Færsluflokkur: Formúla 1
28.9.2012 | 13:41
ÞAÐ HEFUR VERIÐ ÞRÁLÁTUR ORÐRÓMUR UM ÞETTA NOKKUÐ LENGI..
En í viðtali sem Eddie Jordan, átti við Bernie Eccelstone í lok ágúst, fengu þessar sögusagnir byr undir báða vængi. En í þessu viðtali gaf Eccelstone það sterklega í skyn að Schumacher myndi hætta eftir tímabilið.
![]() |
Lewis Hamilton til Mercedes |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þó svo að byrjunin hafi ekki verið neitt til að hrópa húrra yfir. Þetta byrjaði allt með einhverju augljósasta þjófstarti sem nokkurn tíma hefur sést, hjá Maldonado og kraðakið í fyrstu beygju skrifast alfarið á Grosjean, það var ekki hægt að sjá nokkra einustu glóru í því hjá honum að beygja ýmist í bak og stjór, án þess að hafa hugmynd um staðsetningu annarra ökumanna í kring. Því eins og sagt er þú vinnur ekki keppnina í fyrstu beygju en þú getur bundið enda á hana þar. Skítt með það þó hann hefði einn dottið út en það voru engar smá kanónur sem duttu út líka; Alonso, Hamilton og Perez. Í sinni 300 keppni var Schumacher hreint og beint frábær og er langt síðan hann hefur sýnt viðlíka frammistöðu. Alveg þar til tíu hringir voru eftir af keppninni barðist hann um sæti á verðlaunapalli en þá neyddist hann til að fara í dekkjaskipti. Fljótlega eftir að hann kom út aftur missti hann sjötta gírinn og taldist bara góður að ná sjöunda sæti. En það var nokkuð athyglisvert viðtal, sem Eddie Jordan átti við Bernie Ecclestone, en þar gaf Ecclestone það sterklega í skyn að Schumacher myndi enda sinn formúluferil þegar þessari vertíð lýkur. Hvort sem þetta er rétt eða ekki, þá verður ekki borið á móti því að Schumacher á stærstan þátt í því að gera formúluna að því sem hún er í dag. Það er ekki hægt að hætta að skrifa um keppnina í dag án þess að minnast á frammistöðu Vettels. Hann var alveg ótrúlegur í dag. Hann byrjaði í ellefta sæti í rásröðinni og keyrði sig upp í annað sæti og að sjá keyrsluna há drengnum var algjör draumur. Í rauninni var þetta nokkuð merkilegur dagur fyrir Button, þetta var 50 keppnin hans fyrir McLaren, fyrsti ráspóllinn hans fyrir McLaren og fyrsti sigur hans á Spa svo það má búast við því að það verði mikið fagnað hjá honum í kvöld..........
![]() |
Button sigrar loks í Spa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2012 | 14:58
VAR WEBBER AÐ SKRIFA UNDIR FRAMHALDSSAMNING VIÐ RED BULL???
Það vildi Eddie Jordan meina áðan, þegar hann var að fara yfir keppnina. Hann fór yfir keppnina í Valencia og svo Silvestone kappaksturinn, Eddie fannst það liggja á augum uppi að í Valencia hefði allt verið upp í loft hjá Webber og framtíðin þar með öllu óráðin, enda hefði árangurinn verið eftir því. En núna var allt annað uppi á teningnum, holningin á Webbber hefði verið allt önnur og sjálfstraustið heði lýst af honum langar leiðir og ég er bara ekki frá því að þetta sé bara rétt ályktað hjá kallinum, ég verð alla vega ekki mjög undrandi ef það væri tilkynnt næstu daga að Red Bull hefði samið við Webber, í það minnsta út næsta á. Þó svo að Horner vildi ekki staðfesta þetta áðan í viðtali við BBC. En þær voru nokkuð alvarlegar áskanirnar sem Sergio Peres kom með á Pastor Maldonado. Hann sagði að Maldonado væri stórhættulegur ökumaður og margir ökumenn væru bara skíthræddir við hann, sem ekki bæri virðingu fyrir einu eða neinu, hvorki öðrum ökumönnum né reglum. Hvað sem þessum ummælum líður þá hefur Maldonado, verið þáttakandi í mörgum óhöppum, á brautinni, þetta árið og alvarlegast var að sjálfsögðu atvikið í Mónakó þar sem hann notaði bílinn sem vopn gegn Perez. Maldonado verður að fara að skoða aksturstækni sína og komast að því hvort hann þurfi að gera einhverjar endurbætur þar á..........
24.6.2012 | 17:18
KANNSKI FERRARI OG SAUBER HAFI BARA SKIPTI Á ÖKUMÖNNUM??????
Því það eru orðnar nokkuð háværar þær sögur, innan "formúlunnar", að Ferrari-liðið sé mikið að spá í Sergio Perez, sem arftaka Felippe Massa.
![]() |
Massa útilokar ekki að snúa aftur til Sauber |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2012 | 14:42
ÞETTA FER Í SÖGUBÆKURNAR........................................
Fyrir það fyrsta er það ekki mjög algengt að hafa ÞRJÁ fyrrum heimsmeistara á verðlaunapalli og þar að auki hafa þeir ALLIR keyrt fyrir Ferrari, Alonso keyri fyrir liðið núna en bæði Raikkonen og Schumacher keyrðu fyrir liðið áður. Hingað til hefur það verið þannig að það hefur enginn unnið í Valencia, sem hefur verið aftar enn í þriðja sæti á rásmarki. En Alonso breytti því heldur betur í dag því hann byrjaði í 11 sæti á rásmarki í dag og Schumacher, sem varð í þriðja sæti var í 12 sæti á rásmarki. Að sumu leyti höfðu þeir heppnina með sér því Vettel, Hamilton, Grosjan og Maldonado féllu úr keppni. Keppnin var spennandi og skemmtileg alveg til loka og vissulega hleyptu úrslitin miklu lífi í mótið og það verður virkilega skemmtilegt að fylgjast því sem á eftir kemur...............
12.5.2012 | 13:26
KAPPAKSTURINN Á MORGUN VERÐUR ATHYGLISVERÐUR.................
Ráslínan er MJÖG óvenjuleg og mörgum finnst frekar skrítið að hvorki Webber eða Button skyldu komast í síðasta hluta tímatökunnar. Annars verð ég nú að segja að ég held ég hafi bara aldrei sé tímatöku sem var jafn hundhelvíti leiðinleg og þessi í dag..................
![]() |
Hamilton á ráspól í óvenjulegum tímatökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2012 | 12:45
ÞAÐ VAR VITAÐ AÐ VETTEL MYNDI EKKI VERA ÁHORFANDI Í BAREIN..........
Þó að yfirburðirnir séu ekki eins og í fyrra þá hefur hann ekkert yfirgefið brautina. Það gagnast Rosberg ekkert að setja góðan tíma á æfingu það er tímatakan og síðast en ekki síst er það keppnin sjálf sem skipta máli og þar var Vettel sterkastur og að eins munaði hársbreidd að liðsfélagi hans yrði næstur en Hamilton náði að skjótast í annað sætið svo Webber varð að sætta sig við þriðja sætið. En á sem mesta athygli hefur vakið í byrjun keppnistímabilsins er Sauber ökuþórinn Sergio Perez og þrátt fyrir að bíllinn sé alls ekki í neinum sérflokki er alveg ótrúlegt hvað strákurinn hefur náð miklu út úr honum og það hefur heyrst að mörg "stóru" liðin séu farin að horfa til hans.............
![]() |
Rosberg á besta tíma dagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2012 | 09:24
JÚ, HANN STÓÐST ÁLAGIÐ
Og það verður ekki tekið af honum að aksturinn hjá honum í þessari keppni i var óaðfinnanlegur. Það er virkilega góð tilfinning að vera í þeirri stöðu, sem hann var í undir lokin, hvort ætti að taka áhættuna af því að skipta um dekk eða hafa þau "gömlu" undir til loka og vinna kappaksturinn hvort sem væri gert. En sá sem olli mestum vonbrigðum var tvímælalaust Raikkonen að falla úr öðru sæti niður í það 14 hlýtur að vera heimsmet eða í það minnsta að höggva mjög nálægt því. Ég verð nú að viðurkenna að þegar bíllinn hjá Webber tókst á loft að framan, um miðbik keppninnar, fór nokkuð mikið um mig. En baráttan um sætin á eftir Rosberg var svakaleg og ég bara man ekki eftir svona miklum sviptingum.
![]() |
Rosberg sigrar - styrjöld um önnur sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2012 | 09:47
ÆTLI HANN ÞOLI ÁLAGIÐ???????
Þetta segi ég vegna þess að hann hefur oftast byrjað hverja einustu keppni með látum og gengið rosalega vel í byrjum, en svo undir miðbik hverrar keppni fer hann að "slá af" og missir hvern af öðrum fram úr sér. Það er náttúrulega sláandi að maðurinn er ekki kominn með eitt einasta stig á þessari keppnistíð, þrátt fyrir það að bíllinn er mjög góður og ekki er hægt að segja að hann hafi lent í neinum stóráföllum eins og liðsfélagi hans.................
![]() |
Rosberg í fyrsta sinn á ráspól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2012 | 18:00
ÞETTA HEFUR VERIÐ HANS SAGA Í GEGNUM FERILINN.................
Hann hefur náð mjög góðum tíma á æfingum og tímatökum en því miður hefur honum ekki tekist að fylgja þessum árangri eftir í keppnum. Það virðist hafa loðað nokkuð við hann að hann hafi ofkeyrt bílinn í keppni (virðist ekki gera sér alveg grein fyrir hvar takmörk bílsins eru). En vonandi áttar þessi frábæri ökumaður sig og nær tökum á þessu sporti...............
![]() |
Räikkönen hraðskreiðastur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |