Færsluflokkur: Fjölmiðlar

FJÖLMIÐLARNIR HALDA "LÍFINU" Í ÞESSUM HRYÐJUVERKASAMTÖKUM....

Með því að vera að fjalla um þau.  Síðan hvenær er það þeirra hlutverk að "fylgjast" með hvalveiðum á Íslandi og hver hefur eiginlega beðið þau um það?  Eru það "samfélagslega nauðsynlegar fréttir" að landsmenn geti fylgst með þessu liði og í hverra þágu eru þessar "fréttir"??????????


mbl.is Sea Shepherd fylgist með hvalveiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍÞRÓTTAFRÉTTAMENN ÞYRFTU AÐ LÁTA LESA YFIR TEXTA ÁÐUR EN ÞEIR SEND SVONA "AMBÖGUR" FRÁ SÉR

Auðvitað "BJÁTAR" ekkert á í íþróttahöll, sem ekki hefur risið.  Sögnin "að eitthvað bjáti á" ber það alveg með sér og þýðir að eitthvað sé að, en þarna hefur sennilega átt að standa "AÐ EKKERT BÓLI Á NÝRRI ÞJÓÐARHÖLL". En væri ekki ráð að þetta lið tæki nokkra tíma í Íslensku????????


mbl.is Danir furða sig á stöðunni á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GREINILEGA HAFA MENN EKKERT LÆRT AF "KSÍ-FARSANUM OG ÖÐRUM FÖRSUM" SEM HAFA GENGIÐ EINS OG ELDUR Í SINU UM ÞJÓÐFÉLAGIÐ........

Ég er svo sem ekki að rengja orð þessarar stúlku eða bera í bætifláka fyrir þá menn sem verða fyrir þessum ásökunum, en þarna eru kjaftasögur og einhver "podkastþáttur", sem í raun hefur ekkert gildi, látin duga til að  til að draga menn niður í svaðið.  HEFÐI EKKI VERIÐ NÆR, EF EITTHVAÐ ER HÆFT Í ÞESSUM ÁSÖKUNUM, AÐ FARA BARA "RÉTTA LEIÐ" MEÐ ÞETTA MÁL OG KÆRA TIL  LÖGREGLU OG ÞEGAR ÚRSKURÐUR ER KOMINN Í MÁLIÐ AÐ FARA ÞÁ MEÐ ÞAÐ Í FJÖLMIÐLA?  En kannski finnst þessari manneskju þetta vera einfaldari leið fyrir sig?  ENN ENN EINU SINNI ERU FJÖLMIÐLAR AÐ FÁ FALLEINKUNN FYRIR VINNUBRÖGÐ SÍN........


mbl.is Hreggviður stígur til hliðar vegna ásakana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER AKKÚRAT Í HANS STÍL.......

Ekki það að ég hafi reiknað með einhverju miklu eða neinu öðru en skítkasti og "sorpblaðamennsku" frá þessum manni, reyndar var ég kominn nokkuð langt með það að gleyma því að hann væri til en hann er eins og kúkur sem ekki sturtast niður.  En það er nú einu sinni þannig að fjölmiðlar virðast hafa einhverja þörf fyrir að halda vissum persónum í "kastljósinu", kannski selur bullið í þessum mönnum??????????????


mbl.is Þórólfur verði „vondi kallinn“ í stað Willums
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEIR TAKA BARA "MARTEIN MOSDAL" Á ÞETTA...........

Það á bara að samþykkja EINA SKOÐUN Á MÁLINU annað "fær ekki inni".  Er ekki verið að þrengja nokkuð mikið að málfrelsinu, tjáningarfrelsinu og almennum mannréttindum? OG HVER ÁKVEÐUR HVORT UM SAMSÆRISKENNINGAR ER AÐ RÆÐA EÐA EKKI???????


mbl.is YouTube fjarlægir milljón myndbönd um Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALVEG STÓRKOSTLEG Í SÍNU STARFI HJÁ MORGUNBLAÐINU............

Það finnst kannski einhverjum það vera óréttlátt hjá mér en mér finnst að þarna "hafi góður biti farið í hundskjaft".  Eitt er víst að þarna fór góður starfsmaður af Morgunblaðinu og ég sé það ekki fyrir mér að RÚV hafi nokkurn möguleika á því að veita henni það starf sem hún á skilið........


mbl.is Guðrún ráðin til RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER MINNIMÁTTARKENNDIN ALVEG AÐ GANGA FRÁ MÖNNUM?????????

Það var akkúrat ekkert "Íslenskt" við þennan sigur, ÞAÐ VILL BARA SVO TIL AÐ ÞAÐ ER ÍSLENDINGUR AÐ ÞJÁLFA NORSKA LANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA KVENNA Í NOREGI OG ÞÆR UNNU SINN LEIK, EN SIGURINN ER EKKI ÍSLENSKUR.  Væri ekki ráð að fara bara að skrifa "RÉTTAR" fréttir og seppa þessari fjandans minnimáttarkennd, sem virðist tröllríða fjölmiðlunum algjörlega?  ER ÞETTA EKKI KALLAÐ AÐ SKREYTA SIG MEÐ STOLNUM FJÖÐRUM???????


mbl.is Fyrsti íslenski sigurinn í Tókýó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

METNAÐARLEYSI FJÖLMIÐLA Á ÍSLANDI OG ÞÁ SÉRSTAKLEGA RÚV, GAGNVART MÁLINU ER ALGJÖRT.....

Staða Íslenskunnar er alveg skelfileg og hér hafa fjölmiðlarnir verið þeir ALLRA VERSTU í því að halda Íslenskunni á lofti það er engu líkara en að þeir skammist sín fyrir Íslenska tungu.  Dæmi um þetta, var viðtal við mann sem hafði flutt hingað til lands FYRIR 20 ÁRUM SÍÐAN OG VAR ÞAR AÐ AUKI KVÆNTUR ÍSLENSKRI KONU, VAR Í VIÐTALI Í ÞÆTTINUM "MEÐ OKKAR AUGUM" Á RÚV OG VITI MENN VIÐTALIÐ FÓR FRAM Á ENSKU.  Hefur maðurinn ekki getað lært Íslensku á 20 árum og hvernig er það eiginlega var ekki nokkur manneskja, sem umgekkst manninn í þessi 20 ár þess megnug að kenna manninum Íslensku og hvað með konuna hans?  Nú horfi ég töluvert mikið á Norska sjónvarpið (NRK 1), þegar er viðtal við erlent fólk sem er búsett í Noregi, FER VIÐTALIÐ ALLTAF FRAM Á NORSKU og ef viðkomandi talar mjög bjagaða Norsku ER VIÐTALIÐ BARA TEXTAÐ.  Reyndar hef ég ekki fylgst með öðrum Norðurlandasjónvarpsstöðvum og get því ekki tjáð mig um það.  ÍSLENSKIR FJÖLMIÐLA ÆTTU Í ÞESSU TILFELLI AÐ FARA AÐ FORDÆMI NORÐMANNA Í ÞESSUM MÁLUM. Það ætti nú ekki að vera mikið mál að bæta úr þessu og ætti Menntamálaráðherra ekki einfaldlega ekki að fyrirskipa RÚV að gera lagfæringar á þessu og koma með þau TILMÆLI til annarra fjölmiða að þeir breyti þessu......

 


ER EKKI VERIÐ AÐ VEKJA UPP ÓÞARFA ÁHYGGJUR HJÁ GRINDVÍKINGUM?????

Eru þeir ekki búnir að upplifa mikið meira en nóg, ekki bara á þessu ári heldur því síðasta líka?  Auðvitað er ágætt að hafa gát á öllum möguleikum opnum en það er óþarfi að hlaupa með alla hugsanlega möguleika á gosi í fjölmiðla, án þess að geta þess um leið að þessi möguleiki KOMI SÍST TIL GREINA AF ÞEIM SVIÐSMYNDUM SEM KOMA TIL GREINA.  Almannavarnir hljóta að gera áætlanir um rýmingu bæjarins, miðað við ALLAR þessar sviðsmyndir og það er bara óþarfi að allt komi fram í fjölmiðlum.......


mbl.is Eldgos æ líklegra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÁ GETA ÞEIR ALVEG EINS LAGT FRÉTTADEILDINA NIÐUR STRAX...........

Og farið að gera ráðstafanir til að leggja fyrirtækið niður og stöðva starfsemina alveg.  Það er hætt við því að ekki hafi verið hugsað alveg til enda þegar þessi ákvörðun var tekin.................


mbl.is Fréttir Stöðvar 2 aðeins aðgengilegar áskrifendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband