SÍÐAN HVENÆR FÓRU BANKARNIR AÐ "STYRKJA" ALMENNING???????

Og hvað þá hagkerfið í heild sinni.  Það ÆTTI að vera hlutverk bankanna að aðstoða fyrirtæki en það er EKKI gert heldur eru fyrirtækin "blóðmjólkuð" og engar reglur, hvorki óskrifaðar eða skrifaðar, virðast vera til um samskiptin við þau og algjörlega háð einhverjum tilviljunum og annarlegum tilgangi hvaða ákvörðun er tekin í það og það skipti.  Það skal tekið fram að þetta fyrirtæki hafði verið í viðskiptum við þennan banka í nokkur ár og ekki er mér kunnugt um nein stórvandræði. Ég hef persónulega fylgst með "samskiptum" eins fyrirtækis við "viðskiptabanka" sinn.  Þetta litla fyrirtæki, sem var að "trappa" niður starfsemina og þurfti á aðstoð að halda vegna skorts á lausafé fór fram á tíu milljón krónu lán til að létta á rekstrinum til að áhrifin af lækkandi veltu yrðu ekki eins mikil.  Það skal tekið fram að viðkomandi fyrirtæki átti fasteign að verðmæti 240 milljónir og var sú eign aðeins með 38% veðsetningu.  En einhverra hluta vegna dugði þetta ekki til því bankinn var með þau "viðmið" að ekki væri það vænlegt til árangurs að "DRAGA SAMAN" í rekstrinum.   Kannski veitti ekki af að fara að ræða alvarlega um þetta svokallaða "Íslandsálag"????????


mbl.is Stærri bankar styrkja almenning og hagkerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Bankarnir sýndu sitt rétta andlit þegar þeir hættu að tíma að gefa viðskiptavinunum almanak

Almanak sem var á borðinu hjá viðskiptavininum og ókeypis auglýsing fyrir bankann allt árið um kring

Frekar er hundruðum miljóna varið í gerð sjónvarpsauglýsinga sem enginn horfir á

og þessum hugsunarhátt vill fólk ólmt eignast hlutabréf í

Grímur Kjartansson, 8.6.2025 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband