OG ENN Á AÐ FARA Í KRINGUM STJÓRNARSKRÁNA OG KOMA "BÓKUN 35" Í GEGNUM ÞINGIÐ SEM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU.......

Að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001, EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri" málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009 og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá, þegar ég skoðaði allt í sambandi við þær í byrjun janúar á þessu ári voru þingsályktunartillögurnar 1.287 frá upphafi og þar af voru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.  Nú berast þær fréttir að enn einu sinni standi til að fara framhjá forseta Íslands og að BRJÓTA STJÓRNARSKRÁNA með því að LEGGJA "BÓKUN 35" FRAM Í ÞINGINU SEM ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU og beita þar með sömu aðferðum og Ríkisstjórn Heilagrar Jóhönnu og Gunnarsstaða Móra beitu við að koma umsókninni um aðild að ESB í "gegn" (eftir því sem ég best veit hefur sú umsókn EKKI verið AFTURKÖLLUÐ).  Að mínu mati er BÓKUN 35 það STÓRT MÁL að hún VERÐI að meðhöndlast sem LAGAFRUMVARP.  EES samningurinn er að verða landi og þjóð ansi kostnaðarsamur og farinn að "höggva" mikið í sjálfstæði þjóðarinnar og ekki síst fyrir atbeina ráðamanna þjóðarinnar, þess vegna get ég ekki betur séð en að það fyrir löngu orðið tímabært að segja honum upp. Standast flestar þessar þingsályktunartillögur stjórnarskrána? Á EKKI FORSETI ÞINGSINS EKKI AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ STJÓRNARSKRÁIN SÉ VIRT OG ER HANN AÐ SINNA STARFI SÍNU?????

 


Bloggfærslur 6. júní 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband