29.5.2024 | 08:29
HVERJU ORÐI SANNARA OG VERT AÐ SKOÐA MÁLIÐ FRÁ FLEIRI HLIÐUM.....
Það er kominn tími til að við skoðum þetta "HVALAMÁL" út frá því hvernig það hefur verið STEFNA VG AÐ HVALVEIÐAR VIÐ STRENDUR ÍSLANDS VERÐI STÖÐVAÐAR OG VIRÐIST VERA ALVEG SAMA HVAÐA AÐFERÐUM SÉ BEITT LÖGLEGUM EÐA ÓLÖGLEGUM. Þessari STEFNU VG hafa ráðherrar flokksins fylgt og það alveg upp á punkt og kommu. Fyrsti ráðherrann til þess að "fylgja þessari stefnu eftir" var Svandís Svavarsdóttir og allir þekkja til hennar starfa í þessu máli, framan af þá var hún frekar varkár og kom sér hjá því að brjóta brjóta lög í störfum sínum. En þegar hún sá að það gekk ekki upp greip hún til "örþrifaráða" og stöðvaði hvalveiðar MEÐ EINS DAGS FYRIRVARA og þar með braut hún greinina um atvinnufrelsi í stjórnarskránni, lög um stjórnsýslu og ágreinIngur er um hvort hún braut greinar í hegningarlögum einnig. Í það minnsta ollu þessar aðgerðir hennar miklum usla í þjóðfélaginu og meðal annars var boðuð vantrausttillaga á hana þegar Alþingi kæmi saman þá um haustið (í fyrra). Þá komu upp "VEIKINDI" hjá, tilkynnt var að hún hefði greinst með krabbamein og færi í veikindaleyfi um óákveðinn tíma, beðið var með vantrausttillöguna þar til hún kæmi til baka en þegar hún kom til baka, fór hún bara í annað ráðuneyti og HÆTT VAR VIÐ AÐ LEGGJA VANTRAUSTTILLÖGUNA FRAM, það er nokkuð sem ég get ekki með nokkru móti skilið, ÞAÐ VAR VERIÐ AÐ LEGGJA FRAM VANTRAUST Á MANNESKJUNA SVANDÍSI SVAVARSDÓTTUR EN EKKI RÁÐUNEYTIÐ. Þegar Svandís Svavarsdóttir fór í "veikindaleyfið" tók Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi Forsætisráðherra við Matvælaráðuneytinu og virðist hún hafa ákveðið að vera stefnu VG trú og gerði bara ekki nokkurn skapaðan hlut MEÐAL ANNAR ÁKVAÐ HÚN AÐ SVARA EKKI UMSÓKN HVALS HF. UM LEYFI TIL HVALVEIÐA (það verður erfitt að sanna að þarna hafi verið um ásetning að ræða). En fyrrverandi Forsætisráðherra virðist ætla að "sleppa" fyrir horn þarna og þegar hún "flúði" úr ríkisstjórninni til að fara í Forsetaframboð, kom inn "BLÓRABÖGGULL" Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sem hafði lýst yfir MIKILLI ANDSTÖÐU VIÐ HVALVEIÐAR og hennar vinna í þessu máli hefur borið keim af því. Vinna ALLRA VG liða í þessu máli hefur borið stefnu VG í þessu máli vitni og virðast ÖLL meðul í þessari baráttu vera notuð og skiptir þá engu m´li hvort þau sé LÖGLEG EÐA EKKI.........
![]() |
Segir vinnubrögðin með ólíkindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |