HVERS VEGNA ER EKKI SETTUR "KVÓTI" Á FJÖLDA HÆLISLEITENDA?????

Það virðist ekki vera vandamál að setja kvóta á allan andskotann hér á landi en svo "láta" menn hælisleitendamálin vera algjörlega stjórnlaus hér á landi og láta eins og ekkert sé.  Þetta atriði kom upp í hugann, þegar ég hlustaði á bullið í honum Birni Leví Gunnarssyni á Útvarpi Sögu síðastliðinn föstudag.  Hann var ÍTREKAÐ spurður að því hversu mörgum hælisleitendum hann teldi að  Íslendingar ættu að taka á móti.  Eina svarið sem hann gaf við þessu (ef svar skyldi kalla), var að þessu væri ekki hægt að svara"því hvað ætla þú að segja við þann næsta í röðinni, sem uppfyllir öll skilyrði fyrir því að vera hælisleitandi?".  SVO LAUG HANN ALVEGBLÁKALT ÞEGAR HANN "ÚTSKÝRÐI" AF HVERJU HÆLISNEITENDURNIR VÆRU SKILRÍKJALAUSIR VIÐ KOMUNA TIL LANDSINS.  HANN SAGÐI AÐ ÞAÐ VÆRI VEGNA ÞESS AÐ SKILRÍKIN HEFÐU VERIÐ TEKIN AF ÞEIM ÁÐUR EN FERÐALAGIÐ HÓFST.  ÞETTA ER AUGLJÓSLEGA EKKI RÉTT ÞVÍ SEM DÆMI MÁ NEFNA AÐ TIL DÆMIS HEF ÉG ALDREI KOMIST UPP Í FLUGVÉL ÁN ÞESS AÐ SÝNA SKILRÍKI.  Ef einhver kemur  skilríkjalaus til landsins, þá á viðkomandi flugfélag sem flutti viðkomandi til landsins að greiða háa sekt og flytja viðkomandi til þess lands sem hann kom frá.  En til baka að "kvótasetningunni" það er bara svo einfalt að þegar kominn er fjöldinn sem á að taka á móti þá er svarið til þess næsta í röðinni hvort sem hann uppfyllir ÖLL skilyrði sem hælisleitandi eða ekki: "ÞAÐ ER UPPSELT"...


Bloggfærslur 21. ágúst 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband