VONANDI HEFUR ARNAR ÞÓR VIÐARSSON HORFT Á LEIKINN HJÁ STELPUNUM?

Það er kannski möguleiki á því að hann hafi eitthvað getað lært???  Annars má nú segja það Tékkunum til varnar (þeir voru sko engir "gúmmítékkar").  Þær voru aðallega óheppnar en það verður ekki tekið af stelpunum  okkar að þær spiluðu mjög vel og nýttu færin sín mjög vel.  Ég verð nú að segja að ég var svolítið ósáttur við það að Berg­lind Björg Þor­valds­dótt­ir skyldi ekki fá fyrsta mark Íslands skráð á sig,en eins og sagt er: "shit happens".  Stórleikur Söndru  í markinu varð til þess að Tékknesku stelpurnar skoruðu ekki.  Þetta var jafn og skemmtilegur leikur og reyndar gefa úrslitin ekki alveg rétta mynd af honum.  Hvar ætli stelpurnar okkar séu á FIFA-listanum?????????


mbl.is Íslenskur stórsigur í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband