Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025

MISHEPPNAÐ UPPHLAUP HJÁ "NO BORDER-LIÐINU"............

Þetta lið þóttist ætla að vera á Ingólfstorgi með sín mótmæli og sögðust hafa fært þau vegna þess að þeim hefðu borist ofbeldishótanir.  En þeim gengur illa að útskýra það hvernig stóð á því að allt í einu voru þau mætt á Austurvöll.  EN svo var miklu "púðri" eitt í það í kvöldfréttum RÚV klukkan 19 að vera með viðtal við "no border" liða, sem sagði farir sínar og félaga ekki sléttar og þau væru bara "hundelt" og skíthrædd um líf sitt, en það fór ekki mikið fyrir umfjöllun um "HINA HLIÐINA".........


mbl.is Ryskingar milli mótmælenda (Myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ÍSLAND ÚR NATO"..........

VIÐ ÍSLENDINGAR ERUM MEÐ VARNARSAMNINGINN VIÐ BANDARÍKIN OG EIGUM AÐ HLÚA AÐ HONUM.  Það hefur komið í ljós og ætti að vera ÖLLUM ljóst (nema kannski "SKESSUNUM" í ríkisstjórn Íslands, sem virðast vera óvenjulega "tregar") að NATO og Evrópa eru  sífellt að nálgast hvort annað og mér segir svo hugur að Bandaríkin íhugi það æ meir að yfirgefa NATO og þá kemur til þess að við Íslendingar verðum að ákveða hvort við ætlum að fylgja Bandaríkjunum eða vera "VIÐHENGI" Evrópu, þar sem málefni Íslands skipta engu máli og hafa aldrei gert.  Í mínum huga er ekki nokkur spurning hvað ætti að gera (en því miður hef ég ekkert um þessi mál að segja), ÉG MYNDI VELJA SAMNINGINN VIÐ BANDARÍKIN OG SEGJA UPP AÐILDINNI AÐ NATO ) auðvitað höfum við ekkert með TVÖFALDAN varnarsamning að gera)...............


VAR UTANRÍKISRÁÐHERRA KANNSKI AÐ "LEIRA"????????

Hefur ekki verið sagt að Forsætisráðherra sé eins og LEIR í höndunum á Utanríkisráðherra?  Hvaða "PLOTT" er eiginlega í gangi???  Ég get eiginlega ekki að því gert að ég er bara skíthæddur við hvað er eiginlega í gangi hjá þessu fólki og á hverju eiga landsmenn eiginlega von???????


mbl.is Íhuga að verja 1,5% landsframleiðslu í varnarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA "MOKAÐI" HÚN ENDANLEGA YFIR SIG OG STAÐFESTI VANHÆFI SITT Á ÖLLUM SVIÐUM....

En getur þessi manneskja setið í embætti Dómsmálaráðherra landsins eftir að hafa "KLÚÐRAR" svona hverju málinu á fætur öðru????  En því miður þá situr hún í ríkisstjórn, sem nýtur meirihlutafylgis á Alþingi og því verður það að teljast MJÖG hæpið að nokkuð veri hreyft við henni nema hún geri eitthvað sem SAMRÁÐHERRUM hennar er ekki að skapi........


mbl.is Vill flytja Helga Magnús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR ÞAÐ AÐ REKA ÚLFAR LÚÐVÍKSSON HLUTI AF ÞEIRRI ÁÆTLUN AÐ EFLA LANDAMÆRAEFTIRLITIÐ????

Landsmenn hafa setið uppi með "HVERJA VERKLAUSU UNDIRLÆGJUNA" Á FÆTUR ANNARRI OG ÞAÐ SEM ÞÆR EIGA SAMEIGINLEGT ER AÐ SÚ NÝJASTA ER MUN VERRI EN SÚ SEM VAR Á UNDAN.  Og sú sem er núna slær öll met, að fara yfir aðgerðir hennar er fljótgert, HÚN RAK ÚLFAR LÚÐVÍKSSON ÚR EMBÆTTI OG ENN ÞANN DAG Í DAG HEFUR HÚN EKKI GEFIÐ FULLNÆGJANDI SKÝRINGU Á BROTTREKSTRINUM, HÚN HEFUR EKKERT GERT Í "NJÓSNAMÁLINU OG HÚN HEFUR ENN EKKERT GERT Í MÁLEFNUM RÍKISSAKSÓKNARA OG VARARÍKISSAKSÓKNARA. Viðreisn fékk víst MJÖG GÓÐA KOSNINGU Í SÍÐUSTU ALÞINGISKOSNINGUM en það vill enginn, sem ég hef hitt vilja viðurkenna að hafa kosið flokkinn????  HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI Í ÞJÓÐFÉLAGINU OKKAR???????


mbl.is Segir Miðflokkinn hafa hagsmuni af óbreyttu ástandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ SJÁLFSÖGÐU VORU ÞAÐ MISTÖK AÐ GERAST AÐILI AÐ SCHENGEN....

Þó svo að Björn Bjarnason, sem barðist fyrir Schengen aðild Íslands í Ráðherratíð sinni og það var engu líkara en að þarna væri hans eigið afkvæmi sem ætti í hlut, en Björn Bjarnason er nokkuð langt frá því að vera "fullkominn" í það minnsta undirbjó hann alls ekki aðild Íslands að Schengen með tilhlýðilegum hætti og þar er meðal annars ástæðan fyrir því að Schengen er handónýtt í dag. Í gær bloggar Björn Bjarnason um þetta mál SJÁ HÉR og þar lætur hann að því liggja að Úlfar Lúðvíksson EIGI SÖK Á ÞVÍ AÐ INNRI LANDAMÆRIN (SCHENGEN) SÉU ALLT AÐ ÞVÍ ÓSTARFHÆF, ÞVÍ HANN HAFI STJÓRNAÐ ÞEIM SÍÐUSTU FIMM ÁRIN.   ER HANN AÐ MEINA AÐ EMBÆTTISMAÐUR RÍKISINS EIGI EKKI AÐ FARA AÐ FYRIRMÆLUM RÁÐHERRA, SEM ER YFIRMAÐUR HANS, HELDUR AÐ SPILA "SÓLÓ" OG FARA BARA AÐ EIGIN GEÐÞÓTTA?? Þetta er reyndar ekki í fyrsta og eina skiptið sem Björn Bjarnason kemur mér verulega á óvart með ummælum sínum og gjörðum......


mbl.is Schengen-samstarfið voru mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"IT'S NOW OR NEVER" - HVAÐ GERIR HÚN NÆST???????

Miðað við "síðustu" samninga sem Utanríkisráðherra UNDIRRITAÐI ÁN VITUNDAR OG SAMRÁÐS VIÐ UTANRÍKISMÁLANEFND ALÞINGIS, þess efnis að viðkomandi ríki SKULDBINDI sig til að samræma utanríkisstefnu sína að utanríkisstefnu ESB get ég ekki betur séð en að ráðherra hafi gerst sek um LANDRÁÐ OG HÚN EIGI AÐ VERA MEÐHÖNDLUÐ SAMKVÆMT ÞVÍ b(en því miður verður ráðherra að gefa þá fyrirskipun og ég sé það ekki fyrir mér að samflokksmanneskja Utanríkisráðherra fyrirskipi slíkt en þar með er hún orðin SAMSEK um LANDRÁÐ).  Nú stöndum við greinilega á tímamótum gagnvart ESB og þurfum að bregðast við því eins og menn en ekki eins og mýs   Kannski getum við átt von á því að Utanríkisráðherra fari í sömu vegferð og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sem AFSALAÐI FISKIMIÐUM BRETLANDS TIL ESB NÆSTU 12 ÁRIN.  Þetta virðist henni ´lófa lagið að gera ef þeir samningar sem hún hefur þegar gert verða látnir standa.........


SEGJUM EES SAMNINGNUM UPP OG HÆTTUM ÞESSU ESB DAÐRI........

Fyrir það fyrsta þá HEIMILAR STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS  EKKERT VALDAFRAMSAL.  Þó svo að einhverjir lögfræðingar á vegum INNLIMUNARSINNA  segi að vaLdaframsal sé HEIMILT ef það er „AFMARKAÐ OG INNAN VISSRA MARKA“.  Ég verð að segja eins og er AÐ ÉG HEF ENGA HUGMYND UM HVAÐ ÞETTA ÞÝÐIR OG ALDREI HEFUR VERIÐ SAGT HVER TAKMÖRKIN ERU.  Þegar EES samningurinn var gerður, voru ESB ríkin 12 en EFTA ríkin voru 7 og þannig var nokkurn vegin samið á „jafnréttisgrundvelli“, en síðan hafa þrjú EFTA ríki gengið inn í ESB og nokkur austur Evrópuríki líka og eitt Evrópuríki gengið út úr ESB (það gekk nú ekki andskotalaust að komast út og munaði litlu að textabrot The EAGLES rættist „YOU CAN CHECK OUT ANY TIME YOU LIKE – BUT YOU CAN NEVER LEAVE..“ )  ÞANNIG AР NÚ ERU ESB RÍKIN ORÐIN 27 EN EFTA RÍKIN ERU ORÐIN ÞRJÚ.  Í átt til þessara hlutfalla hefur EES samningurinn verið að breytast í gegnum tíðina EFTA ríkjunum í óhag og svo árið 2009 keyrði alveg um þverbak, þegar svokallaður LISSABON sáttmáli tók gildi, en þáverandi Utanríkisráðherra Íslands var ekki að hafa fyrir því að láta Íslendinga vita af þessari MIKLU breytingu.  Frá því að EES samningurinn tók gildi þann 1. Janúar 1994 hefur ekki farið fram NEIN HEILDRÆN ENDURSKOÐUN Á HONUM AF ÍSLANDS HÁLFU  EN AFTUR Á MÓTI HAFA KOMIÐ MARGAR LAGATILSKIPANIR FRÁ ESB UM BREYTINGAR Á SAMNINGNUM OG ERU ÞÆR SÉRSTAKLEGA VEIGAMIKLAR SEM HAFA KOMIÐ EFTIR 2009 (eftir að Lissabon sáttmálinn tók gildi) þetta er þess valdandi að EES samningurinn er orðinn eins og illa skipulagt BÚTASAUMSTEPPI og er bara orðið landinu STÓRSKAÐLEGUR.  Og nú á að bíta hausinn af skömminni með því að þvinga í gegn BÓKUN 35,  SEM ER EKKERT ANNAÐ EN TVÍVERKNAÐUR ÞVÍ AÐ 2 .GREIN EES SAMNINGSINS  INNIHELDUR „STJÓRNARSKRÁRBROTIГ, SEM TRYGGIR FORGANG ESB LAGA OG REGLUGERÐA Í EES SAMNINGNUM.  HVER ER ÞÁ TILGANGURINN MEÐ BÓKUN 35???????

 


BROTTREKSTURINN VAR ÞÁ EKKERT ANNAÐ EN "PÓLITÍSK HEFNDARAÐGERÐ"......

Og greinilega búin að vera LENGI í undirbúningi.  En hvers konar AUMINGJASKAPUR er eiginlega í gangi sambandi við það að verja landamærin???? þetta ætti að vera einfaldasta mál í heimi en einhverra hluta vegna þá "heykist" pólitíska valdið á að gera nokkurn skapaðan hlut í málinu og ef einhver embættismaður  gerir eitthvað í þessum málum, ER HANN UMSVIFALAUST LÁTINN TAKA "POKANN SINN"..............


mbl.is Skammaði lögreglustjóra í tölvupósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER NEFNILEGA NOKKUÐ MARGT Í EFNAHAG LANDSINS SEM HEFUR ÁHRIF Á GENGI BANKANNA Á NÆSTUNNI.......

Aðalmálið er hvort lítil og meðalstór fyrirtæki svo ekki sé talað um almenning í landinu ÞOLI þetta VAXTASTIG, sem er í landinu og þessar gríðarlegu verðhækkanir sem eru í hverjum mánuði?  Það þarf nú ekki að hafa miklar áhyggjur af "stóru" fyrirtækjunum, því þau fjármagna sig erlendis og njóta allt annarra lánskjara og þurfa þar af leiðandi ekki að hafa svo miklar áhyggjur af fjármögnunarkostnaðinum en aftur á móti þurfa þau að taka tillit til minnkandi kaupgetu almennings og versnandi efnahagsástands í heiminum.  En það hlýtur að valda stjórnendum bankanna miklum áhyggjum VERSNANDI greiðslugeta heimilanna því alltaf aukast vandræði fólks og eftir því sem "ENDURFJÁRMÖGNUNUM" fjölgar þá minnkar "VEÐHÆFI" viðkomandi eignar og "hengingaról" viðkomandi lántaka styttist.  En þetta verklag gengur ekki til lengdar og vandinn vex bara og versnar og endar bara með ósköpum, fyrir alla og þó kemur ann verst  við þá sem skulda bankanum, en að lokum verða þeir að "fórnarlömbum" líka.  Flest bendir til þess að efnahagshrun sé á leiðinni (minnkandi hagvöxtur um allan heim og jafnvel neikvæður, aukin verðbólga jafnvel er að mælast verðbólga án þess að ástæða fyrir henni finnist, stundum er talað um "huglæga verðbólgu" sem er oftast undanfari ALVARLEGRAR KREPPU).  Alveg fram á síðustu daga í síðustu  efnagaskreppu (HRUNINU) datt nú frekar fáum í hug að bankarnir myndu falla en þeir gerðu  það  nú samt.  Margir hafa bent á það að  staða bankanna nú sé allt önnur en þá, eiginfjárkröfur og fleira, séu miklu meiri og þeir standa bara miklu betur núna.  Jú það er alveg rétt, en bankarnir (eins og önnur fyrirtæki þurfa VIÐSKIPTAVINI til að hægt sé að  reka þá), því held  ég að bankarnir verði líka "fórnarlömb" komandi EFNAHAGSKREPPU.  AÐ SJÁLFSÖGÐU VERÐA ÞEIR FYRIR MINNSTUM ÁHRIFUM AF KREPPUNNI SEM SKULDA LÍTIÐ OG HELST EKKI NEITT........


mbl.is Ágætar horfur hjá bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband