ER TÍMI TIL KOMINN AÐ ENDURSKOÐA LÖGIN UM SEÐLABANKA ÍSLANDS?????

EÐA HVAÐ????  Ég skoðaði LÖG UM SEÐLABANKA ÍSLANDS (lög númer 92/2019) og það sem "stakk" mig einna mest við það að lesa þessi lög, var hversu óskýr þau eru og lítið mál að "TÚLKA ÞAU" út og suður. Sem dæmi skal nefnt að formlega er Seðlabanka Íslands ekki færð völd til að ákveða eitt né neitt en svo kemur 3 grein laganna, önnur málsgrein og þar segir; "Ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabankans í peningamálum eru teknar af peningastefnunefnd, sbr. 9. gr. Ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabankans varðandi fjármálastöðugleika eru teknar af fjármálastöðugleikanefnd, sbr. 12. gr. [Ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum eru teknar af Seðlabanka Íslands eða fjármálaeftirlitsnefnd, sbr. 15. gr.]"  ÞESSI GREIN VIRÐIST VERA TÚLKUÐ ÞANNIG AÐ SEÐLABANKANUM HAFI VERIÐ FENGIN Í HENDUR VÖLD, SEM RAUNVERULEGA EIG AÐ VER Á HENDI VIÐKOMANDI RÁÐHERRA.

Að mínu áliti VERÐUR að gera lögin skýrari og einnig verður að koma í veg fyrir að stjórnmálamenn landsins geti sífellt varpað sinni ábyrgð yfir á aðra ÞVÍ FYRST OG SÍÐAST ER ÁBYRGÐIN HJÁ ÞEIM..........


Bloggfærslur 23. ágúst 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband