MÍNIR MENN KLÚÐRUÐU LEIKNUM Á SÍÐUSTU FIMM MÍNÚTUNUM........

Hvað sem því leið var leikurinn mjög góður og má sega að Valsmenn lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik þar sem þeir fóru alveg á kostum en Haukarnir fundu sig ekki.  En það var svo allt annað Haukalið sem mætti í seinni hálfleikinn og þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum voru  Haukarnir búnir að jafna leikinn 28-28, en þá fór allt í "baklás", þeir töpuðu boltanum klaufalega og fengu mörk í bakið og gerðu  "barnaleg" mistök og létu Björgvin Pál verja úr dauðafærum.  Valsararnir áttu bara fullkomlega skilið að vinna þennan leik og óska ég þeim til hamingju með verðskuldaðan sigur..... 


mbl.is Valsmenn sigldu fram úr í lokin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband