ER EKKI ÁSTÆÐA TIL AÐ SJÁ HVAÐ HEFUR FARIÐ ÚRSKEIÐIS Í "SÖLUM" Á RÍKISEIGNUM ÁÐUR EN FARIÐ ER AÐ HUGSA UM FLEIRI??????

Manni dettur helst í hug að þetta fólk sé á einhverjum andskotanum eða bara í engum tengslum við raunveruleikann.  Í það minnsta finnst mér ekki koma til greina sala á eigum ríkisins, fyrr en er búið að rannsaka kryfja til fulls; Íslandsbankasöluna, Íbúðalánasjóðsmálið, Lindarhvolsmálið, Einkavæðingu bankanna hina síðari (fyrri einkavæðingin var aldrei skoðuð almennilega), skoðað verði almennilega hvað varð um "SÍMAPENINGANA", sem áttu víst að fara í að byggja nýjan Landspítala og Sundabraut, en einhverra hluta vegna er Sundabrautin, sem er hagkvæmasta samgöngumannvirki sem hægt er að fara í framkvæmdir á, algjörlega HORFIN út úr öllum áætlunum..........


mbl.is Bjarni: Til greina kemur að selja Landsbankann og Íslandspóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ BEITA ÞESSU ÚRRÆÐI ER EKKI GERT NEMA ÖNNUR ÚRRÆÐI HAFI EKKI BORIÐ ÁRANGUR.....

Eins og áður segir þá hefur ekki orðið árangur af neinu, sem hefur verið gert áður, menn virðast ekki skilja alvöruna fyrr en til koma peningasektir, þá loksins taka menn aðeins við sér en samt sem áður verða menn að "sprikla" aðeins eins og fram kemur í viðbrögðum Guðmundar í Brimi........


mbl.is Dagsektir lagðar á Brim hf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júlí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband