ER ÞETTA EKKI ORÐIÐ MIKIÐ MEIRA EN NÓG MEÐ ÞENNAN ÞJÁLFARA???

Þessi leikur var algjör hörmung hjá okkar mönnum, það verður ekki skrifað á neinn annan en þjálfararæfilinn.  Þegar er spilað við lægsta liðið á FIFA-listanum, þá er krafan ekkert annað en STÓRSIGUR en að "merja" 1:0 sigur er ekkert annað en stórhneyksli. Að gera miklar tilraunabreytingar á liðinu í svona leik (þar sem er algjör skyldusigur er grunnkrafan) er algjör steypa hjá mannræflinum og það að skipta algjörlega út liðinu gerir ekki nokkur heilvita maður því það gefur auga leið að ekki er hægt að sjá hvaða breyting virkar og hver ekki.  Ef það er einhver dugur í stjórn KSÍ þá getur ekki verið annað en að framtíð þessa þjálfara verði til umfjöllunar á næstunni......


mbl.is „Frammistaðan var bara léleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júní 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband