11.10.2023 | 15:51
ENDA HEFÐI ÞAÐ VERIÐ HÁMARK ÓSVÍFNINNAR - BJARNI ER ÞÓ EKKI MEÐ DÓM Á BAKINU FYRIR LÖGBROT.....
Kannski hún sjái eftir því að hafa ekki farið þessa leið þegar mesti HASARINN var í kringum hana? Það má kannski minna á það að það er alveg eftir að fjalla um hina svokölluðu "BÓLUEFNASAMNINGA" sem voru gerðir ÁN AÐKOMU ALÞINGIS en þeir voru á ábyrgð þáverandi Heilbrigðisráðherra, sem var Svandís Svavarsdóttir og svo þegar hún verður Matvælaráðherra þá kemur upp þetta dæmalausa "HVALAMÁL" og sennilega fara að byrja réttarhöld upp á alveg GRÍÐARLEGA háar skaðabætur á Íslenska ríkið. Það er nokkuð ljóst að Matvælaráðherra er ekki nokkur borgunarmanneskja fyrir því og spurning hvernig tekið verður á þeim málum í framíðinni? Og svo má ekki gleyma einhverju STÆRSTA UMHVERFISLYSI Í SÖGUNNI en það er "SLYSASLEPPINGIN" úr laxeldisstöð fyrir Vestan. Ég get ekki séð að það hafi nokkuð verið brugðist við því af viti enda er Matvælaráðherra EKKI TALSMAÐUR LAXA HELDUR HVALA. Mín tillaga er sú að þeir stjórnmálaflokkar, sem eiga ráherra í stjórn verju sinni, kaupi tryggingar fyrir ráðherra sína sem eiga að "dekka" þau afglöp sem þeir gera vegna starfa sinna. Það væri ekki úr vegi að rifja upp ráðherraferil hennar:
UMHVERFISRÁÐHERRA 2009-2012 en árið 2012 var nafni ráðuneytisins breytt í UMHVERFIS- OG AUÐLINDARÁÐUNEYTIÐ og þar var hún til ársins 2013: Ekki get ég með nokkru móti fundið nokkurn skapaðan hlut sem hún gerði í þessu ráðneyti til að efla hag landsmanna en aftur á móti er það mér í fersku minni að hún GAF kolefniskvóta landsmanna úr landi, hún barðist fyrir því með kjafti og klóm að hvergi yrði VIRKJAÐ en hún talaði mikið um að landsmenn yrðu að flýta svokölluðum ORKUSKIPTUM OG SVO MÁ EKKI GLEYMA ÞVÍ AÐ HÚN FÉKK DÓM Á BAKIÐ FYRIR AÐ GERAST BROTLEG VIÐ LÖG. En ekki hafði það nein áhrif á ferilinn hjá henni, eða það var í það minnsta ekki merkjanlegt.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA 2017-2021: Ekki get ég munað eftir neinu jákvæðu sem hún gerði í þessari ráðherratíð sinni, en aftur á móti er mér í fersku minni LIÐSKIPTAAÐGERÐIRNAR Í SVÍÞJÓÐ SEM KOSTUÐ ÞRISVAR SINNUM MEIRA EN EF HEFÐI VERIÐ SAMIÐ VIÐ EINKAAÐILA HÉR Á LANDI vegna þess að VEGNA HENNAR PERSÓNULEGU SKOÐANA "MÁTTI EKKI LÁTA EINKAAÐILA SJÁ UM ÞESSI VERK". En það alvarlegasta sem hún gerði í tíð sinni sem HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur EKKI verið tekið fyrir enn þann dag í dag, EN ÞAÐ ERU HINIR SVOKÖLLUÐU BÓLUEFNASAMNINGAR SEM ALÞINGI ÍSLENDINGA HEFUR EKKI FENGIÐ AÐ SJÁ ENN ÞANN DAG Í DAG. En samkvæmt STJÓRNARSKRÁNNI er EKKI HEIMILT að SKULDBINDA ríkissjóð ÁN aðkomu ALÞINGIS. Mér vitanlega hefur ENGINN þingmaður eða nokkur annar gert athugsemd við þessi vinnubrögð að einu eða neinu leiti á meðan svo er halda ráðherrarnir "sólóleiknum" áfram og bæta bara í.
SJÁVARÚTVEGS - OG LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA 2021-2022 en árið 2022 var nafni ráðuneytisins breytt í MATVÆLARÁÐUNEYTIÐ og þar er hún ennþá og á að vera til ársins 2026 en ég er þess fullviss að kosningar til Alþingis verði í haust og þá er ég þess fullviss um að dagar hennar í því ráðuneyti séu taldir og jafnvel á Alþingi líka. Og enn man ég ekki eftir neinu jákvæðu sem hún hefur gert en listinn yfir það neikvæða er MJÖG LANGUR og ekki nenni ég að telja það allt upp hér. En hefst þá upptalningin hér: Ekki hefur hún séð nokkra ástæðu til að taka á BLÓÐMERAHALDINU, STRANDVEIÐARNAR hafa verið stöðvaðar og ENGIN LAUSN er þar í sjónmáli í þeim málum frekar en öðrum sem eru á hennar borði. Fyrir nokkrum dögum kom út skýrsla um ERFÐABLÖNDUN Norsks eldislax við Íslenska villta laxastofna vegna "slysasleppinga" úr laxeldiskvíum í sjó. EKKI HEF ÉG ORÐIÐ VAR VIÐ AÐ HÚN SJÁI NOKKRA ÁSTÆÐU TIL AÐ BREGÐAST Á NOKKURN HÁTT VIÐ ÞESSU STÓRALVARLEGA MÁLI. Og þá er það stóra málið núna en það er AÐFÖRIN AÐ HVALVEIÐUNUM. Þarna tel ég að hún hafi farið nokkuð LANGT YFIR STRIKIÐ (enda má færa fyrir því rök að þegar menn byrja á lögbrotum þá sé alltaf gengið lengra og lengra, til að sjá hvar "mörkin" liggja). Það er alveg á tæru að með þessari ákvörðun sinni að "FRESTA" HVALVEIÐUM, einum degi áður en hvalveiðar áttu að hefjast, braut hún MINNST fjórar greinar ALMENNRA LAGA OG AUK ÞESS BRAUT HÚN TVÆR GREINAR Í STJÓRNARSKRÁNNI OG ÉG NEITA AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ ÞETTA EIGI EKKI EFTIR AÐ HAFA NEINAR AFLEIÐINGAR FYRIR HANA. Þá megum við ekki gleyma hryðjuverkunum, sem voru unnin gegn Íslenskum landbúnaði, þegar 1.400 kindum ásamt óbornum lömbum var FARGAÐ í miðfirði í vor og var sá GJÖRNINGUR ALFARIÐ Á ÁBYRGÐ MATVÆLARÁÐHERRA og mun skömmin á þeim gjörningi ávalt fylgja henni. þarna var um að ræða eitthvað mesta "níðingsverk" í sögu Íslensks landbúnaðar.
![]() |
Svandís hyggst ekki tjá sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |