AÐ SJÁLFSÖGÐU VELTUR LÍF ICELANDAIR Á AÐ BLEKKINGIN VIRKI!!!!!!

Ætla menn virkilega að fara að setja meiri peninga í þetta fyrirtæki, sem allir hljóta að sjá að er með öllu vonlaust að bjarga frá gjaldroti. Það er alveg með ólíkindum að það sé til umræðu í fullri alvöru í einhverjum lífeyrissjóðanna að AUKA VIÐ HLUTAFÉÐ Í ÞESSU FÉLAGI SEM Á SÉR EKKI NOKKRA EINUSTU VON UM AÐ HALDA VELLI Í ÞVÍ UMHVERFI SEM FLUGIÐ BÝR VIÐ Í DAG. ERU LÍFEYRISSJÓÐIRNIR EKKI BÚNIR AÐ TAPA NÓGUM FJÁRMUNUM Á ÞESSU FYRIRTÆKI, ÞARF AÐ LOSNA VIÐ MEIRA FJÁRMAGN, HVENÆR ER MÆLIRINN FULLUR? Félagið hefur ekki komið með neinar raunhæfar áætlanir um það hvernig eigi að starfa á næstunni, ekkert virðist vera gert til að lækka kostnaðinn NEMA AÐ RÝRA KJÖR ÞEIRRA SEM STARFA Í FLUGINU en það er bara eins og að setja plástur á svöðusár.  ÉG HEF ÁÐUR SAGT ÞAÐ OG ENDURTEK NÚNA: VANDAMÁL ICELANDAIR ER STJÓRN FÉLAGSINS OG STJÓRNENDUR.  Ríkið á alls ekki að HENDA meiru af almannafé í ÞESSA HÍT HELDUR Á AÐ LÁTA FYRIRTÆKIÐ FARA Í GJALDÞROT OG HAFA SVO HRAÐAR HENDUR OG STOFNA RÍKISFLUGFÉLAG Á RÚSTUNUM OG BYRJA FRÁ NÚLLI MEÐ NÝJA OG ÖFLUGA STJÓRNENDUR OG NÝJA STJÓRN.  Og að halda því fram að það verði að bjarga fyrirtækinu til að tryggja samgöngur við landið er bara bull og verið að FELA "raunverulegan" tilgang.........


mbl.is Allt er háð hlutafjárútboðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. ágúst 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband