28.8.2023 | 14:08
ALLIR SAMNINGAR ERU UPPSEGJANLEGIR.....
Ég hef nú ekki skoðað þennan "SAMGÖNGUSÁTTMÁLA" en mér finnst ekki ólíklegt að í þessum samningi sé eitthvert endurskoðunarákvæði, þannig að þessi "fýlublástur" í varaborgarfulltrúa Viðreisnar er í besta falli bara hlægilegur......
![]() |
Samningur ekki viljayfirlýsing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2023 | 09:48
ER ÍSLAND MEÐ EINHVERJA SJÁLFSTÆÐA UTANRÍKISMÁLASTEFNU?????
Og þá sérstaklega í "hernaðarmálum". Það verður ekki betur séð en að NATO geri bara það sem þeim sýnist hér á landi og Íslensk stjórnvöld hlýða bara eins og þægir hundar. Þegar herinn fór árið 2006, var skilin hérna eftir "sviðin" jörð en með tímanum var unnið nokkurn veginn úr því(þó svo að deila megi um aðferðirnar og árangurinn). Eftir að herinn fór, voru girðingarnar á "vallarsvæðinu" teknar niður nema það var skilinn eftir sá partur, sem skildi af flugvöllinn sjálfan og "ÖRYGGISSVÆÐIÐ" sjálft en þar er NATO með sína starfsstöð og Landhelgisgæslan er þar einnig til húsa og er með einhverja starfsemi sem ég þekki ekki alveg til. En girðingin sem afmarkar þetta "ÖRYGGISSVÆÐI" er vestast og afmarkar það svæði sem almennt gengur undir nafninu Ásbrú. Ég flutti á Ásbrú í ágúst 2008, eða fyrir 15 árum, síðan ég flutti á svæðið hefur girðingin verið færð nokkrum sinnum til austur og er svo komið að nokkuð margar íbúðarblokkir eru KOMNAR INN FYRIR "ÖRYGGISGIRÐINGUNA" og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildum að Á SVÆÐINU SÉU NOKKUR HUNDRUÐ HERMANNA MEÐ FASTA BÚSETU. Það er sagt að NATO-liðið SEM ER STAÐSETT HÉR Á LANDI NÚNA SÉ MUN ÖFLUGRA HELDUR EN VAR ÞEGAR "FORMLEG" HERSTÖÐ VAR STAÐSETT HÉR Á LANDI. Eins og allir vita, þá hefur NATO samið um það verði hægt að láta fara fram áhafnaskipti og taka vistir og þess háttar hér við land. Ekki er búið að koma upp hafnaraðstöðu fyrir þetta þannig að þetta fer fram fyrir utan Helguvíkurhöfn. En Íslensk stjórnvöld þurftu að vera með smá "SÝNDARMENNSKU" í sambandi við þetta og "GERÐU ÞÁ KRÖFU AÐ EKKI VÆRU KJARNORKUVOPN UM BORÐ Í ÞESSUM KAFBÁTUM". En þessi krafa er marklaus með öllu, því mér er ekki kunnugt um að NEINIR EFTIRLITSMENN FARI UM BORÐ Í ÞESSI SKIP og þótt svo væri yrði þeim alls ekki hleypt inn á þessi svæði. Þá er komið að smá umfjöllun um þessar ÞRJÁR ÖFLUGUSTU SPRENGJUFLUGVÉLA SEM TIL ERU Í HEIMINUM OG ERU STAÐSETTAR HÉR Á LANDI. Hver um sig geta þessar sprengjuvélar borið 18 KJARNORKUSPRENGJUR OG NATO HEFUR TEKIÐ ÁKVÖRÐUN UM ÞAÐ AÐ ÍSLAND VERÐI "ÚTSTÖÐ" ÁRÁSA Á ÖNNUR RÍKI OG HVERNIG Á AÐ FRAMKVÆMA ÞÆR ÁRÁSIR ÁN ÞESS AÐ KJARNORKUSPRENGJUR SÉU TIL STAÐAR?????????
![]() |
Róðurinn þyngist í vetur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |