Færsluflokkur: Formúla 1

MJÖG FÁTT SEM ÓGNAR HONUM.......................................

Hann er yfirburða ökumaður í formúlunni í dag og með bíl sem hæfir honum fullkomlega.  Webber hefur ekki sýnt þennan yfirburða stöðugleika, þrátt fyrir að hafa samskonar bíl þetta sýnir bara yfirburði Vettels á ökumannssviðinu.  En frétt vikunnar hlýtur að vera sá orðrómur að Raikkonen eigi í viðræðum við Williamsliðið, þess efnis að hann komi til með að keyra fyrir liðið á næsta ári.  Verði þetta að raunveruleika, er hætt við að dagar Rubens Barrichello, hjá liðinu og jafnvel í formúlunni séu taldir.  Barrichello er jú búinn að vera 19 ár í formúlunni (að loknu þessu tímabili) og að mínu áliti, held ég að liðið komi frekar til með að halda í Maldinato (sem er nýliði í formúlunni og hefur staðið sig ágætlega) hann á aðeins eftir að "hlaupa af sér hornin".  En það verður vissulega áhugavert að fylgjast með ef Raikkonen kemur aftur...........
mbl.is Vettel heldur sínu striki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BUTTON ER BETRI ÖKUMAÐUR EN HAMILTON............................

Þetta er ekki nokkur spurning og sýndi sig svo um munar á Monza kappakstrinum.  Hamilton átti í miklu basli með Schumacher, má segja stóran hluta keppninnar og á köflum var unun á að horfa hversu vel Schumacher tókst að verjast atlögum Hamiltons reyndar var það einu sinni á "gráu" svæði sem vörnin var en dómarar keppninnar gerðu engar athugasemdir við atvikið.  En til baka til Buttons og Hamiltons, Button átti ekki í miklum erfiðleikum með að fara framúr Schumacher og þó er hann á alveg samskonar bíl og Hamilton, en greinilega gengur honum bara mun betur að hafa stjórn á bílnum.  Ekki má kannski gleyma því að Hamilton hefur gerst sekur um nokkur heimskuleg mistök á þessari formúluvertíð og kannski hefur það einhver áhrif á frammistöðu hans en heilt yfir hefur Button staðið honum framar hans akstur er jafnari.
mbl.is Vettel ósnertanlegur í Monza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"DRIVER OF THE DAY"..........................................

Ekki spurning að Michael Scumacher var ökumaður dagsins.  Hann var 24 á ráslínunni, eftir að afturhjól losnaði af bílnum í fyrstu umferð tímatökunnar í gær og varð til þess að hann gat ekki sett einn einasta tíma í gær, samt sem áður endaði hann í fimmta sæti í kappakstrinum í dag.  Að hækka sig um 19 sæti er árangur sem er alveg með ólíkindum og svona lagað gera bara afburðamenn.  Þá er árangur Jensons Buttons alveg stórkostlegur hann var í 13 sæti á ráslínu og klárar í 3 sæti.  Öll dekkjastoppin hjá honum og dekkjavalið var fullkomið og svo er hann þekktur fyrir sinn "mjúka" akstursstíl þannig að hann heldur góðu lífi í dekkjunum allan tímann.  Enn einu sinni olli Nico Rosberg mér miklum vonbrigðum.  Hann átti frábært start, hann komst létt í annað sætið og strax á öðrum hring náði hann forustunni en reyndar var hann bara í fyrsta sæti í tvo eða þrjá hringi þegar Vettel tókst að endurheimta sætið.  Svo fór smám saman að síga á ógæfuhliðina hjá honum þegar þeir fóru hver af öðrum framúr honum og hámark niðurlægingarinnar fyrir hann var þegar liðsfélagi hans Michael Scumacher fór framúr honum, maðurinn sem hóf keppni í 24 sæti.  Það virðist vera að þrátt fyrir það að Rosberg sé góður ökumaður þá vanti hann úthald svo hann geti haldið út heila keppni.  Vinni hann ekki í úthaldinu verður hann aldrei annað en meðal ökumaður.  Enn heldur Lewis Hamilton áfram að gera sig sekan um heimskuleg mistök og þessi kostuðu hann keppnina ef hann hefði verið eins og maður hefði hann að minnsta kosti endað í þriðja sæti ef ekki ofar.  Hann verður að fara að laga til í hausnum á sér til þess að hann verði alltaf þar sem hann á að vera á TOPPNUM..............
mbl.is Léttur sjöundi sigur hjá Vettel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FLOTT AÐ VINNA SINN 200 KAPPAKSTUR...................................

Til hamingju Button.  Þetta voru alveg kjöraðstæður fyrir hann það virðist vera að þar sem skiptist á skin og skúrirsé þar sem hann er bestur og honum gangi fullkomlega að vinna úr þessu.  En frammistaða Rosbergs olli mér enn eina ferðina vonbrigðum, ég sá ekki hvað gerðist en hann virðist  hafa tapað TVEIMUR sætum síðustu tvo hringina, sem útaf fyrir sig er afrek.
mbl.is Button ánægður með þriðja sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ ER ÞAÐ Á HREINU...................

Þrátt fyrir kjaftasögur en það fór ekki hátt þegar ákveðið var að skipta Jarno Trulli út fyrir Karun Chandhok hjá Lotus-liðinu og það strax í Þýskalandskappakstrinum um næstu helgi.
mbl.is Massa áfram hjá Ferrari 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

WEBBER ER BARA ÞAÐ SEM KALLAST Á GÓÐU MÁLI "BAD LOOSER"..............

Hann getur ekki tekið því með góðu að hafa orðið "undir" í baráttunni um að verða ökumaður liðsins númer eitt.  Það er sama hversu góður ökumaðurinn er það þarf að hafa hagsmuni liðsins í huga.  Webber gerir það ekki eða réttara sagt, þá er ekki að sjá af því hvernig hann hefur hagað sér undanfarið, að hann hafi hagsmuni liðsins í huga.  Hann hefur t.d lýst því yfir, í viðtali við BBC, að "sigurfingur" Vettels fari í taugarnar á honum, en það er ekkert leyndarmál að þeim kemur ekkert mjög vel saman.   Þeir eru ekki á jólakortalistanum hvor hjá öðrum.  Vonandi tekst Christian Horner eitthvað að lægja öldurnar.  Ég tel það vera bara tímaspursmál hvenær Webber fer frá Red Bull......
mbl.is Horner argur í garð Webber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERFIÐAR AÐSTÆÐUR - SKEMMTILEG TÍMATAKA........................

Vegna rigningar náðu ökumenn ekki nema einum almennilegum tímatökuhring í þriðju lotu tímatökunnar en ég er örugglega ekki einn um það að vilja sjá að Rosberg kláraði tilraun tvö í Q3 en aksturinn hjá honum þar var alveg magnaður.  En tíðindi dagsins hljóta að vera sjötta sætið hjá Paul Di Resta en sá drengur hefur sko heldur betur fest sig í sessi á sinni fyrstu vertíð í formúlunni og nokkuð víst að hann á eftir að láta að sér kveða.
mbl.is Webber vann ráspólinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VETTEL ER BARA SNILLINGUR..................................

Að sjá aksturinn hjá honum í dag var ekkert annað en SNILLD.  Hann virtist bara gera það sem hann þurfti til að VINNA.  Það er langt síðan annað eins sjálfstraust hefur sést hjá nokkrum manni á kappakstursbrautinni, ég man ekki eftir öðru eins síðan Schumacher var upp á sitt besta.  Svo virtist Alonso ná öllu út úr bílnum sem hægt var en það má segja að það hafi verið honum til happs að gírkassinn var að stríða Webber þarna í restina á keppninni.
mbl.is Vettel einráður - Alonso sækir á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HAUSINN Á HONUM ER EKKI ALVEG Í LAGI...............

En hann má eiga það að hann er góður ökumaður en hann virðist þola mótlæti afskaplega illa og virðist ekki heldur gera sér alveg grein fyrir hvað er í lagi að gera og hvað ekki til að koma sér í betri stöðu á brautinni.............
mbl.is Lauda vill Hamilton í bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ HLÝTUR AÐ VERÐA SKOÐAÐ HVORT MÓNAKÓ KAPPAKSTURINN VERÐI EKKI TEKINN ÚT ÚR FORMÚLUKEPPNINNI.............

Þessi braut ekki boðleg, brautin er stórhættuleg hún er svo þröng að augnabliks einbeitingarskortur hefur þau áhrif að ökumaðurinn missir stjórn á bílnum og fer í vegriðin meðfram brautinni með skelfilegum afleiðingum eins og við sáum áðan hjá Sergio Perez og gerðist á sama stað hjá Nico Rosberg á æfingu í morgun.  Á þessum sama stað man ég í fljótu bragði eftir FIMM alvarlegum slysum, sem betur fer eru bílarnir orðnir svo öruggir að ekki hafa orðið alvarleg slys á mönnum, Perez var mjög lánsamur að sleppa aðeins með skrámur og Rosberg var ótrúlega heppinn og að liðið hans skyldi ná að gera bílinn kláran fyrir tímatökuna er allt að því kraftaverk.  EN EFTIR DAGINN Í DAG HLÝTUR FRAMTÍÐ MÓNAKÓKAPPAKSTURSINS AÐ VERÐA TEKIN TIL ENDURSKOÐUNAReitt er víst að ekki myndi ég sakna hans mikið þetta er lítið annað en glamúr og sýndarmennska og að mínu viti hefur hann ENGA þýðingu fyrir formúluna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband