"ISLAND ÚR NATÓ - HERINN BURT" HVAÐ VARÐ EIGINLEGA UM ÞETTA SLAGORÐ?????

Ég man nú ekki betur en að VG liðar og fleiri „BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐAR“ hafi staðið fyrir svokölluðum „Keflavíkurgöngum“,  þegar herinn var staðsettur  hérna á Miðnesheiðinni og þá hafi þessi „slagorð“ verið „kyrjuð“ alla leið frá Reykjavík til Keflavíkur,  En nú virðast þessar „FRIÐARHREYFINGAR“ vera algjörlega horfnar af yfirborði jarðar EINS OG SJÁLFSTÆÐ UTANRÍKISSTEFNA ÍSLANDS.  Og er þá einhver utanríkisstefna í gangi og þá sérstaklega í "hernaðarmálum".  Svo er Utanríkisráðherra hér á landi, sem virðist bara verið algjörlega óskrifað blað, sendiráðið í Moskvu er lagt niður og sendiherrann er kallaður „heim“, rússneski sendiherrann í Reykjavík er rekinn til Moskvu og starfsemin er stórlega löskuð og til að „bæta gráu ofaná svart“ þá Ísland gert að „virkum þátttakanda“ í stríðinu í Úkraínu, með því að kaupa vopn og flytja þau fyrir Úkraínumenn og þar með er Ísland komið á óvinalista annars stríðsaðilans.  Það verður ekki betur séð en að NATO geri bara það sem þeim sýnist hér á landi og Íslensk stjórnvöld hlýða bara eins og þægir hundar.  Þegar herinn fór árið 2006, var skilin hérna eftir "sviðin"  jörð en með tímanum var unnið nokkurn veginn úr því (þó svo að deila megi um aðferðirnar og árangurinn).  Eftir að herinn fór, voru girðingarnar á "vallarsvæðinu" teknar niður nema það var skilinn eftir sá partur, sem skildi að flugvöllinn sjálfan og "ÖRYGGISSVÆÐIÐ" sjálft en þar er NATO með sína starfsstöð og Landhelgisgæslan er þar einnig til húsa og er með einhverja starfsemi sem ég þekki ekki alveg til.  En girðingin sem afmarkar þetta "ÖRYGGISSVÆÐI" er vestast og afmarkar það svæði sem almennt gengur undir nafninu Ásbrú.  Ég flutti á Ásbrú í ágúst 2008, eða fyrir 16 árum, síðan ég flutti á svæðið hefur girðingin verið færð nokkrum sinnum til AUSTURS og er svo komið að nokkuð margar íbúðarblokkir eru KOMNAR INN FYRIR "ÖRYGGISGIRÐINGUNA" og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildum að Á SVÆÐINU SÉU NOKKUR HUNDRUÐ HERMANNA MEÐ FASTA BÚSETU.  Það er sagt að NATO-liðið SEM ER STAÐSETT HÉR Á LANDI NÚNA SÉ MUN ÖFLUGRA OG MUN BETUR SKIPULAGT EN VAR ÞEGAR „FORMLEG" HERSTÖÐ VAR STAÐSETT HÉR Á LANDI.  Eins og allir vita, þá hefur NATO samið um það verði hægt að láta fara fram áhafnaskipti og taka vistir og þess háttar hér við land.  Ekki er búið að koma upp hafnaraðstöðu fyrir þetta þannig að þetta fer fram fyrir utan Helguvíkurhöfn.  En Íslensk stjórnvöld þurftu að vera með smá "SÝNDARMENNSKU" í sambandi við þetta og "GERÐU ÞÁ KRÖFU AÐ EKKI VÆRU KJARNORKUVOPN UM BORÐ Í ÞESSUM KAFBÁTUM". En þessi krafa er marklaus með öllu,  því mér er ekki kunnugt um að  NEINIR EFTIRLITSMENN FARI UM BORÐ Í ÞESSI SKIP og þótt svo væri yrði þeim alls ekki hleypt inn á þessi svæði að hámarki fengju þeir að fara í borðsalinn þar sem þeir mættu þakka fyrir að fá kaffisopa.  Þá er komið að smá umfjöllun um þessar ÞRJÁR ÖFLUGUSTU SPRENGJUFLUGVÉLA SEM TIL ERU Í HEIMINUM OG ERU MJÖG OFT HÉR Á LANDI.  Hver um sig geta þessar sprengjuvélar borið 18 KJARNORKUSPRENGJUR OG NATO HEFUR TEKIÐ ÁKVÖRÐUN UM ÞAÐ AÐ ÍSLAND VERÐI "ÚTSTÖÐ" ÁRÁSA Á ÖNNUR RÍKI OG HVERNIG Á AÐ FRAMKVÆMA ÞÆR ÁRÁSIR ÁN ÞESS AÐ KJARNORKUSPRENGJUR SÉU TIL STAÐAR EÐA ÖNNUR VOPN?????????


Bloggfærslur 26. júní 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband