Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

SKYLDU KANARNIR VERA BÚNIR AÐ SJÁ AÐ ÞAÐ VORU STÓR MISTÖK AÐ FARA HÉÐAN???????

Á sínum tíma var það nokkuð klárt að við áttum ekkert upp á pallborðið hjá Bandaríkjamönnumog eitthvað hefur Bush ríkisstjórnin hlaupið á sig og er þá framganga Rumsfields sérstaklega furðuleg.  En kannski erum við bara að sjá fram á það að Bandaríkjamenn séu að koma aftur en hlutirnir verða ekki eins og ekkert hafi gerst..........


mbl.is Bandaríkjaher skoðar mannvirki á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERÐUR HANN BJARGVÆTTUR ÞJÓÐARINNAR EINU SINNI ENN?????

Hann er svo sem ekki óvanur því að þurfa að "taka til", þar sem handónýtir stjórnmálamenn eru búnir að klúðra málum.  Nægir að nefna til Ices(L)ave, það liggur við að það hafi verið fullt starf fyrir hann í langan tíma að koma því í rétt horf á síðasta kjörtímabili.  Og geti hann "lagað eitthvað til eftir" Gunnar Braga líka, er þessi maður orðinn þjóðinni ómetanlegur........... 


mbl.is Forsetinn ræðir við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÁRRÉTT - EN BARA OF SEINT ATHUGAÐ

Síðast þegar ég vissi þá var Ísland sjálfstætt ríki og þar af leiðandi ætti það að vera með sjálfstæða utanríkisstefnu.  En Skagfirðingurinn sjálfumglaði skipaði ESB-dindil sem ráðuneytisstjóra og virðist fara í einu og öllu eftir því sem ráðuneytisstjórinn segir honum og eitt af því var að það ætti skilyrðislaust að styðja þvingunaraðgerðir ESB gegn Rússum.  Ráðuneytisstjóranum tókst, sem betur fer ekki, að INNLIMA Ísland í ESB, þegar hann var formaður INNLIMUNARNEFNDAR Össurar.  Nú er búið að "planta" honum í Utanríkisráðuneytið, þar sem hann er einskonar "Trójuhestur" INNLIMUNARSINNA.  Eitthvað eru nú skiptar skoðanir um það hvort fjallað hafi verið um málið í ríkisstjórn og er það krafa að rannsókn fari fram á þessu klúðri öllu saman og verði Utanríkisráðherra og ráðuneytisstjórinn látnir bera fulla ábyrgð, komi í ljós að ekki hafi verið staðið rétt að málum.....


mbl.is Bjarni: Efasemdir um þvinganirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEIMSBYGGÐINNI STAFAR SÍÐUR EN SVO MEIRI HÆTTA AF RÚSSLANDI EN BANDARÍKJUNUM OG ESB

Eða eru tilburðir ESB (Þjóðverja), til stofnunar "þúsund ára ríkisins" það lymskulegir og vel faldir að einfeldningarnir, sem í daglegu tali nefnast INNLIMUNARSINNAR, eru ekki enn búnir að átta sig á því hvað er í gangi???


mbl.is Sakar ráðherra um heimsku og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVONA FER ÞEGAR ESB-DINDLAR STJÓRNA Í UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU

 

Ráðuneytisstjórinn í Utanríkisráðuneytinu "lét" Utanríkisráðherra Íslands elta ESB og styðja þvingunaraðgerðirnar gegn Rússum.  Utanríkisráðherrann vildi fá fund með Lavrov, þegar allt var komið í óefni. "Hefur maðurinn aldrei heyrt máltækið þess efnis að of seint sé að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofaní" eða að of seint sé að fara á klósettið þegar búið er að skíta í buxurnar?  Liggur ekki bara beint við að ESB kaupi makrílinn af okkur og aðra vöru sem annars hefði farið til Rússlands?


mbl.is Rússar banna innflutning frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ELTINGALEIKURINN VIÐ ESB ÆTLAR AÐ VERÐA OKKUR DÝRKEYPTUR

Það er full ástæða til að við losnum við þennan vingul úr Utanríkisráðuneytinu og fáum þar inn mann sem er með bein í nefinu.  Utanríkismálin eiga ekki að vera einhver afgangsstærð og það verður að vanda valið á þeim manni sem fer þar með húsbóndavaldið.


mbl.is Funduðu með hagsmunaaðilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STJÓRNAR RÁÐUNEYTISSTJÓRINN Í UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU UTANRÍKISSTEFNUNNI?????

Og gerir Utanríkisráðherrann bara það sem honum er sagt og geltir kannski bara þegar honum er sigað????  En svo væri gaman að vita hvernig Utanríkismálanefnd ætlar að "bæta" skaðann sem útflutningsfyrirtæki verða fyrir vegna fyrirhugaðs viðskiptabanns Rússa?Hefur nefndin einhverja heimild frá alþingi til  að veita einhverjum milljörðum til aðstoðar þessum útflytjendum?


mbl.is Styðja áfram refsiaðgerðir gegn Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

UTANRÍKISRÁÐHERRA ÍSLANDS ELTIR ESB EINS OG ÞÆGUR HUNDUR

Þessi maður hefur sýnt það og sannað, að hann er með öllu vanhæfur til að gæta hagsmuna lands og þjóðar á nokkurn hátt og virðist ekki nokkru máli skipta hverjir þessir hagsmun hagsmunir eru honum tekst að klúðra öllu.  Samanber ESB INNLIMUNARUMSÓKNIN.  Ég geri það að tillögu minni að hann segi STRAX af sér og Frosti Sigurjónsson taki við embætti hans.  Utanríkisráðuneytið á ekki að vera einhver afgangsstærð..


mbl.is Vanhugsuð þátttaka í viðskiptabanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐA ÁSTÆÐU HEFUR ÍSLAND TIL AÐ STYÐJA AÐGERÐIR ESB????

Enn stöndum við utan ESB, sem betur fer þrátt fyrir mikinn áróður og ósvífna lygi INNLIMUNARSINNA og attaníossa ESB.  ESB hefur beitt okkur viðskiptaþvingunum og það átti að neyða okkur til að ganga að Ices(L)ave (sem betur fer var það stöðvað á síðustu stundu).  En svo sýna Íslendingar (Gunnar Bragi) þann aumingjaskap og undirlægjuhátt að kyssa á vöndinn og elta ESB í þeirra valdaráni og drottnunargirnd og styðjum aðgerðir ESB gegn Rússum.  Eina sem ESB-klíkan hefur fyrir sér gegn Rússum er innlimun Krímskaga undir Rússa, annað eru óstaðfestar sögusagnir komnar frá leppstjórn ESB í Kiev.  Síðan hvenær hafa sögur frá Gróu á Leiti haft svona sterk áhrif á utanríkisstefnu Íslands?????


mbl.is Hætti að styðja viðskiptabann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VIRÐIST EINHVER "NATO-GRÝLA" VERA AÐ HRJÁ VG .....

Þetta lið verður að fara að leita sér hjálpar, annars verður þetta sí og æ að valda þeim hugarangri og að lokum getur farið svo að þessi "grýla" verði þeim bara ofviða.........


mbl.is Vill funda um aðgerðir Tyrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband