ÞETTA ER NOKKUÐ SEM NAFNI HANS, JENS GUÐ HEFUR TALAÐ UM ÁRATUGUM SAMAN...........

En það er alveg greinilegt að Jens Garðar Helgason hefur hlustað á nafna sinn Jens Guð á Útvarpi Sögu þar sem hann hefur  rætt um það hvernig Færeyingar hafa hagað málum í jarðgangagerðinni.  Spurningin er hvort Jens Garðar Helgason ætlar að vera alveg heiðarlegur og lætur Jens Guð njóta sannmæli og leita jafnvel ráða hjá Jens Guð varðandi þetta mál eða ætli að eigna sér allan heiðurinn af þessari tillögu???????


mbl.is Jens vill hugsa út fyrir boxið og fara færeysku leiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ VERÐUR ÞAÐ TRYGGT AÐ VG, PÍRATAR OG SÓSÍALISTAFLOKKURINN OG JAFNVEL FLOKKUR FÓLKSINS "DETTA ÚT" Í NÆSTU BORGARSTJÓRNARKOSNINGUM

Eftir að hafa horft á "SILFRIÐ" síðastliðið mánudagskvöld, varð mér endanlega ljóst að þarna er samankomin "HJÖRÐ" manneskja, sem hafa ekki nokkra einustu örðu af vitglóru í hausnum og virtust ekki hafa hugmynd m hvað þær ætluðu að gera til að mæta húsnæðisvanda borgarinnar, samgönguvanda, fjárhagsvanda eða nokkrum öðrum vanda sem borgin á í EN ÞAÐ VEFST ÖRUGGLEGA EKKERT FYRIR ÞEIM AÐ AUKA VANDANN VERULEGA.  EN SEM BETUR FER ÞÁ ER EKKI MJÖG LANGT TIL NÆSTU KOSNINGA.........


mbl.is Hefja formlegar viðræður í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GETUR EKKI VERIÐ AÐ HAMAS-LIÐAR SÉU AÐ ÁTTA SIG Á AÐ ÞAÐ ERU ENGIR GÍSLAR EFTIR Á LÍFI????

Og þar af leiðandi GETA þeir ekki með nokkru móti staðið við skilmála vopnahlésins og þá virðist vera eina og skásta ráðið að saka mótaðilann um vopnahlésbrot.....


mbl.is Vill að öllum gíslum verði sleppt fyrir laugardag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EVRAN EINS STÖÐUGUR GJALDMIÐILL OG INNLIMUNARSINNAR HAFA GEFIÐ Í SKYN????

Að minnsta kosti hafa INNLIMUNARSINNAR verið nokkuð duglegir að halda því fram og þar sé komin lausn á öllum efnahagslegum vandamálum Íslands, bara með því að taka upp evru.  En svo er talið af einhverjum sjálfskipuðum "snillingum" að þessi "STERKI" gjaldmiðill muni ekki þola forsetaskipti í Bandaríkjunum?  Þessi umræða um meintan "styrkleika evrunnar" hefur mér fundist bera nokkurn keim af "skotgrafahernaði af hendi INNLIMUNARSINNA, þar sem hefur verið kastað fram órökstuddum fullyrðingum ásamt "rökum" sem svo reyndust ekki hafa neitt á bak við sig þegar upp var staðið.  Þannig að ég tók mig til og skoðaði þróun gengis evrunnar gagnvar Íslensku krónunni frá 7 febrúar 2023 til 7 febrúar 2025.  Og hver var svo niðurstaða?  Jú það kom í ljós að evran hafði fallið STÖÐUGT gagnvart Íslensku krónunni eða um 3,75%.  7. febrúar 2023 var gengi evrunnar 152,10 ÍKR en 7. febrúar 2025 var gengi evru 146,60 ÍKR.  Þó svo að þarna sé um að ræða stutt tímabil þá er þróunin alveg skýr og telja virkilega einhverjir að þarna sé um framtíðargjaldmiðil okkar að ræða??????????? 


EINRÆÐIÐ ER ALGJÖRT - LÍTIÐ UM LÝÐRÆÐI Á ÞEIM BÆNUM........

Og það sem verra er;PERSÓNULEGAR SKOÐANIR VIRÐAST ALFARIÐ RÁÐA FÖR, margir af illræmdustu einræðisherrum sögunnar stjórnuðu með þessum hætti og enn þann dag í dag virðist vera til fólk sem tileinkar sér þessa stjórnunarhætti.  Kannski það skipti höfuðmáli hvoru megin formaður Flokks Fólksins fer fram úr rúminu þann daginn.  Sennilega hefur hún farið "VEGGMEGIN" framúr í gærmorgun????


mbl.is Segir afstöðuna hafa komið flokknum að óvörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"MIKIL ER TRÚ ÞÍN KONA".........

Sjaldan hefur nokkur manneskja verið jafn ofmetin innan Sjálfstæðisflokksins og haft jafnfram mikla trú á eigin ágæti.  Þetta kom berlega í ljós þegar hún "settist" í Dómsmálaráðuneytið (kannski hún hafi haldið að hún ætti bara að setjast í helgan stein, því það var akkúrat það sem hún gerði). Eitt af hennar fyrstu verkum, þegar hún kom á Alþingi, var að tala um að það yrði að SELJA Landsvirkjun.  Eftir það upphlaup, sem fékk vægst sagt dræmar viðtökur, hafði hún vit á að hafa hægt um sig en passaði að hún gleymdist ekki alveg.  Og þá er komið að stóra "floppinu", VERU HENNAR Í DÓMSMÁLARÁÐUNEYTINU ÞAR GERÐI HÚN EKKI NOKKURN  SKAPAÐAN HLUT AF VITI.  Þær breytingar sem voru gerðar á útlendingalögunum var Jón Gunnarsson búinn að vinna, hún var hátt í tvo mánuði að gaufast í m´li vararíkissóknar og studdist þar við lögfræðiálit og felldi svo að lokum úrskurð í því máli sem svo reyndist algjörlega handónýtur og nú er núverandi Dómsmáráðherra með það mál í höndunum og vonandi ferst henni það betur úr hendi.  Í öllum viðtölum við fjölmiðlasagði þessi verklausa manneskja að hin og þessi mál væru til skoðunar í ráðuneytinu en þrátt fyrir þessa miklu skoðun kom engin niðurstaða í eitt eða neitt.  HVAÐA VERK LIGGJA EFTIR HANA?????


mbl.is Guðrún býður sig fram til formanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FULLSEINT AÐ FARA Á KLÓSETTIÐ ÞEGAR "ALLT" ER KOMIÐ Í BUXURNAR.....

Ef það tók hann allan þennan tíma sjá að það voru mistök hjá honum að taka þátt í að mynda núverandi "meirihluta" í borginni þá býð ég ekki í hvernig framhaldið verður í stjórn borgarinnar, fram að næstu borgarstjórnarkosningum.  Að mínum dómi hefur hann unnið afskaplega klaufalega á þessu flugvallarmáli.  Hann er að reyna að halda andlitinu en hann virðist ekki gera sér grein fyrir því að vegna þess hve langt þetta mál er komið þá verður aldrei nema í mesta lagi hluta "andlitsins" bjargað........ 


mbl.is Hefja formlegar viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"EF TRÉN Í ÖSKJUHLÍÐINNI VERÐA EKKI FELLD - FELLUR MEIRIHLUTINN Í REYKJAVÍK"....

Það var ekki fyrr allt var komið í klessu að menn tóku við sér varðandi Reykjavíkurflugvöll.  Það er algjörlega á tæru að ef "meirihlutinn í borginni "hysjar" ekki strax upp um sig og fjarlægir ekki STRAX næstu daga þessi tré sem þarf að fjarlægja úr Öskjuhlíðinni og tryggi áframhaldandi starfsemi flugvallarins,þá er útlitið ekki gott fyrir núverandi "meirihluta". Svo verður bara að byggja Reykjavíkurflugvöll upp gera þar góða aðstöðu fyrir flugfarþega, lengjum flugbrautir út í sjó, endurheimtum "öryggisflugbrautirnar" það þarf nú sennilega að byggja þær út í Skerjafjörðinn vegna þess að búið er að eyðileggja þær að mestu og sennilega er ekki um það að endurheimta þær á annan hátt og svo þarf að fella einhvern helling af trjám í Öskjuhlíðinni.  Þetta er spurning um þjóðarhagsmuni og menn eiga bara að gera þá kröfu á "meirihlutann" í Reykjavíkurborg að  þeir fari að vinna að hagsmunum heildarinnar því það er alveg öruggt að flugvöllurinn verður þarna að minnsta kosti næstu 40 árin.  NÚ BARA EINBEITUM VIÐ OKKUR AÐ ÞESSU VERKEFNI OG ELTUM EKKI EINHVERJAR "SKÝJABORGIR OG LOFTKASTALA", SEM SVO VERÐUR ALDREI NEITT ÚR EN KOSTAR OKKUR SKATTBORGARANA STÓRAR FJÁRHÆÐIR........... 

 


mbl.is Lokunin hafi alvarleg áhrif á sjúkraflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"TRAUSTUR VINUR GETUR GERT KRAFTAVERK"..........

Þessi lína úr lagi Hauks Ingibergssonar "TRAUSTUR VINUR", flugu í gegnum hugann við lestur viðtengdrar fréttar.  VIRÐING ALÞINGIS EYKST ÖRUGGLEGA TIL MUNA VIÐ ÞAÐ AÐ ÞESSI MAÐUR TAKI ÞAR SÆTI.......


mbl.is Fær þingsætið þrátt fyrir skilorðsbundinn dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ÞARF EIGINLEGA TIL AÐ EITTHVAÐ VERÐI GERT GAGNVART ÞEIM HRYÐJUVERKUM SEM SÍ ER AÐ VALDA?????

Það eru mörg ár síðan að það var sýnt fram á að það er EKKERT samband á milli VERÐBÓLGU og STÝRIVAXTA.  Samt sem áður virðist vera að stjórnendur Seðlabanka Íslands endalaust upp með það halda því fram AÐ EINA ÚRRÆÐIÐ SEM ÞEIR HAFI Í BARÁTTUNNI GEGN VERÐBÓLGUNA SÉ AÐ BEITA STÝRIVÖXTUNUM.  SÉ LÍNURITIÐ SKOÐAÐ SEM SÝNIR ÞRÓUN STÝRIVAXTA FRÁ EF LÍNURITIÐ UM ÞRÓUN STÝRIVAXTA, SEM FYLGIR ÞEIRRI FRÉTT SEM VÍSAÐ ER Í, ER SKOÐAÐ KEMUR Í LJÓS AÐ ÞAÐ HEFUR ÍTREKAÐ VERIРHÆGT AÐ HÆKKA STÝRIVEXTINA UM HEILT PRÓSENT EN MESTA LÆKKUN ER EINUNGIS HÁLFT PRÓSENT. HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI?  Það þarf nú ekki að leita mikið til að finna efni sem hrekur þessa svokölluðu "peningamagnskenningu" Miltons Friedmanns, sem hagfræðingar af þeirri kynslóð Stýrivextir Sðlabanka Íslandssem nú stjórnar Seðlabankanum lýtur á sem eitthvað heilagt dót (þeir virðast halda að þegar þeir útskrifist þá sé þeirra námi lokið og þeir henda bókunum og hætta að fylgjast með framförum í greininni).  En sem betur fer verða framfarir innan hagfræðinnar eins og öðrum greinum og ágætt er að benda fólki á að lesa bækur eftir Nóbelsverðlaunahafann Joseph Stiglitz il að sjá hvernig hann "blæs" á þessi "fræði" sem þessir NÝKLASSÍSKU" hagfræðingar (sem nú stjórna peningakerfi heimsins.....

 

 

 

 

Myndin sýnir þróun stýrivaxta frá febrúar '22 - dagsins í dag (heimild Morgunblaðið)

VINSAMLEGAST "KLIKKIÐ" Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKA HANA


mbl.is Stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentustig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞETTA KANNSKI BARA "SVIKALOGN" AF HENDI BORGARSTJÓRA????

Fyrst þegar ég sá þessa frétt kviknaði smá vonarglæta hjá mér, þess efnis að eittvað væri nú kannski að rofa til í kollinum á borgarstjóra varðandi flugvöllinn og framtíð hans, því hann sér að það er farið að styttast mjög mikið í kosningar og hann þarf að  fara að skapa sér einhverja "sérstöðu" ef ekki á illa að  fara.  En svo las ég áfram og sá að hann vildi vísa tillögunni til um­hverf­is- og skipu­lags­ráðs til meðferðar og greinilega á að "svæfa" málið þar.  En auðvitað sjá það allir heilvita menn að flugvöllurinn er ekkert á leið úr Vatnsmýrinni og það á bara að búa vel að honum á meðan hann er þar......


mbl.is Borgarstjóri studdi tillögu sjálfstæðismanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER EKKI ÍSLAND SVO RÍKT LAND????????

En samt höfum við ekki efni á að borga öllum mannsæmandi laun, við höfum samt ekki efni á almennilegri heilsugæslu, við getum ekki haldið úti fullnægjandi löggæslu, það eru minnst 400 manns heimilislausir, félagskerfið er í molum. samgöngukerfið er orðið algjörlega að hruni komið og nú þegar er viðhalsskuldin orðin svo mikil að það tekur marga áratugi að koma því í það horf sem það var í 1980 og svona væri endalaust hægt að telja áfram.  En samt sem áður vill "BAKBORÐSSLAGSÍÐULIÐIÐ" halda áfram að flytja inn hælisleitendir þúsundum saman á hverju ári, sem kosta landsmenn TUGI MILLJARÐA KRÓNA Á ÁRI.  Heldur þetta lið að peningarnir vaxi bara á trjánum eða komi af himnum ofan????????


mbl.is Greiða atkvæði um ótímabundin verkföll í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EINA VITIÐ - OG STANDA EINU SINNI ALMENNILEGA Í LAPPIRNAR......

Byggjum bara Reykjavíkurflugvöll upp gerum þar góða aðstöðu fyrir flugfarþega, lengjum flugbrautir út í sjó, endurheimtum "öryggisflugbrautirnar" það þarf nú sennilega að byggja þær út í Skerjafjörðinn vegna þess að búið er að eyðileggja þær að mestu og sennilega er ekki um það að endurheimta þær á annan hátt og svo þarf að fella einhvern helling af trjám í Öskjuhlíðinni.  Þetta er spurning um þjóðarhagsmuni og menn eiga bara að gera þá kröfu á "meirihlutann" í Reykjavíkurborg að  þeir fari að vinna að hagsmunum heildarinnar.  NÚ BARA EINBEITUM VIÐ OKKUR AÐ ÞESSU VERKEFNI OG ELTUM EKKI EINHVERJAR "SKÝJABORGIR OG LOFTKASTALA", SEM SVO VERÐUR ALDREI NEITT ÚR EN KOSTAR OKKUR SKATTBORGARANA STÓRAR FJÁRHÆÐIR...........


mbl.is Ráðherra vill beita sér fyrir flugstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÓ SVO AÐ MÍNIR MENN HAFI UNNIÐ LEIKINN, ÞÁ VERÐA ÞEIR AÐ FARA AÐ NÝTA FÆRIN BETUR

Bornemouth menn byrjuðu fyrri hálflekinn betur en eftir rúmt korter tóku mínir menn við sér  og sérstaklega eftir fyrra mark Salah þá áttu mínir menn alveg leikinn og hefðu átt að skora tvö til þrjú mörk í við bót og þar með hreinlega að klára leikinn.  En það hefur verið Akkilesarhæll liðsins að nýta ekki nógu og vel færin sín og þar af leiðandi varð leikurinn óþarflega spennandi.  En Bornemouth menn komu MJÖG sprækir út í seinni hálfleikinn og tóku má segja alveg yfir, því var það algjörlega gegn gangi leiksins þegar Salah skoraði alveg gullfallegt mark, annað mark sitt og annað mark Liverpool.  Þar með var leiknu lokið og varla nokkur spurning hvernig færi....


mbl.is Salah hetja Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EKKI TIMI TIL KOMINN AÐ VIÐ ENDURSKOÐUM FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ???

Aldrei hefur verið hægt að sanna að eitthvað ólöglegt hafi átt sér stað og meira að segja var forstjóri Samherja svo óforskammaður að heimta það að Seðlabankastjóri yrði saksóttur vegna rannsóknar og húsleitar, sem bankinn framkvæmdi á Samherja og það sem alvarlegra er að fyrrverandi Forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) blandaði sér í málið með því að senda til lögreglu meintan „leka“ frá Seðlabankanum til RÚV.  EN ÞAÐ ER RÉTT AÐ ÞAÐ KOMI FRAM AÐ MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ, VEGNA FORMGALLA.  ÞAÐ ER EKKI RÉTT AÐ SAMHERJI HAFI VERIÐ SÝKNAÐUR Í ÞESSU MÁLI eins og margir hafa viljað halda fram, þar á meðal forstjóri Samherja, MÁLINU VAR VÍSAÐ FRÁ OG KOM EINFALDLEGA ALDREI TIL ÞESS AÐ FJALLAÐ VÆRI UM ÞAÐ EFNISLEGA.

En það að þetta Samherjamál kom upp, segir það okkur ekki að það er full ástæða til að rannsaka viðskipti og viðskiptahætti ALLRA stóru sjávarútvegsfyrirtækjanna á Íslandi? Fyrir daga kvótakerfisins og fyrstu ár þess, voru á markaðnum tveir risar í sölu á fiski á erlenda markaði Þetta voru SÍS (Samband Íslenskra Samvinnufélaga) og SH (Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna).  Skiptingin á milli þessara sölusamtaka var nokkuð skýr,  SÍS sá um söluna fyrir kaupfélögin og fyrir þá sem voru „Framsóknarmegin“ í pólitíkinni en SH sá um söluna fyrir þau fyrirtæki sem voru „Sjálfstæðisflokksmegin“ í pólitíkinni.  En þá kom Samherji til sögunnar og riðlaði „öllu sölukerfinu“ með því að stofna sín eigin sölusamtök og eftir það hafa þessi tvö sölusamtök smám saman verið að lognast útaf misjafnlega hratt þó.  En eitt er þó sem ætti að hafa í huga: SAMHERJI HEFUR ALVEG FRÁ UPPHAFI SINNAR ÚTGERÐARSÖGU ALDREI SETT EINN EINASTA SPORÐ Á MARKAÐ.  Og hvers vegna skyldi það vera?  Jú, því er auðsvarað.  Ef þarf að greiða markaðsverð fyrir fiskinn, hagnaður útgerðarinnar eykst og þá verður erfiðara að réttlæta það að áhöfnin taki þátt í að greiða olíuna á fiskiskipin og að dregið sé af launum sjómanna til að taka þátt í nýsmíði fiskiskipaflotans og ekki nokkur leið að réttlæta LÆKKUN veiðigjalda og um leið verður minni hagnaður til að flytja úr landi, í skattaskjól fyrir eigendur fiskvinnslufyrirtækjanna, sem einnig eru með útgerð á sinni könnu.

Eru menn virkilega svo barnalegir að halda að Samherjamenn séu þeir einu sem stunda þetta?  Frá lýðveldisstofnun, sáu þessu tvenn sölusamtök um að selja fiskinn úr landi og að hluta til eftir að kvótakerfið var sett á.  Þetta var til þess að útgerðin fékk skammtað eins skít úr hnefa „afkomu“ sem svo aftur og aftur kallaði á gengisfellingar Íslensku krónunnar, til að rétta hlut útgerðarinnar.  Fljótlega áttuðu útgerðarmenn sig á því að til þess að „mjólka“ sem mest út úr fiskveiðiauðlindinni YRÐU þeir að koma sér upp FISKVINNSLU, þeir útgerðarmenn sem voru  svo framsýnir og sáu þetta á sínum tíma, STJÓRNA SJÁVARÚTVEGSMÁLUNUM Á ÍSLANDI Í DAG. En svo kom Samherji til sögunnar, þeir stofnuðu sitt eigið sölufyrirtæki, þannig gerðu þeir tengslin milli útgerðar og vinnslu mun sterkari en áður hafði verið.  Umskiptin urðu ekki á einni nóttu en smám saman „lognuðust“ þessi tvö sölufyrirtæki útaf og útgerðin varð öflugri.  ÞARNA ER KOMIN SKÝRINGIN Á ÞVÍ HVAÐ VELDUR ÞVÍ AÐ ÚTGERÐIN ER MEÐ SVONA MIKLU BETRI AFKOMU EFTIR AÐ KVÓTAKERFIÐ VAR SETT Á.   Þetta telja stuðningsmenn kvótans, vera sín „sterkustu rök“ fyrir því að viðhalda núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og dæmi nú hver fyrir sig.

Stærsti þátturinn í að þetta SVINDLI var og er mögulegt, er þetta TVÖFALDA VERÐLAG SJÁVARAFURÐA SEM HEFUR VERIÐ Í GILDI HÉR Á LANDI Í MARGA ÁRATUGI.  Annars vegar er fiskverð ákveðið af stjórnvöldum sem gildir um útgerðir sem eru aðgang að fiskvinnslu (hvaða gögn eru höfð til grundvallar er mér alveg hulin ráðgáta og sjálfsagt einhverjum fleirum en ég auglýsi eftir þessu hjá þeim sem til þekkja), hins vegar fer fiskur,  frá bátum sem EKKI eru með fiskvinnslu á sínum snærum, á fiskmarkað.  Þetta verður til þess að verð á fiski á markaði er mjög hátt, eins og kerfið er í dag og fiskverð til okkar neytenda verður þar af leiðandi miklu hærra en annars yrði.

Það var árið 1977, sem ég fór í mína fyrstu „siglingu“ á erlenda markaði með fisk.  Ég hugsaði ekki um það þá en það var nokkuð algengt að það væri tvöfalt til þrefalt verð á fiski á erlendum mörkuðum en það sem fékkst hér á landi.  Það var hægt að lenda í svokölluðum „downtúrum“ en verðin fóru mest eftir framboði og eftirspurn, árstíma, veðurfari og það albesta var að eiga „söludag“ fyrsta dag sem markaðir opnuð eftir jólahátíðina en þá var alveg pottþétt góð sala.  Ég man eftir einum alveg sérstaklega slæmum túr á togaranum Júní frá Hafnarfirði, sumarið 1978, en þá barst mjög mikill fiskur að landi og frystihúsið gat ekki tekið við aflanum frá okkur (við vorum á veiðum á vestfjarðamiðum og fengum á tíu dögum rúmlega 400 tonn af þorski), þá var brugðið á það ráð að senda okkur í „siglingu“ til Hull og svo áttum við að fara í slipp í South Sields, sem er rétt við Newcastle en norðan við Hull.  Það var mikil veðurblíða og gífurlega heitt í veðri þegar þetta var og skemmst frá því að segja að salan var ein allsherjar hörmung.  Sá hluti aflans sem seldist fór á mjög lágu verði og það sem verra var er að 90 tonn seldust bara alls ekki og var bara keyrt beint í GÚANÓ.  Árið 1985 fór ég svo í mína síðustu „siglingu“, þá seldum við „hæfilegt magn“ rétt fyrir jól og gerðum ágætis sölu.  Framan af var verið að „friða“ sjómenn, vegna þess hve fiskverð var lágt hér á landi, með því að gefa leyfi fyrir því að senda einn til tvo gáma af fiski á markaði í Englandi eða Þýskalandi (Þorskur,ýsa og koli fóru á England en karfi og ufsi fóru á Þýskaland). þetta lagðist af um 1990 hjá flestum og var því svarað til að ef menn væru óánægðir með fiskverðið skyldu menn bara fá sér aðra vinnu.

En hvað  er mögulegt að gera til að þessi svokallaði „GJAFAKVÓTI“ verði upprættur og öll spillingin í sambandi við hann.

Ég tel að það eigi að kippa „GJAFAKVÓTANUM“ af með það sama.  Við yrðum með kvótakerfi áfram en með annarri útfærslu.  Það sér það hver heilvita maður að þessi „sýndarmennska“, sem er í gangi með „GJAFAKVÓTANN“ í dag gengur engan veginn upp.  Þó svo að það standi í lögum um stjórnun fiskveiða að fiskveiðiauðlindin sé sameign þjóðarinnar, þá er reyndin ekki sú í raunveruleikanum.  Útgerðarmenn færa „kvótann“ sem EIGN  í bókhaldinu hjá sér og það sem meira er að kvótinn ERFIST og ekki nóg með það heldur KEMUR HANN TIL SKIPTA Í SKILNAÐARMÁLUM.  Það er svo mikil hrópandi mótsögn í þessu kerfi í dag að menn sem skoða þennan ófögnuð verður örugglega flökurt.  Fyrst og fremst tel ég að deila eigi kvótanum á milli byggðarlaga.  Segjum sem svo að Þorlákshöfn væri úthlutað 5.000 tonna þorskkvóta.  Í Þorlákshöfn landar síðan bátur 20 tonnum af þorski, þessi 20 tonn myndu dragast frá heildar þorskkvóta Þorlákshafnar, þannig að þar væru eftir 4.980 tonn af þorski.  En nú á útgerð þessa báts eftir að greiða fyrir að veiða þessi 20 tonn af þorski og væri gjaldið eitthvað hlutfall af aflaverðmætinu, t.d 20 % af aflaverðmæti, menn hljóta að sjá að það er náttúrulega tóm þvæla að veiðigjöld séu ákveðin eftir að tillit hefur verið til FJÁRFESTINGA og FJÁRAMAGNSLIÐA viðkomandi útgerðar, eins og gert er í dag.  Þannig að sumar stórútgerðir greiða ENGIN veiðigjöld, vegna þess að þau eru að fjárfesta svo mikið í skipum og búnaði (bara það að kaupa eitt flottroll verður til þess að ekki þarf að greiða nein veiðigjöld það árið). Það sem er aðalatriðið í þessu er að það eru byggðir landsins sem fengju kvótanum úthlutað og þær greiða síðan 50% af kvótasölunni til ríkisins.  Og svo er algjört grundvallaratriði að hver einasti landaður fiskur fari á markað þannig verði slitin tengslin á milli veiða og vinnslu, sem hefur verið helsta meinsemdin í Íslenskum sjávarútvegi.  Nú kunna ýmsir að reka upp ramakvein, en ég minni á það að það þurfa allar greinar iðnaðar að greiða gjald fyrir það hráefni sem er notað og því skyldi ekki útgerð gera það líka?  Þessi tekjustofn yrði síðan notaður til þess að fjármagna hafrannsóknir (og þá er ég að meina ALVÖRU hafrannsóknir ekki stofnanir eins og HAFRÓ sem stunda einhverjar rannsóknir sem eru ekki í neinu sambandi við raunveruleikann og skal þar fyrst minnst á „togararallið“ þeirra sem allt stofnstærðarmat þeirra á þorski byggist á) , veiðieftirlit og landhelgisgæslu.  Nú segja einhverjir að þeir sem eru í útgerð í dag og hafa KEYPT sínar veiðiheimildir, hvað á að gera í þeirra málum?  Þarna hafa flestir staðið á gati aðallega vegna þess að þessum fyrirtækjum hefur verið heimilað að EIGNFÆRA veiðiheimildirnar í bókhaldi sínu og síðar var þeim heimilt að VEÐSETJA þær en þá byrjaði nú VITLEYSAN fyrir alvöru menn fóru að taka LÁN út á óveiddan fisk (eins fáránlegt og það hljómar) og það sem meira er þessar heimildir eru í trássi við mörg gildandi lög (t.d lög um fiskveiðistjórnun og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar svo eitthvað sé nefnt).  Ég hef ekki á takteinum hvernig eigi að leysa skuldastöðu útgerðarinnar enda myndi ég nú telja að það þurfi að skoða hvert einstakt tilfelli fyrir sig, t.d verður að liggja alveg ljóst fyrir hvernig skuldirnar eru tilkomnar og hvers vegna var til þeirra stofnað.  Ef farin yrði sú leið að INNKALLA ALLAR veiðiheimildirnar á einu bretti, því að innkalla heimildirnar smátt og smátt held ég að sé eingöngu að flýja þann gríðarlega vanda sem við erum komin í með kvótakerfið og það býður eingöngu upp á að það verði gerð einhver „bráðabirgðaúrræði“ sem eingöngu myndu auka á þann vanda sem þegar væri til staðar, sem ég tel albesta kostinn í stöðunni, væru þeir aðilar sem eru nú þegar í útgerð með TALSVERT MIKIÐ forskot á þá sem hygðust koma inn í greinina því þeir ættu þegar skipin og veiðarfærin, sem eru notuð við veiðarnar.  Það er bara óhjákvæmilegt að sumar útgerðir eiga eftir að fara í gjaldrot, það gildir bara það sama um útgerðina og önnur fyrirtæki.  Málið er að það er alveg gífurleg offjárfesting í útgerðinni og ég er bara ekki alveg viss um að menn hafi farið eftir einhverri skynsemisreglu í þeim efnum.    Og svo er eitt alveg „stórkostlegt“ SJÓMENN GREIÐA VISSAN HLUT AF LAUNUM SÍNUM Í „NÝSMÍÐASJÓГ OG EKKI NÓG MEÐ ÞAÐ AÐ ALVEG SÍÐAN OLÍUKREPPAN (1973) VAR SKIPTAPRÓSENTUNNI BREYTT ÞANNIG AÐ SKIPTAPRÓSENTAN, VAR EKKI REIKNUÐ FYRR EN EFTIR AÐ OLÍUKOSTNAÐUR HAFÐI VERIÐ GREIDDUR OG ÞANNIG ER ÞETTA ENN ÞANN DAG Í DAG.

Svo er eitt mál, sem hefur verið alveg ótrúleg andstaða við á Alþingi og þá sérstaklega hjá stjórnarflokkunum (reyndar hjá stærstum hluta Alþingismanna, hvernig í ósköpunum sem getur staðið á því), EN ÞAÐ ER AÐ GEFA HANDFÆRAVEIÐAR ALVEG FRJÁLSAR.  Þá koma ráðamenn (síðast Fjármálaráðherra) og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló.  Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 40.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vega strandveiða til dæmis þetta veiðisvæðakjaftæði, annað hvort eru menn á handfæraveiðum eða ekki það skiptir ekki nokkru máli á hvaða „svæði“ þeir eru.  Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

 Með ráðstöfun af þessu tagi væri komið í veg fyrir að kvóti safnist til örfárra aðila, endurnýjun innan greinarinnar ætti að vera möguleg og einnig að byggð myndi lítið sem ekkert raskast en gæti styrkst aftur. Með því að nota þessa aðferð við veiðistjórnunina væri komið í veg fyrir svokallað kvótabrask og fiskvinnslan í landi gæti sérhæft vinnslu sína.

Það hefur mikið verið rætt um það að útgerðin „gæti ekki“ greitt fyrir veiðiheimildirnar, þetta er náttúrulega bull og ekkert annað.  Ég veit ekki um neina atvinnugrein, sem ekki þarf að greiða fyrir hráefnið í lokaframleiðslu sína.  Að sjálfsögðu á útgerðin að greiða eitthvað fyrir hráefnið og ekki væri óeðlilegt að 20% af lönduðum afla færi í svokallað veiðigjald. 

EINA RAUNVERULEGA LAUSNIN Á ÞESSU VANDAMÁLI MEÐ TVÖFÖLDU VERÐLAGNINGUNA, ER AÐ ALLUR FISKUR FARI Á MARKAÐ OG ALLIR FISKKAUPENDUR SITJI VIÐ SAMA BORÐ.  OG ÞÁ ÞARF AÐ EFLA MIKIÐ ALLT GJALDEYRISEFTIRLIT HÉR Á LANDI OG KOMA Í VEG FYRIR AÐ GJALDEYRIR SKILI SÉR EKKI TIL LANDSINS.

Bæði ráðuneytisstjórinn og skrifstofustjórinn eiga að víkja og nýi ráðherrann kemur með ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra með sér.  Með þessari ráðstöfun yrði komið í veg fyrir ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar ráðuneytanna stjórnuðu í raun og veru og svo er náttúrulega ekki gott að fólk fái sigg á ra....... vegna of langrar setu á vissum stólum...........


AF HVERJU EIGA ÍSLENDINGAR AÐ TAKA MÁLSTAÐ DANA Í ÞESSARI DEILU????

Að mínum dómi hafa Danir ekki gert nokkur skapaðan hlut til að verðskulda það að Íslendingar styðji við bakið í þessu  máli.  Ég tel það    best fyrir Grænlendinga  að verða ALGJÖRLEGA SJÁLFSTÆÐIR frá Dönum með MIKIL samskipti við BANDARÍKIN.........


mbl.is NATO og ESB þegja þunnu hljóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KRÓATAR UNNU ÞENNAN LEIK "VEGNA UMDEILDRAR DÓMGÆSLU".....

Mér leiðist að segja þetta en þetta er bara óumdeilanleg staðreynd og kallar bara á það að dómmarar standi  sína "plikt" án þess að það skipti máli hverjir eru að spila.  Kannski er ég bara tapsár en að mínu mati eru "vafaatriðin" of mörg og það er ekki eðlilegt að þau séu ÖLL öðru megin.........


mbl.is Ísland úr leik eftir nauman sigur Króatíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LOKSINS KEMUR EINHVER MEÐ "RAUNHÆFA" LAUSN Á ÞESSU MÁLI.......

En þá koma upp líka "raunhæf" vandamál; önnur nálæg múslimaríki vilja ekki taka við þessu Palestínuliði. því þetta hefur verið til vandræða áratugum saman og eru ekkert annað en "afætur" og hefur alla tíð verið á "sósíalnum" í því landi sem það hefur dvalið í það og það skiptið og hefur engan áhuga á því að ger eitt né neitt til að bjarga sér (þessu höfum við Íslendingar fengið að kynnast og ekki nóg með það heldur reyna þeir að rífa þeir líka niður þá þjóðfélagsgerð sem er fyrir) og svo er annað að það er orðið svo rótgróið hatrið á Trump að hann má ekki opna munninn og segja nokkurn skapaðan hlut án þess að reynt sé að gera lítið úr öllu sem hann segir og gerir og láta að því liggja að hann sé bara vitleysingur.........


mbl.is Trump stingur upp á að flytja Palestínubúa frá Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VIRÐIST VERA EINA RÁÐIÐ, SEM SAMFYLKINGIN HEFUR TIL AÐ AUKA TEKJUR RÍKISINS, SÉ AÐ HÆKKA SKATTA.......

Hafa þeir aldrei heyrt um neitt sem heitir hagræðing í rekstri, minnka kostnað (það er hægt að auka þjónustu en um leið að lækka kostnað)  Ég er alveg viss um að "SÓUN" fjármuna í opinbera geiranum er alveg gífurlega mikil þar er hægt að spara mikla fjármuni.  Eitthvert besta sparnaðarráðið heyrði ég frá góðum vini mínum, en ann vildi meina að best væri að leggja niður STOFNIR eða endurskoða rekstur þeirra sem væru með orðið STOFA einhvers staðar í nafninu......


mbl.is Vilja hækka fjármagnstekjuskattinn í 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA LÍKAR MÉR..........

Og hefði bara átt að vera komið til framkvæmda fyrir löngu síðan......


mbl.is Vill svipta „erlenda brotamenn“ ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband