Færsluflokkur: Evrópumál
23.2.2016 | 09:08
ERU ENDALOK ESB Í AUGSÝN??????
Er Bretland bara toppurinn á ísjakanum? En það er ljóst, flestum öðrum en INNLIMUNARSINNUM sem vilja í það minnsta ekki tala um það, að sambandið er orðið allt of mikið skrifræðisbákn og að margra mati er hlutast of mikið í "innri mál aðildarríkjanna" og þar af leiðandi er sjálfstæði þeirra mun minna en efni standa til. Kannski er atkvæðagreiðslan í Bretlandi upphafið að hruni ESB???
![]() |
Hollendingar vilja kjósa um ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
En samkvæmt meðfylgjandi frétt, virðast nokkuð margir innan Breska Íhaldsflokksins, gera sér fulla grein fyrir því að ESB er handónýtt "apparat" og er lítið annað en botnlaus hít, sem gerir ekkert gagn en skaðar aðildarríkin frekar en hitt.
![]() |
ESB klýfur Íhaldsflokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.12.2015 | 13:06
EITTHVAÐ FER NÚ LÍTIÐ FTRIR ÞESSUM "TRAUSTA OG STÖÐUGA" GJALDMIÐLI SEM INNLIMUNARSINNAR ERU SVO HRIFNIR AF...
Miðvikudaginn 9 desember var í Fréttablaðinu grein, þar sem talað var um að krónan kostaði hver Íslending eina milljón á ári og að áætlaður kostnaður ríkis og sveitarfélaga væri um 40 milljarðar á ári, en þessar tölur eru teknar úr samantekt Vísbendingar. En skyldu vera einhversstaða til samantekt yfir kostnað ríkja ESB vegna evrunnar? INNLIMUNARSINNAR virðast ekki vera neitt áfjáðir í að þær tölur verði birtar................
![]() |
Evran lækkar stöðugt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.12.2015 | 01:21
LOKSINS ERU MENN AÐ SJÁ RAUNVERULEIKANN
Þeir eru núna að átta sig á að fall ESB hefur verið í "kortunum" í nokkuð langan tíma og nú er loksins að renna upp ljós fyrir "Brusselherrunum" ESB VERÐUR EKKI BJARGAÐ MEÐ ÞVÍ AÐ PRENTA FLEIRI EVRUSEÐLA. ÞAÐ VERÐUR FRÓÐLEGT AÐ SJÁ HVER NÆSTU VIÐBRÖGÐ VERÐA. Það verður líka fróðlegt að sjá og heyra viðbrögð Íslenskra INNLIMUNARSINNA við þessu...............
![]() |
Hætta á að ESB liðist í sundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2015 | 10:06
HLUTUR ESB Í VIÐSKIPTUM VIÐ ÍSLAND STÓRLEGA OFMETINN
Til dæmis fer mest allt ál til Rotterdam og þaðan svo til Kína. Eru þá álviðskiptin skráð sem viðskipti við ESB? Það hefur hingað til verið ein af röksemdum INNLIMUNARSINNA fyrir innlimun Íslands í ESB að viðskiptin við ESB séu svo mikil. En samkvæmt þessari frétt hafa þau verið stórlega ofmetin í áratugi og alltaf er að "kvarnast" meira og og meira úr málflutningi INNLIMUNARSINNA og nú er bara orðið ansi lítið eftir og alls ekkert sem mælir með innlimun.
![]() |
Ákvörðunarland er óþekkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.10.2015 | 16:48
ÚTILOKAÐ AÐ GANGA Í SAMBAND SEM HELDUR VERNDARHENDI YFIR GLÆPAMÖNNUM
Það er alveg hægt að líta á það til refsilækkunar í fjádráttarmáli að viðkomandi hafi gert þetta vegna þess að hann hafi langað í peningana og fyrirtækið sem hann tók þá frá hafi átt full mikið af þeim.
![]() |
Evrópuþingið kemur Snowden til varnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2015 | 11:26
EKKI VITAÐ TIL AÐ NOKKUR "AUKIN" UMRÆÐA UM ESB-INNLIMUN HAFI FARIÐ FRAM??
En við lestur þessarar fréttar virðist vera að INNLIMUNARSINNAR hafi "plantað" sínum manni inn á Morgunblaðið, þessi aukna ESB umræða virðist þá fara fram í einhverjum lokuðum klúbbum - kannski á LOKAÐRI facebooksíðu?
![]() |
ESB-aðild aftur efst á baugi á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.10.2015 | 09:38
ER ÞÁ VERIÐ AÐ SEGJA AÐ 46% ÞJÓÐARINNAR SÉU EKKI MEÐ FULLA FIMM?
En við verðum að horfa til þess að áróðurinn fyrir INNLIMUN og því sem henni fylgir, er enn til staðar. Og svo má ekki vanmeta áhrif þess, hvernig spurning er orðuð og á hvaða hátt hún er lögð fram. Mér er það til efs að fólki hafi verið gerð grein fyrir því, þegar spurningin var lögð fyrir, að yfirgnæfandi líkur væru á því að evran yrði dottin upp fyrir sem gjaldmiðill þegar Íslendingum gæfist kostur á að taka hana upp.
![]() |
Fleiri á móti evru en með |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2015 | 03:34
HALDA BRUSSELLIÐAR AÐ ÞAÐ SÉ NÓG AÐ BREYTA BARA FORSENDUM Í EXCEL?
Kannski er einhver sérstök útgáfa af Excel fyrir ESB, sem Spánverjar hafa ekki notað við fjárlagagerðina? En er ekki þarna kominn vísir að þeirri "Stór - Evrópu" (þúsund ára ríkið), sem hefur verið draumur Þjóðverja svo lengi?
![]() |
Hafnar fjárlagafrumvarpi Spánar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2015 | 10:32
EF BRETAR SEGJA SIG ÚR ESB ER SAMBANDIÐ ENDANLEGA BÚIÐ AÐ VERA.
Þó svo að sambandið sé enn til þá er meira um "teklúbb" að ræða og vaxandi óeining og óánægja einstakra ríkja er orðin ljósari. Ef Bretar tækju upp á því að yfirgefa sambandið (það er eftir að koma í ljós hvort þeir geti það og sannast þá hvort rétt sé: "You Can Check Out Any Time You Like, But You Can Never Leave". En með brotthvarfi Breta myndi sambandið molna innanfrá.
![]() |
Gæti stutt úrsögn úr ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |