ER ÞAÐ EFTIRSÓKNARVERT AÐ VERA "SKÁSTUR" AF SLÆMU??????

Það kemur hvergi fram hvernig þessi "könnun" var unnin en mín tilfinning er sú að Guðrún Hafsteinsdóttir njóti þess að hún hefur verið styst í starfi af ráðherrum ríkisstjórnarinnar og þar af þekki landsmenn fremur  lítið til hennar og "starfa" hennar, sem eru jú mun minni en ættu að vera OG ÞÁ ER EINFALT AÐ SEGJA AÐ HÚN SÉ EINNA SKÁST AF ÞESSU LIÐI SEM FER MEÐ STJÓRN LANDSINS......


mbl.is Guðrún vinsælasti ráðherrann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EF ÞETTA RAUNGERIST ÞÁ VERÐUR "BROTTFÖR" BJARNA BEN ÚR PÓLITÍKINNI FREMUR "AUMLEG"....

Og ekki verða "eftirmælin" neitt til að stæra sig af.  En sennilega missir hann ekki svefn fyrir vikið því hann hefur ekkert verið að vinna að hagsmunum flokksins og þá enn síður fyrir þjóðina og hagsmuni lands og þjóðar heldur eingöngu fyrir hagsmuni þröngrar "eiginhagsmunaklíku" og fyrir eigin hagsmuni.  En ætli hann að ljúka ferlinum með því að láta Svandísi Svavarsdóttur "setja á sig þumalskrúfu" og kanna hversu langt hún getur komist með hann þá verð ég að segja að hann kemst ekki mikið lengra í vesaldómnum....


mbl.is Svandís Svavarsdóttir mun pína Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ ERU "ALLR" STÓRU VIÐSKIPTABANKARNIR BÚNIR AÐ HÆKKA VEXTINA...

Þegar verðbólga er á niðurleið kemur þetta afskaplega mikið á óvart svo verður nú ekki séð að afkoma bankanna sé þannig að þeir "LEPJI NÚ EKKI BEINT DAUÐANN ÚR SKEL" og ekki er þörfin á þessari aðgerð neitt augljós.......


mbl.is Landsbankinn hækkar vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN TALAR MIKIÐ, SEGIR LÍTIÐ OG GERIR EKKERT...........

Hún kemur fram reglulega og segir þjóðinni að hitt og þetta sé í gangi en svo gerir hún ekki nokkurn skapaðan hlut í málinu.  Því miður er Alþingi Íslendinga að fyllast af svona fólki og það virðist vera að svona fólk eigi greiðan aðgang að ráðherrastólum og ef einhver kemst í ráðherrastól sem eitthvað framkvæmir, sem kemur landi og þjóð til góða, þá eru menn fljótir að losa sig við hann samanber Jón Gunnarsson og fá einhverja aðgerðalausa "gufu" í staðinn...........


mbl.is Sænskir glæpahópar senda fólk til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SJÁLFKEYRANDI BÍLL??????

En eitt á ég frekar erfitt með að skilja "VAR ENGINN AÐ KEYRA BÍLINN ÞEGAR HANN VAR STÖÐVAÐUR"??????  Þetta ætti nú ekki að vera mjög flókið mál.....


mbl.is Enginn þóttist hafa ekið bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FÁUM VIÐ ÞÁ KANNSKI LOKSINS ÍSBJÖRN Í HÚSDÝRAGARÐINN???????

Þó svo að Jón Gnarr sé ekki lengur borgarstjóri, þá hefur hann einhver sambönd innan borgarkerfisins OG NÚ ER KANNSKI SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ HANS TIL AÐ STANDA ÞÓ VIÐ "EITT" KOSNINGALOFORÐ SEM HANN GAF Á SÍNUM TÍMA.....


mbl.is Viðbúnaður vegna tilkynningar um hvítabjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ ER DÓMSMÁLARÁÐHERRA BÚIN AÐ FREMJA PÓLITÍSKT SJÁLFSMORÐ OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ER BÚINN AÐ KOMA FYLGINU NIÐUR FYRIR 10 PRÓSENTIN R.I.P.........

Sjálfstæðisflokkurinn gafst upp fyrir "öfgaliðnu" (Íslad-Hamas samtökunum,  öfgaliðinu í VG og BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐNU).  Þetta lið ætlar sér greinilega að  hanga saman á lyginni út kjörtímabilið en þá má gera ráð fyrir  að nokkuð  margir af þessu liði verði atvinnulausir eftir næstu alþingiskosningar og það kæmi mér ekki á óvart þótt atvinnutækifærin hjá þessu liði verði frekar fá.  En það sem er verra er að þetta lið rændi Palestínska drengnum færi á því að eiga þokkalegt líf á Spáni því þar í landi er sjúkrahús sem hefur sérhæft sig í þeim sjúkdómi sem hrjáir drenginn........


mbl.is Yazan verður ekki fluttur úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SEST EKKI RÍKISSTJÓRNIN Á ÞRIGGJA TIL FJÖGURRA TÍMA FUND VEGNA ÞESSA MÁLS????

Eða kannski finnst vissum ráðherrum þetta ekki skipta eins miklu máli eins og málefni Palestínsks flóttamanns sem NÚ ÞEGAR VERIÐ VÍSAÐ ÚR LANDI OG BROTTFLUTNINGNUM VERIÐ FRESTAÐ Í TVÍGANG......


mbl.is „Staðan er grafalvarleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG TRÚA MENN ÞESSU EINS OG NÝJU NETI????????

Hann og aðrir ráðherrar VG hafa sýnt það með skýrum hætti að þau bera ekki mikla virðingu fyrir sannleikanum og er einhver ástæða til að ætla að breyting hafi orðið þar á???????????


mbl.is „Ég hótaði ekki stjórnarslitum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN ER Í RAUNINNI VIÐURKENNA ÞAÐ AÐ HÚN LÉT BARA "SVÍNBEYGJA" SIG....

Og þessi "vingull" telur sig eiga möguleika á því að verða formaður flokksins??  Þó svo að ég geti ekki með nokkru móti séð að það sé eftirsóknarvert að taka við formennsku í þessum "brunarústum" sem Bjarni Benediktsson er að  "forða" sér frá eftir eitt mestahryðjuverk sem hefur verið framkvæmt í Íslenskri stjórnmálasögu að mínu mati.....


mbl.is Ekki um eðlilega stjórnsýslu að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG ENN LÁTA SJÁLFSTÆÐISMENN SIG HAFA ÞAÐ AÐ KYNGJA ÆLUNNI....

Bara fyrir það að fá nokkrum mánuðum lengri tíma í ráðherrastólunum, varla hefur atkvæðunum fjölgað mikið við þessar tilfæringar????????????????


mbl.is Guðrún: Ákvörðun um brottvísun Yazans stendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐVITAÐ VAR HANN VAKINN - VAR KANNSKI ÆTLAST TIL AÐ YRÐI SENDUR SOFANDI ÚR LANDI????

Eftir því sem ég hef heyrt þá er heilbrigðiskerfið á Spáni mun betra en hér á landi og þar að auki er það með öllu  frítt en það er það líka hér á landi fyrir hælisleitendur.  En líklega lögðu foreldrar drengsins hann í mikla hættu með því að þvæla honum frá Spáni til Ísalands?  En hvað sem því liðaur er þetta bara besta lausnin fyrir drenginn úr því sem komið var.  Vonandi vegnar honum sem best í framtíðinni.........


mbl.is Yazan vakinn á spítala og á leið úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÁÐHERRUM VG ER BARA EKKI SJÁLFRÁTT.........

Þeir virðast halda að lög og reglur, svo ekki sé nú talað um stjórnarskána, séu bara fyrir almennin og AÐRA að fara eftir og virðast komast upp með þetta svínarí.  Þetta gerist ekki eingöngu í "HVALAMÁLINU" heldur eru vinnubrögðin svona í flestum ráðuneytum sem VG liðar eru með á síum særum.  SVO AÐ MENN ÞURFA EKKERT AÐ VERA HISSA Á ÞVÍ AÐ VG ÞURRKIST ÚT Í NÆST KOSNINGUM OG AÐ "ROTTURNAR" FARI AÐ FORÐA SÉR FRÁ "SÖKKVANDI" SKIPI.......


mbl.is Umboðsmaður krefur ráðherra svara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MAÐURINN HEFUR BARA EINSTAKT LAG Á AÐ SETJA ALLT Í ÞROT, SEM HANN KEMUR NÁLÆGT.......

 Það er alveg með ólíkindum hvað þessi maður hefur getað vafið einföldum "Vinstri Öfgasálum" um fingur sér með lýðskrumi og hreinum og klárum lygum.  En það verður ekki tekið af honum að hann er flugmælskur og hann á mjög auðvelt með að hrífa fólk með sér.  En þetta eru einmitt einkenni siðblindingja.  Það væri ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þessa manns:  Hann var einn af helstu forkólfum þess að "Fréttablaðið" fór af stað í núverandi mynd og mér skilst að hugmyndin hafi verið hans.  Þegar hugmyndin um "Fréttablaðið" var komin vel af stað tókst honum að sannfæra Jón Ásgeir og fleiri "viðskiptamógúla" um að það væri tilvalið að koma svona "fríblaði" af stað í Danmörku.  Þessi áform "floppuðu" algjörleg og með því minnkuðu möguleikar hans á því að komast í í "klíkuna" með Jóni Ásgeiri og fleirum.  Eftir ævintýrið í Danmörku kom hann til baka til landsins, með skottið á milli lappanna og "endurreisti" Fréttatímann.  Það ævintýri stóð í nokkra mánuði og endaði í gjaldþroti og það sem var alvarlegast var að starfsfólkið fékk ekki greidd laun síðustu mánuðina.  Þegar það varð alveg ljóst að Jón Ásgeir og félagar vildu ekkert með manninn hafa, gerðist hann stækur Sósíalisti með það að markmiði að berjast gegn "AUÐVALDINU" og með lítilmagnanum.  Hann stofnaði Sósíalistaflokkinn og tókst að fá nokkra til fylgis við sig (maðurinn er jú vel mælskur og sannfærandi) og nú stefnir hann á að flokkurinn fái sæti á Alþingi.  Í dag er ekki vitað hverjir koma til með að vera í framboði fyrir flokkinn, en ekki kæmi það á óvart að þar yrði hann sjálfur í framvarðasveitinni því ekki ætlar hann að lifa eins og einhver öreigi.  Finnst mönnum þessi maður mjög trúverðugur?  Þrátt fyrir þennan "glæsileg feril" hefur honum tekist að sannfæra einhverjar "auðtrúa sálir", sem tilheyra þessu BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐI um það að hann eigi fullt erindi á Alþingi Íslendinga. Ekki myndi ég kaupa notaðan bíl af þessum manni.......


mbl.is Samstöðin tapaði 24 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR HANN KANNSKI AÐ "SVERMA" FYRIR STARFI VARARÍKISSAKSÓKNARA??

Þessi skoðun er alveg þvert á það sem almenningur virðist hafa, þess vegna er þetta það fyrsta sem kemur upp í hugann....


mbl.is Ákvörðunin „áfall fyrir ákæruvaldið í landinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á HÚSNÆÐI AÐ VERA HLUTI AF NEYSLUVÍSITÖLUNNI???

Við þessari spurningu er nú frekar einfalt svar (að mínum dómi) en auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta mál eins og flest önnur umdeild mál.  Til eru þeir sem vilja húsnæðisliðinn alveg út úr neysluvísitölunni og þeirri forsendu að húsnæði sé EKKI NEYSLA heldur sé um að ræða SJÁLFSÖGÐ MANNRÉTTINDI SEM VARIN ERU Í STJÓRNARSKRÁ.  Ég hef velt  þessu nokkuð mikið fyrir mér og komist að því að báðir þessir hópar hafa nokkuð til síns máls og þar af leiðandi leyfi ég mér að leggja til nokkurs konar „Salómonsdóm“  í þessu máli:  Að mínum dómi ætti að taka HÚSNÆÐISVERÐ ÚT ÚR NEYSLUVÍSITÖLUNNI EN Á MÓTI ÆTTI AÐ TAKA UPP MEÐALKOSTNAÐ VIÐ AÐ REKA 150 FERMETRA ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Á MÁNUÐI.

Að mínu áliti væri þarna um að ræða lausn, sem flestir ættu að geta sætt sig við aðrir en fjármagnseigendur en ég held að þeir séu ekki meirihluti landsmanna en vissulega eru þeir kannski MUN ÖFLUGRI ÞRÝSTIHÓPUR.......


ÞESSU LIÐI ER BARA EKKI VIÐBJARGANDI OG SÝNIR ÞAÐ SVO UM MUNAR AÐ ÞAÐ Á EKKERT ERINDI Í STJÓRN LANDSMÁLANNA...

Maður gat alveg sagt sér það sjálfur að það yrði EKKERT BITASTÆTT í þessu fjárlagafrumvarpi og ekki gat maður reiknað með að útgjöld minnkuðu þegar Alþingiskosningar eru framundan, það eru ENGAR tillögur um það hvernig eigi að berjast gegn verðbólgunni og þegar Fjármálaráðherra var spurður út í hina GÍFURLEGU AUKNINGU RÍKISÚTGJALDA sagði hann: „Rík­is­um­svif­in hafa "minnkað sem hlut­fall af hag­stærð". Útgjöld­in hafa vaxið um­tals­vert. Lang­tærsti hlut­inn er vegna þess að laun hafa hækkað um­tals­vert mikið, það er lang­stærsti hlut­inn. Hinn hlut­inn er vegna þess að okk­ur hef­ur fjölgað um­tals­vert á hverju ári síðastliðið annað ár“.  Annað sem hann lét út úr sér varðandi þetta frumvarp var álíka gáfulegt.  Það er ekki hægt að segja að framtíðin sé björt.  Það virðist vanta eitthvað mikið upp á að Fjármálaráðherra "gangi á öllum".......


mbl.is Sigurður: Komumst í mark á næstu mánuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA HEFUR VERIÐ "SÉRSVIÐ" RÁÐHERRANS ALLA HANS RÁÐHERRATÍÐ.....

Og átti einhver von á einhverju öðru frá honum þegar "lokasprettur" kjörtímabilsins er að hefjast????????


mbl.is Hlægileg og grímulaus kosningabrella
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TÍMI TIL KOMINN TIL AÐ LOSNA VIÐ ÞENNAN VERKLAUSA "KJAFTASK" ÚR ÍSLENSKRI PÓLITÍK....

Það liggur ekki nokkur skapaður hlutur eftir þennan mann og ef farið er yfir "RÁÐHERRAFERIL" hans, þá er engu líkara en maður sé að lesa nokkra lélega "pabbabrandara".  Hann hefur verið duglegur að skrifa undir hinar og þessar viljayfirlýsingar (sem í raun og veru hafa EKKI NOKKRA ÞÝÐINGU) og þá hefur hann verið virkastur í þessu  fyrir kosningar og svo hefur hann verið sérstaklega iðinn við að skrifa undir viljayfirlýsingar um byggingu íþróttamannvirkja þegar eitthvað er um að vera á sviði íþróttamála (EM og HM í handbolta og fótbolta Ólimpíuleikar og fleira) en þess á milli ríkir þögnin ein og aðgerðaleysið hjá honum. SÍST AF ÖLLU ÞURFUM VIÐ ÍSLENDINGAR Á SVONA STJÓRNMÁLAMANNI AÐ HALDA..........


mbl.is Áform ráðherrans enn óskýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TRÚIR ÞVÍ VIRKILEGA NOKKUR AÐ "OPINBER ÚTGJÖLD" VERÐI LÆKKUÐ Í AÐDRAGNDA KOSNINGA??????

Því það að lækka "opinber útgjöld" er það eina sem þarf að gera til að MINNKA VERÐBÓLGUNA, en það er borin von að sú leið verði farin allt annað er bara FÚSK, YFIRKLÓR OG BLEKKINGAR.......


mbl.is Verðbólgan brýnasta verkefnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband