ÞETTA SVAR NÆGIR EKKI DV - AFTÖKUSVEITINNI.................

Það er búið að stilla miðið á Hönnu Birnu og frá því verður ekki hvikað.  Þeir sem standa að baki þessum árásum eru síður en svo hættir................
mbl.is „Hafði ekki áhrif á rannsóknina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

„.....en eng­inn þeirra var boðaður til að ræða rann­sókn­ina sér­stak­lega,“

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 20:25

2 identicon

RUV sagði rétt frá í kvöld að bréfinu hafi verið breytt

en fullyrti um leið

að það hafi verið gert áður en það fór úr ráðuneytinu 

Hvernig er hægt að fullyrða það?

Grímur (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 20:29

3 identicon

Hanna Birna er "lame duck" og það er einungis tímaspursmál þangað til hún þarf að segja af sér sem ráðherra og yfirgefa vettvang stjórnmálanna enda á hún augljóslega á hún ekkert erindi í forystu Sjálfstæðisflokksins með þetta á bakinu.

Hún er í felum, þorir ekki að mæta fjölmiðlum sem eru í raun fjórðu alvarlegu mistökin. Hún svarar með hálfkveðnum vísum og útúrsnúningum. Enginn, nákvamlega enginn kemur og lýsir trausti á henni hvorki forsætisráðherra né formaður Sjálfstæðisflokksins sem sjálfur er með ör eftir bakstungu hennar í síðustu formannskosningum.

Það er spurning hver hafi eiginlega verið hennar ráðgjafi í þessu máli öllu? Sá sami hefur alls ekki staðið sig í stykkinu.

Fyrstu mistökin voru að senda "leka"bréfið. Önnur mistökin að kasta ekki öðrum eða báðum aðstoðarmönnunum umsvifalaust þegar þetta komst upp. Þriðju mistökin að ekki tímabunið víkja úr embætti meðan rannsókn stóð yfir og fjórðu mistökin og þau afdrífaríkustu ítrekað að taka þetta mál upp við lögreglustjóra sem sagði starfi sínu lausu í kjölfarið. Fimmtu mistökin að vera í felum og svara ekki fjölmiðlum. Hún er væntanlega þegar byrjuð að pakka saman föggur sínar í ráðuneytinu.

Klárlega er þetta risa "skúbb" fyrir DV og Reyni Traustason. Dómsmálaráðherra sem beitir sér í því að takmarka rannsókn á sjálfri sér og ráðuneyti sínu er alls staðar í öllum löndum "megaskandall" og sá sem uppvís verður að því er í raun búinn að undirrita sinn pólitíska útlegðardóm.

Gunnr (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 21:20

4 identicon

"Ég hef aldrei blandað mér í þessa rann­sókn með óeðli­leg­um hætti."

Aumingja blessuð konan, ósköp á hún bágt. Samt get ég ekki vorkennt henni, hún er of arrogant.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.8.2014 kl. 22:09

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvernig á hún að svara,þegar hana blóðlangar trúlega að verjast þessum lygum,en hefur heitið að svara ekki meðan þetta er í skoðun. Ég ætla að beita mér fyrir því að Shengen verði sagt upp.

Helga Kristjánsdóttir, 2.8.2014 kl. 00:18

6 identicon

Þetta er í raun sorglegt fyrir Hönnu Birnu. Hún lætur hafa eftir sér í MBL „Hef svarað því sem ég þarf að svara“

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/08/01/svarad_thvi_sem_eg_tharf_ad_svara/

Þetta er gríðarlegt vanmat á pólitískri stöðu hennar sem er augljóslega afspyrnu veik.

Veit ekki hvaða aular eru að gefa henni ráð en þeir eru greinilega ekki starfi sínu vaxnir.

Hún á að koma strax fram í fjölmiðlum með undarbragðalausa sögu sína enda hver mínuta sem hún er "í felum" eyðileggur hennar málstað sem er nær vonlaus nú þegar.

Hvað Schengen víðvíkur voru það núverandi stjórnarflokkar sem samþykktu það árið 2001 en það hindrar ekki fjórfrelsi EES sem við getum einnig sagt okkur úr enda myndi enginn í raun finna neitt fyrir því enda er ísland efnahagslegt núll.

Gunnr (IP-tala skráð) 2.8.2014 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband