Færsluflokkur: Samgöngur

JÆJA, ÞÁ FER FERÐAMANNAVERTÍÐIN AF STAÐ Í EYJUM .

Og ætti að geta staðið þar til um miðjan október en ætli Herjólfur ætti ekki að geta siglt í Landeyjahöfn þann tíma, ef veður og vindar verða hagstæðir??????


mbl.is Loksins siglt til Landeyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER EKKI EINLEIKIN ÞRÁKELKNIN HJÁ MÖNNUM VIÐ ÞESSA HÖFN - ÞAÐ VIRÐIST VERA SAMA HVAÐ ÞAÐ KOSTAR HÚN SKAL OPNUÐ

Það er ekki nóg með að höfnin sé að fyllast af sandi, heldur vildi ég benda á nokkuð augljóst dæmi, sem virðist eiga sér stað í Landeyjahöfn núna.  Þegar nýbúið var að gera hafnargarðana heyrði það til undantekningar að það gengi sjór yfir þá í slæmum veðrum en til þess þurfti að vera MJÖG mikið brim og um leið stór straumur - en nú er öldin önnur þetta orðið mjög algengt og sums stað gengur "óbrotið" yfir þá og á minnsta kosti á einum stað er komið skarð í garðinn (einhver sagði að það væri siðrof) en ég hef hvergi séð minnst á það neins staðar að þeir hafi LÆKKAÐEkki ætla ég að sverja fyrir það en það er mín tilfinning að garðarnir hafi "sigið " í sandinn og hvernig hyggjast sérfræðingarnir" bregðast við því?  Mér hefur sýnst að hlutir séu yfirleitt nokkuð fljótir að "hverfa" í sandinn þarna........


mbl.is Landeyjahöfn enn ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ANDVANA FÆTT VERKEFNI

Er virkilega einhver svo skyni skroppinn að halda að það geti einhvern tíma í framtíðinni orðið hagkvæmt að reka svona lagað???  Menn hljóta að gera sér grein fyrir því að þessir "hagkvæmnisútreikningar", sem hafa verið gerðir, eru  hagstæðir vegna þess að "forsendurnar", sem voru notaðar voru, eru ÓRAUNHÆFARÆtli Runólfur Ágústsson kaupi hlutafé í þessu?  Það er ágætis mælikvarði á það hvort hlutir eru raunhæfir eða ekki ef forsvarsmenn hugmyndarinnar eru tilbúnir að setja EIGIÐ FÉ í þær ætti að vera óhætt að fjárfesta í þeim annars ekki.


mbl.is Skrifuðu undir samning um fluglest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ Á AÐ HALDA ÁFRAM AÐ BERJA HAUSNUM Í STEININN

Þetta er orðið að ÞRÁHYGGJU hjá einhverjum að halda þessum sandkassa opnum.  Þeir sem hafa fylgst með þessum vandræðagangi frá upphafi, hafa örugglega tekið eftir því að alltaf verður meira mál og erfiðara að gera höfnina "færa" með hverju árinu sem líður.  Ástæðan er einföld það safnast alltaf meiri og meiri sandur fyrir í höfninni og endar svo með því að hún fyllist alveg.  Að vera að dæla svona sandi úr höfninni á hverju ári, er eins og að pissa í skóinn, það er sjálfsagt ágætt á meðan hlandið er volgt en það kólnar og þá verður djöfullegt að vera í skónum.....


mbl.is Dýpkun gengur hægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EF FRAM HELDUR SEM HORFIR VERÐUR KOSTNAÐURINN VIÐ LANDEYJAHÖFN OG NÝJAN HERJÓLF ALDREI UNDIR 20 MILLJÖRÐUM

Eru menn virkilega tilbúnir til að henda þeim fjármunum í þessa sandhít???????


mbl.is Heildarkostnaður um 10 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓRAUNHÆFT AÐ LÁTA SIG JAFNVEL DREYMA UM AÐ ÞARNA GETI ORÐIÐ HEILSÁRSHÖFN

Jafnvel þótt það takist að MINNKA SANDBURÐINN VERULEGA inn í höfnina, sem ég efast stórlega um að takist því kostnaðurinn við þá framkvæmd yrði svo gífurlegur að ég stórefast um að væri réttlætanlegt.  Þá tæki við annað vandamál, sem er sjólagið við Suðurströndina og veðráttan.  Það er kominn tími til að þessi mistök verði opinberlega viðurkennd og farið verði í að finna VARANLEGA LAUSN Á SAMGÖNGUM MILLI LANDS OG EYJA.


mbl.is Vill að gerð verði óháð úttekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER ÞÓ EINN OG EINN MAÐUR SEM ÞORIR AÐ STÍGA FRAM OG SEGJA HLUTINA EINS OG ÞEIR ERU.....

Þetta er bara akkúrat eins og staða mála er og eins gott að menn fari bara að átta sig á því strax og fari að vinna að VARALEGRI LAUSN á samgöngum milli Lands og Eyja.  Það skilar ekki nokkrum sköpuðum hlut, nema skaða, að vera svona endalaust að pissa í skóinn............


mbl.is „Ný ferja er engin lausn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERIÐ AÐ GERA HÖFNINA "NOTHÆFA" FYRIR FYRIR SUMARIÐ

Hvað skyldi verða búið að eyða miklu í þessa hít þegar höfnin lokast alveg?


mbl.is Dæla upp sandi við Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER HELDUR EKKI SJÁLFGEFIÐ AÐ ÞAÐ VERÐI "FÆRT" Í LANDEYJAHÖFN

Svo það er vissara að hafa "plan B" tiltækt ef eitthvað þvíumlíkt myndi koma upp.


mbl.is Landeyjahöfn mikilvæg komi til rýmingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Í KARTÖFLUGARÐINUM HEIMA"........

...Söng Árni Johnsen af mikilli innlifun hérna um árið.  Ætli hann hafi grunað þá að hann væri að syngja (gaula) um DÝRASTA og FRÆGASTA kartöflugarð sögunnar, LANDEYJAHÖFN.  Hvenær ætli verði hægt að fara að setja niður kartöflur þarna?????


mbl.is Yfir 700.000 rúmmetra dýpkun í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband