MEÐ BETRI DÆGURLÖGUM SEM SAMIN HAFA VERIÐ............

Lee Hazelwood samdi þetta stórkostlega lag og sennilega er það þekktast í flutningi hans og Nancy Sinatra en margir hafa spreytt sitt sig á flutningi þess.  Meira að segja flutti Hljómsveit Ingimars Eydal þetta lag, þetta lag naut gríðarlegra vinsælda í flutningi hljómsveitarinnar og má til gamans geta þess að hljómsveitarmeðlimir og fleiri kölluðu Ástu Sigurðardóttur Sumar Ástu eftir þetta, en Íslenski textinn er eftir Ástu Sigurðardóttur eiginkonu Ingimars Eydal.  Eins og áður segir þá hafa margir reynt sig við þetta lag en það er mitt mat að þetta sé Besti flutningurinn á þessu lagi en að sjálfsögðu dæmir hver fyrir sig.  Bono er mjög umdeildur og margir eru mjög ósáttir við hrokafulla framkomu hans en hvað sem öðru líður þá verður ekki mælt gegn því að hann er góður söngvari.......


Bloggfærslur 10. september 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband