12.9.2024 | 14:37
VAR HANN KANNSKI AÐ "SVERMA" FYRIR STARFI VARARÍKISSAKSÓKNARA??
Þessi skoðun er alveg þvert á það sem almenningur virðist hafa, þess vegna er þetta það fyrsta sem kemur upp í hugann....
Ákvörðunin áfall fyrir ákæruvaldið í landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.9.2024 | 07:36
Á HÚSNÆÐI AÐ VERA HLUTI AF NEYSLUVÍSITÖLUNNI???
Við þessari spurningu er nú frekar einfalt svar (að mínum dómi) en auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta mál eins og flest önnur umdeild mál. Til eru þeir sem vilja húsnæðisliðinn alveg út úr neysluvísitölunni og þeirri forsendu að húsnæði sé EKKI NEYSLA heldur sé um að ræða SJÁLFSÖGÐ MANNRÉTTINDI SEM VARIN ERU Í STJÓRNARSKRÁ. Ég hef velt þessu nokkuð mikið fyrir mér og komist að því að báðir þessir hópar hafa nokkuð til síns máls og þar af leiðandi leyfi ég mér að leggja til nokkurs konar Salómonsdóm í þessu máli: Að mínum dómi ætti að taka HÚSNÆÐISVERÐ ÚT ÚR NEYSLUVÍSITÖLUNNI EN Á MÓTI ÆTTI AÐ TAKA UPP MEÐALKOSTNAÐ VIÐ AÐ REKA 150 FERMETRA ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Á MÁNUÐI.
Að mínu áliti væri þarna um að ræða lausn, sem flestir ættu að geta sætt sig við aðrir en fjármagnseigendur en ég held að þeir séu ekki meirihluti landsmanna en vissulega eru þeir kannski MUN ÖFLUGRI ÞRÝSTIHÓPUR.......
10.9.2024 | 13:07
ÞESSU LIÐI ER BARA EKKI VIÐBJARGANDI OG SÝNIR ÞAÐ SVO UM MUNAR AÐ ÞAÐ Á EKKERT ERINDI Í STJÓRN LANDSMÁLANNA...
Maður gat alveg sagt sér það sjálfur að það yrði EKKERT BITASTÆTT í þessu fjárlagafrumvarpi og ekki gat maður reiknað með að útgjöld minnkuðu þegar Alþingiskosningar eru framundan, það eru ENGAR tillögur um það hvernig eigi að berjast gegn verðbólgunni og þegar Fjármálaráðherra var spurður út í hina GÍFURLEGU AUKNINGU RÍKISÚTGJALDA sagði hann: Ríkisumsvifin hafa "minnkað sem hlutfall af hagstærð". Útgjöldin hafa vaxið umtalsvert. Langtærsti hlutinn er vegna þess að laun hafa hækkað umtalsvert mikið, það er langstærsti hlutinn. Hinn hlutinn er vegna þess að okkur hefur fjölgað umtalsvert á hverju ári síðastliðið annað ár. Annað sem hann lét út úr sér varðandi þetta frumvarp var álíka gáfulegt. Það er ekki hægt að segja að framtíðin sé björt. Það virðist vanta eitthvað mikið upp á að Fjármálaráðherra "gangi á öllum".......
Sigurður: Komumst í mark á næstu mánuðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.9.2024 | 21:51
ÞETTA HEFUR VERIÐ "SÉRSVIÐ" RÁÐHERRANS ALLA HANS RÁÐHERRATÍÐ.....
Og átti einhver von á einhverju öðru frá honum þegar "lokasprettur" kjörtímabilsins er að hefjast????????
Hlægileg og grímulaus kosningabrella | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2024 | 11:50
TÍMI TIL KOMINN TIL AÐ LOSNA VIÐ ÞENNAN VERKLAUSA "KJAFTASK" ÚR ÍSLENSKRI PÓLITÍK....
Það liggur ekki nokkur skapaður hlutur eftir þennan mann og ef farið er yfir "RÁÐHERRAFERIL" hans, þá er engu líkara en maður sé að lesa nokkra lélega "pabbabrandara". Hann hefur verið duglegur að skrifa undir hinar og þessar viljayfirlýsingar (sem í raun og veru hafa EKKI NOKKRA ÞÝÐINGU) og þá hefur hann verið virkastur í þessu fyrir kosningar og svo hefur hann verið sérstaklega iðinn við að skrifa undir viljayfirlýsingar um byggingu íþróttamannvirkja þegar eitthvað er um að vera á sviði íþróttamála (EM og HM í handbolta og fótbolta Ólimpíuleikar og fleira) en þess á milli ríkir þögnin ein og aðgerðaleysið hjá honum. SÍST AF ÖLLU ÞURFUM VIÐ ÍSLENDINGAR Á SVONA STJÓRNMÁLAMANNI AÐ HALDA..........
Áform ráðherrans enn óskýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2024 | 06:44
TRÚIR ÞVÍ VIRKILEGA NOKKUR AÐ "OPINBER ÚTGJÖLD" VERÐI LÆKKUÐ Í AÐDRAGNDA KOSNINGA??????
Því það að lækka "opinber útgjöld" er það eina sem þarf að gera til að MINNKA VERÐBÓLGUNA, en það er borin von að sú leið verði farin allt annað er bara FÚSK, YFIRKLÓR OG BLEKKINGAR.......
Verðbólgan brýnasta verkefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2024 | 16:40
ÞAÐ ER ALLS EKKI NÓG AÐ SJÁ BARA TIL LANDS................
Það þarf að komast í land og þegar menn eru á sundi þá vita menn að ERFIÐASTI hluti sundsins er eftir "landbrotið" er eftir og það hefur reynst erfitt og svo er landtakan sjálf eftir og gangi allt þetta vel er hægt að fara að tala digurbarkalega, en ekki þegar "HILLINGARNAR" eru það eina sem blasir við......
Úrlausnir á næstu dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
En það sem stakk mig meira var að menn virðast geta farið í framboð með því að leggja fram einungis 5,2% af hugsanlegum kostnaði við framboðið. Þetta segir okkur að sá sem er ekki þekktur innan samfélagsins geta ekki látið sig dreyma um að fara í forsetaframboð.........
Framboð Katrínar kostaði 57 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.9.2024 | 03:59
VELTUSKATTUR ER ÞAÐ BJARGVÆTTUR OKKAR Í EFNAHAGSMSÁLUM????
Um miðjan sjötta áratuginn var nokkuð mikil vakning hjá Íslenskum stjórnvöldum þess efnis að ganga í ESB (þá EBE). Þáttur í þessu var að Ísland varð, að kröfu ESB að taka upp virðisaukaskatt (en það átti að vera samræmt í öllum ESB-ríkjunum). Hver sem ástæðan var þá létu stjórnvöld fara fram úttekt á fýsileika þess að tekinn yrði upp virðisaukaskattur á Íslandi. Úttektina gerði Jón Sigurðsson, sem síðar varð Efnahagsráðherra á vegum Alþýðuflokksins og enn síðar Seðlabankastjóri, skilaði hann svo þessari skýrslu af sér árið 1971. Þrátt fyrir að margar skýrslur væru unnar og mörg álit skrifuð um virðisaukaskatt, þá var hann ekki innleiddur hér á landi fyrr en árið 1990 (reyndar átti að taka upp virðisaukaskatt með lögum árið 1989, en einhverra hluta vegna var því frestað til 1 janúar 1990) Nú hefur virðisaukaskattskerfið verið við lýði í 34 ár og komin reynsla á að það er MEINGALLAÐ, MJÖG DÝRT Í REKSTRI, AFSKAPLEGA FLÓKIÐ og UNDANÞÁGUR Í ÞVÍ ERU MJÖG MARGAR. Þarna er eingöngu tæpt á helstu ágöllum á virðisaukaskattskerfinu að taka fyrir alla gala og kosti virðisaukaskattskerfisins, væri efni í heila bók auk þess að æra óstöðugan. En nú eru landsmenn búnir að búa við virðisaukaskattkerfið í rúmlega 34 ár og því er með góðu móti hægt að segja að komin sé allnokkur reynsla af því . Sem dæmi má nefna að þeir sem mest höfðu sig í frami gagnavart því að virðisaukaskattkerfið yrði tekið upp fullyrtu að söluskattskerfið, sem þá var í gildi og var tekið upp árið 1960, VÆRI ORÐIÐ GAMALT OG ÚR SÉR GENGIÐ þessi orð voru látin falla árið 1984. En er þá ekki kominn tími til að endurskoða virðisaukaskattkerfið sem er búið að ver við lýði síðan 1990? En hvað ætti þá að koma í stað virðisaukaskattskerfisins? Svarið er einfalt, það er VELTUSKATTUR, þar sem öll fyrirtæki landsins greiddu ákveðna prósentu af veltu fyrirtækisins og væri ENGIN undaþága veitt á því. Þessi prósenta yrði 6,00% og af því leiddi að tekjuauki ríkisins yrðu, miðað við gögn sem ég hef undir höndum milli 60 80 milljarðar ári. Ástæða þess að ég valdi þessa prósentutölu var sú að ríkissjóður er algjörlega tómur og þarf á auknum tekjum að halda, en ef tekjur ríkisins ættu að verða óbreyttar frá því sem þær eru í dag ætti veltuskattsprósentan að vera rétt rúmlega 4,50%. Á þessu sést hversu gífurlega miklu munar um hvert prósentustig.
VIRÐISAUKASKATTUR VELTUSKATTUR ÚRBÆTUR
Virðisaukaskattur skiptist í útskatt og innskatt. Útskattur er sá skattur sem er greiddur af tekjum sem viðkomandi greiðir af þeim tekjum sem hann hefur af starfsemi sinni. En innskattur er það sem viðkomandi fær endurgreitt af hráefniskaupum og öðrum kostnaði sem fellur til vegna starfseminnar. Hér á landi er virðisaukaskatturinn í tveimur þrepum annars vegar 24% og hins vegar 11%, það fer eftir starfsemi viðkomandi fyrirtækis í hvoru virðisaukaskattsþrepinu fyrirtækið lendir. Það fyrirtæki sem er með allar sínar tekjur í 11% þrepinu en hráefniskostnaði og annan rekstrarkostnað í 24% þrepinu, lendir undantekningalaust í því að innskatturinn verður hærri en útskatturinn, það er að segja að fyrirtækið fær endurgreiddan virðisaukaskatt og þá skiptir engu máli hvort hagnaður er af rekstrinum eða ekki. Og svo greiða fyrirtæki sem selja framleiðslu sína erlendis ekki virðisaukaskatt en þau fá greiddan innskatt af hráefniskostnaði sínum og öðrum rekstrarkostnaði, til dæmis fékk stóriðjan í landinu endurgreiddan VSK 56,573 milljarða á virði ársins 2011, á núvirði, reiknað í byrjun febrúar 2023, 105,732 milljarðar. Veltuskattur er, eins og nafnið gefur til kynna, skattur sem er lagður á sem hlutfall af veltu (verð x magn). Einungis er sá skattur í einu þrepi og engar undanþágur eru, þetta gerir það að verkum að eftirlit er fremur einfalt og þar af leiðandi er minni hætta á að kerfið verði misnotað. Eins og áður hefur komið fram, þá er munurinn á að reka þessi tvö kerfi alveg gríðarlegur og kannski vegna þess má reikna með að gífurleg andstaða verði við að leggja virðisaukakerfið niður og taka upp veltuskatt, því það er nokkuð ljóst að starfsmönnum við eftirlit myndi fækka nokkuð mikið, svo er það mjög viðkvæmt vegna þess að VSK er eitt af skilyrðunum fyrir ESB aðild og eitt af grunnskilyrðum fyrir EES samningnum. En sjái stjórnvöld að ekki sé grundvöllur fyrir því að leggja VSK niður og taka upp veltuskatt, þá verður að gera breytingu virðisaukaskattlögunum og setja í LÖG að ekkert fyrirtæki eða einstaklingur fái meira greitt úr virðisaskskattkerfinu enn hann hafi greitt i það. Það gefur auga leið að þegar skattþrepin í virðisaukaskattinum eru þrjú eins og er hér á landi (0% skatturinn er líka þrep, þá er 11% þrep og síðast er 24% þrep). Það er ekki bara stóriðjan sem fær endurgreiddan VSK (þótt vissulega fái hún mest), útgerðin fær nokkuð mikið, ferðaþjónustan er mjög stórtæk og svo er bókaútgáfa með nokkuð mikið. Það er nokkuð augljóst að fyrirtæki sem eru með sínar tekjur í 11% og kostnaðinn í 24%, fær verulega endurgreidd úr VSK kerfinu og ég tala nú ekki um þá sem hafa tekjur sínar í 0%. EN TIL ÞESS AÐ FÁ SVIPAÐAR TEKJUR OG TEKJUAUKA ÚT ÚR VSK KERFINU OG AÐ VERA MEÐ VELTUSKATT ÞYRFTI AÐ VERA MEÐ EITT VIRÐISAUKASKATTSÞREP AÐ UPPHÆÐ 11%. EN YRÐI VSK ENN OFANÁ YRÐI AÐ FÆKKA UNDANÞÁGUM Í VSK KERFINU VERULEGA MIKIÐ OG ÞAR MEÐ AÐ EINFALDA ÞAÐ MIKIÐ.
ÞEGAR KOMIÐ ER Í LJÓS AÐ SAMNINGURINN UM EES ER FARINN AÐ VALDA LANDINU VERULEGUM FJÁRHAGSLEGUM SKAÐA AUK ALLS ANNAR SKAÐA SEM HANN ER FARINN AÐ VALDA ÞÁ ER TÍMI TIL ALVARLEGRAR ENDURSKOÐUNAR OG JAFNVEL AÐ SEGJA SAMNINGNUM UPP. AF ÞESSU TILEFNI ER RÉTT AÐ RIFJA ÞAÐ UPP AÐ KANADA GERÐI TVÍHLIÐA SAMNING VIÐ ESB, SEM VAR MUN HAGKVÆMARI FYRIR ÞÁ EN EES SAMNINGURINN ER OKKUR OG Í OFANÁLAG ÞURFA KANADAMENN EKKI AÐ TAKA UPP NEINAR ESB REGLUGERÐIR. EN YRÐI ÞETTA NIÐURSTAÐAN ÞÝÐIR ÞAÐ UPPSÖGN EES SAMNINGSINS ÞVÍ FORSENDAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÍSLENDINGAR TÓKU UPP VIRÐISAUKASKATT Á SÍNUM TÍMA VAR AÐ UM VAR AÐ RÆÐA AÐ ÖLL AÐILDARRÍKI OG ÞAR AF LEIÐANDI UMSÓKNARRÍKI ESB SKYLDU HAFA TEKIÐ UPP SAMRÆMT VIRÐISAUKASKATTSKERFI....
3.9.2024 | 20:46
EF ÞAÐ ERU VIRKILEGA EINHVERJIR SEM HALDA AÐ HÚN GETI "BJARGAÐ" SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM ÞÁ VAÐA ÞEIR Í VILLU OG SVIMA..
Hún virðis ekki einu sinni geta sinnt starfi sínu sem Dómsmálaráðherra skammlaust - hvað þá að hún geti verið formaður flokksins....
Ekki að heyra þetta í fyrsta sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.9.2024 | 06:42
KEMUR ÞAÐ EINHVERJUM Á ÓVART????????
Ég man ekki eftir nokkrum sköpuðum hlut sem þessi maður hefur "GERT" af viti í ráðherratíð sinni, hann hefur jú verið nokkuð duglegur að skrifa undir hinar ýmsu "viljayfirlýsingar" og er það allt saman varðveitt í skjalageymslum hinna ýmsu fjölmiðla. Hann er jú nokkuð vel máli farinn og virðist ganga ágætlega við að sannfæra fólk um að honum sé fúlasta alvara og meiningin sé góð, en það er víst einkenni þeirra sem eru "SIÐBLINDIR". Ég "datt" niður á það að hlusta á viðtal við hann á Útvarpi Sögu SJÁ HÉR, um daginn og fannst mér þetta viðtal nokkuð lýsandi fyrir hann..........
Grunnskólarnir byrjaðir en ekkert bólar á aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2024 | 10:56
AUÐVITAÐ EKKI - HÚN ER HLUTI AF VANDANUM OG Á AÐ LÁTA SIG HVERFA HVAÐ SEM BJARNI GERIR...
Bara það að hún skyldi ekki standa í lappirnar í "HVALAMÁLINU" svokallaða í fyrra og þar með að kæra sig kollótta um hagsmuni síns kjördæmis, ætti að vera næg ástæða til þess að hún láti sig hverfa af vettvangi stjórnmálanna....
Fer ekki fram gegn Bjarna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2024 | 09:09
NÆSTUM EINGÖNGU KONUR OG BÖRN SEM ERU JARÐSETT Á GAZA....
Og það er mun fleira sem væri full ástæða til að skoða: Hvernig væri til dæmis að skoða þennan EINHLIÐA fréttaflutning af átökunum á Gaza? Sem dæmi er hægt að nefna að það var MIKIÐ mál að Palestínumenn VORU DREPNIR (það er bara þannig að í stríðsátökum FALLA menn en eru ekki DREPNIR) þegar fjórir gíslar voru frelsaðir úr höndum Hamas. En það er EKKERT fjallað um það að þessir vesalingar í HAMAS FELA SIG í "ormagöngum" undir Sjúkrahúsum og flóttamannabúðum. Þetta verður til þess að mannfall almennra borgara á Gaza verður mun meira fyrir vikið. Það er talið að milli 90-95% almennra borgara sem FALLA á Gaza séu KONUR og BÖRN EN HVAR HALDA KARLMENNIRNIR SIG? Jú þeir eru öruggir í "ormagöngunum", svo þegar árásin er yfirstaðin þá skríða mennirnir upp úr "ormagöngunum" og og eru grátandi og kveinandi yfir því að konan og börnin hafi fallið (verið drepin) í árás Ísraelsmanna. EKKI ER VERIÐ AÐ FJALLA UM ÞAÐ Á RÚV OG FLEIRI MIÐLUM AÐ HAMAS HAFI KALLAÐ ÞESSI ÁTÖK YFIR ÍBÚA GAZA OG STUÐLI AÐ ÞESSI ÁTÖK BREIÐIST YFIR Á VESTURBAKKANN OG TIL FLEIRI SVÆÐA Í MIÐAUSTURLÖNDUN. ÞARF EKKI AÐ FARA AÐ SKOÐA FJÖLMIÐLAFLÓRUNA HÉR Á LANDI OG HVAÐA FRÉTTUM ER VERIÐ AÐ "MATA" ALMENNING Á?????????
Fjölmiðlar | Breytt 31.8.2024 kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.8.2024 | 08:23
ÞAÐ ERU BARA "SUMIR" RÁÐHERRAR SEM ERU HAFNIR YFIR LÖG........
Og komast upp með að brjóta öll lög sem fyrirfinnast og þar á meðal STJÓRNARSKRÁNA en þessir ráðherrar verða að vera í VG og þarna "KLIKKAR" Gulli algjörlega hann hefur greinilega ekki gert sér grein fyrir því að hann er ekkert í "ELÍTUFLOKKNUM" og þar af leiðandi verður hann að sætta sig við það, í það minnsta í bili, að fylgja lögum landsins.......
Opna mögulega rannsókn á bílferð ráðherrans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2024 | 13:28
HEILBRIGÐISKERFIÐ Á SPÁNI ER VÍST MUN BETRA EN Á ÍSLANDI..........
Í hverju er þá hættan fólgin og sýndu þá foreldrar hans ekki mikið dómgreindarleysi og óábyrga hegðum með því að leggja ferðalagið til Íslands á hann á sínum tíma????????
Verum manneskjur, ekki lítil skítseiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.8.2024 | 14:25
"PÓLITÍSKT HARAKIRI" OG HEIMSMET Í AUMINGJASKAP..............
Að manneskjan, skuli telja að hún þurfi að bía eftir einhverju "LÖGFRÆÐIÁLITI" til að geta tekið ákvörðun í sáraeinföldu máli sýnir bara svo ekki verður um villst AÐ MANNESKJAN RÆÐUR ENGAN VEGINN VIÐ ÞAÐ STARF SEM HÚN GEGNIR, enda er það svo að það liggur ekki nokkur skapaður hlutur eftir þessa manneskju EFTIR RÉTT UM ÞAÐ BIL TVÖ ÁR Í STARFI, ÞVÍLÍK SÓUN......
Ætlar að vanda sig enda viðkvæmt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2024 | 09:12
VÆRI EKKI ÚR VEGI FYRIR HANN AÐ VERÐA SÉR ÚTI UM SMÁ "JARÐSAMBAND"...
Var það ekki þáverandi Menntamálaráðherra og núverandi formaður Viðreisnar, sem talaði um að Danskur hagfræðingur þyrfti að fara í endurmenntun, vegna þess að hann talaði um það 2007 að efnahagurinn á Íslandi væri að hrynja??? Ætli Íslenski seðlabankastjórinn þurfi ekkert á endurmenntun að halda að hennar mati????????
Ummæli seðlabankastjóra taktlaus og röng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2024 | 08:33
TAKK FYRIR VG OG "UMHVERFIS-AYATOLLAR"............
Þetta lið hefur barist með kjafti og klóm gegn því að nokkur einasta "spræna" hér á landi verði virkjuð og ALLRA leiða leitað til að kæra framkvæmdir. En á sama tíma stendur þetta lið á öskrinu og vill flýta orkuskiptunum. Ég verð bara ð segja eins og er að ég get ekki með nokkru móti séð vitrænt samhengi í þessu rugli hjá þessu liði. VIÐ SJÁUM BARA AFLEIÐINGARNAR AF ÞESSARI "BARÁTTU" HJÁ ÞESSU "BAKBORÐSSLAGSÍÐLIÐI", EF YRÐI FARIÐ EFTIR ÞESSU LIÐI BYGGJU ÍSLENDINGAR Í ÓUPPHITUÐU MOLDARKOFUM OG LÝSTUM UPP MEÐ "GRÚTARLÖMPUM".......
Vinna á nóttunni vegna orkuskorts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2024 | 08:45
OG ÁFRAM HELDUR "BÓLUEFNASVINDLIÐ".......
Einhvern veginn þurfa stóru LYFJASVIKARISARNIR að lifa og þá virðist helsta svarið vera að koma með eitthvað nýtt "gutl" til að "ljúga" inn á fólk (þetta er víst kölluð "VÖRUÞRÓUN"). Hversu margir ætli láti blekkja sig í þetta skipti???????
Nýtt krabbameinsbóluefni vekur vonir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.8.2024 | 18:29
MEINT ÁFENGISNOTKUN ALÞINGISMANNA...........
"Margt er mannsins gamanið" er einhvers staðar sagt. Eitt af því skemmtilegra sem ég geri er að lesa pistlana sem Óttarr Guðmundsson skrifar á DV.is. Að mínu mati hefur Óttarr Guðmundsson mjög skemmtilegan og hnyttinn stíl og fannst mér þetta koma sérstaklega vel fram í nýjasta pistli hann og gat ég ekki setið á mér að endurbirta hann hérna:
"Skelegg baráttukona í þingflokki vinstri grænna hefur gagnrýnt drykkjuskap samþingmanna sinna í sambandi við þinglokin í vor. Menn héngu á kránni kneyfandi öl meðan síðustu fundir stóðu yfir. Einhverjir héldu meira að segja ódauðlegar ræður eftir góða heimsókn á barinn. Fáir hafa tekið undir orð þingkonunnar eða krafist þess að viðkomandi þingmenn væru látnir sæta ábyrgð. Forseti þingsins segist ekki hafa áhyggjur þótt þingmenn geri sér glaðan dag rétt fyrir sumarfrí.
Á mínum gamla vinnustað Landspítala var harðbannað að vera drukkinn í vinnunni að viðlögðum brottrekstri. Einu sinni voru sýndar auglýsingar í sjónvarpi þar sem fólk af ýmsum stéttum var að staupa sig við störf sín. Boðskapurinn var að slíkt væri ólíðandi með öllu hjá flugmönnum, tannlæknum, íþróttaþjálfurum og fleirum.
Á tímum aukins frjálsræðis á öllum sviðum sjá allir að þetta eru úrelt sjónarmið. Það er ánægjulegt að þingið skuli ganga í fararbroddi og sýni fram á að nokkrir bjórar eða rauðvínsglös skaða ekki nokkurn mann. Þingmenn eru sammála um að auka aðgengi að áfengi sem auðvitað kallar á aukna neyslu. Nauðsynlegt er því að létta á öllum hömlum og takmörkunum í sambandi við áfengisneyslu í samfélaginu. Enginn vinnustaður er heppilegri í því sambandi en einmitt Alþingi. Í ræðustól þingsins viðgengst nefnilega slíkt endemisbull að engu máli skiptir hvort menn eru drukknir eða ódrukknir. Þingmenn tala samanlagt í marga sólarhringa fyrir daufum eyrum og öllum er sama um alla spekina sem bunar út úr þeim. Mörkin milli hins drukkna og ódrukkna hverfa í þessu málæði. Vonandi fylgja fleiri vinnustaðir þessu fordæmi þingsins og aflétta öllum hömlum af áfengisdrykkju starfsmanna sinna í vinnunni. Einn og einn bjór hefur aldrei skaðað nokkurn mann eins og Egill afi minn Skallagrímsson sagði stundum á ættarmótum."
Að mínu mati eru þetta stórkostleg skrif og í þeim er alveg stórkostlegur sannleikur, sem ekki má vanmeta að nokkru einasta leiti....
.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)