KIRKJAN ER KOMIN Í DÆGURÞRAS PÓLITÍKURINNAR OG "KLÁMPRESTURINN" Í LAUGARNESKIRKJU TOPPAR BISKUPINN...

Það er ekki hægt að segja það efni hafi vantað til að "blogga" um í gær.  Dagurinn byrjaði á því að það var forsíðugrein í Fréttablaðinu þar sem Biskupinn gagnrýndi harðlega fyrirhugaðan brottflutning hælisleitenda.  Biskupinum varð tíðrætt um MANNÚÐ og þá aðallega um skort á henni en ég hef aldrei vitað til þess að viðkomandi "hafi tekið upp hanskann" fyrir ÚTIGANGSFÓLK, ELDRI BORGARA OG ÖRYRKJA hér á landi, sem ég tel nú að málefni þessa fólks eigi nú að standa henni nær en málefni hælisleitenda.  Er Biskupinn ekki að blanda sér í pólitíkina með þessu brambolti sínu?

En svo leið dagurinn og það leit út fyrir að restin af deginum yrði nú frekar tíðindalítill, en þá féll "sprengjan", "klámklerkurinn" í Laugarneskirkju tjáði sig hressilega um þennan fyrirhugaða brottflutning hælisleitendanna og gekk hann svo langt að segja um VG: AÐ ÞAÐ VÆRI SÉRSTAKUR STAÐUR Í HELVÍTI, FYRIR ÞÁ SEM SELJA SÁLU SÍNA FYRIR VÖLD", er þetta ekki dæmi um HATURSORÐRÆÐU? eða er bannað að bara svoleiðis lagað uppá "bakborðsslagsíðuliðið"?  Ég er ekki viss  um það að sóknarbörn "klámklerksins"séu sérstaklega hrifin af því að sóknarpresturinn þeirra sé í þessum "aktívistagír", flestir eru nú  á því að prestur eigi að halda sig eins mikið frá veraldlegu "skítkasti" og hægt er.  En sé það rétt hjá honum með þennan vissa stað í helvíti, er ég nokkuð viss um að hann og Biskup fylgi Forsætisráðherra þangað og er ég nokkuð viss um að þar verði oft mikið fjör því ég er nokkuð viss um að Forsætisráðherra láti þessi tvö ekki eiga neitt hjá sér.

En deginum var síður en svo lokið, ég horfði á "Kastljósið" á RÚV um kvöldið og þar var þessi "FARSI" fullkomnaður.  Sigríður Dögg Auðunsdóttir, sem er nú formaður blaðamannafélagsins og maður hefði nú  haldið að hún myndi passa sig á hlutlausri réttamennsku en annað átti nú  eftir að koma í ljós.  Hún fékk til sín Dómsmálaráðherra og Helgu Völu Helgadóttur þingmann Samfylkingarinnar.  Loksins gerðist það á RÚV að átti að taka fyrir BÁÐAR hliðar málsins.  En viti menn hvað  gerðist svo?  BÁÐAR ÞESSAR "BREDDUR", Helga Vala Helgadóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, SAMEINUÐUST GEGN DÓMSMÁLARÁÐHERRA í þessu máli og verð ég bara að segja að ég dáðist að því langlundargeði og rólyndi sem Dómsmálaráðherra sýndi þessum  gjammandi "BREDDUM", sem látlaust gripu fram í fyrir honum og leyfðu honum ekki að klára eina einustu setningu. 

Og svo heldur þessi "krossferð" fréttamanns Fréttablaðsins, vegna þessa brottvísunarmáls hælisleitendanna áfram í dag.  Og það sem stingur sérstaklega í augun er að það er næstum dauðasynd að fylgja ekki þeim "RÉTTTRÚNAÐI" sem þar birtist og virðist þessi "RÉTTTRÚUNAÐUR" ríða röftum á flestum fjölmiðlum landsins nema á Útvarpi Sögu.  Getu verið að þar skipti máli að  Útvarp  Saga fær enga ríkisstyrki og þarf þar af leiðandi eða telur sig ekki þurfa að fylgja einhverri vissri línu?????? 


mbl.is Orð Davíðs stangist á við siðareglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. maí 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband