Bloggfærslur mánaðarins, mars 2023
7.3.2023 | 14:08
ENDA HAFA DÝRALÆKNAR LITLA SEM ENGA ÞEKKINGU Á BÓKHALDI........
En nú hefur hún fengið "tiltal" og ætti ekki að vera mikið mál að kippa þessum 40 atriðum í liðinn......
40 ábendingar um bresti í bókhaldi Vegagerðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2023 | 09:27
ÞURFA ÞINGMENN NÚ ORÐIÐ AÐ FÁ LEYFI TIL FYRIRSPURNA????????
Það virðist ekki vera NEIN takmörk á vitleysunni sem stjórnvöld bjóða okkur upp á, þegar þau taka burtu hver mannréttindin af öðrum.........
Fyrirspurnir bersýnilega í andstöðu við þingsköp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.3.2023 | 15:40
FRAMTÍÐIN BYGGIR Á FORTÍÐINNI LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ...
Í ágúst 2019 vann ég greinargerð um tengsl ESB við nasista SJÁ HÉR. Flestir harðir INNLIMUNARSINNAR afgreiddu þessa greinargerð sem samsæriskenningar (og kusu að horfa framhjá því að greinargerðin var byggð á viðurkenndum bókum og viðurkenndum heimildum). En ég fór að skoða fleiri heimildir og þá kom ýmislegt í ljós, sem rennir enn frekari stoðum undir þessa greinargerð og innihald hennar. Ég fór út í nokkuð ítarlega skoðun á toppunum innan ESB og finnst þá rétt að byrja á þeim sem ENGINN hefur kosið til starfa en virðist hafa alveg gífurleg völd nánast er hægt að segja að þessi aðili hafi ALRÆÐISVALD innan sambandsins (ESB). VAR EINHVER AÐ TALA UM LÝÐRÆÐI INNAN ESB? Fyrir valinu varð að byrja á að skoða URSULU GERTRUD VON DER LAYEN æðsta strump ESB og kemur úttektin hér á eftir:
Ursula Gertrud von der Layen er fædd í Brüssel af Þýskum foreldrum 8. Október 1958, fæðingarnafn hennar Ursula Gertrud Albrecht. Faðir hennar, Ernst Albrecht, var einn af fyrstu starfsmönnum ESB (þá EBE) en hann var í fyrstu framkvæmdastjórn EBE undir stjórn Walter Hallstein, sem hafði verið hagfræði prófessor við háskólann í Rostoc á stríðsárunum og ráðgjafi nasista í efnahagsmálum og meðilmur í nasistaflokknum.Walter Hallstein var fyrsti framkvæmdastjóri EBE (síðar ESB). Fróðlegt er að lesa um ömmu og afa Ernst Albrecth, þau hétu Carl Albrecht og Mary Ladson Robertson, sem fluttu til Bandaríkjanna nánar tiltekið til Charleston í Suður Carolina og settu þar á fót bómullarræktun, sonur þeirra, James H. Ladson átti meira en 200 þræla þegar umsvifin voru sem mest (sennileg útskyring á því að notast er við ættarnafnið Ladson er að Albrecht vísar til Þýsks upprunar fólksins, sem ekki átti mjög upp á pallborðið annars staðar en í Þýskalandi). Þess skal einnig getið að Ursula Gertrud von der Layen notaðist við ættarnafn og skírnarnafn langömmu sinnar sem hafði flutt til Bandaríkjanna og var það Rose Ladson, þegar hún stundaði nám í London School of Economics, á seinni hluta sjöunda áratugarins. Hún fann sig ekki alveg eftir námið í London School of Economics og fór í læknanám í Hannover Medical School og útskrifaðist þaðan sem læknir 1987. Hún sérhæfði sig í heilsu kvenna. Hún giftist 1986, lækni að nafni Heiko van der Layen og tók upp ættarnafn hans. Þess skal getið hér að maður hennar er prófessor í læknavísindum og varð seinna forstjóri Evrópudeildar Pfeizer lyfjarisans.
Þegar Ísland samþykkti EES samningin (ekki eru allir sammála um lögmæti hans en stjórnarskráin samþykkir EKKERT FRAMSAL Á FULLVELDI LANDSINS), var samningurinn gerður í anda RÓMAR sáttmálans en síðar kemur til LISSABON sáttmálinn og þá varð GJÖRBREYTING á EES samningnum og að mínu áliti kallar það að MINNSTA KOSTI Á ENDURSKOÐUN EES SAMNINGSINS EF EKKI UPPSÖGN HANS. RÉTT ER AÐ MINNA Á ÞAÐ AÐ KANADA NÁÐI MUN HAGSTÆÐARI TVÍHLIÐA SAMNINGI VIÐ ESB EN ÍSLAND HEFUR Í GEGNUM EES SAMNINGINN OG ÞAR AÐ AUKI ÞURFA KANADAMENN EKKI AÐ TAKA UPP LÖG OG REGLUGERÐIR FRÁ ESB......
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)