Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

FÓLK ER FÍFL!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Samkvæmt þessari frétt eru nú eitthvað meira en 5% þjóðarinnar fávitar.  Það væri eðlilegast að HÆTTA ALLRIgæslu á svæðin og leifa bara þessum hálfvitum að gera það sem þeir vilja, ef menn eru á annað borð svo arfavitlausir að fara að bjóða náttúruöflunum byrgin, þá getur ekki verið stór missir af þeim ef þeir á annað borð drepa sig.  Svo er ágætt að rifja það upp að kirkjugarðarnir eru sneisafullir af fólki sem hélt að það væri ómissandi, samt gengur lífið einhvern veginn.
mbl.is Fólk gengur á dúandi hrauninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EINHVERJUM HLÁTUR Í HUGA??????

Það kemur hver "spekingurinn" á fætur öðrum og er með hinar og þessar "kenningar" um hvernig jörðin tortímist.  Þessi er nú einna skást því samkvæmt henni förum við HLÆJANDI á vit örlaga okkar.  En uppi stendur maður og klórar sér í hausnum því maður veit ekkert orðið hvað er eiginlega í gangi?????Woundering  Woundering
mbl.is Er hláturgas næsta stóra ógnin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EIGA MENN "RÉTT" Á ÞVÍ AÐ VERA FULLIR Í VINNUNNI???????????

Þetta er nú eitthvað það fáránlegasta verkfall sem ég hef vitað.  Því miður drekka fæstir rónar brennivín, þeir drekka víst kardó og eitthvað fleira þess háttar því það er víst ekki gerandi að drekka brennivín það er svo dýrt, svo Steingrímur Júdas þarf ekki að vera hræddur um að þeir hætti að drekka brennivín til þess að mótmæla háu áfengisverði.
mbl.is Starfsmenn vilja meiri bjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FÓLK BARA KANN EKKI EINU SINNI AÐ BRJÓTA AF SÉR .............................

Og á bara ekki annað skilið en að fara í fangelsi, ef einhver vitglóra hefði verið í hausnum á henni hefði hún átt fá sér eitt stykki banka eða það hefði kannski hentað henni betur að "kaupa" verslun eð verslunarkeðju og hreinsa burtu allar eignir verslunarinnar/verslunarkeðjunnar, taka alveg fullt af lánum út á starfsemina (alls ekki að fara út í neinar persónulegar ábyrgði), setja svo allt á hausinn og væla svo smá í DV og segjast sjá eftir öllu saman.  Hún fékk þriggja mánaða fangelsisdóm fyrir þetta smotterí hvað ætli útrásarvíkingarnir myndu fá EF þeir verða nokkurn tíma dæmdir?????
mbl.is Í fangelsi fyrir að stela öldós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EF MENN ERU EKKI SAMMÁLA HENNI ERU ÞEIR AÐ "MISSKILJA" HLUTINA!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ef þetta er ekki misbeiting valds þá er ekkert til sem heitir misbeiting valds í krafti stöðu.  Ég finn ekkert um það í starfslýsingu háttsettra embættismanna, að þeir eigi að leita til viðkomandi ráðherra áður en að þeir fari til ríkisendurskoðanda, ef þeir eru í vafa um lögmæti einhverrar tilskipunar.  Sumir álíta sig hátt yfir aðra hafna, við nefnum engin nöfn en fyrsti stafurinn er Álfheiður Ingadóttir.
mbl.is Bréf byggt á „misskilningi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER BARA ENGIN ÁSTÆÐA TIL AÐ "SEMJA" VIÐ KÚGARANA!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Eina raunhæfa lausnin er að þetta  leiðindamál fari fyrir dómstóla, ásamt bótakröfu Íslands, vegna setningar hryðjuverkalaganna, sem Bretar settu á okkur án sjáanlegrar ástæðu.
mbl.is Engir Icesave-fundir ráðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞETTA LANDKYNNINGIN SEM VIÐ ERUM AÐ SÆKJAST EFTIR?????????

Að Reykjavík t.d verði köllu Teheran norðursins allt vegna einhvers femínistavæls og fordóma???
mbl.is Ísland höfuðstaður femínismans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG HÉLT AÐ ALLT VÆRI AÐ FARA TIL FJ...... VEGNA HLÝNUNAR???????

Skyldi Al Gore vita af þessu og heitir "hlýnunarsinnar"??????
mbl.is Hafís eykst á norðurslóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERU NÚ ´"VÍMUR" FARNAR AÐ AKA?????

Aka menn ekki lengur undir áhrifum vímuefna eða taka "vímurnar" sig bara til og skreppa á "rúntinn"???? Var einhver að tala um óvandaða blaðamennsku??????  Reyndar kemur nú fram í fréttinni sjálfri að um ökumenn hafi verið að ræða en af fyrirsögninni má ráða hitt.
mbl.is Tveir vímuakstrar á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ GEKK ALLT UPP HJÁ VETTEL................

Og ekki skemmdi það fyrir að hann tók "Schumacher-sigurstökkið" á verðlaunapalllinum en það var smá sárabót fyrir að KÓNGURINN skyldi falla úr keppni. Það var snilldarlegt hvernig hann vann sig úr þriðja sæti, á ráslínu upp í það fyrsta og sannar þar með hvað hann er virkilega góður ökumaður. Með Webber í öðru sæti þetta voru að sjálfsögðu draumaúrslit fyrir Red Bull og Rosberg var nokkuð öruggur í þriðja sæti en Kubica var ekki langt undan í því fjórða.  Það var aðdáunarverður aksturinn hjá Suitil að hann skyldi geta haldið Hamilton fyrir aftan sig, Hamilton er með mun hraðskreiðari bíl og hefði átt að geta farið framúr og Massa var ekki langt frá honum.  Þá var svolítið svekkjandi að sjá vélina hjá Alonso gefa sig á lokahringnum en Button hagnaðist á því.  En keppnin var góð og nú er bara að sjá hvort Kína verður jafn spennandi eftir tvær vikur.
mbl.is Vettel óstöðvandi í Sepang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband