"VERÐBÓLGUVÆNTINGAR" OG UPPGJÖF STJÓRNVALDA OG SEÐLABANKANNS Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA......

Það er virkilega dapurlegt að lesa svona lagað og þá sérstaklega að þurfa endalaust að láta yfir sig gangaeymdina, vonleysið og getuleysið í þessu liði sem "á að berjast gegn verðbólgunni sem herjar á landið" en virðist ekki hafa getu eða vilja til að gera nokkurn skapaðan hlut af viti í þerri baráttu.  Opinberir aðilar í landinu (ríki og sveitarfélög) leiða stjórnlausar hækkanir á öllum mögulegum og ómögulegum gjöldum á borgarana og kalla þau ýmsum nöfnum en þegar betur er skoðað er þetta ekkert annað en dulbúnar SKATTAHÆKKANIR.  Einkaaðilar sjá að almenningur lætur þetta yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust og þeir hækka verðin á sinni vöru og þjónustu án nokkurrar sýnilegrar ástæðu og enginn segir neitt eins og um eitthvað náttúrulögmál sé að ræða.  Þrátt fyrir styrkingu krónunnar síðustu mánuði(gengi krónunnar er nú reyndar aðeins byrjað að síga aftur þannig að við getum farið að sjá enn meiri hækkanir fljótlega).  EN HVAÐA AÐGERÐIR ERUM VIÐ AÐ SJÁ???  Þessu er fljótsvarað: ENGAR og algjört RÁÐALEYSI.  Það er kominn tími til að þetta lið fari að vinna fyrir laununum sínum (því ekki er ægt að segja að launin þeirra séu einhver HUNGURLÚS) og hætti að bora bara í nefið á sér og klóra sér í *********....


mbl.is Markaðsaðilar vænta meiri verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. ágúst 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband