Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

ÞVÍ ÆTTI AÐ VEITA HONUM SAKARUPPGJÖF FREKAR EN ÖÐRUM GLÆPAMÖNNUM?????

Maðurinn STAL þeim gögnum, sem hann svo lak til fjölmiðla og þjófum ber að refsa.  Hans þjófnaður er ekkert frábrugðinn öðrum......


mbl.is Snowden fær ekki sakaruppgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENDA ER EKKERT RÍKI TIL SEM HEITIR PALESTÍNA OG HEFUR ALDREI VERIÐ TIL

Það er bara hið besta mál að ekki skuli vera munað eftir þessu rugli sem vinstrimenn á Íslandi ætluðu að slá sig til riddara með.................
mbl.is Gleymt útspil Íslands?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER ERU EIGINLEGA RÖKIN FYRIR VIÐSKIPTAÞVINGUNUM Á ÍSRAEL?

Það sem hefur helst verið öllu þessu til trafala er að menn ræða þessi málefni meira á tilfinningalegum nótum heldur en að beita málefnalegum rökum.  Hver er munurinn á tilfinningalegum rökum og málefnalegum rökum?  Jú, sá munur er nokkuð stór.  Um leið og þú ferð að ræða mál út frá tilfinningum þínum, til þess, ert þú búin(n)að missa sjónar á málefnalegum þætti málsins og ferð að halda fram hlutum sem ÞÉR finnst að eigi við í þessu máli.  Þegar ég fylgist með umræðum í þinginu, er þetta ótrúlega oft raunin, þegar rædd eru hin ýmsu mál.  Þetta er sérstaklega áberandi hjá þingmönnum sem hafa lagt í vana sinn að "steyta" hnefa út í loftið og leggja þannig áherslu á mál sitt og líka þeim sem hafa reynt að lítillækka aðra í ræðum sínum.  Ég nefni engin nöfn en flestir hljóta að vita við hverja er átt.
mbl.is Beitir sér ekki fyrir þvingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VORU MENN AÐ ÁTTA SIG Á ÞVÍ Í GÆR AÐ VIÐSKIPTAÞVINGANIR GETA VERIÐ TVÍEGGJAÐ VOPN????

Auðvitað ætti ekki að koma neinum á óvart þótt þeir sem eru beittir viðskiptaþvingunum, kaupi ekki vörur frá þeim ríkjum , sem beita viðskiptaþvingununum ÞAÐ ER BARA AUGLJÓST..............
mbl.is Ísland ekki á bannlista Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSLAND Í DAG - HAMAS TEYGIR ANGA SÍNA TIL ÍSLANDS..............

Það var nokkuð fróðlegt að fylgjast með samantekt Hjartar Hjartarsonar á átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs, í þættinum Ísland í dag á stöð2, þótt þessi samantekt væri nokkuð "lituð".  En mesta athygli vakti viðtal Heimis Más Péturssonar við formann samtakanna Ísland - Palestína, Svein Rúnar Hauksson.  Þar allt að því viðurkenndi Sveinn Rúnar að samtökin Ísland - Palestína VÆRU Í NÁNU SAMBANDI VIÐ HAMAS.  Hann vildi ekki viðurkenna að Hamas væru hryðjuverkasamtök, þvert á það sem við vitum.  Af þessu er alls ekki óeðlilegt að áætla það að Hamas samtökin "noti" samtökin Ísland - Palestína til að koma áróðri sínum á framfæri hér á Íslandi og þessi samtök "noti" síðan LANDRÁÐAFYLKINGUNA til að gera boðskapinn enn virkari.....................
mbl.is Funda vegna ástandsins á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EIGUM VIÐ EKKI AÐ KREFJAST ALÞJÓÐLEGRAR VERNDUNAR HRYÐJUVERKASAMTAKA????

Stærsti munurinn í þessum átökum er sá að Ísraelsmenn veita almennum borgurum sínum vernd, með loftvarnakerfum sínum en þar er helsta skýring þess að svo "fáir" Ísraelsmenn hafa fallið en aftur á móti "notar" Hamas almenna borgara til að "vernda" sín flugskeyti, sem þeim þykir best að staðsetja við skóla, sjúkrahús og moskur, svo mannfallið verði enn meira og þeir geti sent sem "best" myndefni til Vestrænna fréttastöðva.  Ef Ísraelsmenn gerðu hluta af því sem Hamas samtökin gera í sínum stríðsrekstri væri talað um stríðsglæpi og mannréttindabrot, en fyrst það eru Palestínumenn  sem gera hlutina er horft framhjá því og ekkert sagt.  Væri ekki ráð að velta því fyrir sér hvað varð til að hrinda þessari atburðarás af stað?  Upphaflega var ÞREMUR Ísraelskum unglingum rænt, þeir voru pyntaðir og síðan drepnir, líkunum var hent út í skurð.  Enginn var handtekinn og dæmdur fyrir þetta ódæði.  Nokkrum dögum síðar var Palestínskum unglingi rænt, hann var pyntaður og síðan brenndur lifandi.  Þrír menn voru handteknir og dæmdir fyrir þennan hræðilega verknað.  Eftir að þessir aðilar voru dæmdir, var birt á sjónvarpsstöðvum um allan heim og líka á Íslandi, myndbrot af föður Palestínska piltsins, sem sagði þar að ekki væri nóg að refsa gerendunum heldur yrði öll Ísraelska þjóðin að gjalda fyrir verknaðinnVERÐUR EKKI ÞAÐ NÆSTA AÐ KREFJAST ÞESS AÐ HAMAS FÁI AÐ VINNA SÍN HRYÐJUVERK Í FRIÐI???  Svo geta samtökin Ísland - Palestína farið að senda Hamas samtökunum rakettur til að senda frá Gaza yfir til Ísrael..................
mbl.is „Krefjumst frjálsrar Palestínu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER BARA EIN LAUSN TIL Á MÁLINU - AÐ ÞEIRRA MATI..........

En það er að útrýma Ísrael, sem aftur þýðir að það er ekkert inni í myndinni að semja, svo það geti orðið einhver friður á svæðinu.  Hamas er nokkuð sama um líf nokkur hundruða almennra borgara.......


mbl.is Kerry segir Hamas þrjóskast við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á EKKI AÐ HALDA FLEIRI ÚTIFUNDI - TIL STUÐNINGS PALESTÍNUMÖNNUM?????

Fer mönnum ekki að skiljast það að Palestínumenn eiga ENGU MINNI sök á ástandinu en Ísraelsmenn.  Það er nokkuð ljóst að það voru ekki Ísraelsmenn sem rufu vopnahléið.  Kannski vantaði Palestínumenn (Hamas) örlítið meiri samúð frá Vesturlöndum og fleiri hjartnæmar sögur af hörmungum almennings á Gaza til að lepja í Vestræna fjölmiðla??????
mbl.is Árás frá Gaza í miðju vopnahléi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSRAELSKIR BORGARAR NJÓTA VERNDAR - PALESTÍNUMENN EKKI......

Í því liggur munurinn og vegna þess að enginn Ísraelsmaður lætur lífið í loftárásum Palestínumann, vegna þess að Ísraelsher hefur komið sér upp öflugu loftvarnarkerfi, en aftur á móti er Hamas nokkuð sama um borgarana og vilja bara fá "samúð" frá Vesturveldunum þá falla óbreyttir borgarar og umleið eru það Ísraelsmenn sem eru orðnir vondi kallinn í átökunum.  Og ég er alls ekki sá eini sem sé málið svona. 
mbl.is „En við erum fórnarlömbin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN EIGA PALESTÍNUMENN EKKI AÐ STÖÐVA LOFTÁRÁSIR SÍNAR Á ÍSRAELSKAR BORGIR????

Það virðist oft gleymast að sökin á ófriði milli tveggja aðila er mjög sjaldan bara hjá öðrum aðilanum.  Þessar loftárásir Ísraelsmanna á Gazasvæðið eru SVAR við loftárásum Palestínumanna á Ísraelskar borgir.  Er það sök Ísraelsmann að þessar loftárásir Palestínumanna hafa EKKI valdið manntjóni??  Fréttaflutningur vestrænna fjölmiðla af þessum átökum er ansi einhliða, svo ekki sé nú fastar að orði kveðið.............
mbl.is Fordæmir ofbeldi Ísraela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband