4.5.2010 | 11:10
BROWN OG HEILÖG JÓHANNA EIGA ÞÁ ÝMISLEGT SAMEIGINLEGT!!!!
Enda tilheyra þau bæði þessari "sósíaldemókrataklíku" sem heimsbyggðin virðist loksins búin að fá nóg af. Þetta smellpassar alveg Brown er bresku þjóðinni til skammar og Heilög Jóhanna þeirri Íslensku, þetta lið er bara alveg á rangri hillu í lífinu fyrir það fyrsta áttu þau alveg að láta stjórnmálin í friði.
![]() |
Segir Brown versta forsætisráðherra sögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Bloggvinir
-
annabjorghjartardottir
-
arnarthorjonsson
-
skagstrendingur
-
formula
-
reykur
-
flinston
-
asthildurcesil
-
bjarnijonsson
-
bjarnimax
-
westurfari
-
bjornaxelsson
-
bokin
-
dagsol
-
einarbb
-
einarvill
-
einarorneinars
-
finnur
-
fritzmar
-
georg
-
gislim3779
-
gudbjornj
-
gutti
-
elnino
-
manix
-
zumann
-
gmaria
-
noldrarinn
-
tilveran-i-esb
-
gthg
-
gunnsithor
-
gustafskulason
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
hbj
-
hallibjarna
-
heimssyn
-
formannslif
-
diva73
-
helgatho
-
helgigunnars
-
hordurhalldorsson
-
ingagm
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
fun
-
jensgud
-
ezuz
-
joiragnars
-
johannvegas
-
jaj
-
fiski
-
jonerr
-
bassinn
-
jonsnae
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusvalsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristinn-karl
-
kristinthormar
-
stinajohanns
-
keh
-
kristjan9
-
magnuss
-
magnusthor
-
odinnth
-
solir
-
olafurjonsson
-
os
-
pallvil
-
ragnar73
-
rosaadalsteinsdottir
-
hughrif
-
fullveldi
-
seinars
-
nafar
-
holmarinn
-
sigurdurig
-
siggiflug
-
siggith
-
sigurjonth
-
stormsker
-
timannatakn
-
tibsen
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valur-arnarson
Nýjustu færslur
- HÚN VIRÐIST ÞURFA Á "ENDURMENNTUN" AÐ HALDA Í ALÞJÓÐAMÁLUNUM....
- LOKSINS VAR HANN "MEÐHÖNDLAÐUR" EINS OG HEFÐI ÁTT AÐ GERA FYR...
- KANNSKI HEFÐI ÞETTA ÞURFT AÐ KOMA VERULEGA FYRR FRAM??????
- HVAÐ ER ÞAÐ EIGINLEGA SEM DRÍFUR UTANRÍKISRÁÐHERRA ÁFRAM VIÐ ...
- HVERNIG ER "VOPNAHLÉ Á RÉTTUM FORSENDUM"???????????
- HVAÐA STOFNUN ÆTLI SÉ "USAID" Á ÍSLANDI???????
- "KERFIÐ" ER ALGJÖRLEGA MÁTTLAUST OG ÞAÐ Á BARA AÐ "ÞAGGA" ÞET...
- MEIRA AÐ SEGJA EVRÓPUBÚAR ERU ORÐNIR ÞREYTTIR Á "BAKBORÐSSLAG...
- "ER HÚN FULL KERLINGIN - EÐA GLEYMDI HÚN AÐ TAKA LYFIN SÍN "????
- ÞAÐ VIRÐIST EKKI VERA VANÞÖRF Á AÐ FARA VEL YFIR FERIL ÞESSA ...
- ÞESSAR AÐGERÐIR KENNARA GETA EKKI VERIÐ LÖGLEGAR?????
- ÆTLI ALLAR "KRYDDPÍURNAR" SÉU Í FRAMBOÐI TIL BORGARSTJÓRA?????
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Mars 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.3.): 202
- Sl. sólarhring: 227
- Sl. viku: 1804
- Frá upphafi: 1865968
Annað
- Innlit í dag: 150
- Innlit sl. viku: 1247
- Gestir í dag: 139
- IP-tölur í dag: 139
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það er nú einn úr "sósíaldemókrataklíkunni" sem segir þetta um Brown, Jóhann, svo það er af sínum eiginn hann fær að "heyra" það, en þeir þurfa auðvitað að laga til hjá sér eins og aðrir, "verstur fjárinn hvað fólk er orðið upplýst og lætur ekki lengur bjóða sér hvað sem er lengur"
Kristján Hilmarsson, 4.5.2010 kl. 12:03
Alveg 100% sammála þér Jóhann, Jóhanna ber af yfir versta forsætisráðherra Íslandssögunnar og er alveg gjörsamlega tilfinninglaus gangvart fólkinu í landinu. Hana dreymir einn draum stanslaust, ESB, að komast í ESB en ég spyr mig stundum af því hvort Jóhanna hafi hugsað út í það hvers vegna ESB vill endilega fá okkur inn í klíkuna, ef ESB hefði ekki hagmuni af því þá vildi það ekki fá okkur inn, mjög einfalt.
Tryggvi Þórarinsson, 4.5.2010 kl. 12:32
Þótt Labour sé orðinn hvorki fugl né fiskur, þá ríkir amk. málfrelsi innan flokksins. Ef einhver frambjóðandi hér á landi vogaði sér að gagnrýna foringja síns eigin flokks, þá hyrfi hann af lista umsvifalaust. Hvort sem Jóhanna, Bjarni, Steingrímur eða Sigmundur ætti í hlut.
Eins og allir vita var Labour upphaflega alvöru verkamannaflokkur en verkalýðsfélögin urðu banabiti hans á áttunda áratugnum, þegar Thatcher tók við og færði Tory lengst til hægri. Í þessu pólítíska umhverfi breytti Liberal Party um nafn í Social Liberal Party, og varð þá álitinn vera krataflokkur Bretlands frekar en frjálshyggjuflokkur og í raun mjög vinsæll meðal þeirra sem voru orðnir þreyttir á hinum tveimur flokkunum og vildu miðjuflokk. Kosningalögin og kjördæmaskipan kom þó í veg fyrir að flokkurinn næði mörgum þingsætum.
Eftir að Thatcher var ýtt út og hvorki Majors, Haig né Cameron vildu fylgja hennar harðlínustefnu og eftir að Tony Blair dró Labour til hægri, fór að væsa um Social Liberals, sem höfðu breytt um nafn aftur til að leggja áherzlu á Liberal (frjálshyggju). En að hafa einustu þrjá flokka á þingi alla umhverfis pólítísku miðjuna og alla höfða til millistéttarinnar, fóru stefnur flokkanna að skipta minna máli en áður og persónuleiki formanna flokkanna fór að skipta öllu, líkt og í forsetakosningum í USA.
Ég bjó í Bretlandi í mörg ár og myndaði mér þá skoðun að Bretar væru að upplagi pólítísk viðrini. Margir kusu ákveðinn flokk af því að fjölskyldan hafði alltaf gert það í margar kynslóðir og álitu það vera svik að fara að kjósa annan. Auk þess var eins og almenningur gerði sér aldrei grein fyrir augljósum blekkingum í orðum og verki ríkisstjórnarinnar hverju sinni. Ekki af því að fólk var ekki "politically engaged", allir höfðu einhverja skoðun á stjórnmálum, sérstaklega var andstaðan við the Common Market almenn (og eitt af því sem gerði Thatcher vinsæla var einmitt harka hennar í samningum við EEC). Vandamálið var frekar, að almenningur var ekki mjög vel upplýstur og gat illa fært rök fyrir pólítískum skoðunum sínum.
Eitt gott er þó að segja um House of Commons: Þar eru alltaf líflegar umræður, ólíkt dauðyflunum á Alþingi. Íslenzkir þingmenn eru eins og zombies í samanburði. Engin furða þótt fólk nenni yfirleitt ekki að horfa á útsendingar frá þinginu hér.
Vendetta, 4.5.2010 kl. 13:25
Annars er ég ekki sammála því að Brown hafi verið versti forsætisráðherrann. Það voru tveir aðrir verri:
Neville Chamberlain, sem gerði friðarsamning við nazistana og James Callaghan, sem lét verkalýðsforingjana stjórna landinu, en hafði ekki dug til að gera neitt sjálfur.
Ég held að það sé frekar hrokinn í Brown sem eyðileggi fyrir honum orðstírinn og svo það að hann er fyrsti skozki forsætisráðherra Bretlands, frekar en að hann hafi verið neitt mjög slæmur. En mig grunar að Íslendingar hafi eitthvað mikið persónulegt á móti Brown án þess að hugsa út í hvernig hefði farið ef eignir Landsbankans hefðu ekki verið kyrrsettar. Þá hefðu þær horfið sem dögg fyrir sólu, ens og allt annað.
Vendetta, 4.5.2010 kl. 14:19
Fróðlegt hjá þér "Vendetta" þú hefur sett þig nokkuð inn í bresk stjórmál með Labour sem sérfag ;) en bretar eru miskunnarlausir við sína stjórnmálamenn sbr. það að þegar Churchill var búinn að leiða þjóðina gegn um seinni heimstyrjöldina sem frægt er, þá var honum "hent" í fyrstu kosningum á eftir :(.
En ætla að leiðrétta smá hjá þér "liberal" þýðir "frjálslyndur" ekki frjálshyggja, er svo ekki alveg viss, en held að orðið "frjálshygga" og viðbótarorðið "nýfrjálshyggja" séu aðeins til á íslensku eiginlega og eiga þá að "dekka" t.d. ensku orðin "power of free market" "free market" "marketcapitalism" "marketliberalism” osfrv. en fyrir alla muni leiðréttið mig ef þetta er rangt, maður lærir svo lengi sem maður lifir :)
Kv. að "utan"
Kristján Hilmarsson, 4.5.2010 kl. 16:16
Í pólítík getur Liberal bæði þýtt frjálslyndur og frjálshyggju- ehv., allt eftir því í hvað þjóðfélagi það er og við hvað sé miðað. T.d. eru Demókratar í USA kallaðir Liberals af því að þeir eru frjálslyndir miðað við Repúblikana. En hægriflokkurinn Venstre í Danmörku kallar sig Danmarks liberale parti, og er þá átt við frjálshyggjustefnu flokksins (þ.e. eins lítil ríkisafskipti og ríkisbákn og hægt er).
Stefna The Liberal Party í Bretlandi byrjaði sem frjálshyggja, þ.e.a.s. barátta gegn ríkisafskiptum og þetta var enn stefna flokksins þegar ég bjó þar, þá var Jeremy Thorpe formaður, en hann féll síðar í ónáð vegna kunningsskapar við KGB-gagnnjósnara og etv. fyrir að vera samkynhneigður, sem ekki var algengt þá meðal þingmanna). Félagslega stefnan kom síðar og þá fyrst fór flokkurinn að ná til almennings. Að íslenzki F-listinn kýs að kalla sig Frjálslynda flokkinn er rangt að mínu mati, þar eð hann er í rauninni félagslegur frjálshyggjuflokkur.
Vendetta, 4.5.2010 kl. 18:21
Sammála þér Jóhann.
Sólveig Þóra Jónsdóttir, 4.5.2010 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.