Bloggfærslur mánaðarins, desember 2024

ÁRAMÓTAKVEÐJA.........

Óska öllum nær og fjær gleðilegs árs og megi nýtt ár færa öllum gleði, hamingju og frið.  Þá vil ég þakka öllum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða og vonandi verða þau svipuð á nýu ári....... 


ÞETTA VAR NÚ HELSTA "BEITAN" SEM VAR NOTUÐ VIÐ AÐ FÁ ÍSLENDINGA TIL AÐ SAMÞYKKJA EES SAMNINGINN Á SÍNUM TÍMA....

Og núna 31 ári eftir að samningurinn öðlaðist gildi á að "hluta til" að fara að fara að standa við þessa hluta þessarar "gömlu" blekkingar.  Miðað við það hversu "hratt" þessir hlutir hafa gengið má reikna með að jafnvel árið 2060 gætu ALLAR sjávarafurðir okkar Íslendinga verið orðnar tollfrjálsar innan ESB, en í  mér þykir ólíklegt að ESB verði til staðar það ár.  ÉG SÉ ENGAN ANNAN MÖGULEIKA EN AÐ SEGJA UPP EES SAMNINGNUM ÁÐUR EN HANN VELDUR LANDINU ENN MEIRI SKAÐA EN HANN HEFUR ÞEGAR GERT.  ÞÁ VIL ÉG MINNA Á AÐ KANADA GERÐI MUN HAGSTÆÐARI TVÍHLIÐA SAMNING VIÐ ESB EN ÍSLAND HEFUR Í GEGNUM EES SAMNINGINN OG EKKI ÞURFA KANADAMENN AÐ INNLEIÐA LÖG OG REGLUGERÐIR FRÁ BRUSSEL EINS OG TIL DÆMIS BÓKUN 35.......


mbl.is Tollfrjáls kvóti til ESB margfalt meiri en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EKKI TILVALIÐ AÐ SENDA ÞÓRDÍSI KOLBRÚNU REYKFJÖRÐ GYLFADÓTTUR ÞANGAÐ???

Og hafa hana bara sem allra lengst þar og hún mætti gera Íslensku þjóðinni þann greiða að sækja bara um landvistarleyfi þar og  framhaldinu Georgískan ríkisborgararétt, Þorgerður Katrín hældi henni í hástert og sagði að hún hefði staðið svo vel í starfi að erfitt yrði að feta í fótspor hennar, þannig að ef hún þarf einhver meðmæli þá getur Þorgerður Katrín veitt þau án þess að roðna enda er sagt að hún roðni ef henni verður það á að segja satt orð...........


mbl.is Lýsa þungum áhyggjum af ástandinu í Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG FÓR NÚ AÐ HUGSA ÝMISLEGT EFTIR AÐ RÚV FJALLAÐI UM AUKIN UMSVIF NATÓ Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Í GÆRKVÖLDI OG Í KVÖLD....

Ég man nú ekki betur en að VG liðar og fleiri „BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐAR“ hafi staðið fyrir svokölluðum „Keflavíkurgöngum“,  þegar herinn var staðsettur  hérna á Miðnesheiðinni og þá hafi þessi „slagorð“ "ÍSLAND ÚR NATO - HERINN BURT" verið „kyrjuð“ alla leið frá Reykjavík til Keflavíkur.  En nú virðast þessar „FRIÐARHREYFINGAR“ vera algjörlega horfnar af yfirborði jarðar EINS OG SJÁLFSTÆÐ UTANRÍKISSTEFNA ÍSLANDS.    Og er þá einhver utanríkisstefna í gangi og þá sérstaklega í "hernaðarmálum".  Svo er Utanríkisráðherra hér á landi, sem virðist bara verið algjörlega óskrifað blað, sendiráðið í Moskvu er lagt niður og sendiherrann er kallaður „heim“, rússneski sendiherrann í Reykjavík er rekinn til Moskvu og starfsemin er stórlega löskuð og til að „bæta gráu ofaná svart“ þá Ísland gert að „virkum þátttakanda“ í stríðinu í Úkraínu, með því að kaupa vopn og flytja þau fyrir Úkraínumenn og þar með er Ísland komið á óvinalista annars stríðsaðilans.  Það verður ekki betur séð en að NATO geri bara það sem þeim sýnist hér á landi og Íslensk stjórnvöld hlýða bara eins og þægir hundar.  Þegar herinn fór árið 2006, var skilin hérna eftir "sviðin"  jörð en með tímanum var unnið nokkurn veginn úr því (þó svo að deila megi um aðferðirnar og árangurinn).  Eftir að herinn fór, voru girðingarnar á "vallarsvæðinu" teknar niður nema það var skilinn eftir sá partur, sem skildi að flugvöllinn sjálfan og "ÖRYGGISSVÆÐIÐ" sjálft en þar er NATO með sína starfsstöð og Landhelgisgæslan er þar einnig til húsa og er með einhverja starfsemi sem ég þekki ekki alveg til.  En girðingin sem afmarkar þetta "ÖRYGGISSVÆÐI" er vestast og afmarkar það svæði sem almennt gengur undir nafninu Ásbrú.  Ég flutti á Ásbrú í ágúst 2008, eða fyrir 16 árum, síðan ég flutti á svæðið hefur girðingin verið færð nokkrum sinnum til AUSTURS og er svo komið að nokkuð margar íbúðarblokkir eru KOMNAR INN FYRIR "ÖRYGGISGIRÐINGUNA" og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildum að Á SVÆÐINU SÉU NOKKUR HUNDRUÐ HERMANNA MEÐ FASTA BÚSETU.  Það er sagt að NATO-liðið SEM ER STAÐSETT HÉR Á LANDI NÚNA SÉ MUN ÖFLUGRA OG MUN BETUR SKIPULAGT EN VAR ÞEGAR „FORMLEG" HERSTÖÐ VAR STAÐSETT HÉR Á LANDI.  Eins og allir vita, þá hefur NATO samið um það verði hægt að láta fara fram áhafnaskipti og taka vistir og þess háttar hér við land.  Ekki er búið að koma upp hafnaraðstöðu fyrir þetta þannig að þetta fer fram fyrir utan Helguvíkurhöfn.  En Íslensk stjórnvöld þurftu að vera með smá "SÝNDARMENNSKU" í sambandi við þetta og "GERÐU ÞÁ KRÖFU AÐ EKKI VÆRU KJARNORKUVOPN UM BORÐ Í ÞESSUM KAFBÁTUM". En þessi krafa er marklaus með öllu,  því mér er ekki kunnugt um að  NEINIR EFTIRLITSMENN FARI UM BORÐ Í ÞESSI SKIP og þótt svo væri yrði þeim alls ekki hleypt inn á þessi svæði að hámarki fengju þeir að fara í borðsalinn þar sem þeir mættu þakka fyrir að fá kaffisopa.  Þá er komið að smá umfjöllun um þessar ÞRJÁR ÖFLUGUSTU SPRENGJUFLUGVÉLA SEM TIL ERU Í HEIMINUM OG ERU MJÖG OFT HÉR Á LANDI.  Hver um sig geta þessar sprengjuvélar borið 18 KJARNORKUSPRENGJUR OG NATO HEFUR TEKIÐ ÁKVÖRÐUN UM ÞAÐ AÐ ÍSLAND VERÐI "ÚTSTÖÐ" ÁRÁSA Á ÖNNUR RÍKI OG HVERNIG Á AÐ FRAMKVÆMA ÞÆR ÁRÁSIR ÁN ÞESS AÐ KJARNORKUSPRENGJUR SÉU TIL STAÐAR EÐA ÖNNUR VOPN?  Nú er verið að byggja upp aðstöðu fyrir Bandaríska flotann í Helguvík og Íslenskir ráðamenn eru svo barnalegir að halda að þar verði ENGIN kjarnorkuvopn heldur vegna þess að ÞEIR "banni" það.  Og svo hefur  Utanríkisráðherra ekki upplýst þjóðina um hvað er þarna í gangi eða hvað stendur til.  Og ekki hefur fréttasnepill Suðurnesja (Víkurfréttir) birt einn einasta staf um þetta mál.  Ekki geta þeir borið fyrir sig að þetta sé nýbyrjað, ætli ástæðan sé ekki frekar sú að þeir eru hræddir um að þeir missi ríkisstyrkinn upp á rúmlega 13,5 milljónir króna ef þeir fari að segja eitthvað um málið því eins og fram hefur komið þá hefur þetta staðið yfir árum saman........


mbl.is Gerir Trump heiminn öruggari eða óöruggari?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"WOKE- OG ESB RÍKISSTJÓRN ÞORGERÐAR KATRÍNAR GUNNARSDÓTTUR"...

Hvers vegna segi ég þetta??  Jú það er fremur einfalt, þrátt fyrir að Kristrún Frostadóttir, hafi fengið umboð til stjórnarmyndunar, var það Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem fékk "úthlutað" ÖLLUM helstu og veigamestu ráðuneytunum; Utanríkisráðuneytinu, Efnahags- og Fjármálaráðuneytinu, Atvinnuvegaráðuneytinu og Dómsmálaráðuneytinu.  Kristrún Frostadóttir "fékk" náðarsamlega að vera forsætisráðherrasennilega var aðalástæðan sú að hún var með umboðið til stjórnarmyndunar svo komu Menningar-, Nýsköpunar- og Háskólaráðherra, Umhverfis-, Orku- og Loftslagsráðherra og svo var eiginlega vitað að Alma Möller yrði Heilbrigðisráðherra.Svo fékk Inga Sæland Sæland "molana" sem Þorgerður Katrín taldi sér ekki samboðna, eins og Félags- og Húsnæðisráðherra, Mennta- og Barnamálaráðherra og Samgöngu- og Sveitstjórnaráðherra.

Og svo til að taka af allan vafa um það hver stjórnaði lét Þorgerður Katrín, verða sitt fyrsta verk að láta vita af því að hún ætlaði að leggja fram frumvarp um "BÓKUN 35" og það ættu ALLIR RÁÐHERRAR RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ SAMÞYKKJA SKILYRÐISLAUST.  Eitthvað hefur Eyjólfur Ármannsson möglað en það endaði með því að hann gaf út yfirlýsingu á vísir.is, þess efnis að hann ætlaði að samþykkja frumvarið þegjandi og hljóðalaust.  Þetta vekur auðvitað athygli þar sem Eyjólfur Ármannson hefur, hingað til, verið einn af hörðustu andstæðingum BÓKUNAR 35 og öðrum LAKDÁÐAGJÖRNINGUM  (þá er alveg merkilegt hvernig mennn umturnast gjörsamlega við það að settur er ráðherrastóll undir ra........ á þeim og breyta stefnunni um 180 gráður).  ÞÁ ER SPURNINGIN HVORT EKKI VERÐI BEITT FLEIRI KÚGUNUM OG ÞVINGUNUM????? 

Þá er komið að "STJÓRNARSÁTTMÁLANUM", sem er að mínu viti eitthvað almesti "BRANDARI" sem hefur sést á prenti í manna minnum.  Í "stjórnarsáttmálanum" eru  tölusett 23 ÓTÍMASETT "MARKMIÐ" og ÖLL hefjast þau þannig: "MEÐ ÞVÍ AÐ ......"  ÞAR  ER EKKERT UM ÞAÐ AÐ FINNA HVERNIG EIGI AÐ GERA HLUTINA OG ENN SÍÐUR UM KOSTNAÐINN EÐA HVENÆR SKULI FRAMKVÆMA HLUTINA NEMA SÍÐASTA TÖLUSETTA MARKMIÐIÐ KVEÐUR Á UM ÞAÐ AÐ ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM ÁFRAMHALDANDI AÐILDARVIÐRÆÐUR VIÐ ESB SKULI FARA FRAM EIGI SÍÐAR EN ÁRIÐ 2027.

NÚ BÍÐ ÉG BARA EFTIR AР STJÓRN HEIMSÝNAR "RUMSKI" AF DVALANUM SEM FÉLAGIÐ HEFUR VERIÐ Í OG GERI EITTHVAР FLEIRA EN AÐ LÝSA YFIR ÁHYGGJUM AF ÞVÍ SEM ER FRAMUNDAN.......


GLEÐILEG JÓL....

Bestu óskir til allra sem ég þekki um Gleðileg Jól og farsæld á komandi ári og allra sem hafa komið hér við á blogginu hvort sem þeir hafa skilið eftir athugasemdir eða ekki....Bestu óskir til allra sem ég þekki um Gleðileg Jól og farsæld á komandi ári og allra sem hafa komið hér við á blogginu hvort sem þeir hafa skilið eftir athugasemdir eða ekki....

 


ERU ÞETTA ÖLL ÓSKÖPIN SEM INGA SÆLAND FÉKK Í GEGN??????

Ekki "seldi hún sig dýrt" en það eru  allar lýkur á því að LANDRÁÐIN verði henni dýr eins og löðrungurinn hjá Gunnari á Hlíðarenda, hérna um árið.....


mbl.is Persónuafsláttur hækkar í 68.691 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA FÓR EINS ILLA OG NOKKUR MÖGULEIKI VAR Á.......

Og greinilegt að landsmenn þurfa að vera sérstaklega vel á verði gagnvart öllum landráðum og nú reynir alveg sérstaklega mikið á að HEIMSSÝN rumski aðeins og taki við sér, LÝSI EKKI BARA YFIR AÐ ÞEIR HAFI ÁHYGGJUR AF ÞRÓUN MÁLA...


mbl.is Þetta eru ráðherrar ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLIR ÞEIR FLOKKAR SEM STANDA AÐ ÞESSARI RÍKISSTJÓRN GÁFU LOFORÐ

Og ALLIR koma þeir til með að "SVÍKJA" eitthvað, en hvað það  verður VERÐUR SENNILEGA "JÓLAGJÖFIN" TIL ÞJÓÐARINNAR Í ÁR....kosningaloforðin


mbl.is Samfylking og Viðreisn gáfu loforð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"EKKI ER ALLT GULL SEM GLÓIR"........

Talandi um "GULLFISKAMINNI" kjósenda er þarna komin ágætis sönnun fyrir tilvist þess.  Síðan nýr formaður tók við stjórnartaumunum í "LANDRÁÐAFYLKINGUNNI" hefur nýi formaðurinn verið að styrkja sig í sessi með ýmsum "YFIRLÝSINGUM" sem talið er að gangi vel í landsmenn og fylgi flokksins RÝKUR upp í skoðanakönnunum.  ER MINNI KJÓSENDA Á ÍSLANDI VIRKILEGA SVONA "DAPURT" AÐ FÓLK SÉ STRAX BÚIÐ AР GLEYMA ÞVÍ HVERNIG ALMENNINGUR VAR LEIKINN SÍÐAST ÞEGAR SAMFYLKINGIN VAR Í STJÓRN LANDSINS? HVAÐ HEFUR EIGINLEGA BREYST Í SAMFYLKINGUNNI SÍÐAN ÞÁ?  SVARIÐ ER EINFALT: AKKÚRAT  EKKI NEITT.  "Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá".  Það kemur mikið á óvart að Samfylkingin skuli fara með "himinskautum" í skoðanakönnunum, undir forystu Kristrúnar Frostadóttur, er kjósendur búnir að gleyma "afrekum" Samfylkingarinnar þegar hún var síðast í ríkisstjórn "INNIHALDIÐ ER ÞAÐ SAMA ÞÓTT UMBÚÐIRNAR SÉU NÝJAR"?  Hefur einhver haft fyrir því að skoða pólitískan feril Kristrúnar Frostadóttur?  Hún hóf sinn pólitíska feril í Sjálfstæðisflokknum og meira að segja náði hún það langt að hún var á sínum tíma kosin formaður Heimdallar og var víst nokkurn vegin til friðs þar í nokkur ár.  Þá er eins og hún hafi áttað sig á því að innan þess flokks var ENGIN von um framgang og það er nokkuð öruggt að hún ætlaði sér ekki að raða stólum og baka þannig að hún tók þátt í að stofna Viðreisn, en þar voru þvílíkar "kanónur" innanborðs að hún sá sinn kost vænstan að forða sér og þá var Samfylkingin næsta stoppistöð hjá henni, þar sem henni var tekið fagnandi (af öllum nema Helgu Völu Helgadóttur,segja má að hennar tími í flokknum hafi verið á lokametrunum þó svo að fáir vilji viðurkenna það) og nú hefur hún styrkt stöðu sína rækilega með því að verða þar formaður.  ERU KJÓSENDUR MEÐ SVO MIKIÐ "GULLFISKAMINNI" AÐ ÞEIR LÁTI BLEKKJA SIG SVONA?  EF ÞETTA ER EKKI TÆKIFÆRISMENNSKA ÞÁ ER HÚN EKKI TIL  Ég veit ekki til að það að skipta út EINNI MANNESKJU GJÖRBREYTI HEILUM STJÓRNMÁLAFLOKKI.Og til að  bæta gráu ofan á svart skulum við fara yfir „UPPSTILLINGU“ flokksins á framboðslista fyrir síðustu Alþingiskosningar, það þarf nú ekki að fara lengra en að skoða „listann í Suðvesturkjördæmi (Kraganum) til að sjá að þar var bara troðið „tusku“ upp í Kristrúnu og henni bara sagt að hún gæti ekki stjórnað EIN GAMLA SAMFYLKINGIN (Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og fleiri væru enn í fullu fjöri og  stjórnuðu enn á bak  við tjöldin) og þeir hefðu aðrar hugmyndir, sem Kristrún YRÐI að taka tillit til.  Hugmynd Kristrúnar var að varaformaður  flokksins, Guðmundur Árni Stefánsson, yrði í fyrsta sæti á þeim lista en þeim hugmyndum var „GAMLA SAMFYLKINGIN.“ Ekki tilbúin að skrifa uppá og ekki nóg með það að Alma Möller var sett í fyrsta sætið og Guðmundi Árna var hent út og setur í svokallað „heiðurssæti“ þar sem ekki var  möguleiki á að hann kæmist á þing og til að  bíta hausinn af skömminni var því haldið fram að hann, Guðmundur Árni hafi tekið þessa ákvörðun vegna veikinda og að læknisráði. En eitthvað voru þessi „veikindi“ Guðmundar Árna skrítin, því daginn áður en þessar tilfæringar voru gerða kom Guðmundur Árni fram í fjölmiðlum og sagðist vera „KLÁR“ í slaginn og sagðist vera fullur tilhlökkunar fyrir komandi baráttu en málin fóru á annan veg.... 

  

AÐFÖRIN AР ÞÓRÐI  SNÆ JÚLÍUSSYNI OG SAMANBURÐUR VIÐ ÞORGERÐI KATRÍNU GUNNARSDÓTTUR

Nú verður, að mínu mati, fjallað um eitt DAPURLEGASTA MÁL nýliðnar kosningabaráttu.  Þórði Snæ Júlíussyni, varð það á að  skrifa „blogg“ fyrir rúmum 20 árum þar sem hann fór fremur ófögrum orðum um vissar konur (ekki dettur mér í hug að verja það sem hann skrifaði en viðbrögðin, sem á eftir fóru og það 20 árum seinna blöskraði mér algjörlega).  Einhverjir pólitískir andsæðingar hans „grófu“ þetta gamla blogg hans upp og létu það lýta eins illa út og mögulegt var.  Og ekki stóð á viðbrögðunum og hægt er að segja að „aðförin“ hafi gengið fullkomlega upp og kannski „betur“ en til hafði staðið í upphafi.  Andstæðingar hans linntu ekki látunum fyrr en HANN AFSALAÐI SÉR HUGSANLEGU  ÞINGSÆTI SÍNU OG ALLT AÐ ÞVÍ LÉT HANN SIG AÐ MESTU „ HVERFA“ ÚR ÍSLENSKU SAMFÉLAGI.  Varðandi þetta mál verður að hafa í huga að maðurinn er ekki ein, heldur á hann  fjölskyldu svo ekki sé nú talað um börn, það er í sjálfu sér, að mínu mati,  í  lagi að segja frá þessu sem var 20 ára gamalt blogg og fljótt á litið þá olli það ekki sérstökum skaða þá, en að ver að „japla“á þessu dögum saman og þar að auki með ÞESSUM GRÍÐARLEGU AFLEIÐINGUM.  En við skulum bera þessi viðbrögð saman við það hvernig þjóðin brást við því hvernig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur gert á sínum stjórnmálaferli og hefur SANNANLEGA stórskaðað þjóðina bæði fjárhagslega og stóraukið á vandræðin bæði innanlands og utan. Hún fékk, fyrir hrun, svokallað KÚLULÁN að upphæð rétt um TVO MILLJARÐARÐA, sem svo EFTIR HRUN var afskrifað, svo segir sagan að hún hafi „þrýst á“ Geir H. Haarde að „lána“ KAUPÞINGI BANKA, þar sem eiginmaður hennar var einn af „toppunum“, ALLAN VARAGJALDEYRISSJÓÐ LANDSINS, sem síðar „HVARF“ og bara „gufaði upp“.  Ekki eru gerðar neinar athugasemdir við það að þessi manneskja sé formaður stjórnmálaflokks og líklega verður hún Ráðherra í næstu ríkisstjórn og það meira að segja Fjármálaráðherra.  GETUR VERIÐ AÐ KONUR SÉU MEÐHÖNDLAÐAR Á ANNAN HÁTT EN KARLAR EF ÞÆR GERA EINHVER MISTÖK, Á HVAÐ VEGFERÐ ERU LANDSMENN??????  Inga Sæland á sér svo sem enga "sérstaka fortíðarsögu" en ansi er ég hræddur um að hún hafi verið "látin kokgleypa" sitt helsta kosningaloforð og sennilega á það eftir að hafa alvarlegar afleyðingar fyrir flokkinn í næstu kosningu.  En það borgar sig ekki að vera með neitt svartsýnn heldur bar að vera bjartsýnn á framtíðina og vona það besta...


mbl.is Ný ríkisstjórn kynnt á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband