halda afskaplega sjaldan vatni og eru oftast bara hjákátlegar, ef menn leggja sig niður við að skoða þær nánar.........


Bloggfærslur 17. mars 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband