ER EKKI KOMIÐ NÓG????

Ísland hefur verið í þessu bulli síðan 1986, þegar ALLIR voru klárir á því að "Gleðibankinn" myndi taka þetta og þar með myndu Íslendingar fara að kenna Evrópubúum hvernig ætti að semja og flytja "almennileg lög".  Og á hverju ári hafa Íslendingar verið sannfærðir um að við væru að fara að "taka þetta".  En hingað til hefur árangurinn ekkert verið til að hrópa húrra yfir landið hefur tvisvar sinnum verið í öðru sæti og oftar en ekki setið eftir í riðlakeppninni.  Svo er víst ekkert gefið að taka þátt í þessu með undankeppni og öllu umstangi sem þessu fylgir og mér skilst nú að RÚV sé ekkert of vel statt (eins og dagskráin ber glöggt merki).  Ég GET EKKI SÉÐ AÐ NEITT RÉTTLÆTI FJÁRAUSTURINN Í ÞETTA??????? 


mbl.is Ísland fékk 33 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. maí 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband