STRÁKARNIR OKKAR LÉKU SÉR AÐ EISTUNUM!!!!

Þrátt fyrir að mér þætti nú svolítill "doði" yfir okkar mönnum.  Dampurinn í þeirra leik var ekkert í líkingu við leikinn á móti Ísrael.  En strákunum okkar til varnar verð ég að segja að  það er mjög erfitt að spila á móti svona miklu lélegra liði, enda á tímabili í fyrri hálfleik, munað ekki miklu að Eistarnir næðu að draga strákana okkar niður á sitt "plan" en sem betur fer gekk það ekki eftir.  Markvarslan í fyrri hálfleik var bókstaflega engin og var alveg furðulegt að sjá þetta mikinn mun milli leikja.  Markvarslan í seinni hálfleik skánaði aðeins en var nokkuð langt frá því að vera á "pari".  Vörnin byrjaði fremur illa en hrökk svo í gang þegar fór að líða á ern sóknin gekk nokkuð vel.  Vonandi gengur betur á móti sterkari liðum því það er nokkuð öruggt að liðin sem við mætum í janúar, verða MUN sterkari en þetta lið...................


mbl.is Stórsigur Íslands í Tallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"STRANDVEIÐAR" ENN Í UPPNÁMI OG BULLIÐ HELDUR ÁFRAM.............

Það koma fréttir alls staðar af landinu að allt sé sneisafullt af fiski en samt er NIÐURSKURÐUR í fiskveiðiráðgjöf HAFRÓ ár eftir ár.  Ég hef nokkuð oft, skrifað hérna á bloggið um hinar "vísindalegu" aðferðir HAFRÓ og hversu marktækar ég tel að þær séu, nú hef ég lesið blaðagreinar eftir skipstjóra sem taka undir með mér og hefur mér fundist að "undiraldan" í þessum efnum sé að þyngjast verulega.  Ég og margir aðrir hafa löngum sett fram þá kröfu að handfæraveiðar smábáta verði gefnar frjálsar og það strax.  Þá koma ráðamenn og aðrir varðhundar kerfisins (síðast Fjármálaráðherra) og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló. Nýlega ákvað Alþjóða hafrannsóknarráðið að leggja til að AUKA veiðar á kolmunna um 81% á næsta ári og hver er ástæðan? jú það "fannst" eitthvert viðbótar magn.  Er þetta ekki vísbending um að það sé eitthvað að hafrannsóknum víðar en á Íslandi? Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 30.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir, sem þarf til og punktur og pasta.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vegna strandveiða til dæmis þetta veiðisvæðakjaftæði, annað hvort eru menn á handfæraveiðum eða ekki það skiptir ekki nokkru máli á hvaða „svæði“ þeir eru.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT ef eitthvað alvarlegt gerist, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

En aftur að frjálsum handfæraveiðum.  Að mínu áliti eru þessar tillögur þingmanna VG lítið annað en "bútasaumur" og ekki annað að sjá en að þær geri lítið annað en að lengja í hengingarólinni. sem hefur verið sett um háls smábátasjómanna. Að koma með tillögu um að smábátasjómenn fái að veiða 8,3% af leyfilegum heildarafla í stað 5,3% (aukning um heil 3%), er að mínu mati bara móðgun við smábátasjómenn.  EINS OG ÉG HEF SAGT ÁÐUR, ÞÁ ÞARF AÐ TAKA HEILDAR FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ ALVEG Í GEGN OG HÆTTA ÞESSUM EILÍFÐAR "BÚTASAUMI"............ 


mbl.is Telja tillögu þingmanna VG vega á móti samþjöppun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. október 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband