27.7.2025 | 13:01
STÓRA LOFTSLAGSBLEKKINGIN..........
Fyrir það fyrsta þá er þetta lið fast í þeim hjólförum að loftslagsbreytingarnar séu af mannavöldum. Í þeim "drullupolli" eru VG (reyndar eru VG dottnir útaf þingi en því miður getur arfleifð þeirra lifað nokkuð lengi) og krakkaræflar, sem þessir aular eru að verða búnir að hræða líftóruna að mestu leiti úr, með því að telja þeim trú um að heimsendir sé í nánd. Vísindin á bak við þessa vitleysu eru ekki meiri en það að þetta lið beitir fyrir sig heilaþvegnum táningsræfli, sem er búin að læra
loftslagsmöntruna utanbókar. VITA MENN EKKI AF FÆRSLU SEGULPÓLSINS? ÞETTA ÞÝÐIR Á MANNAMÁLI AÐ Á ÞESSUM TÍMUM STANDA YFIR "PÓLSKIPTI". Nú er segulpóllinn staddur í um það bil 200 sjómílur norð-austur af hinum REIKNAÐA NORÐURPÓL, hinn reiknaði Norðurpóll er það sem í daglegu tali er nefndur Norðurpóllinn og svo er að sjálfsögðu Suðurpóllinn í 180 gráður í suður frá honum. Hann var settur þarna niður NORÐURPÓLLINN, sem upphafspunktur staðarútreikninga og útfrá honum komu svo lengdar- og breiddarbaugar, þetta var gert fyrir mörg hundruð árum en nú erum við stödd á tölvuöld og mönnum þykir ekki ástæða til að halda í gamla þekkingu). Vísindamenn NASA telja að hann endi í Indlandshafi. Vegna þess að segulpóllinn, var áður en "flakkið" byrjaði, staddur norður af Kanada (um 1980) hefur HLÝNAÐ umtalsvert á norðlægum slóðum, til dæmis bráðnar Grænlandsjökull mjög hratt og hlýindametin í Kanada eru gott vitni um þetta en annars staðar hefur kólnað mjög mikið og sem dæmi má nefna að ísbreiðan á Norðurskautinu hefur stækkað um 26% síðan 2012 samkvæmt frétt sem ég las í Þjóðólfi fyrir nokkru síðan, þar sem segulpóllinn er staddur þessa stundina. Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum. Þess má geta að síðustu "pólskipti urðu fyrir um það bil 700.000 árum, það skal áréttað að pólskipti þýða ekki að neinar HAMFARIR eigi sér stað heldur verður tilfærsla á veðurkerfum. HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM? Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI, nú er komið fram að það er margfalt ofmetið hversu mikið áhrifin eru af því að hafa þurrkað upp mýrarnar hérna á árum áður. Og svo á, samkvæmt Kötu litlu, að fara að senda tugi milljarða eitthvert út í heim vegna loftslagsbreytinga og svo ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI. Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla? Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNAVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS". En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum. Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa. Það sem gerist við ferðalag segulpólsins er að að yfir honum er alveg gífurlegur kuldi og vegna þeirrar stefnu sem hann hefur tekið (sjá fyrri myndina með þessari grein) hefur kólnað mikið í kringum hinn REIKNAÐA NORÐURPÓL (aftur vísa ég til fyrri myndarinnar sem fylgir þessari grein) . Þegar og ef segulpóllin endar í Indlandshafi, verða ýmis þéttbýl svæði í Asíu óbyggileg og mikill flutningur á fólki verður frá þessum svæðum. HVERNIG TEKUR HEIMSBYGGÐIN Á ÞEIM MÁLUM? Nú þegar stjórnmálamenn eru búnir að láta ljúga sig fulla um loftslagsbreytingar af mannavöldum og verða búnir að eyða milljörðum í að MOKA OFAN Í SKURÐI, nú er komið fram að það er margfalt ofmetið hversu mikið áhrifin eru af því að hafa þurrkað upp mýrarnar hérna á árum áður. Og svo á, að fara að senda tugi milljarða eitthvert út í heim vegna loftslagsbreytinga og svo ætlar stjórnmálaelítan að ráðast að 6% útblæstri okkar Íslendinga og BANNA innflutning á bílum, sem ganga fyrir JARÐEFNAELDSNEYTI. Hvernig ætli ástandið hefði orðið á norðurlandi í óveðrinu í desember árið 2020 ef stór hluti íbúanna hefði verið búinn að skipta yfir í rafmagnsbíla? Þessar breytingar og öfgar í veðurfarinu má
rekja beint til þessara breytinga á segulpólnum, sem dæmi er hægt að nefna að upp úr 1980 var hin hefðbundna lægðabraut á milli Íslands og Grænlands og yfirleitt enduðu lægðirnar við vesturströnd Noregs (fræg var rigningin í Bergen, yfir fimm þúsund millimetra ársúrkoma) og svo var nokkuð mikil úrkoma alveg norður undir Lofoten. Nú seinni árin hefur lægðabrautin færst mun sunnar og endar norður af Skotlandi og oft á tíðum nær hún alla leið til suður Noregs og ef fer sem horfir þá endar með því að hún endi við hinn reiknaða miðbaug eða mjög nálægt honum. "LOFTSLAGSBREYTINGAR AF MANNVÖLDUM" ERU EKKERT ANNAÐ EN "BIG BUSINESS". En auðvitað afneita þessir aðilar að hlýnun loftslags eigi sér aðrar skýringar en að vera af mannavöldum, svo fastir eru þeir í þessum "loftslagstrúarbrögðum" sínum. Það er kominn tími til að þetta lið fari að taka hausinn úr ra........ á sér og fara aðeins að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni en tommu rörsýninni, sem hefur háð því fram til þessa. Gott dæmi um þessa blekkingu um loftslagshlýnun af mannavöldum eru gróðureldarnir í Los Angeles en þar eru það nokkrir samverkandi þættir sem eiga hlut að máli. Fyrir það fyrsta þá eru þessir miklu vindar, sem geysa í Kaliforníu árvisst fyrirbæri (þeir kallast Santa Ana vindarnir) og ættu ekki að koma neinum á óvart aftur á móti kemur það mjög mikið á óvart að aðgangur að vatni skyldi vera alveg í klessu og allt í sambandi við slökkvistörfin tómt KLÚÐUR. Fyrir nokkrum árum tók slökkviliðið í Kaliforníu sig til og kveikti í dauðum og mjög þurrum gróðri í hlíðunum fyrir ofan Los Angeles en vegna aðgerða frá umhverfisverndarsinnum var þessu hætt og þar með safnaðist upp alveg gríðarlegur eldsmatur síðustu ár (en það eru nokkur ár síðan slökkviliðið hætti að kveikja í dauðum, þurrum og hættulegum gróðri). En brunavarnir hafa ekki verið mjög ofarlega á verkefnalista fylkisstjórnarinnar eldur hefur það verið ofar á verkefnalistanum að fjölga konum í slökkviliðinu, lögreglunni og fleira þessháttar en það á víst að fara fram rannsókn á þess máli og þá eiga málin væntanlega eftir að skýrast. Mörg önnur dæmi mætti nefna um þessa klikkun og hvað þessi vitleysa og trúarbrögð eru búin að kosta okkur og hafa jafnvel eyðilagt heilu samfélögin........
Mynd 1 sýnir ferðalag NYRÐRI SEGULPÓLSINS frá 1980 -2024.
Mynd 2 sýnir virkni segulpólanna og hvernig virkni þeirra er sterkast um miðbik jarðar en veikast við pólana.
VINSAMLEGAST KLIKKIÐ Á MYNDIRNAR TIL AÐ STÆKKA ÞÆR.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)