ESB-DINDLAR MEÐ "NIÐURGANG" VEGNA GRÆNLANDHEIMSÓKNAR.......

Það hefur verið alveg stórmerkileg upplifun að fylgjast með ruglinu og ráðaleysinu hjá ESB INNLIMUNARSINNUNUM, varðandi þessa Grænlandsheimsókn Bandaríkjamanna.  Fyrir það fyrsta ber "fréttum" engan veginn saman um það hver tilgangurinn með þessari ferð hafi verið.  Mesta "heiftin" hefur verið í málflutningi "Norrænna KRATA" í þessu máli (Utanríkisráðherra Íslands telst til KRATA því hún er svokallaður LAUMUKRATI þó svo að hún sé formaður Viðreisnar, en eins og menn vita hefur hún innleitt KRATA stefnuna inn í Viðreisn).  Eins og ég hef áður sagt, þá eru afar misjafnar "fréttir" af þessu atburði og það skásta sem ég veit eru fréttir frá Grænlandi sem Atli Lilliendahl (sem bjó á Grænlandi í 30 ár og hefur miklar tengingar við landið) SJÁ HÉR.  þessi maður hefur áður komið í viðtal á Útvarp Sögu og fjallað þar um samskipti Grænlands og Danmerkur og hvet ég fólk til að kynna sér þetta á heimasíðu útvarps Sögu, Atli Lilliendahl (Atli hefur nokkrum sinnum komið á Sögu og getur fólk valið úr þáttum til að hlusta á).  Það er mín skoðun að með því hlusta á menn sem þekkja vel til,  fái maður raunhæfustu fréttirnar.

Þá er komið að því að Utanríkisráðherra fái smá fræðslu um hvernig NORÐURLANDASAMVINNA ER Í RAUNINNI.  Við skulum bara horfast í augu við það að "NORÐURLANDAFJÖLSKYLDAN", sem Utanríkisráðherra talar svo fjálglega um í viðhengdri frétt, er í rauninni tvískipt, annars vegar eru; Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Álandseyjar og Finnland og hins vegar eru Ísland og Færeyjar og nú nýlega er Grænland víst komið inn í seinni hópnum eru óhreinu börnin hennar Evu, sem A deild NORÐURLANDANNA vill ekkert vita af nema á tyllidögum.  Sem dæmi má nefna að ég bjó í Noregi í vel á þriðja ár og þau ár vor vikulegir þætti í Norska sjónvarpinu sem hétu "NORDEN RUNDT" þar sem komu  stutt innskot frá "ÖLLUM" Norðurlöndunum.  Allan þann tíma sem ég bjó í Noregi kom ekki einn einasti þáttur frá Íslandi eða Færeyjum.  Ætli þetta sé eitthvað sem Utanríkisráðherra kallar "eðlileg" fjölskyldutengsl?????  Mér skilst að  það hafi gengið eitthvað treglega að Grænland hafi fengið formlega aðild að NORÐURLANDARÁÐI, n getur verið að nýjustu vendingar í málefnum  GRÆNLANDS hafi haft einhver áhrif þar á?????


mbl.is „Allt við þessa heimsókn var óviðeigandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA SÝNIR "ÚTGERÐARELÍTAN" SITT "RÉTTA" ANDLIT..........

Eftir að hafa komist upp með að umgangast sameiginlega auðlind landsmanna eins og þeim sjálfum hentar og vaða yfir landsmenn og auðlindina á skítugum skónum og "maka krókinn" á kostnað landsmanna í rúmlega 40 ár án þess að þurfa að GREIÐA SANNGJARNT GJALD FYRIR.  Eftir allan þennan tíma eru þeir orðnir svo óforskammaðir að þeir hafa í hótunum við stjórnvöld ef þau VOGA SÉR AÐ HÆKKA GJALDIÐ FYRIR AFNOT AF SAMEIGINLEGRI AUÐLIND LANDSMANNA.  Að sjálfsögðu ætti þessi sameiginlega auðlind okkar að standa undi rekstri HAFRÓ, Fiskistofu og stórum hluta Landhelgisgæslunnar, en núverandi "Veiðigjald" er nokkuð langt frá því.  En núna stendur til að breyta þessu þannig að það á að færa þetta gjald aðeins nær því sem er raunhæft og þá fer útgerðarelítan" alveg á límingunum og reyna að fá saklausa einfeldninga í sveitastjórnum landsins í lið með sér, þessir "saklausu einfeldningar" virðast ekki gera sér ekki nokkra grein fyrir því að fyrirhuguð hækkun á "veiðigjöldunum" hefur í för með sér mikla HÆKKUN á tekjum sveitarfélaganna og meira að segja er gengið svo langt að "útgerðarelítan HÓTAR" því að fara með fiskvinnsluna úr landi, verði af þessari hækkun.  Verði staðið við þessa hótun ER BARA EITT RÁÐ FYRIR HENDI EN ÞAÐ ER AÐ AFTURKALLA KVÓTANN.  MARGI FRÆÐINGAR OG RÁÐAMENN LANDSINS HAFA TALAÐ FJÁLGLEGA UM ÞAÐ AÐ ÍSLAND SÉ EINA LANDIÐ Í HEIMINUM ÞAR SEM SJÁVARÚTVEGURINN NÝTUR ENGRA RÍKISSTYRKJA. EN ER ÞETTA SANNLEIKANUM SAMKVÆMT????


mbl.is Útgerðir draga úr umsvifum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VILJAYFIRLÝSING ER "NÆSTI BÆR" VIÐ "GLÆRUSHOW" - FÓLK BÝR EKKI Í VILJAYFIRLÝSINGUM....

Frekar en "glærusshowum".  Ætlar fólk endalaust að láta bjóða sér svona vitleysu???????????


mbl.is Viljayfirlýsingin marki upphaf öflugs samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐA ERINDI Á FORSÆTISRÁÐERRA ÍSLANDS Á ÞESSA RÁÐSTEFNU???

Ég hélt bara að það væri nóg af vandamálum hér á landi, sem þyrftu úrlausnar við og það fyrr en seinna.  Og hvað á þjóð sem ekki einu sinni er aðildarríki ESB og það sem meira er LANDIÐ ER EKKI EINU SINNI MEÐ OG VIÐ GETUM EKKI EINU SINNI REKIÐ LANDHELGISGÆSLU SKAMMLAUST.  EIGUM VIÐ EKKI AÐ GERA ÞÁ KRÖFU  Á RÁÐHERRA RÍKISSTJÓRNARINNAR VINNI AÐ HAGSMUNUM ÍSLANDS Á ÍSLANDI AÐ ÖÐRUM KOSTI GETA ÞEIR BARA KOMIÐ SÉR AF LANDI BROTT OG LÁTIÐ AÐRA,BETUR FÆRA UM AÐ SINNA ÞVÍ VERKI AÐ STJÓRNA LANDINU......


mbl.is Rússar skilji aðeins valdbeitingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG HVAÐ "GERIR HÚN AF SÉR" ÞAR????????

Nú hafa hún og Utanríkisráðherra GEFIÐ VILYRÐI FYRIR ÞVÍ AÐ ÍSLAND VERÐI Í HÓPI "HINNA VILJUGU ÞJÓÐA" Í STRÍÐSREKSTRI ESB VIÐ RÚSSA.  Ég veit ekki til þess að þær hafi neitt umboð til að gera þetta.  ÞJÓÐIN HEFUR ALDREI VERIÐ SPURÐ AÐ ÞESSU EÐA FENGIÐ AÐ VERA MEÐ Í RÁÐUM.......


mbl.is Kristrún sækir leiðtogafund í París
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA Á NÚ EKKI AÐ VERA NEITT FLÓKIÐ MÁL.....

Ég get ekki skilið hvernig þessi Sanna Magdalena Mörtudóttir getur komist að þeirri niðurstöðu að RÍKIРeigi að standa straum af þessari trjáfellingu í Öskjuhlíðinni í landi sem Reykjavíkurborg á og tré sem eru á forræði Reykjavíkurborgar.  Og svo því sé haldið til haga ÞÁ VAR ÞAÐ EKKI RÍKIÐ SEM DRÓ LAPPIRNAR Í ÞVÍ AР"GRISJA" TRÉN Í ÖSKJUHLÍÐINNI.......


mbl.is Ráðherra telur borg eiga að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEGAR MESTA RYKIÐ SEST ÞÁ ER NIÐURSTAÐAN KANNSKI SÚ AÐ ÞAÐ SÉ FORSÆTISRÁÐHERRA SEM ÆTTI AÐ "SKOÐA" STÖÐU SÍNA....

Fólk er svo ótrúlega fljótt að "gleyma" (talað er um "gullfiskaminni" kjósenda), en fyrir nokkrum árum varð ráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) að segja af sér, vegna þess að aðstoðarmaður hennar lak upplýsingum úr ráðuneytinu......


mbl.is Ríkisstjórnarsamstarfið: Eins og mörg slæm fyllerí í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ ER EKKERT ANNAÐ EFTIR EN AÐ KALLA EFTIR "RANNSÓKNARNEFND ALÞINGIS".....

Nú er það orðið alveg á hreinu að menn/konur geta ekki setið á Alþingi;hvorki sem Ráðherrar eða Almennir þingmenn ef þeir hafa "misstigið sig" að einhverju  leiti einhvern tímann á lífsleiðinni  Og þess vegna er það alveg kristaltært að þessi RANNSÓKNARNEFND ALÞINGIS VERÐUR AÐ FARA YFIR HVERT EINASTA ATRIÐI, SEM GÆTI ORÐIÐ TIL ÞESS AÐ HÆGT VÆRI AÐ "NOTA" TIL ÞESS AÐ KOMA HÖGGI Á RÁÐHERRA EÐA ÞINGMANN........


mbl.is Fundur formannanna í heild sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ "SJÁ FLÍSINA Í AUGUM NÁUNGANS EN EKKI BJÁLKANN Í EIGIN AUGUM"....

Kannski ætti Forsætisráðherra og fleiri ráðherrar ríkisstjórnarinnar að fara yfir EIGIN gjörðir frá því að þeir tóku við stjórnartaumnum í landinu og athuga hvort ALLT HAFI VERIÐ FULLKOMLEGA EÐLILEGT, SEM ÞEIR FRAMKVÆMDU  ÁÐUR EN ÞEIR DÆMA AÐRA...........


mbl.is Kristrún skuldar útskýringar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN UM SAMBAND STÝRIVAXTA OG VERÐBÓLGU.............

Meðfylgjandi mynd, var unnin upp úr upplýsingum frá Seðlabanka Íslands frá febrúar 2022 til mars 2025.  Ég hef skoðað þessa mynd mjög mikið og frá ýmsum sjónarhornum og meðal annars hef ég teiknað inn svokallaða "leitnilínu" (trendline) en út frá því kom bara eintóm þvæla eins og ég hafði svo sem reiknað með.  Seðlabankastjóri heldur því fram að "PRÓGRAMMIÐ SÉ AÐ VIRKA" en hvað er prógrammið og hvað er það sem er að virka?  Jú það er nokkuð ljóst að verðbólgan hefur minnkað, en það er ekki alveg augljóst af hvaða ástæðu það er og það er nokkuð víst að um það hefur stýrivaxtastigið EKKERT að segja......

Stýrivextir og Verðbólga


mbl.is „Prógrammið er að virka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EIGA MENN EITTHVAÐ ERFITT MEÐ AÐ SKILJA ÞAÐ AÐ ÞAÐ ER EKKERT ORSAKASAMHENGI MILLI STÝRIVAXTASTIGS OG VERÐBÓLGU?????

Mér blöskraði algjörlega um daginn, þegar ég hlustaði á sjálfskipaðan "snilling" segja það að "VERÐBÓLGA KÆMI EINGÖNGU TIL VEGNA PENINGAMAGNS Í UMFERÐ".  Í þessu tilfelli verður spurningin um "EGGIÐ og HÆNUNA"  virk.  Peningamagn í umferð er í sjálfu sér ekki það sem veldur verðbólgu HELDUR HVERS VEGNA PENINGAMAGN Í UMFERÐ ER AUKIÐ EN ÞAR KOMA TIL AÐGERÐIR RÍKISSTJÓRNARINNAR.  Skýrasta dæmið  um þetta eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna COVID.  Þar var tekið upp á því að "styrkja"  atvinnulífið, upp á sem nam hundruðum milljarða króna, en vandamálið var bara það ekki voru til peningar fyrir þessu og þá var ákveðið að taka þetta að láni með því að "PRENTA" peninga fyrir þessu og að sjálfsögðu jók þetta verðbólguna til muna ÞANNIG ER HÆGT AÐ FÆRA FYRIR ÞVÍ RÖK AдÞAÐ ÞAÐ VORU "LÁNTÖKUR" (ÚTGJÖLD) RÍKISINS ,SEM OLLU VERBÓLGUNNI Í ÞESSU TILFELLI.  Væri ekki ráð fyrir svona"snillinga" að skoða málin í heild sinni í stað þess að taka einhvern hluta af vandamálinu og gefa sér að þar sé allt vandamálið komið?  Er ekki rétt að fara yfir það hvaða þættir hafa áhrif á verðbólguna?  Jú þeir hafa fyrst og fremst áhrif á NEYSLU en NEYSLA skiptist í tvo þætti í hagfræðinni það er EINKANEYSLA og SAMNEYSLA,  einkaneysla er samkvæmt skilgreiningu hagfræðinnar neysla almennings á landinu.  Það er yfirleitt  EKKI mælt með því að almenningur taki lán fyrir neyslu sinni þó svo að vissulega séu dæmi fyrir því.  Af heildarneyslunni er EINKANEYSLAN aðeins lítill hluti af heildarneyslunni, ef tekið er „lán“ fyrir hluta þessara neyslu er að sjálfsögðu ekki um neitt annað að ræða en að taka þau lán hér innanlands og afskaplega hæpið að halda því fram að sú lántaka sé „VERÐBÓLGUHVETJANDI“.  Öðru máli gegnir um SAMNEYSLUNA,  þar er um OPINBERA NEYSLU að ræða (heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, löggæslu og fleira).  SAMNEYSLAN er fíllinn í postulínsversluninni, útgjöld hins opinbera hafa AUKIST ALVEG GÍFURLEGA SÍÐUSTU ÁR og það sem er alvarlegast er það að ÖLL ÞESSI AUKNING OPINBERRA ÚTGJALDA ER TEKIN AÐ LÁNI OG ÞAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR VERÐBÓLGUNNI.  HVER SKYLDI ÁSTÆÐAN VERA FYRIR ÞVÍ AÐ VERÐBÓLGA HÉR ER HÆRRI EN Í NÁGRANNALÖNDUNUM?  JÚ Í SINNI EINFÖLDUSTU MYND ER HÆGT AÐ SEGJA AÐ VERÐBÓLGA SKAPIST VIÐ ÞAÐ AÐ VIÐ EYÐUM MEIRU EN VIÐ ÖFLUM.  Síðustu árin og síðustu áratugina hafa hagfræðingar verið að  reyna að átta sig á því almennilega hvað VERÐBÓLGA er í rauninni og hvað það er sem raunverulega veldur henni.  Ef við rennum stuttlega yfir söguna sjáum við að hún einkennist nokkuð mikið , fyrstu árin, af tilraunastarfsemi og „tilgátum“ til dæmis voru  á árunum 1960-1980 voru hagfræðingar mjög uppteknir af að sýna fram á tengst verðbólgu og atvinnuleysis, seinna kom svo Milton Friedman með hina svokölluðu PENINGAMAGNSKENNINGU sem átti að leysa endanlega verðbólguvandann og varð sú „kenning“ nánast heilög nokkuð lengi, næst var farið að tengja saman STÝRIVEXTI og VERÐBÓLGU  og var sú „tilgáta“ talin rétt og óumdeild þar til upp úr 2010 en þá fóru að koma fram efasemdarraddir og ýmsir virtir hagfræðingar eins og Krugman, Taylor, Mankiw og fleiri fóru að koma með verulegar athugsemdir við þessa kenningu og Stieglitz skaut þetta endanlega niður.  Stundum fæ ég það á tilfinninguna „sumir“ telji það að  þegar þeir útskrifist úr einhverju námi, séu þeir „BÚNIR“ að læra, hendi ÖLLUM námsbókum og hætti að fylgjast með öllum framförum í þeirri grein sem þeir menntuðu sig í og loki sig af í einhverjum fílabeinsturni þar sem þeir geta bara verið í friði fyrir almenningi.Lengi hefur sá orðrómur verið í gangi að mikið fjármagn "LEKI" úr landi í gegnum hælisleitendur.  En hvernig má það vera því þetta er eiginlega 100% allslaust og eignalaust fólk?  Jú hér kemur skýringin: ÞETTA FÓLK ER ALFARIÐ Á OKKAR KOSTNAÐ, ÞEIR FARA Í FJÖLSKYLDUHJÁLPINA OG ÖNNUR HJÁLPARSAMTÖK OG FÁ ÞAR MAT, SVO FER ÞETTA LIÐ Á HJÁLPRÆÐISHERINN OG FÆR AÐ BORÐA FRÍTT, ÞÁ FÆR ÞETTA FÓLK SVOKÖLLUÐ "BÓNUSKORT (en þetta eru inneignarkort fyrir ákveðinni upphæð í hverjum mánuði til að kaupa inn matvæli og aðrar nauðsynjavörur).  VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA FÓLK ER BÚIÐ AÐ LÆRA INN Á "KERFIÐ" (þetta er kallað að vera "kerfisfræðingur"), HVERNIG Á AÐ FÁ ALLT FRÍTT HÉRNA ÞÁ GETA ÞEIR SELT BÓNUSKORTIN SÍN (til þess að skapa einhverja EFTIRSPURN eftir þessum KORTUM verður að  selja þau með einhverjum afföllum skilst mér að nokkuð mikil eftirspurn sé eftir þeim í "fíkniefnaheiminum").  Ég tók þessum sögum með miklum fyrirvara og fannst þetta frekar fjarstæðukennt, en fór svo að hugsa málið eftir að upplifa það ég var staddur á pósthúsinu í Reykjanesbæ síðastliðinn miðvikudag um klukkan 14:00, þar var maður að frá Palestínu að senda 50.000 krónur til Palestínu.  Með því að senda þetta lága upphæð er EKKERT spurt um uppruna peninganna og ekkert þarf að gera grein fyrir neinu.  Daginn eftir var ég staddur í banka í Reykjanesbæ og þar var maður frá Venesúela að senda SÖMU UPPHÆÐ "heim".  Ekki er þetta stór upphæð og ætti ekki að hafa mikil áhrif á efnahag landsins, en stöldrum nú aðeins við, ef við gefum okkur að 5.000 manns sendi 50.000 krónur á mánuði úr landi þá eru þetta 250 milljónir á mánuði sem gera ÞRJÁ MILLJARÐA Á ÁRI.  GÆTU EKKI VERIÐ FLEIRI SVONA "LEKAR" Í KERFINU?  Til dæmis allur sá peningur sem stjórnvöld senda úr landi, sem aðstoð við Úkraínu og Palestínu og til loftslagsmála, stuðning við hælisleitendur og það sem meira er ÞESSIR PENINGAR ERU EKKI TIL  OG ÞAR AF LEIÐANDI ER ÞETTA ALLT  TEKIÐ AÐ LÁNI OG AÐ SJÁLFSÖGU EYKUR ÞETTA VERÐ BÓLGUNA.  En sennilega  kemur "GÓÐA FÓLKIÐ" einhverju  "úrræði" á koppinn í staðinn.  OG SVO ERU MENN ALVEG   "KJAFTBIT" Á ÞVÍ AÐ ÞAÐ SÉ VERÐBÓLGA Í LANDINU.  Svo er eina ráðið í baráttunni við verðbólguna, sem stjórnmálamenn sjá, ER AÐ HÆKKA SKATTA.  HVERNIG VÆRI AÐ FARA BETUR MEÐ ÞAÐ FJÁRMAGN SEM RÁÐAMENN HAFA TIL RÁÐSTÖFUNAR???????


mbl.is Ekkert sem bendir til annars en að þróunin haldi áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ FRÉTTA AF ÞESSU "FÆRANLEGA" SJÚKRAHÚSI, SEM VAR "GEFIÐ" TIL ÚKRAÍNU????

Eða fékk Selenzky bara PENINGA til að kaupa "færanlegt" sjúkrahús, sem voru svo notaðir til vopnakaupa?????????????


VIÐHALD VEGAKERFISINS (EÐA ÞAÐ VÆRI NÆR AÐ TALA UM VIÐHALDSLEYSI)....

Skpiting bensínverðsinsMeðfylgjandi mynd var tekin niður af "mbl.is", því miður  get ég ekki munað nákvæmlega hvaða dag það var, en dagsetningin sem slík skiptir ekki meginmáli heldur hvað myndin segir okkur.  Í myndinni gætir ákveðinnar ónákvæmni í framsetningu aukastafa en það er í sjálfu sér ekki nokkuð sem hefur áhrif á heildarniðurstöðuna.  Hvort sé notast er við  19% við útreikning virðisaukaskatts eða 19,35% eins og á að gera, heldur er aðalatriðið að  miðað er við að bensínlítrinn kosti 320 krónur og út frá því er allt reiknað.  Það hafa komið hinir og þessir "sérfræðingar" í fjölmiðlum, sem halda því fram að VEGAGERÐIN þurfi að setja MUN HÆRRI upphæðir til viðhalds á vega  kerfinu en þessar 170,80 krónur á hvern  seldan bensinlíter.  Getur verið að kostnaðurinn við að REKA VEGAGERÐINA sé DREGIN FRÁ þessum 170,8 krónum á hvern seldan bensínlíter og restin fari í viðhald vegkerfisins, þarf ekki VEGAGERÐIN þá að fara að HAGRÆÐA í rekstri sínum????????


VIRÐUM ÍSLENSKU STJÓRNARSKRÁNA.........

Nú er heldur betur komið að því að Alþingis-menn/konur fari að fara eftir stjórnarskránni okkar og virði hana í hvívetna EINS OG ÞEIR HAFA SVARIÐ AР GERA ÞEGAR SEST ER Á ÞING OG AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ LÖG SEM ALÞINGI SETUR STANDIST STJÓRNARSKRÁNA.  Nú er tækifærið til þess að fara eftir stjórnarskránni að einhverju leyti.  Málið er að ráðherrarnir eiga EKKERT erindi á Alþingi   (það er nánar fjallað um þetta síðar í greininni).  Þegar ráðherrar hafa verið skipaðir verður að kalla inn varamenn fyrir þá, en þá verður engin FÆKKUN á Alþingi.  Þá er helsta ráðið að gerð verði breyting á lögum um fjölda Alþingismanna á þessu kjörtímabili þar, sem lagt yrði til að Alþingismönnum yrði FÆKKAÐ úr 63 í 40 (Það þarf ekki fleiri þingmenn til að samþykkja þau lög og reglugerðir sem koma frá ESB og þar að auki eru mjög margir þingmenn komnir með einn eða fleiri aðstoðarmenn).  Það  verður að fara fram að minnsta kosti endurskoðun á EES samningnum og uppsögn á Schengen samkomulaginu.

Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.  Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.

En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.

LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. 

FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur.

DÓMSVALD er í höndum dómara.

Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.

En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.

Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar,  Þarna er strax komin skörun.   Það er þannig að þegar kjörnir þingmenn, verða tilnefndir sem ráðherrar, þá eiga þeir að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn sína.   Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.   Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara “skilvirkari” ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að “taka yfir” LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein “Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum” (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi?  Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (samanber Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir) og ALLIR MUNA EFTIR „FARSANUM“ Í SAMBANDI VIÐ SKIPUN DÓMARA Í LANDSRÉTT.  En í því máli tel ég að hafi verið gerð AFDRIFARÍK MISTÖK.  Í dómi mannréttindadómstóls Evrópu kom fram að ALLIR DÓMARAR LANDSRÉTTAR VÆRU ÓLÖGLEGA SKIPAÐIR, EKKI BARA FJÓRIR, VEGNA ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI EKKI STAÐIÐ RÉTT AÐ SKIPAN ÞEIRRA. ALÞINGI ÁTTI AÐ KJÓSA UM HVERN OG EINN ÞEIRRA Í STAÐ ÞESS AÐ KJÓSA UM ALLAN HÓPINN Í EINU.  þá kom einnig fram ádeila á FORSETA LÝÐVELDISINS fyrir hans afgreiðslu á málinu.  En minnsta ádeilan var á störf Dómsmálaráðherra, sem samt var sú eina í þessu máli, sem var „látin“ sæta ábyrgð.

Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána m.a á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur.  Það er tími til kominn að stjórnarskráin verði virt og fyrsta skrefið í þá átt er að „MOKA“ RÁÐHERRUNUM út af Alþingi enda eiga þeir alls ekki heima þar.  Sem dæmi má geta þess að það getur ekki verið eðlilegt að ráðherrarnir sitji heilu og hálfu dagana niðri á Alþingi og „bori bara í nefið á sér“.  Maður hefði haldið að það væri full vinna að stjórna landinu í það minnsta er ekki mjög trúverðugt að menn og konur geti bara gert þetta með annarri hendinni.   Það er ekki skrítið að hver ráðherra skuli hafa minnst tvo aðstoðarmenn, því ráðherrann þarf að eiða tímanum niðri á þingi, þar sem hann á EKKERT ERINDI. Svo eru þingmenn orðnir allt of margir.  Með því að henda ráðherrunum út úr Alþingishúsinu, væri stigið fyrsta skrefið í því að FÆKKA alþingismönnum, en þar væri einungis komið FYRSTA skrefið af mörgum.  Alþingismenn þurfa alls ekki að vera fleiri en 40, það sem þarf að gera er að störf Alþingis verði gerð markvissari og einfaldari.  Þegar sjónvarpað er frá þingfundi (nema „Eldhúsdagsumræðu“ hvers vegna hún hefur fengið þetta nafn er mér algjörlega hulin ráðgáta), er þingsalur yfirleitt hálftómur.  Þetta vekur þá spurningu hvort ekki væri hagstæðara að hafa þingfundi tvisvar í viku og þar af yrði annar dagurinn þar sem ráðherra tækju þátt og svöruðu fyrir embættisfærslur sínar.  Þrír dagar yrðu svo teknir í nefndastörf og önnur störf þingsins.  Áður en fólk fer að tala um að það vanti nýja stjórnarskrá er lágmark að sú stjórnarskrá sem er nú þegar til staðar sé virt.  Það hefur verið alveg með ólíkindum að horfa upp á starfsemi þingsins og oft hefur það hvarflað að manni að þingið sé með öllu stjórnlaust, ég er alveg viss um að það væri búið að reka forseta þingsins fyrir stjórnleysi og handvömm ef hann væri að vinna í einkageiranum.  Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001,  EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB yrði útbúin og send (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsókninni í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009 og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá upphafi og af þessum 1.287 þingsályktunartillögum eru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.

Nú er sem dæmi eftir nokkra daga að hefjast fundur, þar sem verður ákveðið HVORT ÍSLAND OG 193 ÖNNUR RÍKI AFSALI SÉR ÖLLU VALDI  TIL WHO (ALÞJÓÐA HEILBRIGÐISMÁLASTOFNUNARINNAR) OG ÞÁ FARI WHO MEÐ ÖLL VÖLD Í HEILBRIGÐISMÁLUM  ÞJÓÐARINNAR.   Þarna er óumdeilt  að um sé að ræða FRAMSAL Á VALDI TIL ERLENDRA AÐILA, SEM ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI.  Ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt á Alþingi og eina umræðan sem ég hef heyrt um þetta mál e rá útvarpi Sögu og þingmenn konur hafa ekki fengist í viðtal þar og bera þeir því við að þeir hafi ekki haft tíma til að setja sig inn í málið.  Ætla þeir (þingmennirnir) að setja sig inn í málið EFTIR að búið er að skrifa undir og hvað á þá að gera??????

Nú reynir heldur betur á ALLA þá sem sitja á Alþingi Íslendinga.  Nú á að  leggja fram á Alþingi LANDRÁÐAFRUMVARP, sem nefnt er BÓKUN 35,  það er ekki minnsti vafi að þetta felur í sér VALDAFRAMSAL.  ÉG VEIT  EKKI BETUR  EN AÐ ALLIR SEM SETJAST Á ÞING (þar með taldir ráðherrar, sem ég tel að eigi alls ekki að sitja á þingi þar sem þeir tilheyra FRAMKVÆMDAVALDINU en ég fjalla aðeins um þetta annars staðar í pistlinum) SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI OG STJÓRNARSKRÁIN HEIMILAR EKKI VALDFRAMSAL.  Ég reikna nú ekki með að  þingmenn eigi að  rifja þennan eið upp við upphaf hvers þings, EN KANNSKI VÆRI EKKI VANÞÖRF Á ÞVÍ ÞÓ EKKI VÆRI NEMA TIL AÐ HRESSA UPP Á MINNIRÁÐHERRA OG ÞINGMANNA, SEM EKKI VIRÐIST VERA VANÞÖRF Á..............


VERIÐ AÐ ÚTBÚA "STORM Í VATNSGLASI"

Ég var nú búinn að segja að ég ætlaði ekki að skrifa meira um sjávarútvegsmál, hérna á blogginu, en eftir að lesa þessa frétt gat ég ekki setið á mér því það er svo margt hægt að gera varðandi "strandveiðarnar", sem ekki ætti að vera svo mikill ágreiningur um.  Svo er eitt mál, sem hefur verið alveg ótrúleg andstaða við á Alþingi og þá sérstaklega hjá fyrrverandi stjórnarflokkum (reyndar hjá stærstum hluta Alþingismanna, hvernig í ósköpunum sem getur staðið á því), EN ÞAÐ ER AÐ GEFA HANDFÆRAVEIÐAR ALVEG FRJÁLSAR.  Þá koma ráðamenn og „taglhnýtingar SFS“ og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló (Ég nenni ekki að fara yfir þessar aðferðir hjá HAFRÓ við að stofnstærðarmælingarnar, því ég er svo oft búinn að tala um þetta).  Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 40.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vegna strandveiða til dæmis þetta er þessi "forsjárfasismi" sem er í gangi  í strandveiðunum alger PLÁGA og stórskaðar þessa atvinnugrein.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

Með ráðstöfun af þessu tagi væri komið í veg fyrir að kvóti safnist til örfárra aðila, endurnýjun innan greinarinnar ætti að vera möguleg og einnig að byggð myndi lítið sem ekkert raskast en gæti styrkst aftur. Með því að nota þessa aðferð við veiðistjórnunina væri komið í veg fyrir svokallað kvótabrask og fiskvinnslan í landi gæti sérhæft vinnslu sína.

Það hefur mikið verið rætt um það að útgerðin „gæti ekki“ greitt fyrir veiðiheimildirnar, þetta er náttúrulega bull og ekkert annað.  Ég veit ekki um neina atvinnugrein, sem ekki þarf að greiða fyrir hráefnið í lokaframleiðslu sína.  Að sjálfsögðu á útgerðin að greiða eitthvað fyrir hráefnið og ekki væri óeðlilegt að 15 - 20% af lönduðum afla færi í svokallað veiðigjald hvort sem um er að ræða afla af togurum, línskipum, netabátum handfærabátum eða öðrum veiðum og kæmi þá í ljós hvaða veiðar væri hagkvæmast að stunda..... 


mbl.is Ólíklegt að frumvarp fáist afgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DÆMIGERT FYRIR "WOKE" HEILAÞVOTTINN SEM Á SÉR STAÐ Í EVRÓPU....

Það virðist vera einhver "skylda" í Evrópu að hatast út í Trump og allt sem honum viðkemur og ekki virðist vera nokkur einasti áhugi hjá vestrænum meginstraumsfjölmiðlum á að fjalla um uppljóstranirnar sem Trump og Elon Musk, hafa komið upp um hjá USAID enda voru  þeir flestallir (vestrænu meginstraums fjölmiðlarnir) á "SPENANUM" hjá USAID og sennilega er RÚV ekkert þar undanskilið (en ég tek það  fram að ég er ekki með nein gögn sem tengja RÚV við USAID).  EN ÞAÐ SEM ER ÖLLU ALVARLEGRA ER AР RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS VIRÐIST HAFA HOPPAÐ Á "EVRÓPUVAGNINN" OG VIRÐIST ALGJÖRLEGA HAFA "GLEYMT"SAMBANDI OKKAR VIÐ BANDARÍKIN........


mbl.is Kallaði Musk fábjána og líkti Trump við Neró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER "TITILLINN" SENNILEGA Í "HÖFN" HJÁ MÍNUM MÖNNUM.....

Til þess að þeir hampi EKKI "TITLINUM" í lok deildarkeppninnar þarf nokkuð margt sem er allt að því óhugsandi að geti gerst að verða að raunveruleika OG Á ÞVÍ ERU VERULEGA LITLAR LÍKUR.........


mbl.is Salah óttaðist að Liverpool yrði refsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG ÞESSIR "APAHEILAR" HALDA GREINILEGA AÐ ÞEIR KOMIST BARA UPP MEÐ ÞETTA ÓÁREITTIR.....

Og með því að lýsa því yfir að samtökin "Palest­ine Acti­on" hafi staðið fyrir og beri ábyrgð á skemmdarverkunum sem unnin voru á golf­velli Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta í Skotlandi, þá halda þessir villimenn að þeir séu endanlega sloppnir og geti bara andað rólega.  En ef allt væri "eðlilegt"í henni veröld þá væri ekki svo að sjálfsögðu geta ekki bara einhver samtök, sem enginn hafði minnstu hugmynd um að væru einu sinni til, bara skotið upp kollinum OG LÝST YFIR ÁBYRGÐ Á VERKNAÐI SEM BRÝTUR Í BÁGA VIÐ LÖG OG REGLUR SAMFÉLAGSINS OG ÞAR MEÐ SÉ MÁLIÐ BARA DAUTT.  Fyrst og fremst þarf að HAFA UPPI Á ÞESSUM SAMTÖKUM og auðvitað þurfa forsvarsmenn þeirra að bera ábyrgð á þessum verknaði, það er að segja ef ekki næst í þá sem verknaðinn frömdu.  En þetta er dæmi um það hversu mikil þolinmæðin er orðin fyrir villimennsku Palestínumanna hérna á Vesturlöndum og þeir eiga bara eftir að færa sig meira "upp á skaftið" eftir því sem tíminn líður og þeir komast upp  með eitthvað þessu líkt ........


mbl.is Skemmdarverk unnin á golfvelli Trumps í Skotlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER ER EIGINLEGA FRÉTTIN???????????

Það er ekkert nýtt að fyrrum borgarstjóri fari með ósannindi og fleipur og það SÉRSTAKLEGA í tengslum við Reykjavíkurflugvöll en það sem kemur á óvart er það að það skuli vera "frétt" þegar hann gerir þetta.  Að einn maður eða jafnvel einhverjir fleiri, skuli geta "tafið" svona öryggismál mánuðum og jafnvel árum saman, er algjörlega með ólíkindum og á bara ekki að get orðið.  OG VIÐ MEGUM EKKI HORFA FRAMHJÁ ÞVÍ AÐ ÞETTA ER EKKERT EINKAMÁL REYKVÍKINGA HELDUR LANDSINS ALLS.  Þess vegna vil ég meina að þegar um svona mikilvæga innviði er að ræða eigi skipulagsvald yfir viðkomandi svæði að fara frá sveitarfélaginu yfir til ríkisins, þetta á að minnsta kosti við um Reykjavíkurflugvöll, Akureyraflugvöll og Egilsstaðaflugvöll.........


mbl.is Segja Dag ekki fara með rétt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÆRSTA FRÉTTIN ER AÐ SJÁLFSÖGÐU "RAUNVERULEIKAFYRRING" EVRÓPULEIÐTOGA...

Ef menn eru svo "STROPAÐIR" að halda að Úkraína hafi einhverja burði til að sigra Rússland í stríði, þrátt fyrir vopn og fjármögnun frá Evrópu, þá þurfa þeir sömu að láta athuga á sér "TOPPSTYKKIÐ"  Það sem fyrst og fremst HÁIR Úkraínumönnum er SKORTUR á mannafla og það er komin ákveðin "STRÍÐSÞREYTA" í þjóðina og svo sé ég ekki alveg fyrir mér að ESB eða aðrir í Evrópu séu tilbúnir til að senda hermenn til Úkraínu og ekki sé ég heldur fyrir mér að Ursula Gertrud (Gilitrutt) Von der Layen, Macron, Mette Fredriksen og fleiri séu tilbúnir til að fara þangað eða senda börnin og banabörnin á svæðið......


mbl.is Vatnaskil fyrir Úkraínu og Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband