Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025

ER ÞETTA UPPHAFIÐ AÐ ENDALOKUNUM??????

Hvernig í ósköpunum geta menn snúið sig úr þessu, ekki geta menn "skorið sig úr snörunni" þegjandi og hljóðalaust??????


mbl.is Stefna á að afskrá Play af hlutabréfamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"HVAÐ ER KLUKKAN"?????????

TímabeltinSumum finnst þessi spurning ekki alveg eiga við, en við skulum skoða þetta aðeins nánar.  Fljótlega veittu menn því athygli að tíminn var mismunandi á jörðinni eftir því hvar menn voru staddir á jörðinni og áttuðu sig á því að það varð að setja reglur um tímann.  Ákveðið var að miða við HÁDEGISSTÖÐU SÓLAR og var ákveðið að UPPHAFSPUNKTURINN YRÐI GMT O (Greenwich Mean Time), (Greenwich er er hverfi í London og þar er stjörnuskoðunarstöð) og síðan yrði hvert tímabelti  (360/24=15) 15 lengdargráður og í miðju hvers tímabeltis er miðað við hádegisstöðu sólar.  En þegar skoðaðir eru raunverulegir tímar í hverju landi og landsvæði og svo opinberu "tímasvæðin" þá kemur í ljós að pólitíkin hefur heldur betur blandað sér í málin og er helst hægt að ímynda sér að "skrattinn hafi gengið um kortið með öfugar klærnar".  Sem dæmi má nefna að MEGNIР AF ÍSLANDI (FYRIR UTAN MEGNIÐ AF VESTFJÖRÐUM, SNÆFELLSNES OG REYKJANES) TILHEYRIR TÍMABELTI GMT -1 en megnið af vestfjörðum, Snæfellsnes og Reykjanes tilheyra GMT -2.  Grænland nær yfir rúmlega fimm tímabelti en sennilega vegna fámennis er ALLT Grænland sett undir eitt tímabelti, sem er að einhverju leiti hægt að skilja.  En það er með öllu leiti óskiljanlegt að Ísland er ALLT á vitlausu tímabetli það væri ekki svo galið að landið yrði á SAMA tíma og Grænland (GMT -2) í það minnsta GMT -1 og þar með yrði tíminn leiðréttur gagnvart sólarstöðu......


KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....

En að sjálfsögðu þarf að nota þetta af skynsemi og þá í bland við önnur úrræði.  Það ætti að vera forgangsatriði að STÖÐVA verðhækkanir á neysluvöru, sem ekki verður séð að NEIN skynsemi sé á bak (eingöngu einhverjar "verðbólguvæntingar").  Það er frekar hæpið að einhver geti SPÁÐ fyrir um verðbólgu af einhverju viti.  ÞAÐ ER FREKAR LÍKLEGT AÐ EF VERÐLAGSRÁÐ YRÐI ENDURVAKIÐ OG ÞAÐ YRÐI GERT AF VITI, AÐ ÞÁ MYNDI VERÐ Á ELDSNEYTI LEIÐRÉTTAST ÁSAMT MÖRGU FLEIRU.......


mbl.is Verðlagseftirlitið lífgað við?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MIKILL OG STERKUR VILJI TIL LANDRÁÐA HJÁ SAMFYLKINGU OG VIÐREISN...

Því miður virðast þingmenn þessara flokka eiga eitthvað erfitt með að lesa sér til gagns og að vera með eitthvað sem heitir GAGNRÝNA og SJÁLFSTÆÐ HUGSUN virðist í hugum þessa fólks vera eitthvað ofan á brauð.  Skyldi það vera einhver tilviljun að þeir sem eiga í lestrarerfiðleikum og að eig erfitt með að hafa sjálfstæðan vilja og gagnrýna hugsun fjölmenni í þessa stjórnmálaflokka???


mbl.is Vilji til að afgreiða bókun 35
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÍÐAN HVENÆR FÓRU BANKARNIR AÐ "STYRKJA" ALMENNING???????

Og hvað þá hagkerfið í heild sinni.  Það ÆTTI að vera hlutverk bankanna að aðstoða fyrirtæki en það er EKKI gert heldur eru fyrirtækin "blóðmjólkuð" og engar reglur, hvorki óskrifaðar eða skrifaðar, virðast vera til um samskiptin við þau og algjörlega háð einhverjum tilviljunum og annarlegum tilgangi hvaða ákvörðun er tekin í það og það skipti.  Það skal tekið fram að þetta fyrirtæki hafði verið í viðskiptum við þennan banka í nokkur ár og ekki er mér kunnugt um nein stórvandræði. Ég hef persónulega fylgst með "samskiptum" eins fyrirtækis við "viðskiptabanka" sinn.  Þetta litla fyrirtæki, sem var að "trappa" niður starfsemina og þurfti á aðstoð að halda vegna skorts á lausafé fór fram á tíu milljón krónu lán til að létta á rekstrinum til að áhrifin af lækkandi veltu yrðu ekki eins mikil.  Það skal tekið fram að viðkomandi fyrirtæki átti fasteign að verðmæti 240 milljónir og var sú eign aðeins með 38% veðsetningu.  En einhverra hluta vegna dugði þetta ekki til því bankinn var með þau "viðmið" að ekki væri það vænlegt til árangurs að "DRAGA SAMAN" í rekstrinum.   Kannski veitti ekki af að fara að ræða alvarlega um þetta svokallaða "Íslandsálag"????????


mbl.is Stærri bankar styrkja almenning og hagkerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FERILL ÞESSA MÁLS HJÁ NÚVERANDI DÓMSMÁLARÁÐHERRA ER SÍÐUR EN SVO HENNI TIL FRAMDRÁTTAR......

En ALLAR hennar aðgerðir frá því að hún settist í stól Dómsmálaráðherra hafa ekki gert neitt annað en að UNDIRSTRIKA VANHÆFNI HENNAR OG GETU TIL AÐ TAKA EINHVERJA VITRÆNAR ÁKVARÐANIR OG FRAMKVÆMA ÞÆR.  Bara sú  staðreynd að núverandi Dómsmálaráðherra VANN á skrifstofu Ríkissaksóknara og þær Ríkissaksóknari eru VINKONUR áður en hún var kjörin til setu á Alþingi, HLÝTUR AÐ GERA HANA VANHÆFA TIL AÐ FJALLA UM MÁLIÐ Á NOKKURN HÁTT.  Landsmenn hafa setið uppi með "HVERJA VERKLAUSU UNDIRLÆGJUNA" Á FÆTUR ANNARRI OG ÞAÐ SEM ÞÆR EIGA SAMEIGINLEGT ER AÐ SÚ NÝJASTA ER MUN VERRI EN SÚ SEM VAR Á UNDAN.  Og sú sem er núna slær öll met, að fara yfir aðgerðir hennar er fljótgert, HÚN RAK ÚLFAR LÚÐVÍKSSON ÚR EMBÆTTI OG ENN ÞANN DAG Í DAG HEFUR HÚN EKKI GEFIÐ FULLNÆGJANDI SKÝRINGU Á BROTTREKSTRINUM, HÚN HEFUR EKKERT GERT Í "NJÓSNAMÁLINU OG HÚN HEFUR ENN EKKERT GERT Í MÁLEFNUM RÍKISSAKSÓKNARA OG VARARÍKISSAKSÓKNARA.   Ég held að það ætti að vera nokkuð einfalt fyrir Dómsmálaráðherra að "SNÚA" sig út úr þessum vandræðum sem hún er búin að koma sér í.  HÚN Á EINFALDLEGA AÐ "LOSA" SIG VIÐ NÚVERANDI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA OG SKIPA ÚLFAR LÚÐVÍKSSON Í ÞAÐ EMBÆTTI OG SVO ÆTTI HÚN AÐ REKA NÚVERANDI RÍKISSAKSÓKNARA OG SETJA HELGA MAGNÚS GUNNARSSON Í ÞAÐ EMBÆTTI.  Með þessum aðgerðum gæti hún mögulega lagað stöðu sína og sparað einhverja fjármuni fyrir ríkissjóð (ekki veitir af).   En sennilega er hún búin að sjá að  "VIÐREISNARMENNINGIN"  virkar alveg prýðilega (að ráðherrarnir geri bara það sem þeim sýnist án nokkurs samráðs við Alþingi eða nefndir þess, þetta fordæmi hefur Utanríkisráðhárra skapað) og Dómsmálaráðherra sér að þetta gengur alveg upp  og "apar" þetta eftir.......  


mbl.is Mál Helga skýrist eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER LÖGBUNDIÐ AÐ SKYLT SÉ AÐ TAKA VIÐ REIÐUFÉ.......

En kannski er nauðsynlegt að SKERPA Á ÞESSARI LÖGBUNDNU SKYLDU bæði fyrir þá sem geta ekki lesið sér til gagns og líka fyrir þá sem hald að lögin séu ekki fyrir ÞÁ til að fara eftir.....


mbl.is Gæti orðið skylda að taka við reiðufé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EITTHVAÐ SEM KEMUR Í VEG FYRIR AÐ LAGT VERÐI FRAM FRUMVARP UM SAMSKONAR LAUNAHÆKKANIR FYRIR OPINBERA EMBÆTTISMENN, ÞINGMENN, RÁÐHERRA OG RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR OG ALMENNRA LAUNAMANNA?????

En getur ekki verið að það sé ekki "mikill" áhugi á því að gera breytingar á laununum í þessa átt?????????


mbl.is Launin fylgi almennum launahækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HAFA RÁÐHERRAR EINHVERJA HEIMILD TIL AÐ SETJA "TRÚNAÐ" Á UMFJÖLLUN FASTANEFNDA ALÞINGIS UM EINSTÖK MÁL??????

Til að koma í veg fyrir umfjöllun um málið Alþingi?  Það er kannski rétt að minna á það að ALLIR, bæði ráðherrar og almennir þingmenn eru KJÖRNIR af almenningi, til þess að sinna störfum fyrir þjóðina og þá er, að mínum dómi, ekki hægt annað en ð ALLT SÉ UPPI Á BORÐINU ÞVÍ ÞJÓÐIN Á HEIMTINGU Á ÞVÍ FÁ AÐ VITA HVAÐ ER Í GANGI.

Svo er annað sem hefur verið að AUKAST undanfarin ár EN ÞAÐ ER AÐ RÁÐHERRAR ERU AÐ SKULDBINDA RÍKISSJÓÐ UM HÁAR FJÁRHÆÐIR ÁN ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI NOKKUÐ FJALLAÐ UM MÁLIÐ ÁÐUR, EINS OG STJÓRNARSKRÁ LANDSINS KVEÐUR Á UM.  Þessi vinnubrögð eru ALGJÖR ÓVIRÐING VIÐ ALÞINGI OG STÖRF ÞESS.  Það hefur ekki heyrst nokkurt einasta "MÚKK" í EINUM EINASTA ALMENNUM ÞINGMANNI VEGNA ÞESSA.  Ég get ekki með nokkru móti skilið þann AUMINGJASKAP í almennum þingmönnum að láta þetta yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust................


TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR ÞEIRRA.....

Því miður er SJÓMANNADAGURINN og hátíðahöld vegna hans ekki nema svipur hjá sjón, núna seinni árin.  Það er ekki nema á fáeinum stöðum úti á landi, sem eitthvað er gert almennilegt í tilefni dagsins og þar ber Grindavík af með það hversu hátíðahöld eru vegleg og þar í bæ, virðist fólk gera sér grein fyrir því hversu STÓRAN þátt SJÁVARÚTVEGUR OG SJÓMENNSKA EIGA Í LÍFSKJÖRUM ÞJÓÐARINNAR Í DAG.  Einhverjir virðast halda að  peningarnir verði til í fjármálageiranum.  Í Reykjavík var farið í þá vegferð, fyrir nokkrum árum, að leggja niður nafnið SJÓMANNADAGUR og þess í stað var haldin "hátíð hafsins", ekki veit ég hver var ástæðan fyrir þessari vitleysu (hvað var eiginlega að því að þetta héti SJÓMANNADAGURINN áfram?). En eitthvað var það sem vantaði og sögðu sumir að "SJARMINN" sem var yfir þessum degi væri ekki lengur til staðar.  Svo fór að þessu var breytt aftur til fyrri vegar, hátíðahöldin hafa eitthvað hjarnað við en dagurinn er ekki svipur hjá sjón enn þann dag í dag enda hefur ekki verið lagt í það að skýra frá þessari breytingu til fyrri vegar eins og þegar fyrri breytingin var gerð.....


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband