Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2025

"DÓMARASKANDALL" í PÓLLANDI....

Ég legg ekki í vana minn að "kenna dómurunum um úrslit leikja" en í þetta sinn var það alveg augljóst.  Það er ekki hlutverk dómara að blanda sér í leikinn sem slíkan, heldur að sjá til þess að hann (leikurinn) fari rétt fram leikið sé eftir REGLUM sem gilda.  Þetta varð EKKI raunin með leikinn Ísland - Pólland í kvöld og breyting var gerð á hlutverki dómaranna.  Það "VIRÐIST VERA AÐ ÚRSLITIN HAFI VERIÐ ÁKVEÐIN FYRIRFRAM" úrslitin virtust vera orðin mjög tvísýn í lok leiksins og þá virðist vera að dómararnir hafi tekið leikinn yfir, sem er mjög sorglegt.  ÉG ER ALLS EKKI AÐ SEGJA AÐ STRÁKARNIR OKKAR HEFÐU UNNIÐ LEIKINN, EN SÉNSINN VAR VISSULEGA TEKINN AF ÞEIM.  En vonandi jafna þeir sig fljótt á þessu "hundsbiti" og mæta bara klárir í næsta leik.....


mbl.is Skutu Pólverjum skelk í bringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG HVAÐA AÐGERÐA ÆTLAR HANN AÐ GRÍPA TIL????????????

Og hvernig ætlar hann að "mæla árangur" þeirra aðgerða??  Það er alveg stórkostlegt að lesa svona "hræðsluáróður" og enn kómískara að gera sér í hugarlund að nokkur skuli trúa svona þvælu.  Að sjálfsögðu eigum við að ganga betur um jörðina okkar og bera virðingu fyrir náttúrunni.  En við grípum ekki til einhverra að gerða ef móðir náttúra hefur ákveðið eitthvað, við erum bara EKKI í "bílstjórasætinu" hvað það varðar þó svo að eitthvað "LOFTSLAGSTRÚARLIÐ" vilji trúa því og koma því inn hjá öðrum að þeir eigi að trúa því líka..........

 


mbl.is Grípa þarf til aðgerða til að sporna gegn hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STYÐJUM SJÁLFSTÆÐISBARÁTTU GRÆNLENDINGA...............

Þau komu alveg sérstaklega illa í mig þau orð Utanríkisráðherra: „VIÐ STÖNDUM MEÐ DÖNUM“.  VAR HÚN MEÐ UMBOÐ ÞJÓÐARINNAR TIL AÐ LÁTA ÞETTA ÚT ÚR SÉR?  Hvað kemur eiginlega til að hún sá einhverja þörf hjá sér að styðja við bakið á „Mettu minnkarana“?  Þá skulum við fara aðeins yfir það hvers vegna við Íslendingar eigum að styðja Grænlendinga í sjálfstæðisbaráttu þeirra.   Við byrjuðum á því að „missa“ sjálfstæði okkar til Noregs og vorum undir stjórn þeirra í einhverjar aldir en síðan töpuðu Norðmenn stríði við Danmörku og þá sömdu Norðmenn við Dani um að Ísland yrði „stríðsskaðabætur“ til Dana og þar með hófst ógæfa landsins  Og alltaf hertu Danir tökin og eymdin og fátæktin jukust alltaf til dæmis voru HANDRITIN flutt til Danmerkur að hluta til vegna þess að Íslendingar höfðu hvorki getu né kunnáttu til að geyma þau eða varðveita.  Eftir að Jón Arason, síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, var hálshöggvinn ásamt tveimur sonum sínum í Skálholti árið 1550 þá rændu Danir ÖLLUM dýrgripum úr KAÞÓLSKUM KIRKJUM á Íslandi og fluttu  „GÓSSIГ til Danmerkur og ég veit ekki til að það hafi komið til tals að þessum DÝRGRIPUM verði skilað.  Það er engu logið með það að Danir komu ENGU BETUR fram við Íslendinga heldur en þeir gera við Grænlendinga.  Það má segja að Grænlendingar séu á svipuðum slóðum í sjálfstæðisbaráttu sinni og Íslendingar voru fyrir árið 1904, þegar Ísland fékk HEIMASTJÓRNINA.

Þá er komið að því að Utanríkisráðherra fái smá fræðslu um hvernig NORÐURLANDASAMVINNA ER Í RAUNINNI.  Við skulum bara horfast í augu við það að "NORÐURLANDAFJÖLSKYLDAN", sem Utanríkisráðherra talar svo fjálglega um, er í rauninni tvískipt, annars vegar eru; Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Álandseyjar og Finnland og hins vegar eru Ísland og Færeyjar og nú nýlega er Grænland víst komið inn í seinni hópnum, sem eru óhreinu börnin hennar Evu, sem A deild NORÐURLANDANNA vill ekkert vita af nema á tyllidögum.   Og nú hefur C- deildin bæst við sem, eru Eystrasaltslöndin bæst við (Eistland, Lettland og Litháen).  Sem dæmi má nefna að ég bjó í Noregi í vel á þriðja ár og þau ár vor vikulegir þætti í Norska sjónvarpinu sem hétu "NORDEN RUNDT" (ferðalag um Norðurlöndin, lausleg þýðing) þar sem komu  stutt innskot frá "ÖLLUM" Norðurlöndunum.  Allan þann tíma sem ég bjó í Noregi kom ekki einn einasti þáttur frá Íslandi eða Færeyjum.  Ætli þetta sé eitthvað sem Utanríkisráðherra kallar "eðlileg" fjölskyldutengsl?????  Mér skilst að  það hafi gengið eitthvað treglega að Grænland hafi fengið formlega aðild að NORÐURLANDARÁÐI, en getur verið að nýjustu vendingar í málefnum  GRÆNLANDS hafi haft einhver áhrif þar á, því að Danmörk hefur fyrst núna ljáð því máls að Grænland yrði tekið inn sem formlegur aðili. Danir hafa ALLTAF litið á Ísland, sem nýlendu sína þó svo að Ísland hafi fengið sjálfstæði frá þeim árið 1944 og í þeirra augum erum við bara enn „þrælar“ í þeirra augum.  Og ég er þess fullviss að það verði ekki langt í að Færeyjar verði fullvalda líka, ekki bara Grænland.  ÆTLUM VIÐ AÐ GLEYMA FORTÍÐINNI??????


HVERT STEFNIR NATÓ EIGINLEGA????????

Viðreisnarauglýsing í kosningabaráttunni 2024Nú er yfirmaður Þýska hersins á leiðinni til landsins HVAÐA ERINDI Á HANN EINGINLEGA???  Og er ekki komið að því að Utanríkisráðherra fari að segja þjóðinni almennilega hvað hún er eiginlega að sýsla??  VIÐ ÍSLENDINGAR ERUM MEÐ VARNARSAMNINGINN VIÐ BANDARÍKIN OG EIGUM AÐ HLÚA AÐ HONUM.  Það hefur komið í ljós og ætti að vera ÖLLUM ljóst (nema kannski "SKESSUNUM" í ríkisstjórn Íslands, sem virðast vera óvenjulega "tregar") að NATO og Evrópa eru  sífellt að nálgast hvort annað og mér segir svo hugur að Bandaríkin íhugi það æ meir að yfirgefa NATO og þá kemur til þess að við Íslendingar verðum að ákveða hvort við ætlum að fylgja Bandaríkjunum eða vera "VIÐHENGI" Evrópu, þar sem málefni Íslands skipta engu máli og hafa aldrei gert.  Evrópuríkin hafa alltaf í gegnum tíðina átt í stríði við hvert annað og aldrei getað komið sér saman um eitt eða neitt og svo hald einhverjir að Evrópa geti komið sér saman um að stofna her???  Í mínum huga er ekki nokkur spurning hvað ætti að gera (en því miður hef ég ekkert um þessi mál að segja), ÉG MYNDI VELJA SAMNINGINN VIÐ BANDARÍKIN OG SEGJA UPP AÐILDINNI AÐ NATO ) auðvitað höfum við ekkert með TVÖFALDAN varnarsamning að gera)...............

VINSAMLEGAST "KLIKKIÐ" Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA


ATHUGASEMDIR VIÐ SKRIF ÁGÚSTAR ÓLAFS ÁGÚSTSSONAR.....

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifaði þann 15. ágúst 2025 „áhugaverða grein“, sem er endurtekning á hjáróma málflutningi INNLIMUNARSINNA varðandi inngöngu  Íslands í ESB.  Hann setur þarna fram 12 atriði sem hann telur að skipti höfuðmáli í umræðunni um ESB aðild en í rauninni telur hann sum atriðin upp oftar en einu sinni, þannig að þegar upp er staðið eru þessir „punktar“ hans mun færri þegar upp  er staðið og það sem meira er, hann kemur EKKI MEÐ NEINN RÖKSTUÐNING fyrir NEINU sem hann heldur fram.

 

Nú þurfa allir Íslendingar að huga að stóru máli. Aðrar Evrópuþjóðir hafa flestar gert það sama. Þetta mál snertir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Förum yfir 12 atriði sem skipta okkur Íslendinga máli:

 

  1. Vextir eru þrisvar sinnum lægri hjá ESB en á Íslandi. Vextir eru í raun ekkert annað en verð á peningum þannig að peningar á Íslandi eru með dýrustu peningum Evrópu. Svar:  Enn einu sinni koma INNLIMUNARSINNAR fram með þessa vitleysu.   Hið rétta er að það á að heita svo að hvert aðildarríki ESB  hefur efnahagslegt sjálfstæði og á að hafa fullkomið efnahagslegt sjálfstæði.  Það er fullkomlega rangt að VEXTIR séu þeir sömu allstaðar í ESB löndunum til dæmis er allt annað  vaxtastig í Ungverjalandi en í Hollandi og svo framvegis.  Þar af leiðandi má alveg gera því skóna AÐ VEXTIR Á ÍSLANDI MYNDU EKKERT BREYTAST VIÐ AÐILD AÐ ESB.
  2. Verðlag á Íslandi er það hæsta í Evrópu. Laun á Íslandi eru há í alþjóðasamanburði en samt eru að minnsta kosti 5 aðildarríki ESB sem hafa svipað há laun og Ísland en hafa þó ekki þetta háa verðlag. Um helmingur evruríkja hefur svipað lágt atvinnuleysi og Ísland.

Svar:  Það er alveg rétt að verðlag á Íslandi er mjög hátt og ég veit ekki annað en að LAUN á Íslandi séu þau LANGHÆSTU í Evrópu og ég gat ekki fundið eitt einasta ríki innan ESB sem er með HÆRRI laun.  Það er alveg á hreinu að ef við ætlum að fá „Evrópsk“ verð,  þurfum við að vera með „Evrópsk“  laun.  Hvaða fimm ríki innan ESB ætli það séu, sem eru með svipuð laun og Ísland???  Mér tókst ekki að finna þau.

 

  1. Verðbólga er venjulega 2-3 hærri á Íslandi en í Evrópu. Afleiðingin er m.a. hin séríslenska verðtrygging sem er þungur klafi á nær öllum íslenskum heimilum.

Svar:  Þarna endurtekur hann að mestu rangfærslur sem hann byggir fyrsta „punktinn“ á, verðbólgan er mjög misjöfn milli aðildarríkja ESB til dæmis er verðbólga í Ungverjalandi rúm 10% á meðan veðbólga í Hollandi er innan við 3%.  Verðbólga á Íslandi er um 4%, þannig að segja að verðbólga sé 2-3 sinnum HÆRRI á Íslandi en í Evrópu er bara einfaldlega RÖNG.

 

  1. Flest stærri fyrirtækja landsins, eða um 230 talsins, og þar á meðal eru sjávarútvegsrisarnir, hafa yfirgefið krónuna sem gjaldmiðil og nota nú þegar evru eða dollar. Almenningur og minni fyrirtæki sitja hins vegar uppi með krónuna með miklum tilkostnaði.

Svar:  Þessi „punktur“ kemur reyndar aðildarviðræðum við ESB EKKERT VIÐ en fyrst hann kemur inn á þetta, þá skilst mér að notkun evru  sé bundin þeim skilyrðum að viðkomandi ríki þyrfti að vera með aðild að  ESB til að GETA NOTAÐ EVRU.  Ég veit ekki til að Ísland sé aðili að ESB og því er um ÓLÖGLEGAN gjörning að ræða.

 

 

  1. Samkvæmt reglum ESB fá eingöngu þjóðir með nýlega veiðireynslu að veiða fisk í lögsögu aðildarríkja. Eingöngu Íslendingar hafa veiðireynslu í íslenskri lögsögu og því sætu íslensk skip áfram ein að íslenskum miðum eftir aðild. Aðildarríki ráða sömuleiðis sjálf hvernig þau útdeila kvótanum sínum. ESB aðild er því engin ógn við sjávarútveginn. Sjávarútvegsfyrirtækin munu þó berjast af alefli gegn aðild en það eru sömu aðilarnir og börðust gegn veiðileyfagjaldi þar sem þjóðin átti að fá hlut í arði sameiginlegra auðlinda sinna. Og þetta eru einmitt sömu fyrirtækin sem hafa sjálf yfirgefið krónuna og tekið upp erlenda gjaldmiðla.

Svar:  Annað hvort er um að ræða þekkingarskort hjá Ágústi í þessum málaflokki eða þá að hann fer þarna með vísvitandi blekkingar.  Ég kýs að álíta sem svo að þarna sé um þekkingarskort að ræða.  Og hefst þá fræðslan ALLAR auðlyndir, sem eru utan 12 sjómílna lögsögu viðkomandi ríkis ERU SAMEIGINLEG EIGN VIÐKOMANDI RÍKIS OG ESB.  Þetta þýðir að ef Ísland gengur í ESB, þá er það ESB sem STJÓRNAR fiskveiðum í Íslenskri landhelgi utan 12 sjómílna landhelgi.  Það hefur verið vinsælt hjá INNLIMUNARSINNUM að vitna til þess að Malta hafi haldið ÖLLUM sínum fiskveiðiréttindum.  Ástæðan er einföld:  LANDHELGI  MÖLTU  NÆR  HVERGI  ÚTFYRIR 12 SJÓMÍLUR.

 

  1. Aðild Íslands að ESB hefur engin áhrif á eignarhald og nýtingu orkuauðlinda. Þar sem Ísland hefur engan sæstreng til orkuflutnings, mun nýting á orkuauðlindum okkar ekki breytast við aðild. Það er okkur í sjálfsvald sett, hvort við viljum breyta því með lagningu sæstrengs. Það er alveg skýrt að það er engin skylda að leggja sæstreng við aðild.

Svar:  Þarna fullyrði ég að Ágúst fari vísvitandi með rangt mál.  Með bókun 35 vildi ESB ná til sín Löggjafarvaldinu, Framkvæmdavaldinu og Dómsvaldinu, en ef Ísland gerist aðili að ESB, þá er valdið komið til ESB og þá er það ekki lengur á valdi Alþingis að ákveða hvort sæstrengur verði lagður eða ekki.

 

  1. Evrópuþingmenn raða sér í þingflokka eftir stjórnmálaskoðunum en ekki eftir þjóðernum. Íslenskir Evrópuþingmenn yrðu því í hópi stærri þingflokka sinna skoðanasystkina. Flestar ákvarðanir verða eftir sem áður teknar á Alþingi Íslendinga.

Svar:  Ef flestar ákvarðanir yrðu teknar af Alþingi Íslendinga, hver væri þá tilgangurinn með ESB aðild????

 

  1. Með aðild yrðu öll viðskipti og netinnkaup Íslendinga án tolla og annarra gjalda milli Evrópuríkja. Vörusendingar færu óhindraðar yfir landamæri eins og um innanlandsviðskipti væri að ræða.

Svar:  Það er kannski rétt að benda Ágústi á það að utanríkisviðskipti okkar eru víðar en við  Evrópu, reyndar eru viðskipti okkar við ESB innan við 40% af heildarviðskiptunum.  INNLIMUNARSINNAR hafa viljað halda því fram að útflutningur okkar til ESB ríkja sé rúmlega 70%.  Þetta er ekki rétt því ALLT álið (sem er rúmlega 30% af útflutningi landsins), er flutt til Rotterdam og síðan umskipað þar og flutt til Kína en INNLIMUNARSINNAR telja að það stoppi í Rotterdam.  Og svo má geta þess að Innflutningur er að miklum minnihluta frá ESB löndunum.  Hvað með tolla í öðrum löndum???

 

  1. Framkvæmdastjórar ESB hafa staðfest að vegna EES-samningsins hafa Íslendingar nú þegar tekið um 75% af meginlöggjöf ESB, án þess að hafa nokkur áhrif á hana. Með aðild sæti Ísland við borðið og það skiptir máli. Reynsla smáríkja í ESB er góð.

Svar:  Ekki ber nú öllum saman um þessar tölur.  Hvaða smáríki eru það sem hafa „góða“ reynslu af viðskiptum við ESB?????

 

  1. Þegar talið berst að stærð og meintu bákni Evrópusambandsins er mikilvægt að hafa í huga að ef ESB væri stofnun á Íslandi væri hún með svipaðan starfsmannafjölda og Skógræktin.

Svar:  Hvernig í ósköpunum er þetta fengið út???????

 

  1. Aðild tryggir betur öryggishagsmuni Íslendinga, þrátt fyrir NATO-aðild okkar. Alþjóðastjórnmál eru nú í mikilli óvissu og við, sem fámenn þjóð, eigum að þjappa okkur betur saman með nágranna- og vinaþjóðum okkar.

Svar:  Ég get ekki með nokkru móti séð hvernig ESB aðild getur tryggt öryggishagsmuni landsins???  ESB er ekki einu sinni m eð her á sinni könnu.  Evrópa hefur aldrei getað komið sér saman um nokkurn skapaðan hlut og ríkin innan Evrópu hafa átt í stríði hvert við annað og dettur virkilega einhverjum í hug að þessir sömu aðila geti komið sér saman um stofnun hers??  Jú við erum aðilar að NATO en við erum LÍKA MEÐ VARNARSAMNING við Bandaríkin eru ekki Bandaríkin nágranna- og vinaþjóð okkar????

 

  1. Danmörk, Írland, Frakkland, Svíþjóð, Holland, Belgía, Spánn og Lúxemborg eru allt fullvalda ríki með eigin fjárlög, eigin skattastefnu og sín eigin innlendu deilumál þrátt fyrir að vera aðilar að ESB.

Svar:  Þarna er hann kominn í mótsögn við sjálfan sig eins og ég bendi á í svari við fullyrðingu í „punkti“ 1.

 

Aðild með evru tryggir lægri vexti, minni verðbólgu, lægra verðlag og afnám verðtryggingar. Slíkt væri svo sannarlega til mikilla hagsbóta fyrir þorra landsmanna og fyrirtækja þeirra.

Svar:  Enn vísa ég til svars  míns við „punkti“ 1. og enn einu sinni vantar ALLAN rökstuðning fyrir þeim fullyrðingum sem hann skellir fram.

 

 


HVAÐ BREYTTIST???

Og eigum við eitthvað frekar að taka mark á því sem hún segir núna frekar en það sem hefur komið frá henni hingað til????  Það hefur verið alveg ljóst að það  er Utanríkisráðherra sem stjórnar og ræður öllu innan "SKESSUSTJÓRNARINNAR" og hefur orðið einhver stefnubreyting hjá henni ég hef ekki orðið var við það??????????


mbl.is Ríkisstjórnin horfir inn á við en ekki til Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÆRI EKKI ÞJÓÐRÁÐ AÐ SETJA SVONA LAGAÐ Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSU???

Annars er hún ekki vön því að ráðfæra sig við einn eð neinn um nokkurn skapaðan hlut. Hún gerir bara það  sem henni dettur í hug og HAGAR SÉR BARA EINS OG EINRÆÐISHERRA.  TIL HVERS Í ÓSKÖPUNUM ERUM VIÐ EIGINLEGA MEÐ ÞING, ÞINGNEFNDIR OG FORSETA???  ÞAÐ VIRÐIST VERA GAGNSLAUST MEÐ ÖLLU AÐ HAFA EINHVERJAR SVOLEIÐIS "ÖRYGGISBREMSUR" ÞEGAR SVONA "SKESSUR" EIGA Í HLUT.  HÉR VANTAR SÁRLEGA "VIRKAN" OG ÓHÁÐAN STJÓRNLAGADÓMSTÓL.........

 


mbl.is Þorgerður íhugar refsiaðgerðir gegn Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VESTMANNAEYJAFERÐ 12. O7. 2025. OG FLEIRA......

Þessir tveir höfundar, Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols, hafa skrifað nokkrar bækur um „Tyrkjaránin" og gera þeim atburðum mjög góð skil á Íslandi og eru þær allar á ensku.  Um þessa atburði hefur ekki mikið verið fjallað um og það er skammarlega lítið fjallað um þessa atburði í sögu okkar og annálum yfirleitt.  Margir tengja þessa atburði við Vestmannaeyjar en fáir virðast vita að „Tyrkjaránin" hófust á Austfjörðum og þaðan var mjög mörgu fólki rænt og var siglt til Vestmannaeyja og skipið „fyllt" þar af þrælum.  Þá fór annað skip til Grindavíkur og gerði „strandhögg" þaðan var mörgu fólki rænt og var það fólk selt í þrældóm í Sale í Marokkó.  Aftur á móti voru Austfirðingarnir og Vestmannaeyingarnir fluttir til Algeirsborgar í Alsír og seldir á markaði þar. 

En ástæða þess að ég skrifa þetta er fyrst og fremst ferðalag sem ég fór í til Vestmannaeyja þann 12 júlí síðastliðinn, þar sem verið var að minnast hins svokallaða „Tyrkjaráns“, sem var framið  16 júlí 1627 (að kalla þetta „Tyrkjarán“ er ekki alveg rétt, því ræningjarnir voru frá Alsír en sennileg skýring á „Tyrkjaránsnafninu“ er líklega sú að á þessum tíma var Ósmannska ríkið upp á sitt besta og Tyrkjaveldi var mesta veldið innan Ósmannska ríkisins en um þetta verður sjálfsagt endalaust deilt).

Þessa atburðar hefur verið minnst árum saman, alltaf í kringum miðjan júlí og er alltaf miðað við að atburðurinn hittist á helgi.  Ég ætlaði að vera búinn að skrifa um þetta ferðalag en ýmis vandamál komu í veg fyrir að ég léti verða af þessu þar til núna.

 

Við Karl Smári Hreinsson lögðum af stað héðan frá Ásbrú um klukkan 08:30 laugardaginn 12. júlí síðastliðinn, það var tekin ákvörðun um að fara svokallaða Suðurstrandarleið í gegnum Grindavík þó svo að sú leið sé aðeins lengri en að fara um Reykjavík og yfir Hellisheiðina, er hún (að okkar mati) mun skemmtilegri og kannski fljótlegri þegar upp er staðið.   Við vorum mjög heppnir með veður og var ferðin austur í Landeyjahöfn sérstakaga ánægjuleg og ekki urðum við fyrir vonbrigðum með útsýnið á leiðinni.  Þetta var í fyrsta skiptið sem ég kom í Landeyjahöfn og þar hófust vonbrigðin.  Fyrir það fyrsta þá er aðstaðan fyrir farþega alveg fyrir neðan allar hellur, reyndar eru þarna þrjú klósett eitt fyrir hvort kyn og eitt fyrir fatlaða en það var læst og karlaklósettið samanstóð af einu salerni og einni pissukál en svo er jú einn vaskur þarna inni.  Ég kom ekki inná kvennaklósetti en ég geri  nú ekki ráð fyrir því að þar hafi verið nokkur pissuskál og því getur verið að salernin hafi verið tvö og svo vaskur.    Þetta er aðstaða sem er með öllu óboðleg og vona ég að úr þessu verði bætt sem allra fyrst.  Lagt var úr höfn í Landeyjum á slaginu klukkan 12:00.  Það kom mér verulega á óvart hversu lítil og þröng Landeyjahöfn er en jafnframt gat ég ekki annað en dáðst að því hversu lunknir skipstjórnarmenn Herjólfs voru að stjórna skipinu í þessum þrengslum, reyndar voru aðstæður eins góðar og hægt er að hugsa sér en þær eru ekki alltaf svona góðar þannig að það hlýtur að reyna ansi oft mikið á hæfni þeirra.  Það má geta þess að sandburðurinn inn í höfnina er alveg gífurlegur og ekki hefst undan við að dæla sandinum út og er svo komið (og það er langt síðan) að „gamli“ Herjólfur kemst ekki lengur þarna inn.  Eins og áður segir þá var blíðskaparveður þennan dag en samt sem áður var nokkuð þung undiralda og eins og ávalt er þá „braut“ á sandrifinu þar sem tíu metra meðaldýpi á (þetta gefur til kynna hversu gríðarlegir straumar eru þarna við suðurströndina).  Siglingin til Vestmannaeyja tók ekki nema rúman hálftíma og innsiglingin í höfnina er einhver mesta upplifun sem  hægt er að ímynda sér, í það minnsta gáfu viðbrögð túristanna sem voru í ferjunni það til kynna og eins og allir vita þá er náttúrufegurðin alveg einstök.  Innsiglingin er þannig að það þarf að fara svo nálægt Heimakletti að varla hefur verið meira en „faðmur“ frá stjórnborðssíðunni yfir í klettinn, þetta kunnu túristarnir vel að meta og flykktust þeir út í stjórnborðssíðuna til að taka myndir, ekki veit ég hvort Lundarnir hafi brosað fyrir myndavélarnar eða bara látið sér fátt um finnast.  Þegar ferjan hafði lagst að bryggju í Heimaey fórum við Karl Smári og fengum okkur að borða á veitingastað niður við höfn (ég man ekki lengur hvað þessi staður heitir).  Þegar við höfðum lokið við matinn sótti maður að nafni Ragnar Óskarsson, sem er Stjórnarformaður 1627 Söguseturs, okkur og fór með okkur í Safnahúsið, það var svo stutt frá höfninni að við hefðum alveg getað gengið þangað. Þegar í Safnahúsið var komið fórum við beinustu leið upp á aðra hæð, þar sem hátíðahöldin áttu að fara fram. Við vorum snemma á ferðinni en dagskráin átti ekki að hefjast fyrr en klukkan 14:00 en megnið af undirbúningnum var búinn.  Mun meiri aðsókn var að atburðinum en gert hafði verið ráð fyrir og kom það mönnum á óvart hversu áhuginn á „Tyrkjaráninu“ var mikill.  En samt sem áður skapaðist ekkert vandræðaástand og veit ég ekki annað en almenn ánægja hafi verið með skipulag og framkvæmdina, enda alveg ljóst að  þarna voru vanir og vandvirkir menn sem höfðu staðið fyrir hlutunum og lögðu metnað sinn í að allt færi vel fram og ekkert klikkaði.  Dagskráin hófst á því að Ragnar Óskarsson bauð alla velkomna og sagði frá því hvað yrði gert og í hvaða röð það yrði.  Hann gerði þetta svo skemmtilega og látlaust, að fólk hafði orð á því, eftir á, að hann hefði fengið þá til að halda að þeir sætu í eldhúsinu heima hjá sér á spjalli við kunningja sína honum tókst að skapa alveg ótrúlega gott og afslappað andrúmsloft.  Fyrsti maðurinn sem Ragnar Óskarsson kynnti til var kvikmyndagerðarmaðurinn Óskar Kristinn Vignisson, sem sýndi heimildarmynd um „Tyrkjaránið“ í Vestmannaeyjum, sem er enn í vinnslu en var orðin vel sýningarhæf.  Myndin var rúmar 20 mínútur og á sjálfsagt eftir að lengjast eitthvað en það var mál manna að hún væi sérstaklega vel heppnuð og hvergi var „dauðan“ punkt að finna.  Það skal tekið fram að Óskar Kristinn Vignisson er nýlega tekinn við þessu verkefni og allar kvikmyndatökur og þar með upptökur af flutningi Adams Nichols (sem er sögumaður myndarinnar) er í höndum Halldórs B. Halldórssonar svo og allar drónamyndatökur  víðs vegar um Heimaey, þessar dróNamyndatökur eru alveg einstakar og mér er sagt að hann hafi lagt alveg ótrúlega mikið á sig við tökurnar oftar en ekki tekið margar tökur áður en hann var áægður með útkomuna og ekki skilað neinu fyrr en hann var orðinn 100% ánægður með útkomuna.  Ég er síður en svo að kasta „rýrð“ á störf Óskar Kristins Vignissonar, sem að mínum dómi hefur unnið frábært verk heldur er ég að benda að margir hafa komið verkinu og ber að geta þeirra einnig. Það kom mér á óvart hversu GRIMMIR og ÓVÆGNIR ræningjarnir voru í Vestmannaeyjaráninu og ræddi ég þetta við Adam Nichols, þegar við vorum fyrir Austan í fyrra.  Hann vildi meina að einn þátturinn í því hefði verið að ránið á Austfjörðum hefði ekki gengið eins og til stóð.  Fyrir það fyrsta hefðu margir komist undan og lítið verðmæti hafi verið til að ræna, þeir hefðu lent í „mótvindi“ á leiðinni til Eyja og sögusagnir væru uppi um það að þeir hefðu verið að „japla“ á svokölluðum „berserkjasveppum“ og að  einhverju leyti létu þeir gremju sína á óförunum á Austfjörðunum og óhagastæðum byr og veðrum, bitna á Vestmannaeyingum.  En þarna er aðeins um tilgátur að ræða.

Góður rómur var gerður að myndinni og þótti alveg með ólíkindum hversu vel hafði tekist til.  Eftir að sýningu myndarinnar var lokið svaraði Óskar Kristinn Vignisson spurningum úr sal og ræddi um hvað væri framundan.  Honum fórst þetta alveg sérstaklega vel úr hendi og verður að taka tillit til þess að það er ekki langt síðan hann lauk námi í kvikmyndagerð í Danmörku og ég held að þetta sé fyrsta stóra verkefnið hans eftir námið.

Næst kynnti Ragnar Óskarsson til sögunnar Karl Smára Hreinsson, sem meðal annars sagði frá ferð sinni til  Marokkó, fyrr á árinu og lýsti áhuga Marokkómanna á samvinnu við Íslendinga.  Það kom í ljós að mun meiri áreiðanlegar heimildir voru til um þessa atburði á Íslandi en í Marokkó og það kom honum á óvart hversu mikill áhugi er á þessum málaflokki þar.  Þá færi Karl Smári Héraðsskjalasafni Vestmannaeyja svokallaða „bleyðubók“, sem eru í upplýsingar um fiskimið út af Vestfjörðum, Suðurlandi, Reykjanesi og Vesturlandi.  Þessar upplýsingar komu frá föður hans sem var skipstjóri í mörg ár.  Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnanna í Vestmannaeyjum veitti gjöfinni viðtöku og flutti þakkarávarp.

Þá tók Ragnar Óskarsson til máls og sló á létta strengi og lét nokkrar gamansögur fylgja sem  góður rómur var gerður að.  Þá minnti hann á félagið 1627 Sögusetrið, þar sem ENGIN félagsgjöld eru að og að lokum minnti hann á sýningar á bókum og munum sem tengjast „Tyrkjaráninu“. Þá þakkaði hann fólki fyrir komuna og benti gestum á að boðið væri upp á kaffi og meðlæti. Þess má geta að Karl Smári Hreinsson kom með ALLAR þýðingar og frumútgáfur bóka þeirra Adam Nichols, sem eru orðnar mjög margar og voru þær til sýnis þarna á staðnum.

Þar með lauk dagskránni og enn var rúmlega einn og hálfur klukkutími í að Herjólfur færi í Landeyjahöfn og notaði ég þann tíma til að skoða söfnin og hefði mér ekki veitt af lengri tíma því svo margt áhugavert er að skoða þarna.  En Karl Smári notaði tímann til að funda með Kára Bjarnasyni og fleirum.

Að því loknu fylgdi Kári Bjarnason okkur niður á höfn og eitt er víst að Vestmanneyingum var MIKILL sómi að þessari athöfn.

 

 

Að lokum vil ég minnast á þær bækur sem Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols  hafa unnið um þetta málefni í sameiningu:

 

Fyrsta bókin sem þeir sendu frá sér var „THE TRAVELS OF REVEREND ÓLAFUR EGILSSON",  (Þessi bók var upphaflega gefin út af Fjölva 2008 og svo endurútgefin og endurskoðuð af Sögu Akademíu 2019). Þessi bók hefst að sjálfsögðu á „Tyrkjaráninu" í Vestmannaeyjum 16 júlí árið 1627 og síðan er siglingunni til Algeirsborgar lýst og lífinu um borð á leiðinni svo og lífinu í Algeirsborg.  Stærsti hluti bókarinnar fjallar um ferðalag séra Ólafs Egilssonar frá Algeirsborg til Danmerkur, sem hann fór fótgangandi.  Skal þess getið að þarna er um að ræða langbestu skriflegu heimild sem til er um borgir og bæi og lifnaðarhætti í Evrópskum bæjum og borgum á þessum  tíma.  Þessi bók hefur verið gef út á mörgum tungumálum til dæmis grísku, ítölsku, hollensku og frönsku.

Önnur bókin frá þeim er svo „NORTHERN CAPTIVES (Bókin var gefin út af Sögu Akademíu árið 2020).  Bókin fjallar um „Tyrkjaránið" í Grindavík en málið er að það var farið með Grindvíkingana til Salé í Marokko þar sem fólkið var selt í þrældóm á þrælamarkaði þar í borg og svo er sagt frá afdrifum þeirra sem eru  þekkt.  Í þessari bók er mikið af kortum og myndum af skjölum og bréfum sem tengjast þessum atburðum.  Þá hefur hún einnig verið gefin út á hollensku í Hollandi og frönsku í Marokkó.

Þriðja bókin sem kom út var „STOLEN LIVES" (þessi bók var gefin út af Sögu Akademíu árið 2021).  Bókin fjallar um „Tyrkjaránið" í Vestmannaeyjum, siglinguna til Algeirsborgar og síðast en ekki síst AFDRIF þeirra sem rænt var.  Í bókinni er mikið af kortum og myndir af mörgum skjölum sem tengjast þessum atburði.

Fjórða bókin heitir svo „ENSLAVED".(Bókin var gefin út af Sögu Akademíu árið 2022)  Bókin fjallar um „Tyrkjaránið" á Austjörðum, sem því miður virðist að mestu „gleymdur" atburður í hugum landsmanna og lítið komið fram um það nema óstaðfestar þjóðsögur.  En í þessu ráni var flestum Íslendingum rænt og síðan var siglt til Vestmannaeyja og skipið var FYLLT þar.  Og að mínum dómi var kominn tími til að  þessum atburðum þar yrðu gerð almennileg skil í bók hér á landi.  Það sama er í þessari bók, reynt er að fylgja eftir afdrifum þeirra sem í þessu lentu og þarna eru kort og myndir sem tengjast atburðunum.  Erfitt er að fjalla um þessa bók án þess að fjalla um þátt Magnúsar Sigurðssonar, bæði við gerð bókarinnar og ekki síður við gerð  heimildarmyndar um atburðinn í fyrrasumar.  Þar hafði Adam Nichols orð á því að án Magnúsar hefði verkefnið vart orðið að veruleika.

 

Fimmta bókin er „TURBULENT TIMES". (Hún var gefin út af Sögu Akademíu árið 2023).  Ég verð að viðurkenna það að ég er bara búinn að  lesa bókina einu sinni en hún fjallar að mestu um þátt Skálholtsstaðar í að halda þessum atburðum til haga meðal annars með því að geyma öll þekkt gögn sem varða þessa atburði.  Reyndar er svo margt sem kemur fram í þessari bók sem ég hafði ekki hugmynd um og verð ég að segja að þessi bók kom mér mikið á óvart og full ástæða til þess að kynna sér hana vel því þarna er sennileg að finna áreiðanlegustu heimildirnar um þessa atburði.  Það má segja að þessi bók sé algjör lykilbók hvað varðar ALLAR þessar bækur um „Tyrkjaránin“ og er alveg gríðarlegt magn heimilda komið frá Skálholtstað við vinnslu þessara bóka.

 

Árið 2027 stendur til að haldin verði í Vestmannaeyjum mikil hátíð til að minnast þess að 400 ár verða liðin frá „Tyrkjaránunum" hér á landi og veit ég af því að bæði Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols taka þar virkan þátt ef GUÐ lofar.  Þá verður fyrrnefnd heimildarkvikmynd tilbúin og margt fleira er á döfinni og hvet ég sem flesta til að hafa þennan atburð í huga því „TYRKJARÁNIN“ eru stór hluti af sögu landsins....... 


VÆRI EKKI FREKAR ÁSTÆÐA TIL AÐ FJALLA UM STÖÐU SVISS Á HEIMSMARKAÐI?????

Frekar en að vera að fjalla um armbandsúrin sem Trump skartar.  En kannski segir þetta okkur hvert "fréttamatið" er og hvers konar "fréttir" eru mest lesnar....


mbl.is Svissneskir úraframleiðendur ókyrrast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐA "BLEKKINGARLEIKUR" ER EIGINLEGA Í GANGI??????

Viðreisnarauglýsing í kosningabaráttunni 2024Ef Utanríkisráðherra gefur eitthvað út sem varðar ESB, þá setur maður stórt spurningamerki við sannleiksgildi þess.

Ég stóðst nú ekki mátið með að setja hérna inn auglýsingu sem VIÐREISN notaði í kosningabaráttunni fyrir síðustu Alþingiskosningar...


mbl.is ESB frestar tollum á járnblendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband